Morgunblaðið - 30.12.1997, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 41 '
ATVINNUAUGLÝSINGAR
Starf forstöðumanns
Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
er laust til umsóknar
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, sem er sjálf-
stæð ríkisstofnun undir yfirstjórn umhverfis-
ráðherra, tekur til starfa í byrjun árs 1998 á
Akureyri, í samræmi við lög nr. 81/1997, um
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og samvinnu-
nefnd um málefni norðurslóða. Stofnunin er
samstarfsvettvangur þeirra, sem sinna málefn-
um norðurslóða hér á landi, og er ætlað að
efla rannsóknirá norðurslóðum, stuðla að
sjálfbærri þróun og efla þátttöku fslendinga
í alþjóðasamstarfi um máiefni norðurslóða.
Verkefni stofnunarinnar eru m.a. eftirfarandi:
a. safna og miðla upplýsingum um málefni
norðurslóða,
b. stuðla að því að rannsóknir á norðurslóðum
séu samræmdar og gera tillögur um for-
gangsröð þeirra,
c. miðla fræðslu um málefni norðurslóða til
skóla og almennings,
d. vera stjórnvöldum til ráðgjafar um málefni
norðurslóða, einkum umhverfisvernd og
sjálfbæra þróun,
e. annast samstarf við sambærilegar stofnanir
erlendis, t.d. um reksturfjölþjóðlegra verk-
efna,
f. skapa aðstöðu fyrirfræðimenn, sem stunda rann-
sóknarstörf á fræðasviði stofnunarinnar og
g. sinna öðrum verkefnum samkvæmt ákvörð-
un ráðherra.
Umhverfisráðherra skiparforstöðumann stofn-
unarinnar til fimm ára í senn að fengnum til-
lögum stjórnar. Forstöðumaður skal hafa lokið
framhaldsnámi á háskólastigi, hafa stundað
rannsóknir og tekið virkan þátt í alþjóðasam-
starfi semtengist fræðasviði stofnunarinnar.
Forstöðumaður fer með daglega stjórn stofn-
unarinnar og hefur umsjón með rekstri hennar.
Hann skal, í samráði við stjórn, annast stefnu-
mótun og áætlanagerð og hafa umsjón með
fjáröflun. Einnig starfar forstöðumaður með
samvinnunefnd um málefni norðurslóða sem
skipuð er af umhverfisráðherra. í nefndinni
eiga sæti aðilar, tilnefndir af stofnunum og
samtökum, sem hafa með höndum verkefni
er tengjast norðurslóðarannsóknum.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
ítarlega skýrslu um nám og starfsferil svo og
ritaskrá. Ennfremur skulu umsækjendur skila
nöfnum minnst tveggja aðila sem leita má til
um meðmæli.
Laun er samkvæmt launakerfi ríkisins.
Upplýsingar um starfið fást í umhverfisráðu-
neytinu í síma 560 9600 (800 6960 grænt núm-
er) og hjá Ólafi Halldórssyni, formanni stjórnar
stofnunarinnar, í síma 461 2494.
Umsóknir skulu berast umhverfisráðuneytinu
fyrir 1. febrúar 1998.
Umhverfisráðuneytið,
23. desember 1997.
Móttökufulltrúi
Reykjavíkurborgar
Starf móttökufulltrúa Reykjavíkurborgar er
auglýst til umsóknar. Starfið hefur verið í mót-
un um eins árs skeið og ákveðið hefur verið
að festa það í sessi. í starfinu felst:
• Umsjón með móttökum á vegum borgarinn-
ar og stofnana hennar.
• Skipulagning heimsókna erlendra gesta.
• Umsjón og húsvarsla í Höfða, móttökuhúsi
Reykjavíkurborgar.
• Leiðsögn gesta um Höfða.
• Skráning gjafa til Reykjavíkurborgar.
• Ráðgjöf og skipulagning varðandi gjafir frá
Reykjavíkurborg.
Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt og
sýnt frumkvæði í starfi. Smekkvísi, reglusemi,
góð tungumálakunnátta, innsýn í alþjóðlegar
siðareglur og færni í ritvinnslu áskilin.
Reynsla í skyldum stöfum er æskileg.
Umsóknum ber að skila til skrifstofu borgar-
stjóra, Ráðhúsi Reykjavíkur, eigi síðar en
10. janúar 1998. Nánari upplýsingar veitir
Gunnar Eydal, skrifstofustjóri borgarstjórnar.
Rétt er að vekja athygli á því, að það er stefna borgaryfirvalda að
auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgar-
innar, stofnana hennar og fyrirtækja.
Skrifstofa borgarstjóra.
ÍFélagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39 • Sími: 588 8500 • Bréfasími: 568 6270
Starfsfólk í býtibúr
og ræstingu
Starfsmaður óskast í 85% starf frá áramótum
í býtibúr og ræstingu á Droplaugarstöðum,
sem er hjúkrunarheimili fyrir aldraða á Snorra-
braut 58.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Bernhöft,
forstöðumaður, í síma 552 5811.
Garðabær
Fræðslu- og menningarsvið
Garðaskóli
enskukennari
Starf dagskrár-
klippara á tæknideild
Sjónvarpsins
er laust til umsóknar
Menntun eða starfsreynsla í klippingum, sjón-
varpstækni eða rafeindavirkjun er nauðsynleg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Laun samkvæmt kjarasamningum starfsmanna
ríkisins.
Ráðningartími ertil 31. ágúst 1998.
Nánari upplýsingar gefur deildarstjóri tækni-
deildar í síma 515 3900.
Umsóknarfrestur ertil 7. janúar nk. og ber að
skila umsóknum til Sjónvarpsins, Laugavegi
176, eða í Útvarpshúsið, Efstaleiti 1, á eyðu-
biöðum sem fást á báðum stöðum.
JartfB#
RÍKISÚTVARPIÐ
KÓPAVOGSBÆR
Sundlaug Kópavogs
Laust er til umsóknar starf við baðvörslu
kvenna í Sundlaug Kópavogs.
Unnið er á vöktum og laun samkvæmt kjara-
samningum SfK. Góð sundkunnátta áskilin.
Reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar gefur forstöðumaður sundlaugar
í síma 564 2560. Umsóknarfrestur er til
5. janúar 1998.
Starfsmannastjóri.
Framkvæmdastjóri
Fyrirtæki í fjölþættum rekstri, í miðbæ Reykja-
víkur, óskar eftir dugmiklum framkvæmda-
stjóra.
Starfið felst ma. í eftirfarandi:
Bókhaldi og fjármálastjórn, markaðsmálum,
verðútreikningi og tollskýrslugerð og
umsjón með innkaupum.
Við leitum að kraftmiklum einstaklingi með
frumkvæði og góða stjórnunarhæfileika.
Viðskiptafræðimenntun er ekki skilyrði en
reynsla nauðsynleg. Enskukunnátta er nauð-
synleg en þýskukunnátta æskileg.
Við komandi þar að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir óskast sendar, merktar: „Didrix",
pósthólf 51, 121 Reykjavík, fyrir 10. janúar '98.
II KÓPAVOGSBÆR
S' *
„Au pair" — Frakkland
íslenskt heimili í Strassborg óskar eftir barn-
góðri og duglegri stúlku, 20 ára eða eldri, frá
janúar 1998 í 6 mánuði. Reyklaust heimili.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
4. janúar, merktar: „Strassborg '98"
Eftir áramót er laus staða enskukennara við
Garðaskóla í Garðabæ. í Garðaskóla eru um
600 nemendur í 7. —10. bekk.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi KÍ og HÍK
við Launanefnd sveitarfélaga.
Upplýsingar veitir Gunnlaugur Sigurðsson,
skólastjóri, í síma 565 8666.
Grunnskólafulltrúi
Þinghólsskóli
Gangavörður/ræstir óskast að Þinghólsskóla
frá áramótum.
Um er að ræða 1/2 dags starf eftir hádegi.
Umsóknarfrestur er til 5. janúar.
Upplýsingar gefur húsvörður í símum 554 3010
og 554 5146.
R AGAUGLÝ5INGAR
HÚSNÆÐI ÓSKA5T
Skipti á íbúð
Við höfum áhuga á að skipta um íbúð við ein-
hvern í Englandi eða Bandaríkjunum í 2—4
mánuði í vor eða sumar. Við búum á Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast hafi sam-
band í síma 555 1103 eða sendið upplýsingar
til afreiðslu Mbl., merktar: „S — 3031".
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Miðgarður 3a, Egilsstöðum, þingl. eig. Ágúst Ólafsson, gerðarbeið-
endur Fasteignasalan Kringlan ehf. og Vátryggingafélag Islands hf.,
föstudaginn 2. janúar 1998 kl. 16.00.
Túngata 17, Seyðisfirði, þingl. eig. Þórarinn Sigurður Andrésson,
gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Austurlands, sýslumaðurinn á Seyðis-
firði og Tryggingamiðstöðin, föstudaginn 2. janúar 1998 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði,
29. desember 1997.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöll-
um 1, Selfossi, þriðjudaginn 6. janúar 1998 kl. 10.00 á eftir-
farandi eignum:
Bakkatjörn 10, Selfossi, þingl. eig. Þorbjörg Árnadóttir, geröarbeiðend-
ur húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar og Landsbanki Islands, Selfossi.
Bakkatjörn 12, Selfossi, þingl. eig. Ingvi Sigurðsson, og Sigríður
Bergsdóttir, gerðarbeiðendur húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar
og sýslumaðurinn á Selfossi.
Baugstjörn 35, Selfossi, þingl. eig. Baldvin Kristjánsson, gerðarbeið-
andi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar.
Búðarstígur 3, Eyrarbakka, þingl. eig. Nanna Bára Mariasdóttir, gerð-
arbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og sýslumaðurinn á Selfossi.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
30. desember 1997.