Morgunblaðið - 30.12.1997, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
AÐSEIMDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Gerir maður svona?
Á ÞORLÁKSMESSU birtust
fréttir í Qölmiðlum um lokanir á
geðdeildum sjúkrahúsanna yfir há-
tíðarnar. í Morgunblaðinu sagði
Tómas Zoéga, yfirlæknir á geðdeild
Landspítalans, að Iokanir þar yrðu
ekki minni en um fyrri jól og í fram-
haldi var í fréttinni eftirfarandi tí-
undað: 6 deildum yrði lokað, þar af
væru tvær móttökudeildir og barna-
geðdeild. Alls væri um að ræða 62
pláss. í fréttaumijöllun ljölmiðla var
sagt að ekki væri um annað að ræða
en að loka tímabundið vegna pening-
askorts. Þetta staðfesti Þórunn Páls-
dóttir, hjúkrunarforstjóri Landspít-
alans, í viðtali í DV sem einnig birt-
ist á Þorláksmessu. Hún sagði að
geðheilbrigðissviðinu væri svo
naumt skammtað að „ef þessum
deildum væri ekki lokað nú yrði að
loka heilli deild á ársgrundvelli."
Orð Þórunnar
Þórunn Pálsdóttir var ómyrk í
máli í umræddu viðtali og ber að
líta á orð hennar til viðvörunar. Hún
segir að sífellt sígi á ógæfuhliðna
og hvetur til umhugsunar um hvert
stefni. Þórunn segir geðheilbrigðis-
þjónustu hér á landi hafa staðið
mjög framarlega „en nú virðast þau
mál vera að taka aðra stefnu". Hún
vitnar í fækkun rúma í Arnarholti
og í fækkun rúma á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur samkvæmt samkomu-
lagi yfirvalda frá þvi í haust. Þá
hefði einnig verið gert
samkomulag um að
færa auknar byrðar af
bráðaþjónustu fyrir
geðsjúka yfir á Land-
spítalann án þess að
sjúkrahúsinu væru
tryggðir ijármunir til
að rísa undir nýjum
skuldbindingum. „Það
er uggvænlegt," er síð-
an haft eftir Þórunni
Pálsdóttur, „að það eina
sem skuli standa í þessu
umrædda samkomulagi
séu aðgerðir gagnvart
geðsjúkum. Þetta finnst
mér vera gangandi for-
dómar. Ef þeim skila-
boðum er komið út í þjóðfélagið að
það sé neikvætt að leita til geðheil-
brigðisþjónustunnar og hún sé lægra
sett í virðingarstiganum en önnur
hjúkrunarþjónusta þá fjölgar sjálfs-
vígum þar sem þeir einstaklingar,
sem eru hjálparþurfi hafa engan stað
til þess að leita á eftir aðstoð. Þetta
er spurning um virðingu fyrir sjálfs-
ímynd og manngildi."
Talað af ábyrgð
Þetta eru alvarleg viðvörunarorð
og það ber að þakka að þau skuli
sögð. Það er alltof algengt að um
óþægileg mál sé þagað af hálfu
stjórnenda. Og eflaust er það oft
þægilegri kostur að þegja. En þegar
allt kemur til alls væri
það engum til góðs og
í rauninni fullkomið
ábyrgðarleysi. Það er
gott til þess að vita að
innan heilbrigðisþjón-
ustunnar sé að finna
fólk sem talar opinskátt
og tæpitungulaust og
þannig af ábyrgð til
samfélagsins um stöðu
mála. Ef almenningur
ekki þekkir raunveru-
leikann á hann ekki
kost á því að mynda sér
upplýsta skoðun og
reyna síðan að hafa
áhrif til úrbóta. Það er
svo önnur saga að slíkt
er hægara sagt en gert og má til
marks um það benda á eftirtektar-
vert bréf sem birt er frá Ólöfu
Björnsdóttur í Velvakanda Morgun-
blaðsins á aðfangadag. Ólöf er mán-
uðum saman búin að reyna að kreíja
yfirvöld sagna um hvað vaki fyrir
þeim með fjársveltistefnu gagnvart
fötluðum nú síðast í svokölluðum
bandormi sem er heiti yfir lagafrum-
varp ríkisstjórnarinnar um ráðstaf-
anir í ríkisfjármálum. „Hver eru rök-
in“ fyrir þeirri upphæð sem ætlað
er til málefna fatlaðra í bandormin-
um? spyr Ólöf í niðurlagi greinar
sinnar. Hún fær engin svör.
En gjörðir segja stundum meira
en orð. Fjárframlög til endurnýjunar
Hvað um að vísa fólki
út úr velferðarstofnun-
um samfélagsins, gerir
maður svona? spyr
••
Ogmundur Jónasson.
Eflaust kunna forsætis-
ráðherra og ríkisstjórn-
in svar við því.
á húsakynnum sendiráða voru sam-
þykkt umyrðalaust af ríkisstjórninni
og stuðningsliði hennar á Alþingi
nú fyrir hátíðarnar, íjárframlög sem
nema hundruðum milljóna króna.
Ef endurnýja þarf marmaragólfin á
veislusölunum skortir ekki skilning-
inn. Þegar hins vegar um er að
ræða lokun geðdeilda sjúkrahúsanna
vefst það fyrir mönnum að reiða
fram féð. Jafnvel þótt það kalli fram
eftirfarandi viðbrögð frá Geðhjálp í
ályktun sem þau virtu samtök sendu
frá sér og voru birt í blöðum á Þor-
láksmessu: „Það er ekki líðandi að
geðsjúkir og aðstandendur þeirra
geti ekki notið friðar og öryggis um
jólahátíðina. Þetta er sá tími ársins
sem reynist mörgum erfiður og
leggst oft sérstaklega þungt á fólk
Ögmundur
Jónasson
sem er veikt andlega." Og þessu til
áréttingar má nefna að haft er eftir
þeim forsvarsmönnum Landspít-
alans sem vitnað var til hér að fram-
an að „samkvæmt reynslunni" auk-
ist jafnan álag á geðdeildunum eftir
jólahátíðina. Og samkvæmt reynsl-
unni væntanlega einnig þurfa þeir
sem vísað var út af geðdeildunum
nú um hátíðarnar og engin heimili
eiga til að hverfa til að fara á hótel
eða leita til Hjálpræðishersins sem
væntanlega yrði hlutskipti hinna
heppnu. I umræddri DV frétt kom
einmitt fram að þangað væri förinni
heitið hjá ýmsum þeim sem væri
gert að fara út af geðdeildunum
vegna lokana yfir hátíðarnar.
Og nú er tími til að spyija
Var það ekki vegna skattlagning-
ar á blaðburðarbörnum DV sem for-
sætisráðherra var svo brugðið yfir
ranglæti heimsins að hann greip
fram fyrir hendur á fjármálaráð-
herra ríkisstjórnar sinnar með þeim
orðum að svona gerði maður ekki?
En hvað um niðurskurð til fatlaðra
og hvað um lokanir geðdeilda, hvað
um að senda veikt fólk til síns heima
þvert á mótmæli Geðhjálpar og for-
svarsmanna sjúkrahúsanna, hvað
um að vísa fólki út úr velferðarstofn-
unum samfélagsins og inn í vinalaus
hótelherbergi, er það í lagi, gerir
maður svona? Eflaust kann forsætis-
ráðherrann og ríkisstjórnin svar við
því. Það væri fróðlegt að fá að heyra
það svar og ekki síður rökstuðning-
inn.
Höfundur er alþingismaður og
formaður BSRB.
I
>
>
>
>
>
Fækkum prestaköllum
og um leið prestum
í SKÝRSLU Árbókar kirkjunnar
1996 kemur fram íbúafjöldi í hverri
sókn og prófastdæmi. Mannfjöldinn
á íslandi er 269.727 skv. skýrslu
Hagstofunnar 1. desember 1996.
Af þeim eru innan þjóðkirkjunnar
244.060 eða um 90,5%. í skýrslu
Árbókar kemur fram eftirfarandi
fjöldi prestakalla að 1000 manns: með íbúafjölda allt
Tala íbúa í Fjöldi
prestakalli prestakalla
1-100 3
100-200 3
200-300 8
300-400 9
400-500 13
500-600 13 =49
600-700 4
700-800 5
800-900 3
900-1000 3 =15
Prestaköll með 1-1000 íbúa sam-
tals 64
Á þessu yfirliti sést að í 49 presta-
köllum eru íbúar innan við 600 tals-
ins og í 15 prestaköllum eru
600-1000 íbúar. Þá á
eftir að draga frá tölu
þeirra sem ekki eru í
þjóðkirkjunni, en hlut-
fall þeirra er að meða-
tali 9,5% til lækkunar á
tölum Árbókar kirkj-
unnar. Á öllu landinu
eru 115 prestaköll, en
auk sóknarprestanna
115 eru héraðsprestar,
aðstoðarprestar og
prestar sem þjóna er-
lendis. Alls greiðir ríkið
laun 138 presta.
Skipan prestakalla
stendur á gömlum
grunni og miðar hún
við þær aðstæður sem
þá voru fyrir hendi. Samgöngur hér
áður fyrr voru erfiðar, ár óbrúaðar,
engir vegir, ekki hægt að ferðast
nema gangandi eða ríðandi, hvorki
sími né útvarp, engar eða stijálar
póstsamgöngur. Skyldur prestanna
voru m.a. að húsvitja tvisvar á ári,
fylgjast með kunnáttu og siðferði-
legri hegðun sóknarbarna og taka
manntal að ógleymdu
því mikilvæga hlutverki
að sjá við lævísi
myrkrahöfðingjans svo
að hann næði ekki sál-
um úr hjörð prestsins á
sitt vald. Hvert presta-
kall gat því ekki orðið
víðfeðmt og prestar
urðu að vera margir.
Miklar breytingar hafa
á orðið og allar til þess
að auðvelda prestum
störf sín. Samgöngur
eru yfirleitt góðar, ferð-
ast er á bílum, öll tján-
ingarsamskipti auð-
veld, fólk getur hlýtt á
messu í heimahúsum,
húsvitjanir felldar niður og Hagstof-
an sér um manntalið. Jafnvel hefur
slaknað á vítiskenningunni hliðstætt
því sem slaknaði á spennu kalda
stríðsins milli stórveldanna á okkar
tímum og varðstaða prestanna hefur
því minnkað. Ljóst liggur því fyrir
að starfsgeta fjölda presta er langt
frá því að vera fullnýtt (sbr. ofan-
Aðalbjörn
Benediktsson
Breyta á prestakalla-
skipan, segir Aðalbjörn
Benediktsson, úr
miðaldaskipulaffl til
nútíma samfélags.
greint yfirlit).
Til fróðleiks fylgir hér með áætlun
í fjárlagafrumvarpi fyrir 1998 um
framlag ríkisins til kirkjumála.
Á yfirlitinu hér að ofan má sjá
að kirkjunni eru ætlaðir 2,3 milljarð-
ar af fjárlögum ársins 1998. Óve-
fengjanlega er hér um að ræða háa
upphæð.
Raunhæft er að ætla að hver
prestur geti innt af hendi starf sitt
með sóma við að þjóna a.m.k. 2000
manns, enda hafa margir mun stærri
söfnuð. Með því að stækka presta-
köll yrðu þau færri og um ieið fækk- >
aði prestum. Fyrsta skrefið væri að
sameina fámennustu prestaköllin '
eins og þau sem eru innan við 1000 )
íbúa, en þau eru 64 sem fyrr segir.
Með slíkri hagræðingu einni saman
myndu sparast a.m.k. hundrað millj-
ónir kr. árlega. Auk þess myndi
umfang biskupsstofu minnka og
hugsanlega létta á guðfræðideild
Háskóla Islands.
Undanfarin ár hafa tíðar laga-
breytingar verið gerðar er snerta |
þjóðkirkjuna. Enn sýnist þörf á frek- |
ari breytingum í því skyni að færa
prestakailaskipan úr miðaldaskipu-
lagi til nútíma samfélags og spara
við það mikla fjármuni ríkisins.
Höfundur er fyrrverandi bóndi og
ráðunautur.
Rekstrargrunnur, m.kr. Fjárlög 1997 Frumvarp 1998 Breytingar m.kr.
Biskup íslands 515,7 581,6 65,9
Kirkjumálasjóður 99,1 106,5 7,4
Kristnisjóður 27,3 29,8 2,5
Kirkjugarðsgj., hlutur kirkjugarða 344,0 369,8 25,8
Kirkjugarðasjóður 30,0 32,2 2,2
Sóknargjald til þjóðkirkjunnar 877,1 942,9 65,8
Sóknargjald til annarra trúfélaga 57,7 61,7 4,0
Sóknargjald til Háskóla íslands 25,4 27,1 1,7
Jöfnunarsjóður sókna 162,3 169,7 7,4
Samtals 2.138,6 2.321,3 182,7
þjónustutekjur 14,3 26,3 12,0
Mismunur, greitt úr ríkissjóði 2.124,3 2.295,0 170,7
AFMÆLISRIT - DAVIÐ ODDSSON FIMMTUGUR
Hinn 17. janúar n.k. verður Davíð Oddsson forsætisráðherra fimmtugur. í tiiefni afmælisins hefur
orðið að ráði að gefa út afmælisrit ráðherranum til heiðurs. Höfum við þrír undirritaðir valist í
ritnefnd afmælisins.
(ritinu mun birtast efni eftir 40 - 50 höfunda. Þar verður að finna ritgerðir um þjóðfélagsmál, svo
sem lögfræði, hagfræði, stjórnmái og menningarmál. Einnig birtast þar smásögur, Ijóð og jafnvel
tónverk. Standa vonir okkar til þess að efni ritsins muni vekja athygli og verða til þess fallið að auðga
umræður um þjóðfélags- og menningarmál. Reynt verður að vanda til útgáfunnar eftir föngum, þó án
íburðar. Má gera ráð fyrir að bókin verði um 600 bls. að lengd í stóru broti og vönduðu bandi. Bókin
mun koma út á afmælisdaginn.
Þér er hér með boðið að gerast áskrifandi að bókinni og setja nafn þitt um leið í
heillaóskalista, Tabula gratulatoria, sem birtast mun í henni. Áskriftin kostar kr. 2.900.
Þeir sem áhuga hafa á að gerast áskrifendur að bókinni geta haft samband í síma 565 0814.
AFMÆLISRIT
DAVÍÐ ODDSSON
FIMMTUGUR
dr. Hannes H. Gissurarson
prófessor
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður
Þórarínn Eldjárn
rithöfundur
Tekið er við pöntunum
í afmælisrit
Davíðs Oddsonar
forsætisráðherra
fram til áramóta
í síma 565 0814.
Heildarverð bókarinnar
er aðeins
KR. 2.900.
BOKAFELAGIÐ
Sími 565 0814.