Morgunblaðið - 30.12.1997, Síða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
0r
wA">
Inc-
Virtir bandarískir vís-
indamenn mæla gegn
drottningarhunangi
og frjókomum
Grettir
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
Frá Ólafi Sigurðssyni:
HINN 18. desember síðastliðinn
birtist í Mbl. grein eftir Ragnar
Þjóðólfsson, áhugamann um
sjálfslækningar og náttúruefni,
sem svar við grein undirritaðs þar
sem greint var frá stofnun sam-
taka til að veita fræðslu og vinna
gegn ósönnum fullyrðingum um
hollustu náttúruefna, - það er að
vinna gegn auglýsingaskruminu
sem lengi hefur fylgt mörgum
þessara efna.
Að stofnun þessara samtaka
standa flest virtustu samtök
bandarískra næringar-, matvæla-
og lífefnafræðinga.
Í greininni sem Ragnar veittist
að var greint frá blaðamannafundi
forystumanna þessara nýstofnuðu
samtaka og fréttatilkynningu
þeirra. Þarna voru viðstaddir
nokkrir þekktustu vísindamenn
Bandaríkjanna á þessu sviði.
Hafi Ragnar eitthvað við ein-
stök dæmi í yfirlýsingu þessara
manna („The FANSA statement")
að athuga, eins og þá að blóm-
afijókorn eða drottningarhunang
hafi ekkert sérstakt hollustugildi,
er um að gera að koma þeim at-
hugasemdum á framfæri við sam-
tökin. Það skal minnt á það hér
að þýðing á fréttatilkynningum frá
blaðamannafundum þarf ekki
endilega að túlka skoðanir þess
er greinir frá. Persónulegar að-
dróttanir í grein Ragnars koma
málinu ekkert við og eru mér
óskiljanlegar, það var hvergi vegið
að persónu Ragnars Þjóðólfssonar
í greininni.
Það verður því að leiðrétta al-
varlegar rangfærslur í grein Ragn-
ars í minn garð. Það hefur engin
heilög krossferð verið rekin gegn
afurðum býflugnabúsins af minni
hálfu, hvað þá um nokkurra ára
skeið! Einnig ber að leiðrétta að
undirritaður er ekki næringarráð-
gjafi og hefur aldrei starfað sem
slíkur og kannast því ekki við að
hafa ráðlagt „skjólstæðingum
mínum“ að borða kornfleks til
morgunverðar, hvað þá talið að
mjólk sé óholl. Það hefði þá átt
að fást borgað fyrir slíka ráðgjöf
og því hefði ég munað eftir. Hins
vegar tel ég bæði mjólk og korn-
fleks hollt og gott í hófí, eins og
allt annað.
Það er greinilegt á skrifum
Ragnars að hann hefur ruglast á
mönnum. Þetta er afar óheppilegt
á svo opinberum vettvangi og vona
ég hann hafí uppi á réttum manni
og skrifi þá bara aðra grein til
þess aðila. Hins vegar finnst mér
sjálfsagt mál að Ragnar biðjist
afsökunar á þessu á sama vett-
vangi.
Ónnur umræða í grein Ragnars
gegn lyfjaiðnaðinum og með holl-
efnaiðnaðinum kemur áðurnefndri
fréttatilkynningu frá bandarískum
vísindamönnum ekkert við. Það
hlýtur að teljast persónulegt mat
hvers og eins ef þeir vilja ekki
trúa á vísindi og rannsóknir eða
eru ósáttir við niðurstöðumar.
Hins vegar er það athyglisvert að
Ragnar Þjóðólfsson er skrifaður
fyrir greininni sem „áhugamaður
um sjálfslækningar og náttúru-
efnj“.
Ég hef kynnt mér málið og hef
heyrt frá þeim sem þekkja til, að
Ragnar er sjálfur innflytjandi,
dreifingaraðili og sölumaður blóm-
afijókorna og drottningarhun-
angs! Hann hefur lengi skrifað
greinar um hollustu fijókorna og
drottningarhunangs í Morgun-
blaðið og titlað sig þar sem áhuga-
mann um lækningar og fæðubót-
arefni! Er reyndar talinn mjög
duglegur við greinaskrifm.
Þetta fínnst mér ábyrgðarleysi
hjá Mbl. og fer fram á að þeir sem
hafa beinna hagsmuna að gæta,
komist ekki upp með þess háttar
ókeypis auglýsingar í blaðinu og
að lesendum blaðsins sé greint frá
því ef greinarhöfundar eru jafn-
framt sölu- eða dreifíngaraðilar
fyrir þá vöru sem þeir mæla með.
Það hlýtur að teljast að menn séu
að villa á sér heimildir, eða telst
til dæmis forsvaranlegt að um-
boðsaðili Toyota komist upp með
að skrifa alls kyns greinar um
gæði Toyota og skrifa ætíð undir
sem „áhugamaður um bifreiðar
og varahluti"? (Við vitum að slíkt
gera þeir ekki hjá umboðinu, en
það er annað mál.)
Virðingarfyllst,
ÓLAFUR SIGURÐSSON,
fyrrv. meðlimur í IFT (Intemational
Food Technologist, USA), alþjóðlegum
samtökum bandarískra
matvælafræðinga,
Heijólfsgötu 34, Hafnarfirði.
Þá það, amma, við skiljum, gangi
þér vel að spila.
Við förum ekki til ömmu á þakk-
argjörðardaginn, hún er að spila
hokkí með skautaklúbbnum sin-
Hvað með hina ömmuna okkar?
Hún er að fara í dagsferð með
fjallahjólaklúbbnum sinum.
um.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
- Gœðavam
GjdídVdia - matar og kaííístell.
Allir veröflokkar.
verslunin
Heiinsfr«r(jir hönnuðir
m.d. Gianni Versace.
Laugavegi 52, s. 562 4244.