Morgunblaðið - 30.12.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 13
FRETTIR
Samkomulag í deilu Kirkjugarð-
anna og Líkkistuvinnustofunnar
Lauk doktors-
prófi í veður-
farsfræði
• HALLDÓR Bjömsson varði ný-
lega doktorsritgerð við haf- og veð-
urfræðideild McGill háskóla í Mon-
treal, Kanada. Rit-
gerðin ber á ensku
heitið „A Coupled
Zonally Averaged
Ocean Sea Ice
Atmosphere Model
with Applications
to Quaternary Cli-
mate Variability",
og ijallar hún um
rannsóknir á sviði
veðurfarsfræði. I
henni voru tengd saman í eitt lík-
an, þrjú einfaldari reiknilíkön. Nán-
ar tiltekið var hafstraumalíkan
tengt við orkuskiptalíkan af and-
rúmsloftinu og einnig við varma-
fræðilíkan af hafís.
Nýstárlegar aðferðir voru notað-
ar til að sýna fram á að hefðbund-
in jaðarskilyrði á hafstraumalíkön
hafa mikil áhrif á útreiknaðan
breytileika hringrásar hafsins og
það að tengja hafstraumalíkanið við
einfalt líkan af andrúmsloftinu,
gerir niðurstöðurnar mun raunveru-
legri. Þetta atriði skiptir máli fyrir
rannsóknir á náttúrulegum breyti-
leika hringrásar hafsins ogt.d. því
hvernig hún bregst við hlýnandi
loftslagi. Líkaninu var einnig beitt
á aðstæður líkar þeim sem voru
ríkjandi á lokakafla síðasta kulda-
skeiðs.
Sérstaklega var athugað hvort
hægt væri að framkalla í líkaninu
veðurfarssveiflur á við þær sem sjá
má í gögnum frá borkjörnum úr
Grænlandsjökli. Það er enn á huldu
hvað orsakaði þessar veðurfars-
sveiflur og sérstaklega er ekki ljóst
hvort langvarandi jökulhlaup á síð-
ustu ísöld voru orsök eða afleiðing
veðurfarssveiflnanna.
Leiðbeinandi Halldórs var pró-
fessor Lawrence A. Mysak, stofn-
andi „Centre for Climate and Glob-
al Change Research" við McGill
háskóla og fyrrum forsetikana-
disku Vísindaakademíunnar. Með-
an á náminu stóð hlaut Halldór
styrki frá Vísindasjóði Atlants-
hafsbandalagsins, frá McGill há-
skóla, frá Vísindasjóði Quebec
fylkis, auk nokkurra minni styrkja
til ferða á sumarnámskeið og ráð-
stefnur.
Halldór lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1986,
og B.Sc. prófi í jarðeðlisfræði frá
Háskóla Islands 1992. Hann starf-
aði hjá dr. Þór Jakobssyni á hafís-
deild Veðurstofu íslands 1991 til
1992.
Auk þess að kenna veðurfræði
við McGill háskóla, leggur Halldór
nú stund á hafísrannsóknir í
Kanada. Það verkefni er hluti af
„Norðurvatna-verkefninu", sem er
stórt rannsóknarverkefni, styrkt af
Vísindasjóði Kanada og beinist það
að því að rannsaka hafísvakir sem
reglulega myndast nyrst í Labrad-
orflóa.
Halldór er sonur hjónanna Iðunn-
ar Steinsdóttur rithöfundar, og
Björns Friðfinnsonar ráðuneytis-
stjóra. Hann er kvæntur Helgu Rut
Guðmundsdóttur, MA í tónmennt-
um og doktorsnema við McGill há-
skóla. Þau búa í Montrea! og eiga
eina dóttur, Iðunni Ýri.
NÁTTFATA-
LÍNA
SAMKOMULAG var í gær undir-
ritað milli Davíðs Ósvaldssonar
fyrir hönd Líkkistuvinnustofu
Eyvindar Árnasonar annars vegar
og stjórnar Kirkjugarða Reykja-
víkurprófastsdæma hins vegar og
er þar með lokið málarekstri
vegna deilna sem risið hafa milli
þessara fyrirtækja á undanförn-
um árum.
Að sögn Þórsteins Ragnarsson-
ar, forstjóra Kirkjugarða Reykja-
víkurprófastsdæma, er samkomu-
lagið sem undirritað hefur verið
trúnaðarmál og því ekki hægt að
greina frá í hverju það felst.
„Það má segja að báðir aðilar
hafi slakað nokkuð á og ekki feng-
ið allt sitt fram, en niðurstaðan
varð samkomulag um að hætta
þessum málaferlum og átökum á
þessum vettvangi, og ég held að
Norðurlandsvegur í
A-Húnavatnssýslu
Harður
árekstur á
brúnni yfir
V atnsdalsá
Blönduósi. Reykjavík.
HARÐUR árekstur tveggja bíla
varð á brúnni yfir Vatnsdalsá um
miðjan dag sl. laugardag. Fimm
manns voru í bílunum og var það
fært til aðhlynningar á sjúkrahús-
ið á Blönduósi, en meiðsl á fólki
voru ekki talin alvarleg sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunn-
a'r á Blönduósi.
Brúin yfir Vatnsdalsá (eða
Hnausakvísl) er það sem kallað
er einbreið og hafa orðið þar þrjú
umferðaróhöpp frá því í septem-
ber og hafa orðið alvarleg meiðsl
á fólki og mikið eignatjón sam-
kvæmt heimildum lögreglunnar á
Blönduósi. Það var á heimamönn-
um að heyra á slysstað sl. laugar-
dag að tími væri kominn til að
auka umferðaröryggið og
breikka þær brýr sem enn eru
einbreiðar í Húnavatnssýslum
sem allra fyrst, því fyrir utan lík-
ams- og eignaljón raska óhöpp
hverskonar á þessum brúm öllum
samgöngum um lengri eða
skemmri tima.
báðir aðilar séu mjög sáttir við
niðurstöðuna," sagði Þórsteinn.
Deilur um verðlagningu
Deilur hafa staðið milli ofan-
greindra aðila undanfarin ár um
verðlagningu á útfararþjónustu, og
í nóvember 1995 dæmdi Hæstirétt-
ur Kirkjugarða Reykjavíkurpóf-
astsdæma til að greiða Líkkistu-
vinnustofu Eyvindar Árnasonar sf.
sex milljónir króna auk einnar millj-
ónar í málskostnað þar sem Kirkju-
garðar Reykjavíkurprófastsdæma
hefðu í skjóli niðurgreiðslna með
kirkjugarðsgjöldum getað boðið
lægra verð en ella og öðlast þar
með ótvírætt sterkari stöðu á mark-
aðnum, sem hlotið hafi að bitna á
Líkkistuvinnustofunni. Líkkistu-
vinnustofan hafði hins vegar farið
fram á 54 milljónir króna í bætur
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu umhverfismálaráðs um að
fasteignaskattur verði felldur niður
af friðlýstum húsum. Samkvæmt
skrá borgarminjavarðar eru rösk-
lega 30 hús í einkaeign í Reykjavík
friðuð.
í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokks kemur fram að fólk í
góðum efnum sem velur að búa í
friðlýstum húsum eigi ekki að njóta
niðurfellinga fasteignagjalda frá
borginni á sama tíma og almennir
launþegar njóti ekki slíkrar niður-
fellingar hversu vel sem þeir haldi
heimilum sínum við.
í bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlista er bent á að hús-
verndarnefnd borgarinnar hafí talið
og hugðist halda málinu áfram á
öðrum forsendum sem ekki höfðu
verið teknar inn í dóminn, en sá
málatilbúnaður hefur nú verið felld-
ur niður með samkomulaginu sem
gert hefur verið.
Stjórnunarlegur aðskilnaður
Angi af þessu deilumáli fór á
sínum tíma fyrir samkeppnisráð,
en þar var um að ræða stjórnunar-
legan þátt Kirkjugarða Reykjavík-
urprófastsdæmis og Útfararstofu
kirkjugarðanna. Gaf samkeppnis-
ráð út tilskipun um stjórnunarlegan
aðskilnað á þessari starfsemi og
fékkst endanleg niðurstaða í því
máli í Hæstarétti í október síðast-
liðnum þar sem tilskipun sam-
keppnisráðs var staðfest.
Samkvæmt því verða sérstakar
framkvæmdastjómir yfir daglegum
mikilvægt að umbuna þeim eigend-
um friðlýstra húsa sem kjósa að
nýta þau til að búa í þeim og halda
þeim við. í þjóðminjalögum sé
heimild til að fella niður fasteigna-
gjald af friðuðum húsum og að
verið sé að nýta þá heimild í þeim
tilgangi að hvetja eigendur friðaðra
húsa til að halda þeim vel við og
að jafnframt sé búið í þeim. Fram
kemur að borgaryfirvöld hafi beitt
sér fyrir átaki við að fjölga íbúum
í miðborginni og veitt til þess styrki
og breytt húsverndunarsjóði úr
lánasjóði í styrktarsjóð. Tekið er
fram að í hveiju tilvik sé tillit tek-
ið til efnahags fólks áður en styrk-
ir hafa verið veittir. Þar sé þó um
margfalt hærri upphæðir að ræða.
rekstri Útfararstofu kirkjugarð-
anna annars vegar og Kirkjugörð-
unum hins vegar og má sami mað-
ur ekki vera framkvæmdastjóri yfir
Útfararstofunni og forstjóri yfir
Kirkjugörðunum eins og verið
hafði. Sama 20 manna stjórn er
hins vegar yfir bæði Útfararstof-
unni og Kirkjugörðunum eins og
áður. Tilskipun samkeppnisráðs var
gefín út í september í fyrra og tók
hún gildi frá og með síðustu ára-
mótum og var því í gildi þegar
hæstaréttardómurinn féll.
Þórsteinn sagðist vona að mál-
efni kirkjugarðanna væru nú komin
í farsælan farveg.
„Það er örugglega ekki hlutverk
þessara aðila að eyða tíma sínum
eða peningum í slíkan málarekstur.
Það er annað og miklu nytsamlegra
við tímann að gera,“ sagði hann.
Kona féll í
höfnina
KONA féll í Reykjavíkurhöfn að-
faranótt sl. laugardags og var
henni náð upp eftir nokkra stund.
Hún var flutt á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur til aðhlynningar
en henni varð ekki meint af volk-
inu.
Vaktmaður í varðskipum til-
kynnti lögreglunni í Reykjavík kl.
03:48 á laugardag að heyrst hefði
öskur frá kvenmanni og síðan hefði
einhver dottið í sjóinn. Lögreglan
sendi þegar talsvert !ið á staðinn.
Kona sást í sjónizm milli skipa
Hafrannsóknastofnunar. Vakt-
menn Landhelgisgæslunnar og
Hafrannsóknastofnunar fylgdust
með konunni og komu henni til
hjálpar en lögreglan tók síðan við.
Fóru tveir lögreglumenn í sjóbún-
ingum á eftir konunni og tókst
þeim að koma henni í björgunarbát
lögreglunnar sem kóminn var á
staðinn. Konan var orðin talsvert
þrekuð eftir sjóferðina og flutt á
slysadeild til aðhlynningar.
♦ » ♦-----
Laumufar-
þegi úr landi
FARÞEGI, sem laumaði sér um
borð i Stuðlafoss í Lettlandi, fannst
á öðrum degi siglingarinnar til ís-
lands. Við komuna til Helguvíkur
tóku fulltrúar frá útlendingaeftirlit-
inu á móti manninum og var hann
sendur úr landi í fyrradag.
Skipið kom að landi snemma á
laugardag og tók lögreglan í Kefla-
vík á móti manninum ásamt fulltrú-
um sýslumanns og útlendingaeftir-
lits. Laumufarþeginn, sem ætlaði
sér að komast hér í land í atvinnu-
leit, hafði ekki vegabréf eða aðra
nauðsynlega pappíra og var því
ákveðið að senda hann rakleiðis úr
landi.
-----» ♦ »----
í varðhald til
febrúarloka
MAÐURINN sem réðst á fullorðinn
mann snemma að morgni annars
jóladags hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til loka febrúar. At-
burðurinn varð á heimili annars
þeirra en mennirnir eru skyldir.
Yngri maðurinn veitti hinum tals-
verða áverka með hnífi og var hann
fluttur til aðgerðar á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur en síðan á
Landspítalann. Hann er enn á spít-
ala en hefur ekki verið í lífshættu
og er á batavegi.
vi!//
1111111111
Lögreglan leitar Steiners
LÖGREGLAN i Reykjavík leitar verið haldið uppi fyrirspurnum
nú Franklins Steiners, sem Fang- og mannsins leitað en til hans
elsismálastofnun kvaddi á Þor- hefur ekki náðst enn. Hefur lög-
láksmessu til afplánunar refsing- reglan fengið beiðni um að hand-
ar, en hann sinnti því ekki. taka hann hvar sem til hans
Að sögn lögreglunnar hefur næst.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Á LAUGARDAGINN var þriðja umferðaróhappið á skömmum tíma á brúnni yfir Vatnsdalsá.
Enginn fasteigna-
skattur af fríð-
lýstum húsum