Morgunblaðið - 30.12.1997, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aðalfundur Germaníu
Hætt við lokun
Goethe-stofnunar?
Á AÐALFUNDI þýsk íslenska
menningarfélagsins Germaníu, sem
haldinn var fyrr í þessum mánuði,
kom fram að lífleg starfsemi var á
árinu sem er að líða. Á aðalfundin-
um kom fram hörð viðbrögð við
þeirri ákvörðun þýskra stjórnvalda
að loka Goethe-stofnuninni á ís-
landi. Allt frá því að kunngert var
í september að Goethe-stofnuninni
hér á landi yrði lokað hefur félagið
komið þeirri skoðun á sinni á fram-
færi með ýmsum hætti að þessi
ákvörðun hefði neikvæð áhrif á
samskipti landanna.
Sjónarmiðum Germaníu hefur
verið komið á framfæri við aðal-
stöðvar Goethe-stofnunarinnar í
Þýskalandi, utanríkismálanefnd
þingsins í Bonn, utanríkisráðuneyt-
ið í Þýskalandi sem og fleiri aðila.
Germanía hefur notið velvildar
íslenskra vinafélaga í Þýskalandi
sem einnig hafa þrýst á þýsk stjóm-
völd með ýmsum hætti. Nefna má
sérstaklega dr. Max Adenauer,
fyrrum borgarstjóra í Köln og for-
mann þýsk íslenska félagsins þar í
borg.
Þorvarður Alfonsson lét af for-
mannsstörfum á aðalfundinum eftir
14 ára setu sem formaður. í máli
hans kom fram að þau svör sem
félaginu hefðu borist vegna lokunar
Goethe-stofnunarinnar bentu til
þess að horfur væru á því að hætt
verði við lokunina.
Félagið stóð fyrir og átti þátt í
ýmsum menningarviðburðum. Fé-
lagið veitti íslenska dansflokknum
fjárhagslegan stuðning til þess að
setja á svið tvö nútíma ballettverk.
Germanía gekkst fyrir tveimur tón-
leikum í samstarfí við önnur menn-
ingarfélög. Á öðrum þeirra söng
Elsa Waage kontraalt við undirleik
Mzia Bachturzie píanóleikara. Á
hinum tónleikunum söng Andreas
Schmidt baritonsöngvari við undir-
leik Helmut Deutsch píanóleikara.
Gerhard Stoltenberg, fyrrum ut-
anríkis- og fjármálaráðherra Þýska-
lands; þáði boð félagsins og heim-
sótti Island dagana 3.-6. september.
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 53
DAGSBRÚN OG FRAMSÓKN
STÉTTARFÉLAG
verkamannafélagíD Dagsbrún og verkakvennaféiagiD Framsðkn
veröa
Dagsbrún&iFramsókn
-stétlarfélag
Frá og með 1. janúar 1998 hætta félögin Verkamannafélagið Dagsbrún
og Verkakvennafélagið Framsókn starfsemi sinni.
Nýtt sameiginlegt stéttarfélag sem ber heitið Dagsbrún og Framsókn - stéttarfélag
tekur til starfa frá sama tíma.
Heimilisfang nýja stéttarfélagsins er:
Dagsbrún og Framsókn - stéttarfélag
Skipholti 50d
105 Reyjavík
Aðalsímanúmer: 56111 00
Faxnúmer: 561 68 68
Frá sama tíma lokar skrifstofa Verkakvennafélagsins Framsóknar að Skipholti 50a.
Hið nýja stéttarfélag tekur við öllum skyldum og réttindum Dagsbrúnar og Framsóknar.
Við viljum nota þetta tækifæri til að þakka öllum samskiptaaðilum gott samstarf
við Verkamannafélagið Dagsbrún og Verkakvennafélagið Framsókn og setja fram
þá ósk um leið að samskiptin við nýja stéttarfélagið verði farsælt.
Dagsbrún og Framsókn - stéttarfélag
JHétgtiiiMRbíibí
- kjarni málsins!
IR-I/
JEPPI
FYRIR ÞÁ
SEM VILJA
NÁ LENGRA
Verð frá
2.1 9 0.0 0 0,-
GUNNAR BERNHARD EHF.
VATNAGARÐAR24
SÍMI: 520 1100