Morgunblaðið - 30.12.1997, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Viðskiptaverð
launin 1997
DV, STÖÐ 2 og Viðskiptablaðið
hafa sameinast um útnefningu
Viðskiptaverðlaunanna 1997. Út-
nefningamar em tvær, annars
vegar maður ársins í íslensku við-
skiptalífi og hins vegar fmmkvöð-
ull ársins í íslensku viðskiptalífi.
Finnbogi Jónsson, framkvæma-
stjóri Síldarvinnslunna hf., er
maður ársins í íslensku viðskipta-
lífi. Á síðustu 12 ámm hefur Síld-
arvinnslan tíu sinnum verið rekin
með hagnaði. Árið 1996 var besta
ár félagsins og Ijóst er að yfir-
standandi ár verður félaginu
einnig hagstætt.
Skúli Þorvaldsson, eigandi
Hótel Holts, er frumkvöðull
ársins í íslensku viðskiptalífi.
Skúli Þorvaldsson hefur leitt
íslenska fjárfesta sem keypt hafa
umtalsverðan hlut í bandarísku
fiskréttakeðjunni Arthur
Treacher’s Inc. og mynda meiri-
hiuta ásamt bandarískum fjár-
festum. Nýlega var jafnframt
gengið frá viljayfirlýsingu um
kaup á sjávarréttakeðjunni
Seattle Crab Company, sem
rekur 88 skyndibitastaði með
sjávarrétti í norðvesturhluta
Bandaríkjanna undir heitinu
Skiptter’s. Þar með ræður Arthur
Treacher’s yfir meira en 200
veitingastöðum í Bandaríkjunum.
Verðlaunin voru afhent þeim
Finnboga og Skúla á Hótel Holti
sl. laugardag.
Fransk-íslenska verslunarráðið
Starfsemi sam-
hæfð og stjórn-
ir sameinaðar
BRYNJÓLFUR Helgason var kjör-
inn formaður Fransk-íslenska versl-
unarráðsins á aðalfundi þess, sem
haldinn var hinn 4. desember síðast-
iiðinn. Á fundinum var samþykkt
að vinna að breytingum á ráðinu,
þannig að það starfi í einu lagi og
hafi eina stjórn í stað tveggja nú.
Auk Brynjólfs voru eftirtaldir
kjömir í stjóm ráðsins: Pétur J. Ei-
ríksson, Jón Sigurðsson, Pétur Ein-
arsson, Rósa Matthiasdóttir, Jón
Páll Haraldsson og Pétur Haralds-
son. Að auki starfar Dominique
Pledel Jónsson, viðskiptafulltrúi
franska sendiráðsins, með stjóminni.
í fréttatilkynningu frá Fransk-
íslenska verslunarráðinu segir að á
síðasta starfsári hafi borið hæst
heimsókn íslenskra viðskiptaaðila
til Frakklands og viðskiptakvöld-
verð, sem haldinn var í samvinnu
við íslenska sendiráðið í París. Alls
tóku 130 manns þátt í kvöldverðin-
um og var meirihluti þeirra fransk-
ir viðskiptavinir íslenskra fyrir-
tækja.
Á aðalfundinum flutti franski
sendiherrann á íslandi, Robert Can-
toni, ávarp en einnig fjallaði Bald-
vin Bjöm Haraldsson hdl. um gild-
andi lög og varnarþing í opinberum
viðskiptum. Jafnframt var sam-
þykkt að vinna að þeirri formbreyt-
ingu að Fransk-íslenska verslunar-
ráðið starfaði í einu lagi og hefði
eina stjórn í stað þess að vinna í
tveimur deildum hvorri í sínu land-
inu, eins og verið hefur frá því það
tók til starfa árið 1990.
Óskað eft-
ir tilboð-
um í hús-
næðisbréf
HÚSNÆÐISSTOFNUN hefur
óskað eftir tilboðum verð-
bréfafyrirtækja í sölu á hús-
næðisbréfum í 1. og 2. flokki
1996 að íjárhæð 1,5 milljarðar
króna að söluverðmæti. Til-
boðum á að skila þann 29.
desember næstkomandi og
verður þeim svarað þann 30.
desember. Sala bréfanna mun
síðan hefjast mánudaginn 5.
janúar 1998.
Áætluð fjáröflun Bygging-
arsjóðs verkamanna á árinu
1998, sem mætt verður með
sölu á húsnæðisbréfum, er
4.880 milljónir króna. Á árun-
um 1996 og 1997 voru gefin
út húsnæðisbréf í þessum
tveimur flokkum að söluverð-
mæti tæplega 10,2 milljarðar
króna eða sem nemur röskum
14 milljörðum króna að nafn-
verði.
Samtök iðnaðarins gagnrýna Nýsköpunarsjóð
Sjóðinn á ekki að byggja upp
Menn ársins í
viðskiptalífinu
að bandarískri fyrirmynd
FEÐGARNIR Jóhannes Jónsson
og Jón Ásgeir Jóhannesson hjá
verslunarkeðjunni Bónusi voru
útnefndir menn ársins 1997 í við-
skiptalífinu af tímaritinu Fijálsri
verslun. Val tímaritsins byggðist
m.a. á því að þeir feðgar hefðu
boðið upp á nýja tegund afslátt-
arverslana sem hefðu á undan-
förnum árum laðað að sér tugþús-
Hlutabréfaviðskipti blómstruðu
hjá verðbréfafyrirtækjum í gær enda
líður nú að áramótum og komin síð-
ustu forvöð fyrir einstaklinga að
fjárfesta í hlutabréfum til að tryggja
sér skattaafslátt. Sala hlutabréfa í
desember virðist ætla að verða
nokkru minni en í sama mánuði í
fyrra en minni sölu má rekja til
mikilla hlutabréfakaupa almennings
fyrr á árinu. Einstaklingar virðast
sem fyrr setja traust sitt á hluta-
bréfasjóði.
Kaupi einstaklingur hlutabréf í
atvinnufyrirtækjum fyrir 130 þús-
und krónur fær hann 60% frádrátt
af þeirri upphæð eða 78 þúsund
krónur dregnar frá tekjuskattstofni.
Frádráttur frá tekjuskatti nemur því
tæpum 32 þúsund krónum ef ein-
staklingurinn á hlutabréfin eða sam-
bærileg bréf í þijú ár. Samkvæmt
reglum frá fjáfmálaráðuneytinu er
verið að lækka afsláttinn í áföngum
og verður hann 60% um þessi ára-
mót, 40% á næsta ári og 20% árið
undir viðskiptavina og verið leið-
andi í því að halda vöruverði niðri.
Verslunarkeðjan var stofnuð árið
1989 og nam veltan á árinu 1990
um 1,2 milljörðum, en verður um
6 milljarðar á þessu ári.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra aflienti þeim Jóhannesi og
Jóni Ásgeiri viðurkenningarslyöl
í hófi á Hótel Sögu sl. sunnudag
1999. Að því loknu fellur afsláttur-
inn niður.
Hilmar Þór Kristinsson, sjóðstjóri
hjá Kaupþingi, segir að þrátt fyrir
að afslátturinn Iækki nú milli ára
sé áhugi almennings lítt minni til
að nýta sér hann en í fyrra. „Örtröð-
in er svipuð en helsta breytingin
virðist vera sú að fólk kaupir hluta-
bréf fyrir lægri upphæðir en í fyrra.
Þá komu margir og íjárfestu eins
mikið í hlutabréfum og þeir gátu og
veðsettu jafnvel húsin sín. Nú hafa
menn almennt ekki jafnmikla trú á
hækkunum og láta sér nægja að fjár-
festa fyrir skattaskammtinn, 130
SAMTÖK iðnaðarins hafa lýst yfir
andstöðu við þau áform sem uppi
eru um að Nýsköpunarsjóður muni
gegna hlutverki sínu með hlutafjár-
þátttöku í fyrirtækjum. Telja sam-
tökin að sjóðinn eigi ekki að byggja
upp að bandarískri fyrirmynd því
það muni þjóna illa örsmáum ís-
lenskum fyrirtækjum. Þetta kemur
fram í nýju fréttabréfi sjóðsins.
Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
bendir á í ritstjórnargrein að sam-
kvæmt drögum að reglugerð sé
sjóðnum ætlað að starfa á þeim
sviðum þar sem bæta þurfí þjón-
ustu og framboð áhættufjármagns
að mati sjóðsstjórnar og að starfs-
svið sjóðsins skuli á hveijum tíma
skilgreina með hliðsjón af framboði
áhættufjármagns á mismunandi
sviðum áhættufjármögnunar.
„Þessi grein segir í raun allt sem
segja þarf, en því miður er hún
gerð marklítil með öðrum ákvæðum
reglugerðarinnar, því þar er hlut-
verk sjóðsins þrengt mjög með því
að segja að hlutverki sínu muni
sjóðurinn einkum gegna með hluta-
fjárþátttöku. Á þessu er síðan
hnykkt með því að negla niður að
þúsund krónur. Það er greinilegt að
margir hafa nýtt sér útboð í fyrir-
tækjum eins og Fóðurblöndunni og
Samheija til að ganga frá kaupunum
fyrr á árinu. Það er mesta furða hve
hlutabréfaviðskipti eru mikil fyrir
þessi áramót í ljósi mikilla viðskipta
fyrr á árinu. Viðskipti með hlutabréf
á Verðbréfaþingi íslands námu 12,3
milljörðum fyrstu ellefu mánuði
þessa árs en allt árið í fyrra námu
þau einungis 5,8 milljörðum.”
Hilmar segir að flestir velji að
kaupa í hlutabréfasjóðum, ekki síst
vegna auðseljanleika bréfanna og til
að dreifa áhættunni. „Af þessum
styrkveitingar til forathugana, þró-
unar- og kynningarverkefna megi
að hámarki nema 15% af árlegu
ráðstöfunarfé sjóðsins. Hér stang-
ast hvað á annars horn.“
Vantað hefur áhugaverð
verkefni
Það kemur fram hjá Sveini að
innan Samtaka iðnaðarins séu þær
raddir háværar sem telji að aukið
framboð fjármagns til hlutabréfa-
kaupa sé ekki það sem mest þörf
sé fyrir. Á þessum markaði hafi
verið starfandi fyrirtæki á borð við
Þróunarfélag íslands, Eignarhalds-
félag Alþýðubankans og hin síðari
ár einnig Iðnþróunarsjóður. „Vandi
þessara fyrirtækja hefur ekki verið
fjárskortur heldur hefur vantað
áhugaverð verkefni og getu til þess
að meta þau. Áhættufjármagns-
fyrirtækin íslensku eru örsmá. Af-
leiðingin blasir við: Þessi fyrirtæki
hafa dregið úr fjárfestingum sínum
í nýjum og áhættusömum fyrir-
tækjum, en beina fjárfestingum
sínum í kaup á hlutabréfum í starf-
andi fyrirtækjum, helst þeim sem
skráð eru á Verðbréfaþingi. Til-
gangurinn með stofnun Nýsköpun-
ástæðum tei ég hlutabréfasjóði vera
góðan kost fyrir þá sem eru aðeins
að fjárfesta fyrir skattaskammtinn,"
segir Hilmar.
Nýir viðskiptavinir áberandi
Jóhanna Ágústa Sigurðardóttir,
markaðsstjóri Verðbréfamarkaðar
íslandsbanka, segir að salan gangi
mjög vel fyrir áramótin. „Salan er
allt að því jafn góð og í desember í
fyrra sem kemur okkur mjög á óvart.
Satt að segja bjuggumst við ekki
við svo mikilli sölu í desember í ljósi
mikillar sölu fyrr á árinu. Fólk virð-
ist hafa meira fé á milli handanna
en í fyrra og nýir viðskiptavinir eru
áberandi. Mér sýnist að salan geti
orðið um 70% af sölu desembermán-
uðar í fyrra. í mánuðinum höfum
við t.d. selt fyrir um 170 milljónir í
Hlutabréfasjóðnum hf.
Jóhanna býst við mikilli örtröð í
dag og á morgun en þá er síðasta
tækifæri til að kaupa fyrir skatta-
skammtinn.
arsjóðs var ekki sá að feta í fót-
spor þessara fyrirtækja eða troða
þeim um tær.“
------♦---------
Seðlahank-
inn með
heimasíðu
á alnetinu
SEÐLABANKI íslands hefur opnað
heimasíðu á alnetinu og er slóðin
http://www.sedlabanki.is. Á síð-
unni verða helstu fréttir hveiju sinni
frá Seðlabankanum ásamt upplýs-
ingum af ýmsu tagi um starfsemi
bankans og íslenskan fjármagns-
markað. í frétt frá bankanum segir
að hann vilji nýta þessa nýju tækni
til að sinna upplýsingaskyldu sinni
og veita þeim fjölmörgu einstakl-
ingum, fyrirtækjum og stofnunum,
sem hafa aðgang að netinu, mögu-
leika á að afla sér upplýsinga um
bankann og starfsemi hans.
Heimasíðan er þannig upp byggð
að á forsíðu er tilvísun í undirkafla
ásamt tengingu fyrir nýjustu fréttir
hveiju sinni. Hægt er að senda
tölvuskeyti til bankans og tengjast
enskum hluta síðunnar. Undirkaflar
fjalla nánar um Seðlabankann, um
fréttir og ræður, útgáfur bankans
og annál peningamála. Þá má þar
finna ýtarlegar tölulegar upplýs-
ingar um gengi, vexti og ýmislegt
annað sem tengist peningamálum.
Reglulegar viðbætur
Síðan sem nú birtist er ekki full-
mótuð og er ætlunin að hún verði
í stöðugri umsköpun. Leitast verður
við að bæta reglulega nýjum upp-
lýsingum á síðuna, auk þess sem
hún getur smám saman tekið viss-
um breytingum. Meðal annars er
ráðgert að bæta við síðum með regl-
um sem Seðlabankinn setur og
varða starfsemi fjármálastofnana.
Seðlabankinn hvetur lesendur
heimasíðunnar til að koma ábend-
ingum um hana á framfæri en
þannig á hún að geta tekið framför-
um á grundvelli reynslu starfs-
manna bankans og óska lesenda.
Ritstjóri heimasíðunnar er Stefán
Jóhann Stefánsson.
• •
Ortröð hjá verðbréfafyrirtækjum í gær vegna hlutabréfakaupa einstaklinga
Mest ásókn í
hlutabréfasjóði