Morgunblaðið - 30.12.1997, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLADIÐ
Vitni vantar
^ÍJKIÐ var á kyrrstæðan bíl við
Fjarðarvídeó við Lækjargötu 30 í
Hafnarfirði um klukkan 23.30 á
laugardagskvöld. Þeir sem kynnu
að hafa orðið vitni að árekstrinum
eru beðnir að láta lögregluna í
Hafnarfirði vita.
Eigandi bílsins sem ekið var á,
sem er rauður Nissan Almera ár-
gerð 1996 með skráningamúmer-
inu BI 806, hafði skroppið inn á
myndbandaleiguna og dvalið þar í
15-20 mínútur. Þegar hann kom
út um kl. 23.30 voru allmiklar
SBkemmdir á vinstra frambretti og
vélarloki bflsins og framlukt brot-
in. Sagði lögreglan ekki fara milli
mála að sá sem tjóninu olli hefði
orðið var við áreksturinn. Talið er
hugsanlegt að jeppi sé tjónvaldur-
inn.
--------------
Dagatal MS
komið út
DAGATAL Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík fyrir árið 1998 er komið
út. Eins og undanfarin ár er við-
•í'angsefnið sótt í íslenskuátak
Mjólkursamsölunnar.
Kristín Þorkelsdóttir, myndlist-
arkona, myndskreytti dagatalið
sem er dreift til viðskiptavina
Mjólkursamsölunnar og í skóla
landsins.
--------------
Tónleikar í
♦ Rósenberg
SVISSNESKA hljómsveitin Grace
og Stjörnukisi halda tónleika í
kvöld, þriðjudagskvöld, og hefjast
þeir kl. 22.
Dagbók lögregiu yfir jólin
Tekinn á 153 km hraða
á Suðurlandsvegi
TÖLUVERT annríki var hjá lög-
reglu um jólahátíðina. Mörg
verka lögreglu eru hefðbundin og
ganga almennt vel fyrir sig. Með-
al þeirra má nefna umferðar-
stjórnun og aðstoð við vegfarend-
ur sem leggja leið sína í kirkju-
garða borgarinnar. Þá voru það á
fjórða hundrað yngstu nemenda
grunnskóla sem fengu heimsókn
lögreglu er þeim voru afhent
verðlaun í jólagetraun lögreglu og
Umferðarráðs.
Umferðarmálefni
Síðan á Þorláksmessu hefur
lögreglu verið tilkynnt um 57 um-
ferðaróhöpp. Ekki voru allir öku-
menn tilbúnir til að aka bifreiðum
sínum á lögbundnum hraða um
helgina. Einn ökumaður var
stöðvaður eftir að hafa verið
mældur á 153 km hraða á Suður-
landsvegi. Ökumaðurinn var flutt-
ur á lögreglustöðina og sviptur
ökuréttindum.
A Þorláksmessu varð árekstur
á Snorrabraut við Bergþórugötu.
Þar rákust saman bifreið og bif-
hjól og varð að flytja ökumann
bifhjólsins á slysadeild til að-
hlynningar. Að morgni laugar-
dags var ökutæki ekið á ljósa-
staur á Sæbraut við Laugarnes-
veg. Ökumaðurinn ók brott af
vettvangi en var stöðvaður
skömmu síðar í Kópavogi. Hann
er grunaður um að hafa ekið bif-
reið sinni undir áhrifum áfengis.
Skömmu síðar valt önnur bif-
reið á sama stað vegna mikillar
hálku. Ökumanni og þremur far-
þegum var ekið á slysadeild, einn
farþegi hafði fengið glerbrot í
auga og annar kenndi til í höfði.
Fjarlægja varð ökutæki með
kranabifreið. Um klukkan 6 að
morgni laugardags var síðan
þriðju bifreiðinni ekið á ljósastaur
og grindverk á svipuðum slóðum.
Ökumaður var fluttur á slysadeild
með sjúkrabifreið en fjarlægja
varð ökutækið af vettvangi með
kranabifreið.
Fíkniefnamál
Ungt par var handtekið á Þor-
láksmessu og fundust í fórum
þeiira ætluð fíkniefni og þýfi. Þá
var rúmlega fimmtug kona hand-
tekin á heimili sínu í Þingholtum
eftir að fíkniefni fundust þar.
Innbrot
Brotist var inn í verslun í Stór-
holti að morgni aðfangadags. Það-
an var stolið talsverðu magni
vindlinga og skiptimynnt. Þá var
einnig farið inn í verslun við Aust-
urbrún og þaðan stolið skiptimynt
í peningakassa.
Brunar
Nokkur hefur verið um minni-
háttar bruna. Unglingahópar hafa
unnið skemmdir á póstkössum og
kveikt eld í blaðagámum svo
dæmi séu tekin. A þessum tíma
ber oft nokkuð á slíkum skemmd-
arverkum og fylgir það oft einnig
sprenging skotelda af ýmsum
gerðum. Rétt er að ítreka við
söluaðila skotelda að virða aldurs-
takmörk sem eru í gildi vegna
slíkrar sölu en öll sala flugelda er
bönnuð yngri en 12 ára og tak-
markanir settar á sölu til einstak-
linga yngri en 16 ára.
Líkamsmeiðingar
Á sunnudag kom aðili á veit-
ingastað í miðborginni og leitaði
ásjár vegna áverka sem honum
hafði verið veittir. Maðurinn var
fluttur á slysadeild en ljóst er
hver árásarmaðurinn er.
Annað
Tveir unglingar 16 og 17 ára
voru handteknir eftir að þeir
höfðu brotið rúðu í verslanamið-
stöð í Hraunbæ á sunnudag. Þeir
stálu síðan snyrtivöram sem vora
í útstillingu. Piltamir hlupu á
braut en lögreglumenn hlupu þá
uppi. Lögreglumenn á eftirlits-
ferð veittu athygli bifreið sem ek-
ið var á Hringbraut við Snorra-
braut og hugðust kanna ástand
ökumanns. Ökumaðurinn sinnti
ekki stöðvunarmerki lögreglu fyrr
en seint og illa og er hann loksins
stöðvaði ökutæki sitt gerði hann
tilraun til að hlaupa af vettvangi.
Auðveldlega gekk hjá lögreglu-
mönnum að hlaupa hann uppi
vegna ölvunar ökumannsins.
LEIÐRÉTT
Niðurlag tónlistardóms
féll niður
í UMFJÖLLUN Jóns Ásgeirs-
sonar um Kammertónleika í Dóm-
kirkjunni sunnudaginn 28. desem-
ber, féll niðurlag greinarinnar nið-
ur í meðförum blaðsins. Um leið og
við birtum niðurlagið aftur er
beðist velvirðingar á þessum mis-
tökum.
„Lokaverkið var píanókvintett-
inn K. 452, fyrir óbó, klarinett, horn
og fagott. Miklos Dalmay lék í pí-
anóið og homistinn var Emil Frið-
finnson. Það er skemmst frá því að
segja, að þetta meistaraverk var
einstaklega vel flutt og aftur rétt að
ítreka það, að Camerarctica hópur-
inn er að ná fullt vald á sérlega fág-
uðu samspili, enda allir frábærlega
efnilegt tónlistarfólk og ekki
ástæða til að nefna einhvern sér-
stakan. Þetta vora góðir Mozart
tónleikar og vert að gaumgæfa vel,
þegar þessi hópur lætur heyra í sér
næst.“
Röng beyging
I minningargi'ein Rúnars Helga
Vignissonar um Jón B. Jónsson í
blaðinu sl. sunnudag aflagaðist ein
málsgrein í meðfóram blaðsins.
Hún átti að vera svona: „Því þó að
afi hafi einmitt verið maður hvers-
dagsfatanna setti hann svip á um-
hverfí sitt, bæði með orðum og at-
höfnum, og hafði á sinn hátt áhrif á
daglegt líf hundraða manna og hef-
ur enn.“ Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á mistökunum.
Kvæði til skattstjóra
LJÓÐIÐ „Til ríkisskattstjóra" var
birt í Bréfum til blaðsins á aðfanga-
dag. Höfundur ljóðsins, Stefán
Jónsson frá Sjónarhóli, hafði sam-
band við blaðið og bað um að því
væri komið á framfæri að hann
hefði ekki sent þetta ljóð til blaðs-
ins, heldur var það gert án hans vit-
neskju.
ornsagnagetraun
Fornsagnagetraun Morgunblaðsins birtist
í blaðinu 31. desember. Getraunin
byggist á spurningum úr köflum og
kvæðum íslenskra fornbókmennta.
Veitt verða þrenn verðlaun:
#
*
Brennunjálssaga
Halldór Laxness
annaðist útgáfuna.
Utgefandi er Vaka-Helgafell.
Rætur málsins
eftir Jón G. Friðjónsson.
Útgefandi er íslenska
bókaútgáfan.
Konrad Maurer
íslandsferö 1858
í þýðingu Baldurs Hafstað.
Útgefandi er Ferðafélag
íslands.
Úrlausnir þurfa að berast
Morgunblaðinu fyrir kl. 16.00
mánudaginn 19. janúar.
Ptfi&p r<' pí wlft lc,Pui0^^
! ‘ a SVttriér ’Vtm
í Æ ^ <»>f t ,1», f Þti'J LX **
, ’ f 1» * ii1 f S
/*m'tt Vtua fc mu t Vý tráte 'ð:7? ‘fy' -
■a‘;r «f- „cr wæ). *>>* a
■'MdH
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024
lU uiðskiptanuuina
banka dq sparisjpða
Lokun 2. janúar og eindagar víxia
Afgreiðslur banka og sparisjóða
*
| verða lokaðar föstudaginn
2. janúar 1 998.
Leiðbeiningar um eindaga
víxla um jól og óramót
liggja frammi í afgreiðslum.
Reykjavík, desember 1997
Samvinnunefnd banka og sparisjóða