Morgunblaðið - 30.12.1997, Page 47

Morgunblaðið - 30.12.1997, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997 47 ánægjan að komast á leiðarenda til míns ágæta frændfólks, þar sem mér var tekið með opnum örmum, heitu súkkulaði og hjartahlýju. En auk alltumlykjandi elskusemi heim- ilisfólksins var einnig spennandi fyrir borgarbarnið að fá að kynnast útgerðarbæ í fullu fjöri. Þeir Víðir og Maggi gegndu nú veigamiklu hlutverki í að opna mér sýn í sjó- mannslíf og sjávarútveg suður með sjó. Víðir var þá stýrimaður á afla- skipi og ég fékk að fara með í róður á reknet, sem er mér ákaflega minnisstætt. Starfsvettvangur Magga var í landi. Sem útgerðar- maður og fiskverkandi hafði hann í mörgu að snúast. Ég fékk að fara með honum í gamla Willys-herjepp- anum í ferðir milli bryggju og ver- búða, verkstæða og vöruhúsa, fisk- reita og fi-ystihúsa. í ævintýraljóma veitti Maggi mér á sinn milda hátt óafvitandi innsýn í höíúðatvinnuveg þjóðarinnar. Seinna þegar ég stækkaði fékk ég að vinna í saltfiski hjá honum og þá voru þær systur Solla og Hanna ekki langt undan. Þær voru eins og þá var alsiða með hvíta slæðu á höfði og rauðmálaðar varir við að skapa útflutningsverð- mæti. Athafnaþrá, lífsgleði og húmor ríkti yfir öllu og höfuðborg- arstrákurinn fílaði þetta í botn. Síðar fluttu Solla og Maggi á Arnarhól, sjávarjörð rétt utan við þorpið. Þar bjuggu þau myndarbúi og gætti þess hvert sem litið var. Þar var Maggi í essinu sínu, sífellt að dytta að og snurfusa. Snyrti- mennska og hjálpsemi var honum í blóð borin. Ég minnist þess eitt sinn er ég kom í heimsókn á sólbjörtum degi að Maggi hefur orð á því hvað bíllinn minn væri skítugur. Hann linnti ekki látunum fyrr en hann var búinn að þvo og bóna bílinn utan og innan svo af stirndi. Maggi kunni augljóslega vel við sig á Arnarhóli í nábýli við opið Atl- antshafið, þar sem hann gat fylgst með skipaferðum og við fjölbreyti- lega fjöruna með sel á steini og fugl í lofti. Hann hvatti mig mjög að koma oftar í heimsókn og skoða með sér fugla- og dýralífið í fjör- unni, sérlega á vorin. Hann var náttúrubarn, fasttengdur sjávarsíð- unni og sjávarfangi. Eins og títt er um slíka menn hafði hann sérstakt yndi af að bjóða manni velverkaðan harðfisk, rikling, signa grásleppu eða annað sjávargóðmeti. Hann var þar á sínum heimavelli og vissi hvað hann bauð. Það haustaði að í lífi Magga er ljóst var að hann hafði veikst af al- varlegum banvænum sjúkdómi, sem að lokum sigraði hann eftir hetju- lega og æðrulausa baráttu. I þeirri baráttu naut hann stuðnings Sollu, síns dygga lífsförunautar, er stóð við hlið síns manns allt þar til yfir lauk. Hann átti þó góðar stundir inn á milli. Þegar ég kom til hans síð- astliðið haust var hann samur við sig, ljúfur og indæll, ræðinn og ein- lægur eins og ég hef alltaf þekkt hann. Þannig geymi ég minninguna um hann. Ég og fjölskylda mín kveðjum ljúfan vin og vottum Sollu frænku og fjölskyldu hennar samúð á erf- iðri stundu. Minnig um góðan dreng lifir. Atli Þór Ólason. í dag 30. desember kveðjum við elskulegan föðurbróður minn Magnús Marteinsson frá Sjónarhól í Norðfirði. Faðir minn Guðjón kallaði Magnús alltaf „Manga bróður" svo við systurnar fjórar kölluðum hann alltaf Manga frænda. Það var mjög kært með þeim bræðrum enda bara eitt ár á milli þeirra. Mangi flutti ungur frá Neskaupstað til Sandgerðis. Ég man eftir því er ég var að alast upp heima í Neskaupstað að oft heyrði ég föður minn skellihlæja er hann var að tala í símann við Manga, þeir voru báðir mjög skemmtilegir og með gott skap, þá var talað um landsins gagn og nauðsynjar svo var rifjuð upp gömul prakkarastrik og mikið hlegið. Ung flutti ég á erlenda grund en dvaldist hér heima á Fróni meira síðustu árin. Ég átti því láni að fagna að kynnast Frænda síðustu tíu árin. Fyrir átta árum misstum við elsku pabba eftir hjartaaðgerð í London. Er ég og móðir mín Guðrún komum heim seint að nóttu með kistuna í vonskuveðri, þá mættu upp í Keflavík Mangi frændi og Sólveig kona hans ásamt systrum mínum og voru það hlý faðmlög sem gáfu okkur mæðgunum huggun og styrk. Eftir þetta urðu böndin á milli okkar ennþá traustari. Mangi og Sólveig eignuðust þrjú börn sem öll eru búsett erlendis, Marteinn í Svíþjóð, Óskar og Helga í Bandaríkjunum, þau eru öll gift og eiga böm. Aður eignaðist Mangi dóttur, Jóhönnu, sem búsett er á Fáskrúðsfirði. Voru bömin hans og bamabömin honum mjög hjartkær og fóru þau Sólveig og Frændi árlega til barnanna sinna. í einni slíkri ferð, þegar þau hjónin voru að koma frá Helgu sinni sem býr á Flórída, hittumst við á Orlandó flugvelli ég, Frændi og Sólveig. Urðu miklir fagnaðarfundir, fengum við öll sæti saman í vélinni, mikið var rabbað og hlegið á leiðinni heim á Frón. Frændi sagði mér margar skemmtilegar sögur sem áttu sér stað er hann og pabbi vom að alast upp saman heima í Neskaupstað. Eftir sagði Frændi við mig „Guðný mín, ég hef bara aldrei verið svona fljótur á leiðinni frá Orlandó til íslands". í ferðum mínum til íslands höfðum við alltaf samband og oft hringdi Frændi og sagði við mig, við Sólveig erum að koma í bæinn og megum við bjóða þér og Jóni á kaffihús, þá var farið á góðar kaffistofur. Ég man er ég horfði á eftir þeim hjónum í síðasta skipti, ég hugsaði með mér mikið er falleg ást og mikill kærleikur á milli þeirra. Elsku Frændi, þín verður sárt saknað og í sjóði minninganna geymast góðar stundir. Elsku Sólveig, mikill er þinn missir og barnanna. Við Jón Már, Gunna Sigga og Silla Maja sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ég vil kveðja elsku Manga frænda með orðum sem minna mig á hann og minn ástkæra föður. Þó ég sé látinn harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Eg er svo nærri að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur þó látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þó látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. ók.) Guðný Steinunn Guðjónsdóttir. í fáeinum orðum langaði mig að minnast mágs fóður míns, Magnúsar. Fyrstu minningarnar eru frá því að ég var krakki og farnar voru dagsferðir í Sandgerði að heimsækja Jóhönnu og Sólveigu, systur pabba og Sigríði ömmu mína, en þá voru vegalengdimar miklu lengri en núna. Frá þeim tíma man ég ekki eftir honum öðruvísi en svo að hann væri að gantast við okkur ki-akkana, þegar við vonim komin í ham og farin að hoppa uppá rúmum og annað í þeim dúr. Allt var leyft þar og við . nutum okkar heldur betur. Við fórum sæl og ánægð heim þau kvöldin. Þegar maður var feiminn unglingur komu hann og Sólveig og teymdu mann inn á meðal fólksins, þar sem glaumurinn ríkti og Jóhanna var með sitt spaug á vör. En hún er nú farin „yfir lældnn“, eins og sagt er á máli indíána. Og langar mig að minnast hennar hér Uka. Alltaf var Maggi með sitt ljúfa viðmót þegar við komum í heimsókn og ekki dró hann við sig alúðina eftir að mamma mín, Rut, dó, en þá vorum við pabbi alltaf aufúsugestii- hjá Sollu og Magga. Guð geymi þau sem fallin eru frá og veiti Sólveigu og bömum þeirra styrk í sorginni, eins dætrum Jóhönnu, því þeim hefur hann reynst sem faðir. Eygló Rut Óladóttir. PALINA GUÐMUNDSDÓTTIR + Pálína Guðnmnds- dóttir fæddist á Efri-Steinsmýri í Meðallandi í V- Skaftafellssýslu 15. júlí 1926. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 17. desember síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Guð- mundur Bjarnason frá Hnappavöllum í Öræfum og Emilía Pálsdóttir frá Hofi í Öræfum. Pálína átti tíu systkini. Þau eru: Sigurður, látinn, Jó- hanna Sigurbjörg í Vík, Páll, lát- inn, Jóhanna í Vík, andvana sveinbarn, 1920, Rannveig, látin, Hjalti, látinn, Þuríður, látin, Mig langar að minnast móður minnar með örfáum orðum. Mínar fyrstu minningar eru tengdar Skólavörðuholtinu, þar sem við bjuggum 1 nokkur ár. Þar fæddumst við þrjú systkinin. Faðir okkar starfaði hjá Vegagerð ríkisins og móðir okkar vann heima við prjóna- skap og hannyrðir. Síðar vann hún sem verkakona í Arnarhváli. Arið 1957 fluttumst við inn á Réttar- holtsveg 49 og þar fæddust yngri systkinin tvö. A Réttarholtsvegin- um bjuggu foreldrar okkar þar til fyrir einu og hálfu ári, að þau fluttu að Gullsmára 9 í Kópavogi. Bernskuárin voru oft erfið; það var ekki allt rétt upp í hendurnar á okkur og oft var þröngt í búi. En þrátt fyrir alla erfiðleikana, sem voru aðeins til að sigrast á, var bernskan ánægjuleg og aldrei minnist ég þess að foreldrar okkar hafi látið erfiðleika lífsins bitna á okkur börnum sínum. Mamma saumaði á okkur allar flíkur. Henn- ar vinnudagur var langur og oft sat hún að saumum, þegar við vorum gengin til náða. Og svo var það hún sem vakti okkur inn í daginn. Ég man að ég velti því stundum fyrir mér, hvort foreldrar mínir svæíú aldrei. Að minnsta kosti minnist ég þess ekki frá bernskuárunum að ég sæi móður mína nokkurn tíma sofa. Mikil umskipti urðu í lífi fjöl- skyldunnar, þegar við fluttum inn á Réttó, eins og við kölluðum það. Þar keyptu foreldrar okkar fokhelt rað- hús og unnu eingöngu sjálf við frá- gang þess. Faðir okkar hafði starf- að við múrverk, sem kom sér nú vel og móðir okkar var eins og alltaf, betri en enginn, þegar hún tók til hendinni við húsbygginguna með pabba. Þar eignuðumst við systkin- in okkar æskuvini, stunduðum okk- ar skólanám og áttum okkar ung- lingsár, en á sumrin vorum við mik- ið í sveitinni hjá afa og ömmu á Haugum í Stafholtstungum í Borg- arfirði. Margar voru ferðirnar í Borgarfjörðinn og mamma dvaldi oft með okkur í sveitinni. Móðir mín var mikilhæf starfs- kona að hverju sem hún gekk, en útsaumurinn var hennar sérfag, ef svo má segja. Ekki má gleyma Bú- staðakirkju og kvenfélagi kirkjunn- ar, en það var oft sem við veltum CrfiscJrykkjur 'VdtinQohú/ið GAPi-mn Sími 555-4477 Erfidrykkjur H H H H H H H H H H Ilalla, látin, og Dag- björt í Reykjavík. Pálína giftist Inga B. Þorsteinssyni 1953. Börn þeirra eru: Snorri, maki Jó- hanna Arngrfmsdótt- ir; Margrét, maki Guðmundur Árna- son; Bjarney, maki Sigurður Daníelsson; Emilía, maki Erlend- ur Samúelsson; Þor- steinn, maki Ólöf Guðnadóttir. Barna- börn eru tuttugu og eitt talsins og barna- barnabörn fjórtán. títför Pálínu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. fyrir okkur, hvað stæði nú til hjá því félagi því svo mikið var bakað og saumað, að okkur fannst þetta allt með ólíkindum. A þessum starfs- vettvangi eignaðist móðir okkar margar af sínum beztu vinkonum. Hér skal nefnd til ein þeirra, Magnea á Réttarholtsvegi 51, sem reyndist mömmu trygg vinkona al- veg fram á síðasta dag. Fyrir um 15 árum veiktist móðir mín af beinþynningu. Sá sjúkdómur reyndist henni mjög erfiður, en hún barðist við hann af sömu eljunni og hún hafði sýnt á öðrum sviðum. Eitt af því sem móðir mín hafði mjög gaman af var að dansa og þá sér- staklega gömlu dansana. Því hélt hún áfram sem öðru meðan hún gat. En þótt móðir mín væri sterk kona, svo sterk að ég sem barn gat ekki ímyndað mér að hana myndi nokk- urt afl sigra, þá fór svo, að sjúkdóm-*. urinn gekk mjög nærri henni og fyrir um tveimur árum greindist hún með krabbamein. Faðir okkar hætti störfum um svipað leyti og stundaði móður okk- ar af mikilli kostgæfni síðustu árin. Þar sem ég var eina barnið þeirra, sem settist að í Reykjavík, var ekki langt í millum okkar og reyndist Jó- hanna eiginkona mín móður minni mjög vel og sinnti henni reglulega. Móðir mín bar erfiðleika sína vel, en þungt veit ég að henni féll að vera upp á aðra komin. En um það hafði^ hún engin orð. Það var ekki hennar máti að barma sér yfir hlutunum. Hún umbar þá af þeirri reisn sem henni var gefin, þar til í haust, að hún fann að ekki yrði um bata að ræða. Þá veit ég að henni fannst nóg komið. Það var ekki uppgjöf heldur aðeins niðurstaða hennar að loknu góðu verki. Nú væri tíminn til að hætta. Nú, þegar komið er að þessum leiðarlokum hjá móður minni, lang- ar mig að þakka öllum þeim, sem reyndust henni og okkur öllum vel. Sérstaklega vil ég nefna starfsfólk Sjúkrahúss Reykjavíkur og Krabbameinsfélags Reykjavíkur og forystu Verkakvennafélagsins Framsóknar. f Föður mínum þakka ég alla hans ’ umhyggju og ástúð við mömmu. Móður mína kveðjum við hjónin, Jóhanna og ég, og böm okkar, Maggi, Jóhanna, Bergþóra og Guð- björg, í þökk fyrir allt sem hún var okkur. Blessuð sé minning hennar. Snorri B. Ingason. t Eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, SIGURGEIR JÓHANNSSON, Bakkakoti, Meðallandi, sem lést af slysförum sunnudaginn 21. des- ember, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í Meðallandi laugardaginn 3. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Slysavarnafélag íslands. Sætaferð verður frá BSÍ kl. 10.00. Guðrún Gísladóttir, Steinar Sigurgeirsson, Margrét J. Árnadóttir, Guðfinna Ólafsdóttir, Halldór Guðbjörnsson og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÞÓRUNN FRIÐRIKSDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 26. des- ember. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 2. janúar kl. 11.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjúkrahús Akraness eða dvalarheimilið Höfða. Friðrika Bjarnadóttir, Jóhannes K. Engilbertsson, Halldóra Bjarnadóttir, Einar Adólfsson, Fjóla Bjarnadóttir, Hinrik Haraldsson, Bjarni Þór Bjarnason, Ásta Alfreðsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. u Sími 562 0200 jLIIIIIIIIIll + Eiginmaður minn og faðir okkar, BJÖRGMUNDUR GUÐMUNDSSON fyrrverandi bóndi, Kirkjubóli, Valþjófsdal, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á (safirði að morgni jóladags, verður jarðsunginn frá Kirkju- bólskirkju laugardaginn 3. janúar kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Þeir, sem vilja minnast hans, láti líknarstofnanir njóta þess. Ágústina Bemharðsdóttir og böm hins látna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.