Morgunblaðið - 30.12.1997, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Utgerðarmenn nótaskipanna Gullbergs VE og Svans RE
Undirrita vilj ay fírlýsingii
um smíði fískiskipa í Kína
UNDIRRITADAR hafa verið vilja-
yfírlýsingar milli tveggja íslenskra
útgerða og Guangzhou Huangpu
skipasmíðastöðvarinnar í Kína um
smíði fullkominna nóta- og tog-
skipa. Á næstu mánuðum verður
unnið að lokahönnun og fjármögnun
skipanna.
Utgerðarmenn nótaskipanna
Gullbergs VE og Svans RE undir-
rituðu viljayfirlýsingamar, ásamt
forsvarsmönnum kínversku skipa-
smíðastöðvarinnar nú fyrir hátíð-
amar. Kínverjarnir hafa gert út-
gerðunum fast tilboð í smíði 60
metra langs nóta- og togskips með
öflugum vél- og tækjabúnaði sem
hljóðar upp á 665 milljónir króna.
Reynir Amgrímsson, framkvæmda-
stjóri IceMac-Fiskvinnsluvéla hf.,
umboðsaðila skipasmíðastöðvarinn-
ar hér á landi, segir að með smíði
tveggja skipa náist fram hagræðing
í véla- og hönnunarkostnaði og þar
af leiðandi lægra verði. Hann segir
að verði samið um smíði þriðja
skipsins lækki verðið jafnvel meira.
„Þannig er hægt að ná enn hag-
stæðari kjömm, til dæmis með út-
boðum í vélar og fiskleitartæki,“
segir Reynir.
Möguleikar á frystingu um borð
Eftir undirritun viljayfirlýsing-
anna tekur við frekari hönnunar-
vinna og leit að hagstæðustu fjár-
mögnunartilboðum að sögn Reynis.
Að ýmsu sé að huga og ef allt gangi
eftir sé stefnt að undirritun smíða-
samninga eftir 3 til 6 mánuði. „Það
þarf að samhæfa hönnun skipanna
eftir óskum og þörfum útgerðanna,
enda bjóða skipin upp á ótal mögu-
leika. Þar eru menn einkum að
horfa á talsverða vinnslugetu á upp-
sjávarfiskum um borð í skipunum,
meðal annars síldar- og loðnufryst-
ingu. Skipin eru búin kælitönkum
sem gera þeim kleift að varðveita
hráefnið betur og lengur og auka
þannig verðmætið til muna.“
Reynir segist hafa orðið var við
mikinn áhuga hjá íslenskum útgerð-
armönnum undanfarnar vikur.
„Fulltrúar útgerðanna beggja sem
undirritað hafa viljayfirlýsingar um
smíði þessara skipa fóru í kynnis-
ferð til Kína sem farin var síðastlið-
ið haust. Þessi kostur hefur vakið
athygli enn fleiri útgerðarmanna
hérlendis, enda gera sér flestir ljóst
að nótaskipafloti landsmanna þarf
endurnýjunar við. Menn hafá hins
vegar ekki treyst sér í slíkar fjár-
festingar en nú bjóðast mönnum
skip á allt að 400 milljónum króna
lægra verði en áður hefur þekkst.
Áhuginn hefur verið slíkur að nú er
svo komið að við ráðgerum að
skipuleggja aðra slíka ferð í lok jan-
úar,“ segir Reynir.
Fiskhaus-
ar þurrk-
aðir á
Stokkseyri
Stokkseyri.
NÝTT útflutningsfyrirtæki,
Mír hf., hefur hafið starfsemi á
Stokkseyri og verður fram-
leiðsla þess þurrkaðir fisk-
hausar og hugsanlega einnig
hryggir og loðna. Að sögn Jens
Valdimarssonar, aðaleiganda
Mírs, er ráðgert að þurrka
1.000 til 1.500 tonn af fiskhaus-
um árlega og hefur fyrirtækið
fest kaup á 500 fermetra iðn-
aðarhúsnæði.
Lokið hefur verið við að
setja upp og prufukeyra
þurrkunarkerfið, en við þurrk-
unina er notaður jarðhiti frá
Selfossveitum. Eru þurrkklef-
arnir fimm og fer forþurrkun
fram í fjórum og eftirþurrkun í
einum. 'Nokkur samkeppni er
um fiskhausana, en Jens sagði,
að fyrirtækið fengi þá af svæð-
inu í kringum Stokkseyri, af
höfuðborgarsvæðinu og frá
Vestfjörðum.
Góðar markaðshorfur
Jens sagði, að horfumar á
Nígeríumarkaði væru ágætar
og virtist sem markaðurinn
væri stöðugur og ekki um of-
framboð að ræða. Sagði hann,
að sumir teldu þessa fisk-
hausaþurrkun einhverja þriðja
flokks atvinnugrein, en í raun
væri þetta ekki síðri matvæla-
framleiðsla en önnur fiskverk-
un. Kvað hann líklegt, að
starfsmennimir hjá Mír yrðu
sex til átta talsins.
Mír hf. er dótturfyrirtæki
ísbús í Reykjavík og sagði
Jens, að hann hefði kosið að
hafa þennan háttinn á til að
fleiri gætu komið að þessu síð-
ar ef allt gengi samkvæmt
áætlun.
Fiskafiinn um
116 millj. tonn
HEIMSAFLINN á árinu 1996
var tæplega 116 milljónir
tonna eða 2,7 milljónum tonna
meiri en 1995. Kemur þetta
fram í skýrslu frá FAO, Land-
búnaðar- og matvælastofnun
Sameinuðu þjóðanna, en þar
segir, að aukningin stafi aðal-
lega af meiri framleiðslu í
Klna.
Að Kína undanskildu eru
helstu fiskveiðiríkin þessi:
Perú með 9,5 millj. tonna;
Chile 6,9 millj.; Japan 6,6;
Bandaríkin 5,9; Indland 5,9 og
Indónesía 4,2 millj. tonna. Afli
allra annarra ríkja var samtals
45,6 millj. tonna.
Fiskframleiðslan í Kína var
hvorki meiri né minni en 27,3
millj. tonna 1996 og meira en
helmingurinn var í fiskeldinu.
1994 var framleiðslan í Kína
24,4 millj. tonna.
Rækjuframleiðslan á síðasta
ári var um þrjár milljónir
tonna en hlutur eldisrækjunn-
ar í henni minnkaði nokkuð
vegna sjúkdóma. í FAO-
skýrslunni segir, að 1996 hafi
einkennst af offramboði af
kaldsjávarrækju og verðlækk-
un í kjölfarið og er aðallega um
kennt auknum veiðum ís-
lenskra skipa á Flæmingja-
grunni. Enn eru til allnokkrar
birgðir af soðinni og pillaðri
kaldsjávarrækju og því ekki
útlit fyrir umtalsverða verð-
hækkun á næstunni.
Veiðar á bolfiski og flatfiski
hafa minnkað um helming á 10
árum og virðast flestir stofnar
vera fullnýttir eða ofnýttir.
Svo er einnig með flesta tún-
fiskstofna.
INGIMUNDUR Ingimundarson, útgerðarmaður Svans RE, og fulltrúi Guangzhou Huangpu
skipasmfðastöðvarinnar í Kína við undirritun viljayfirlýsingarinnar.
Langstærstur og
jjölmennastur
Hlutabréfasjóðurinn hf á hlut í yfir 45 fyrirtækjim,
þar á meðal mörgum stærstu fyrirtækjum íslands.
Sjóðurinn fjárfestir Itka í innlendum skuldabréfum og
erlendum verðbréfum til að auka stöðugleika ávöxtunar.
Hjón sem
keyptu hlutabréf fyrir
270.000 krónur i Hlutabrefa-
sjóðnum til að tryggja skatt-
frádrátt á árinu 1986, eiga
nú hlutabréf að verðmæti
um 2,2 milljónir króna.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Kirkjusandi. Sími 560-8900, 800-4-800. Myndsendir: 560-8910.