Morgunblaðið - 30.12.1997, Side 1
80 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
296. TBL. 85. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reynt að afstyra fuglaflensufaraldri
Rúmri milljón
alifugla
Hong Kong. Reuters.
YFIRVÓLD í Hong Kong hófust í
gær handa við að drepa rúma millj-
ón kjúklinga og annarra alifugla til
að freista þess að útrýma veirunni,
sem veldur „fuglaflensunni"
svokölluðu, og afstýra því að sjúk-
dómurinn breiddist út.
Starfsmenn innanríkisráðuneyt-
isins fóru í 160 kjúklingabú, 39
blönduð alifuglabú og tvo heild-
sölumarkaði og byrjuðu að drepa
1,3 milljónir kjúklinga og óþekktan
fjölda anda, gæsa, dúfna og ann-
arra alifugla. Fuglamir voru settir
í stóra plastpoka, sem voru fylltir
af koltvísýringi. Dauðu fuglamir
vom síðan sótthreinsaðir og grafn-
ir í jörð.
Aður höfðu sölumenn á um þús-
und sölubásum matvælamarkaða
hafist handa við að drepa alifugla
undir eftirliti embættismanna frá
heilbrigðisráðuneytinu.
Stjórn Hong Kong ákvað á
sunnudag að slátra bæri fuglunum
til að hindra útbreiðslu
fuglaflensunnar, sem hefur kostað
slátrað
íjóra menn lífið. Vitað er með vissu
að níu til viðbótar hafa sýkst og
gmnur leikur á að sjö aðrir hafi
smitast af veimnni.
Alifuglakaupmenn mótmæltu
ákvörðun stjómarinnar og sögðu
hana valda sér miklum skaða.
Stjórnin í Hong Kong ákvað á að-
fangadag jóla að banna innflutning
á alifuglum frá meginlandi Kína
þar sem talið var að veiran kynni
að hafa borist þaðan.
Faraldur
ólíklegur
Sérfræðingar segja að svo virð-
ist sem veiran breiðist einkum út
þegar menn komist í snertingu við
sýkta fugla. Aiþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin (WHO) sagði í gær
að rannsóknir á fólki, sem um-
gekkst einn þeirra sem smituðust,
hefðu leitt í ljós að ólíklegt væri að
veiran gæti borist milli manna.
Sérfræðingur stofnunarinnar sagði
að ekkert benti til þess að hætta
væri á miklum faraldri.
Reuters
DANIEL arap Moi, forseti Kenýa (t.v.), mætir á kjörstað til að greiða
atkvæði í forsetakosningunum í gær.
Forseta- og þingkosningar í Kenýa
Asakanir um
kosningasvik
Nairobi, Sacho. Reuters.
FORSETA-, þing- og bæjarstjórn-
arkosningar hófust í Kenýa í gær og
forsetaefni stjórnarandstöðunnar
sökuðu stjórnarflokkinn um kosn-
ingasvik og hótuðu að viðurkenna
ekki úrslit kosninganna.
Loka átti kjörstöðum seinni hluta
dags en kjörstjórnin ákvað að fresta
lokun þeirra um einn sólarhring
vegna veðurs og samgönguerfiðleika
af völdum flóða. Forsetaefni stjórn-
arandstöðunnar lýstu þeirri ákvörð-
un sem tilraun af hálfu stjórnar-
flokksins til að hagræða úrslitum
kosninganna.
Daniel arap Moi forseti sækist
eftir endurkjöri fimmta kjörtímabil-
ið í röð en samkvæmt breytingum á
stjórnarskrá er þetta í síðasta sinn
sem hann getur boðið sig fram.
Talið er að Mwai Kibaki, fýrrver-
andi varaforseti, veiti Moi hvað
harðasta keppni. Kibaki, sem er auð-
ugur viðskiptajöfur, nýtur stuðnings
fjölmenns ættbálks, Kykuu, og varð
þriðji í forsetakosningunum árið
1992. Kenneth Matiba, leiðtogi ætt-
bálksins, sem þá varð í öðru sæti,
tekur ekki þátt í kosningunum nú.
Einnig er talið að Charity Ngilu,
leiðtogi sósíalistaflokksins SDP, geti
veitt forsetanum keppni.
Þurfa 25% atkvæða
15 frambjóðendur keppa um for-
setaembættið en til að ná kjöri í
fyrstu umferð þarf einhver þeirra að
fá a.m.k. 25% atkvæða í fimm af átta
kjördæmum landsins. Fái enginn
slíkt fylgi verður kosið á ný milli
tveggja efstu manna innan þriggja
vikna.
Reuters
OPINBERIR starfsmenn í Hong Kong safna saman alifuglum til slátr-
unar til að hindra útbreiðslu „fuglaflensunnar“ svokölluðu.
Innfædd-
um Svíum
fækkar
Stokkhólmi. Reuters.
INNFÆDDUM Svíum fækk-
aði á árinu sem er að líða í
fyrsta sinn í tæp 190 ár, að
sögn sænsku hagstofunnar í
gær.
Samkvæmt bráðabirgðatöl-
um hagstofunnar fæddust
91.000 börn í Svíþjóð í ár og
4.000 færri en árið áður.
94.000 Svíar dóu hins vegar og
þetta er í fyrsta sinn frá 1809
sem tala látinna er hærri en
fæðingartalan.
Giftingum
fækkar
íbúar Svíþjóðar eru nú 8,85
milljónir og þeim fjölgaði um
3.000, sem er minnsta fólks-
fjölgun í landinu í 14 ár. Svíar
tóku við 45.000 innflytjendum,
5.000 fleiri en árið áður, og
39.000 manns fluttu búferlum
úr landinu.
Að sögn hagstofunnar voi’u
giftingar færri en nokkru sinni
fyrr, eða 32.000, en fjöldi
hjónaskilnaða var óbreyttur
frá árinu áður, 21.000.
Reuters
LIÐSMENN UVF, skæruliðahreyfingar norður-frskra sambandssinna,
standa heiðursvörð við kistu fyrrverandi leiðtoga síns, Billys Wrights,
sem var myrtur á laugardag.
Manndráp á Norður-Irlandi
Friðarviðræð-
urnar í hættu
Beifast. Reuters.
Skattar
færeyskra
sjómanna
lækkaðir
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYSKA þingið hefur sam-
þykkt að létta skattaálögur á sjó-
mönnum, til að koma í veg fyrir að
þeir flytji búferlum til útlanda, þar
sem skattahlutfallið er hagstæð-
ara. Verður skattur á sjómenn
lækkaður um 15% í þessu skyni,
verkalýðsfélögum til sárrar
gremju.
Það var Anfinn Kallsberg, sem
fer með fjár- og efnahagsmál í fær-
eysku landstjórninni, sem lagði
skattalækkunina til. Var málið tek-
ið fyrir á lögþinginu um helgina og
þar kom fram að um áttatíu fær-
eyskir sjómenn hafa flutt frá
Færeyjum vegna hás skattahlut-
falls.
Þá var fullyrt á þinginu að íjöldi
sjómanna hugsaði sér til hreyfings
en þeir hafa m.a. flutt til Noregs.
Skattahlutfallið er rétt um 50% í
Færeyjum en fram kom í þinginu
að færeyskir sjómenn greiddu að-
eins um 22,5% skatt í Noregi.
Verkalýðsfélög
reið
Ákvörðun þingins hefur vakið
mikla reiði verkalýðsfélaga, að
stéttarfélagi sjómanna frátöldu.
Hafa um tuttugu félög sent frá sér
yfirlýsingu þar sem þau mótmæla
því að einni starfsstétt sé hyglað á
þennan hátt. Hafa verkalýðsfélögin
hvatt almenning til að greiða ekki
þeim þingmönnum atkvæði í kosn-
ingum, sem samþykktu skatta-
lækkunina til sjómannanna, en
kosið verður til lögþingsins á
næsta ári.
MO Mowlam, sem fer með málefni
Norður-írlands í bresku stjórninni,
efndi í gær til skyndifunda með lög-
reglustjórum og yfirmönnum norð-
ur-írskra fangelsa vegna tveggja
manndrápa um helgina sem hafa
stefnt friðarviðræðunum í Belfast í
hættu.
Mowlam kvaðst sannfærð um að
drápin yrðu ekki til þess að friðar-
viðræðurnar færu út um þúfur en
viðurkenndi að framundan væru
mjög erfiðir tímar á Norður-írlandi,
þar sem öfgamenn úr röðum mót-
mælenda og kaþólikka hafa virt
vopnahlé helstu skæruliðahreyfmg-
anna að vettugi.
Billy Wright, einn hættulegasti
hermdarverkamaður norður-írskra
sambandssinna, var skotinn til bana
í Maze-fangelsinu á laugardag og
nokkrum klukkustundum síðar
hefndi hreyfing hans, UVF, dráps-
ins með því að skjóta liðsmann
Irska lýðveldishersins, IRA, til
bana fyrir utan hótel í Belfast.
Þrír menn hafa verið ákærðir fyr-
ir morðið á Wright og voru leiddir
fyrir rétt í Lisburn, nálægt Belfast,
í gær. Þeir voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald og verða leiddir aft-
ur fyrir rétt 14. janúar.
INLA hætti ofbeldisverkunum
INLA, klofningshópur úr IRA,
lýsti morðinu á Wright á hendur
sér. Martin McGuinness, aðalsamn-
ingamaður Sinn Fein, stjórnmála-
flokks IRA, hvatti INLA til að láta
af ofbeldisverkunum og lýsa yfir
stuðningi við friðarviðræðurnar í
Belfast.