Morgunblaðið - 30.12.1997, Síða 44

Morgunblaðið - 30.12.1997, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Magnús Eiður og Jón Baldursson unnu minningarmótið BRIDS Bridshöllin, Þöngiabakka MINNING- UM HÖRÐ ÞÓRÐARSON 28. desemSir? 146 fiatttakendur. Aðgangur ókeypis. MAGNÚS Eiður Magnússon og Jón Baldursson sigruðu í minning- armóti Bridsfélags Reykjavíkur og SPRON sem fram fór sl. sunnu- dag. Þeir hlutu 58,8% skor eða 260 stig yfir meðalskor. Hjónin María Ásmundsdóttir og Steindór Ingi- mundarson komu skemmtilega á óvart og höfnuðu í öðru sæti. Selfyssingarnir Gunnar Þórðar- son og Sigfús Þórðarson höfðu for- ystu framanaf en annars voru miklar sviptingar á toppnum. Fyrir síðustu umferðina voru Jón og Magnús með 308 stig en töpuðu síðustu lotunni með 48 stigum en María og Ásmundur voru þá í 6. sæti með 190 stig. Þau fengu hins vegar 48 stig í plús í síðustu um- ferðinni sem gaf þeim annað sæt- ið. Segir þetta nokkuð um svipting- arnar í mótinu. Lokastaða efstu para varð ann- ars þessi: Magnús E. Magnússon - Jón Baldursson 260 MariaÁsraundsd. - Steindórlngimundars. 236 Sverrir Ármannsson - Björn Eysteinsson 231 Júlíus Sigurjónss. - Guðmundur Sveinsson 229 Þröstur Ingimarsson - Þórður Björnsson 212 ÓlafurLárusson-HermannLárusson 194 Guðl. R. Jóhannsson - Öm Arnþórsson 192 GunnarÞórðarson-SigfúsÞórðarson 172 Unnar Atli Guðmss. - Vilhjálmur Sigurðss. 172 Peningaverðlaun voru fyrir 4 efstu sætin, 50 þúsund, 30 þúsund, 20 þúsund og 10 þúsund krónur fyrir fjórða sætið. Þá voru verðlaun í kvennaflokki, blönduðum flokki, heldri spilara og yngri spilara. Auk þess voru veitt verðlaun fyrir hæstu skor í nokkrum lotum. Mótið var haldið í minningu um Hörð Þórðarson fyrrverandi spari- sjóðsstjóra SPRON en hann var sparisjóðsstjóri frá 1942 til 1975 og mikill bridsáhugamaður á árum áður. Sonarsonur hans og alnafni afhenti verðlaunin í mótslok en Sveinn Rúnar Eiríksson sá um mótsstjórn og útreikninga. Metþátttaka í Bridsfélagi SÁÁ Sunnudagskvöldið 14. desember 1997 var spilaður eins kvölds Mitch- ell-tvímenningur. 19 pör mættu til leiks og er það met á þessu ári. Spiiaðar voru 9 umferðir, 3 spil á milli para. Meðalskor var 216 og röð efstu para varð eftirfarandi: Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson SIGURVEGARARNIR í minningarmótinu um Hörð Þórðarson. Talið frá vinstri: Steindór Ingi- mundarson, María Ásmundsdóttir, Magnús E. Magnússon, Sverrir Ármannsson, Jón Baldursson, Hörður Þórðarson sonarsonur Harðar heitins Þórðarsonar sparisjóðsstjóra, en hann afhenti verð- launin, og Björn Eysteinsson. (Jóla)sveinarnir tveir með spilurunum á myndinni eru synir annars sigurvegarans, Jóns Baldurssonar, og Elínar Bjarnadóttur. Málverkið á bak við spilarana er af Herði Þórðarsyni sparisjóðsstjóra. NS Sturla Snæbjömsson - Friðrik Egilsson 260 Halldór Þorvaldsson - Baldur Bjartmarsson 246 Þórhallur Tryggvason - Leifur Áðalsteinsson 238 Magnús Þorsteinsson - Guðmundur Vestmann 227 AV Unnar A. Guðmundsson - Elías Ingimarsson 250 Dúa Ólafsdóttir - Þórir Leifsson 244 BjömDúason-KarlG.Karlsson 237 Bergljót Aðalsteinsd. - Björgvin Kjartansson 219 Áramótastaðan í bronsstigum hjá félaginu er þá þessi: Baldur Bjartmarsson 71 Halldór Þorvaldsson 71 ValdimarSveinsson 54 Björn Björnsson 48 Friðrik Steingrímsson 48 Nicolai Þorsteinsson 43 Sturla Snæbjörnsson 43 Eðvarð Hallgrímsson 42 Það hefur gengið á ýmsu hjá Bridsfélagi SÁÁ á árinu sem nú er senn á enda. Spilakvöldin voru færð af þriðjudögum yfir á sunnudaga og bitnaði það vissulega á þátttök- unni, stundum var tvísýnt hvort spilahæft yrði. Með hjálp tryggra spilara sem mættu vel og gáfust ekki upp smájókst svo þátttakan þannig að nú mega allir vel við una. Er þessum spilurum hér þakk- að sérstaklega. Keppnisstjóri fé- lagsins, Matthías Þorvaldsson og aðrir talsmenn þess óska spilurum gleðilegra jóla og farsældar á kom- andi ári. Næst verður spilað sunnudags- kvöldið 4. janúar. Haldið verður áfram með eins kvölds tvímennings- keppnir. Keppt er um verðlauna- gripi sem fást afhentir að lokinni spilamennsku. Félagið vill hvetja sem flesta til að mæta, spilað er í húsnæði Úlfaldans, Ármúla 40 og hefst spilamennska stundvíslega klukkan 19.30. Arnór Ragnarsson Austur Vestur Norður Austur Suður ♦ 83 1 hjarta ¥ K8 Pass 2 lauf Pass 2 tíglar ♦ 532 Pass 2 spaðar Pass 3 lauf ♦ ÁKD864 Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass HUGTÖKIN rétt og rangt eiga ekki alltaf við í glímu við bridsvandamál, því oft koma margar leiðir til álita og árangurinn getur ráðist af dynt- óttri legu spilanna eða viðbrögðum andstæðinganna. Stundum fer því betur á að tala um vel og illa heppn- aðar ákvarðanir. „Lausnirnar" á jólaþrautum Morgunblaðsins sem hér fara á eftir eru því ekki endilega þær einu réttu, a.m.k ekki hvað varðar sagn- og útspilsþrautimar. Eg hef gefið stig fyrir hinar ýmsu „ákvarðanir" sem til greina koma. Stigagjöfin er auðvitað umdeilanleg, enda fyrst og fremst til skemmtunar gerð, en ekki til að meta árangurinn á vísindalegan hátt. (1) SAGNIR Suður gefur; allir á hættu. Norður ♦ K107652 ¥ 72 ♦ K104 ♦ 73 Vestur ¥ ÁDG10965 IIIIH ♦ 7 111111 * G10952 Suður ♦ ÁDG94 ¥ 43 ♦ ÁDG986 ♦ - Vestur Norður Austur Suður _ .. - 1 tígull 4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu ??? Hvað á suður að segja við 5 hjört- um? Hér kemur ýmislegt til greina, al!t frá 5 spöðum og upp í 7 spaða. Svigrúm til nákvæmra rannsókna er af skornum skammti; ekki kemur til dæmis til greina að segja sex lauf, því makker myndi taka það sem eðlilega sögn, en ekki sem alslemm- utilraun í spaða. Og hvað er þá eft- ir af nákvæmum sögnum? Fimm grönd, kannski, en mun makker kveikja á perunni með eyðu í hjarta og lykilkóngana? það er ekki gott að segja. Mín skoðun er sú að hér verði suður einfaldlega að skjóta á slemmu, sex eða sjö. Eftir sögnum að dæma er makker líklegur til að vera með einspil í hjarta, svo sex spaða sögnin er að því leyti til skyn- samleg. En mér finnst sjö spaðar mjög freistandi valkostur, því sú sögn er yfirlýsing um fyrstu fyrir- stöðu í hjarta! Og þá er líklegt að austur reyni annað útspil - lauf. Sex spaðar: 100 stig. Sjö spaðar: 90 stig. Svör við jólabridsþrautum Sex hjörtu: 90 stig. Fimm grönd: 80 stig. Fimm spaðar: 70 stig. (2) ÚTSPIL Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ D87 ¥ K3 ♦ Á65 ♦ K10986 Vestur ♦ K943 ¥ 10987 ♦ 84 ♦ DG7 Austur ♦ Á10632 ¥ 62 ♦ DG103 ♦ 32 Suður ♦ G ¥ ÁDG54 ♦ K972 ♦ Á54 Hvar á vestur að koma út? Eins og alltaf þegar útspil eiga í hlut er fyrsta skrefið að túlka sagn- ir. Suður hefur teiknað upp skipting- una nokkuð nákvæmlega; hann sýndi fyrst 5-4 í hjarta og tígli og studdi svo laufið. Sennilega er hann með einspil í spaða. Norður gat hvorki stutt hjartað strax né farið í gröndin. Því má álykta að hann eigi aðeins tvíspil í hjarta og ekki trausta fyrirstöðu í spaða. Með fjórlit í trompi er best að spila út í veika lit sóknarinnar, eða spaða, með því hugarfari að stytta suður í trompinu. En með tilliti til þess að suður á líklega einn spaða, er skynsamlegt að leggja niður kónginn strax í upphafi, ef einspil suðurs skyldi vera gosi eða drottn- ing. í þessu tilfelli dugir ekki að spila út smáum spaða, því drottning- in verður þá fyrirstaða. Suður myndi einfaldlega henda tígli þegar makker spilar spaða til baka í öðrum slag. En með kóngnum út og meiri spaða, helstyttist suður og fær ekki nema níu slagi. Spaðakóngur: 100 stig. Smár spaði: 90 stig. Tígulátta: 30 stig. Tromp: 20 stig. Laufdrottning: 10 stig. (3) ÚRSPIL Norður ♦ Á2 ¥ K32 ♦ KD2 ♦ ÁG863 Vestur ♦ 1043 ¥ G1086 ♦ 54 ♦ K1097 Austur ♦ DG8765 ¥ 9 ♦ 876 ♦ D54 Norður ♦ 876 ¥ 43 ♦ ÁD76 ♦ ÁD62 Vestur ♦ D942 ¥ 2 ♦ 10983 ♦ K1085 Austur ♦ G103 ¥ DG109 ♦ KG4 ♦ G97 Suður ♦ K9 ¥ ÁD754 ♦ ÁG1093 ♦ 2 Suður spilar sjö tígla og fær út spaðaþrist. Hvemig er best að spila? Þijár leiðir koma til greina: (a) Taka trompin og spila svo hjörtunum í þeirri von að liturinn brotni 3-2. (b) Taka tvisvar tromp og fara svo í hjartað. Þá vinnst spilið í 4-1- hjartalegu ef sá andstæðingur sem er með einspilið í hjarta á aðeins tvö tromp. (c) Spila upp á öfugan blindan og að fría slag á lauf. Þá þarf tígullinn að vera 3-2 og laufið 4-3. Sagnhafi tekur fyrsta slaginn á spaðakóng og spilar tígulgosa. Þegar báðir fylgja lit, er hægt að spila laufí á ás og trompa lauf. Síðan er tígli spilað á drottningu. Ef annar mót- heijinn fylgir ekki lit, verður að taka trompin og stóla á hagstæða hjarta- legu. En þegar báðir fylgja, er lauf trompað með ás. Síðan er hjarta spilað á kóng, og lauf trompað í þriðja sinn. Þá er blindum spilað inn á spaðaás, síðasta trompið tekið og hjarta hent heima. Loks er hjarta hent í frílauf. Þrettán slagir. (það er nauðsynlegt að nota innkomuna á hjartakóng á undan spaðaás, svo austur geti ekki hent hjartaeinspil- inu þegar fjórða laufínu er spilað.) Leið (c) 100 stig. Leið (b) 60 stig. Leið (a) 20 stig. (4) VÖRN Suður gefur; enginn á hættu. Hér var lesandinn í austur. Út- spil makkers er spaðafjarki og suð- ur tekur tíuna með ás. Hann spilar næst hjartaás og svínar svo tígul- drottningu, en makker sýnir fjórlit. Austur horfir á þijá slagi: Einn á tígulkóng og tvo á tromp. Fjórði slagurinn gæti komið á spaða, ef útspil makkers er frá drottningu fjórðu. Suður ♦ ÁK5 ¥ ÁK8765 ♦ 52 + 43 Vestur Norður Austur Suður 1 hjarta Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu Allir pass Það lítur út fyrir að vörnin fái spaðaslaginn í fyllingu tímans, hvað sem austur gerir, en ekki er allt sem sýnist. Segjum að austur spili spaða. Sagnhafi drepur, tekur hjarta og sér leguna. Þá reynir hann að „komast undan" með aukaslag á tromp. Hann spilar tígli á ás og trompar tígul. Svínar laufdrottn- ingu og trompar tígul. Fer loks inn á laufás og trompar lauf. Þannig hefur hann náð í fimm slagi á tromp og tíu í allt. Þessi spilaaðferð er kölluð „undanbragð" (elopement), enda kemst sagnhafi undan hát- rompum varnarinnar. Austur á aðeins eina vörn við þessari hótun: Að spila sjálfur laufi, beint upp í gaffalinn. Þannig tekur hann eina innkomu af blindum áður en sagnhafi getur nýtt sér hana. Lauf: 100 stig. Tígulgosi: 70 stig. Spaði: 50 stig. Tromp: 30 stig. (5) TEIKNIVINNA Norður ♦ ÁK7 ¥ D106 ♦ D9742 ♦ Á8 Vestur ♦ 8642 ¥ G97532 ♦ K + K7 Austur ♦ DG10 ¥ K ♦ G10853 ♦ 9542 Suður ♦ 953 ¥ Á84 ♦ Á6 ♦ DG1063 Hér fékk lesandinn aðeins að sjá hendur NS og átti að teikna upp spil AV, svo hægt væri að vinna sjö lauf með hvaða útspili sem er! Bretinn Eric Mansfield hefur skrif- að heila bók með slíkum „teikni- þrautum" og er þessi fengin þar að láni. Besta leiðin til að leysa slíkar þrautir er að skoða fyrst hvern lit fyrir sig. Byijum á trompinu. Eina hugsanlega teikningin þar sem vörnin á ekki ekta trompslag er K7 tvíspil í vestur. Ef vestur leggur kónginn á drottninguna, mun áttan gleypa sjöuna í bakaleiðinni. Sagn- hafi þarf þrettán slagi, en sér að- eins níu þó svo að hann fái fimm slagi á tromp. Það má búa til tvo slagi með því að láta hjartakónginn vera blankan í austur, og annan slag með því að að gera tígulkóng- inn stakan. Þá eru slagirnir orðnir tólf. Sá þrettándi kemur með þving- un, en þá verður austur að valda spaðann til viðbótar við tígulinn, þ.e.a.s. hann verður að eiga DG10, svo nía suðurs verði hótun. Besta útspil varnarinnar er spaði. Sagnhafi tekur slaginn, fer heim á hjartaás og spilar laufdrottningu. Vörnin hagar því þannig að blindur sé inni eftir tvær trompumferðir. Þá fer sagnhafi heim á tígulás og tekur öll laufin, en hendir spaða og tígli úr borði. Síðan svínar hann hjartatíu og spilar hjartadrottningu í þessari stöðu: Norður ♦ Á ¥ D ♦ D97 ♦ Vestur Austur ♦ 86 ♦ DG ¥ G97 ♦ ~ II ¥ - ♦ G108 ♦ - ♦ Suður ♦ 95 ¥ 8 ♦ 6 ♦ 6 Austur er þvingaður. Ef hann hendir spaða, tekur sagnhafi á spaðaás og fær síðasta slag á spaða- níu. Hendi austur tígli, verður tígull- inn fríaður með trompun og spaðaás- inn innkoma. Allir fjórir litir réttir: 100 stig. Þrír litir réttir: 80 Tveir litir réttir: 60 stig. Einn litur réttur: 40 stig. Guðmundur Páll Arnarson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.