Morgunblaðið - 30.12.1997, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 63
HREKKJALOMAFELAGIÐ í
Vestmannaeyjum hélt hið ár-
lega Skötukvöld sitt fyrir
skömmu. Vinsældir Skötu-
kvöldsins hafa farið vaxandi
með hverju árinu og fer gest-
um sífellt fjölgandi. Að þessu
sinni var það haldið á veitinga-
luisinu Hertoganum og var
matseldin í höndum Tómasar
Sveinssonar. Boðið var upp á
hlaðborð með tveimur gerðum
af skötu, saltaðri og kæstri,
plokkfisk og saltfísk ásamt til-
heyrandi meðlæti. Asmundur
Friðriksson stjómaði veislunni
og boðið var upp á fjölbreytta
skemmtidagskrá þar sem
krýndur var kóngur kvöldsins
að venju. Að þessu sinni varð
Jóhann Pétursson lögmaður
fyrir valinu og var hann að
vonum glaður yfir nafnbót-
inni. Skötukvöldin eru karla-
kvöld og kvenfólk hefur
aldrei fengið að stíga fæti
inn í veisluna fyrr en nú er
einokun karlaveldisins féll.
Ung Eyjakona, Heiða Mar-
inósdóttir, mætti og sagði
nokkra lauflétta brandara
og fékk karlpeningin til að
veina úr hlátri. Kvöldið
var svo endað með söng
við undirleik Árna John-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
FRIÐRIK Már Sigurðsson og Guðmundur Alfreðsson hlógu dátt að
bröndurum fyrstu konunnar sem fékk að koma á Skötukvöldið,
Heiðu Marinósdóttur.
gifif .onf.';';;,"*;"1 an>endir I’rtrarni e- ___
-« aö
°S tekur
Skötukvöld
í Eyjum
HALLGRÍMUR Tryggva-
son brást ekki í leikþættinum
frekar en áður og vakti mikla
lukku með tilþrifum sínum.
MYNPBÖNP________
Grín eða alvara?
Fangaflug
(Con Air)_______________________
S |i <* n n ii iny n <1
★★★
Framleiðandi: Jerry Brucklieimer.
Leikstjóri: Simon West. Handritshöf-
undur: Scott Rosenberg. Kvikmynda-
taka: David Tattersall. Tónlist:
Mark Mancina og Trevor Rabin.
Aðalhlutverk: Nicolas Cage, John
Cusack, John Malkovich, Steve
Buseemi, Colm Meany, Ving Rhames.
111 mín. Bandaríkin. Touchstone
Pictures/SAM myndbönd.
Útgáfud: 15. des. Myndin er bönnuð
börnum yngri en 16 ára.
ALLIR verstu glæpamenn Amer-
íku eru saman komnir í einni flug-
vél af ýmsum ástæðum. Þ.ám er
hinn alræmdi en stórgáfaði Cyrus
vírus (hann hefur drepið fleiri
menn en krabbameinið!) sem leik-
inn er af John Malkovich ásamt
ýmiss konar pervertum af verstu
sort. Hermaðurinn Cameron Poe
(Cage) sem drap mann af slysni
sníkir sér far með þessari vél því
hann vill ólmur heim að hitta konu
sína og dóttur. Og það reynist ekki
vera í fyrsta sinn sem Poe er rang-
ur maður á röngum stað ...
Þessi ameríska hetjumynd er al-
veg fínasta skemmtun þó ég sé ekki
alveg viss um hvort hér sé um gam-
an eða alvöru að ræða. Spennu-
myndaklisjurnar eru ýktar og á það
bæði við um samtölin og leikflétt-
una. Myndin verður þannig gegnsæ
og þá er ekki lengur spuming um
hvernig hún endar, heldur felst
spennan í því hvernig viss atriði og
punktar eru útsettir, og hér tekst
stundum bara ansi vel til.
Persónusköpunin fer ekki var-
hluta af þessari klisjugleði. 111-
mennin eru svo yfirþyrmandi
dramatísk að manni rennur kalt
vatn milli skinns og hörunds þegar
þeir líta grimmilega í myndavélina.
Svo em tveir þeirra fyndnir, (og
þ.a.l. hálfgerð fífl) en það verður
alltaf að vera til að létta upp á
stemmninguna. Steve Buscemi
leikur af mikilli
smekkvísi geð-
sjúkan
fjöldamorðingja.
Hann er alls ekki
ýktur (engin
Hannibal Canni-
bal hér) heldur er
þetta laglega
skrifað hlutverk.
John Malkovich
er bara þolanleg-
ur í þetta skiptið, og virðist vera
búinn að gleyma því að hann lék í
Dangerous Liaisons. Hann er í
raun aðaltöffari myndarinnar og
fær allar bestu línurnar. Miðað við
hvernig hann skipuleggur og
stjómar uppreisninni í flugvélinni
er hann svo klár að hann ætti fyrir
löngu að vera búinn að koma sér út
úr fangelsi. Þótt þetta séu allt
hryllilegir menn og ýmislegt ljótt
sé við það að gerast, þá verður ekk-
ert úr því nema slatti af mönnum er
drepinn, en við erum öll orðin
ónæm fyrir því.
Þarna eru líka góða löggan
(Cusack) og vonda löggan (Mean-
ey). Þeim eru góð skil gerð og það
vantar herslumun að írski Star
Trek leikarinn fari á kostum. Besta
týpan er svo náttúrlega leikin af
hinum frábæra og yndislega leikara
Nicolas Cage. Cameron Poe er
húmorslaus Alabamalúði sem gerir
ekkert annað en að væla um dóttur
sína svo út tekur yfir allan þjófa-
bálk. Cage er þekktur fyrir það að
gera ýktar og sérstakar persónur
úr sínum hlutverkum sem gerir
hann að þeim góða leikara sem
hann er. Hér fer hann svo sannar-
lega yfir velsæmismörkin en yfír í
væmnina og drengskapinn, sem er
nýtt frá honum og ég held að ég
muni alltaf muna eftir honum í
þessu hlutverki.
Hvort hér er ginn eða alvara á
ferð liggur milli hluta, en ég ráð-
legg væntanlegum áhorfendum að
púkka upp á skopskynið þegar ætl-
unin er að leigja Fangaflug.
Hildur Loftsdóttir
Vann mál-
sóknina
►LEIKKONUNNI Hunter Tylo
voru á dögunum dæmdar um 350
milljónir króna í skaðabætur
vegna tilfínningalegs og fjárhags-
legs skaða sem hún hlaut vegna
brottreksturs frá sjónvarpsþætt-
inum Melrose Place. Tylo náði
ekki að leika í
einum einasta
þætti áður en
samningi henn-
ar var rift eftir
að hún tilkynnti
framleiðendum
þáttanna að hún
væri þunguð.
Ástæða brott-
rekstursins er
sú að Tylo var
ekki talin geta
leikið sannfær-
andi tálkvendi vegna líkamlegs
ástands síns. „Það eina sem ég
vildi heyra frá kviðdómendum var
að þungun sé ekki gild ástæða
fyrir brottrekstri. Eg vildi heyra
það sagt; að ég gæti þrátt fyrir
allt innt starfið af hendi,“ sagði
Hunter Tylo sem hefur um árabil
leikið í þáttunum „The Bold and
the Beautiful“ sem sýndir eru á
Stöð 2. Einn af lögfræðingum
Tylo hafði orð á því eftir að dóm-
urinn var kveðinn upp að sigurinn
yrði mikilvægur í baráttu kvenna
gegn mismunun í atvinnulífinu
vegna þungunar.
Spelling fyrirtækið neitar að
gefast upp og hyggst áfrýja
dómnum.
Gamlárskvöld
með Greifunum
og frábæru diskótekl
Áramótadansleikur 31. desember.
Húsið opnar kl. 24:00.
Dansað til Id. 04:00.18 ára aldurstakmark.
Verð kr. 2.000.
VILT ÞÚ HÆTTA AÐ
REYKJA?
Stattu við áramótaheitið!
Námskeiðiö reyklaus að eilífu
byggir á endurforritun hugans í stað hræðsluáróðurs eða
efnastaðgengla. Því fylgir vlnnubók, pakki af jákvæðum
staðfestingaspjöldum og stuðningsaðili eftir að nám-
skeiðinu lýkur.
Fyrra kvöldið lærir fólk að reykja upp á nýtt,
Við „drepum í“ til frambúðar seinna kvöldið.
Tugtr íslendinga hafa „drepið í “ sígarettunnf með hjálp
þessa námskelðs á árlnu og álit þeirra er samdóma:
„Jákvætt“„el<l<ert mál að hætta", „uppbyggileg",
„námskeiðið vel upp sett“, „það fær meðmæli frá mér“,
„það sem þurfti til“, „mun hafa áhrif á fleira f mínu lífi“ o.fl.
Næstu námskeið verða haldin:
5. og 7. janúar í Reykjavík
6. og 8. janúar í Reykjavik
12. og 14. janúar í Garði (sérstakt átak)
13. og 15. janúar í Reykjavik
19. og 21. janúar í Reykjavík
20. og 22. janúar í Reykjavík
26. og 28. janúar f Reykjavík
27. og 29. janúar í Reykjavík
að eilífu
Skráðu þig núna!
Takmarkaður fjöidi á hvert námskeið.
Sími 561 3240, fax 561 3241,
tölvupóstur: leidar@centrum.is
JÁKVÆÐA LEIÐIN
TIL AÐ HÆTTA!
/