Morgunblaðið - 30.12.1997, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Laugargatatvö
1947-1997
^mðvikU(/ó
- kjarni málsins!
Engar olíu-
birgðir í
Grímsey
Grímsey. Morgunblaðið.
ENGAR olíubirgðir hafa verið til í
Grímsey frá því fyrri hluta desem-
bermánaðar. Um miðjan mánuðinn
tók Stapafellið niðri í innsiglingunni
að höfninni þegar það var að koma til
að losa olíu. Ekki var hægt að skipa
olíunni í land, en ferjan Sæfari hefur
komið með 8.500 lítra af olíu í þrí-
gang frá því skipið tók niðri. Raf-
stöðin í eynni notar á milli 700 og 800
lítra af olíu á sólarhring nú í desem-
bermánuði, en hún sér öllum húsum í
eynni fyrir kyndingu.
I fyi’stu var olíubíll fiuttur með
ferjunni, en nú hefur verið komið
fyrir olíutanki um borð í Sæfara.
Vanalega eru til um 200 þúsund lítr-
ar af olíu í birgðatanki, en olían er nú
flutt jöfnum höndum til eyjarinnar.
Veður hefur verið með ágætum yf-
ir jólin, dálítil rigning og austankaldi
á aðfangadag og jóladag, en að öðru
leyti gott.
-----------------
Losaði land-
festar skipa
SKIPVERJI á grænlenskum togara
sem nú er í viðgerð hjá Slippstöðinni
tók sig til snemma á sunnudags-
morgun og losaði landfestar á þrem-
ur skipum sem lágu í Fiskihöfninni.
Vaktmaður kom að manninum þar
sem hann var í óða önn að losa land-
festai-nar og tilkynnti um atburðinn
til lögreglu. Hafði honum þá tekist af
losa þrjár af fjóram landfestum
þriggja skipa. Grænlendingurinn
sem var mjög ölvaður var handtek-
inn og gisti fangageymslu en ekki
hefur að sögn lögreglu komið í ljós
hvað honum gekk til.
Akureyrarkirkja
Hátíðartón-
leikar
TJARNARKVARTETTINN held-
ur hátíðartónleika í Akureyrar-
kirkju í kvöld, þriðjudagskvöldið 30.
desember og hefjast þeir kl. 21.
Á efnisskránni er íslensk kirkju-
tónlist frá ýmsum tímum og jólalög,
íslensk og erlend. Meðal verka má
nefna gamla sálma í útsetningum
Hallgríms Helgasonar og Marteins
H. Friðrikssonar, Maríuvers eftir
Atla Heimi Sveinsson, sálma eftir
Þorkel Sigurbjörnsson og jólalög
eftir Jón Ásgeirsson og fleiri.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur en
500 fyrir nema og ellilífeyrisþega.
Þetta yndislega hús er til sölu!
Maja og Venni reistu sér húsið 1947
eftir teikningu Þóris Baldvinssonar arkitekts.
Vandað og formfagurt hús á frábærri ióð.
Fyrst um sinn veita upplýsingar.
Guðbjörg Inga og Sigmundur Rafn
4-6-12-6-12, 462 2900, 896 0 396
Tvær ára-
mótabrennur
TVÆR áramótabrennur verða á
Akureyri líkt og venja hefur verið
síðustu ár. Önnur við Réttar-
hvamm og hin á Bárufellsklöpp-
um, þar sem þessi mynd var tekin
af tveimur ungum piltum sem
ásamt öðrum börnum í hverfinu
hafa safnað saman eldsmat á
brennuna siðustu vikur. Kveikt
verður í brennunum kl. 20 á
gamlárskvöld. Skátar munu efna
til veglegrar flugeldasýningar við
brennuna í Réttarhvammi og ef
tekið er mið af sýningu síðasta árs
verður enginn svikinn sem fylgist
með henni.
Aldrei fleiri íslandsmeistarar en á þessu ári
ÍSAK J. Guðmann, Knútur Ottersted og Gunnur Gunnarsdóttir hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir störf sín í
þágu íþróttanna.
s
Omar Halldórs-
son kylfingur
íþróttamaður
Akureyrar
ÓMAR Halldórsson kylfingur í
Golfklúbbi Akureyrar var kjörinn
Iþróttamaður Akureyrar við at-
höfn sem efnt var til í íþróttahöll-
inni á Akureyri á sunnudag. Ómar
þykir með efnilegri kylfingum á
landinu, en hann er núverandi Evr-
ópumeistari unglinga í golfi.
I öðru sæti varð Dagný Krist-
jánsdóttir skíðamaður, handknatt-
leiksmaðurinn Björgvin Þór Björg-
vinsson varð í þriðja sæti, Sigurður
Sveinn Sigurðsson skautamaður í
því fjórða og Höskuldur Jóusson
hestamaður varð í fimmta sæti.
I hófinu var öllum þeim sem
unnu Islandsmeistaratitil á árinu
veitt viðurkenning, en þeir voru
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
ÓMAR Halldórsson, Golfklúbbi
Akureyrar, var kjörinn íþrótta-
maður Akureyrar.
290 talsins og hafa aldrei verið
fleiri. Fyrst þegar slík viðurkenn-
ing var veitt árið 1990 hlutu hana
innan við 100 manns, en fram kom
í máli Þórarins E. Sveinssonar for-
manns íþrótta- og tómstundaráðs
að á Akureyri væri íþróttastarf öfl-
ugt og það hefði skilað ríkulegum
árangri.
Úthlutun fór einnig fram úr Af-
reks- og styrktarsjóði Akureyrar
en alls var veitt ein milljón króna
til fjölda félaga og einstaklinga
sem unnu til afreka á árinu.
Þrír hlutu viðurkenningu
Þá hlutu þau ísak J. Guðmann,
Knútur Ottersted og Gunnur Gunn-
arsdóttir sérstaka viðurkenningu
fyrir störf sín í þágu íþróttafélaga
á liðnum árum, bæði Isak og Knút-
ur hafa gegnt formennsku í
íþróttabandalagi Akureyrar og lát-
ið til sín taka í félagsmálum, en það
hefur Gunnur einnig gert auk þess
að vera um árabil formaður Fim-
leikaráðs Akureyrar.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA: Hátíð-
arguðsþjónusta í Hlíð kl. 16 á
gamlársdag. Kór aldraðra
syngur undir stjórn Sigríðar
Schiöth. Aftansöngur í Akur-
eyrarkirkju kl. 18, félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja. Sigríður
Elliðadóttir syngur einsöng.
Hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni
kl. 14 á nýársdag. Félagar úr
Kór Akureyrarkirkju syngja.
Michael Jón Clarke syngur ein-
söng. Sveinn Sigurbjörnsson
leikur á trompet. Hátíðarguðs-
þjónusta á Fjórðungssjúkra-
húsinu kl. 17 á nýársdag.
GLERÁRKIRKJA: Aftansögnur
kl. 18 á gamlársdag, sr. Haukur
Ágústsson predikar. Hátíðar-
messa kl. 14 á nýársdag,
Þuríður Vilhjálmsdóttir syngur
einsöng. Fjölskylduguðsþjón-
usta 4. janúar kl. 14, Barnakór
Glerárkirkju syngur.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Opið
hús frá kl. 22 á gamlárskvöld,
bæn fyrir nýju ári kl. 23. Hátið-
arsamkoma kl. 17 á nýársdag.
Jólafagnaður á dvalarheimilinu
Hlíð kl. 14 á föstudag, 2. janú-
ar. Jólafagnaður fyrir hermenn,
Hjálparflokk og Heimilasam-
band. Jólaskemmtun fyrir ung-
lingaklúbbinn á þriðjudag.
HRfSEYJARPRESTAKALL:
Aftansöngur verður í Stærri-Ár-
skógskirkju á gamlársdag kl.
16.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Fjöl-
skyldusamvera á gamlárskvöld
frá kl. 22, þar sem slegið verð-
ur á létta strengi, sýndur leik-
þáttur, farið í leiki og margt
fleira. Opið öllum sem vilja
koma og eiga saman ánægju-
lega stund. Hátíðarsamkoma á
nýársdag kl. 14, G. Theodór
Birgisson predikar.
KFUM og K: Hátíðarsamkoma
á nýársdag kl. 20.30. Ræðu-
maður Sigríður Halldórsdóttir.
LAUFÁSPRESTAKALL: Aftan-
söngur í Grenivíkurkirkju kl. 18.
á gamlársdag.
LAUGALANDSPRESTAKALL:
Messa í Munkaþverárkirkju kl.
13.30 á gamlársdag.
i
i