Morgunblaðið - 03.01.1998, Side 12
12 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dregið verður úr
ferðum starfsmanna
NÝ FARGJÖLD FLUGFÉLAGS ÍSLANDS^ ^Haust- fargj. 1997
Frá Reykjavík og aftur til baka Forgangs- Vildar- Ferða- Spari- Bónus- sæti sæti sæti sæti sæti
Egilsstaðir 13.000 10.800 9.600 8.600 7.700 8.300
Höfn, Hornaf. 12.600 10.400 9.400 8.500 7.600 8.200
Húsavík 11.800 10.200 9.200 8.500 7.600 8.000
Akureyri 11.600 9.800 9.200 8.200 7.500 7.600
ísafjörður 11.200 9.800 8.800 7.800 7.300 7.200
Vestmannaeyjar 7.600 6.800 6.600 6.000 5.700 5.800
Forgangssæti: Forgangur ífremstu sæti, flýtiinnritun, forgangur á biðlista, ársmíði, breyting á bðkun að vild, miði aðra leið eða báðar, 1.200 vildarpunktar.
Vildarsæti: Flýtiinnritun, forgangur á biðlistum, þriggja mánaða miði, breyting á bokun að vild, miði aðra leið eða báðar, 700 vildarpunktar.
Ferðasæti: Mánaðarmiði, hægt að breyta bókun og kaupa aðra leiðina eða báðar.
Sparisæti: Tveggja nátta dvöl að lágmarki, mánaðarmiði, báðar leiðir keyptar samt.
Bónussæti: Tveggja nátta dvöl að lágmarki, mánaðarmiði, samtímis kaup á farseðli báðar leiðir og greiðsla við bókun.
Nelly’s café
Vínveitinga-
leyfi í þrjá
mánuði
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að veita Nelly’s café vínveit-
ingaleyfí í þijá mánuði, en af-
greiðslu leyfisins var frestað á
fundi borgarráðs í lok október
sl. _
I umsögn skrifstofustjóra
Félagsmálastofnunar segir að
afgreiðsla umsóknarinnar hafi
verið frestað vegna athuga-
semda, sem bárust um rekstur
staðarins og bréfs ásamt und-
irskriftarlista nær allra ná-
granna vegna hávaða og
slæmrar umgengni við staðinn.
Fram kemur að í viðræðum
við rekstraraðila hafi komið
fram að athugasemdir vegna
hávaða hafi verið réttmætar
og að lækkað yrði í tónlistinni.
Hann taldi hins vegar að at-
hugasemdir um slæma um-
gengni væru stórlega ýktar og
að erfitt væri að greina á milli
hvaðan sá almenningur væri
að koma sem leið ætti um ná-
grennið. Nokkrir veitingastaðir
væru þarna á litlu svæði auk
þess sem gestir gengju oft eft-
ir lokun upp Bankastræti og
Laugaveg.
V erzlunarmanna-
félag Reykjavíkur
Þjónustu-
deildir flytja
ÞJÓNUSTUDEILDIR Verzlun-
armannafélags Reykjavíkur hafa
verið fluttar á jarðhæð af níundu
hæð í Húsi verslunarinnar við
Kringluna 7.
Að sögn Magnúsar L. Sveins-
sonar, formanns VR, eru það
kjaramáladeild, sjúkrasjóður, af-
greiðsla atvinnuleysisbóta ásamt
þjónustu vegna oríofshúsa sem
verða á jarðhæðinni en stjórnun-
ar-, fjármála- og tölvudeild verða
áfram á áttundu hæð. „Það munar
mikiu að fólk getur nú gengið
beint inn af bílastæðunum í stað
þess að taka lyftu,“ sagði Magn-
ús. „Hér koma fleiri þúsund
manns á dag.“ Sagði hann að til
þessa hafi greiðsla atvinnuleysis-
bóta farið fram hjá hverju séttar-
STURLAUGUR Þorsteinsson, bæj-
arstjóri á Höfn í Hornafirði, segir
að dregið verði úr ferðum starfs-
manna bæjarins sem nemur hækkun
á flugfargjöldum. Hann segir að
bæjarbúar hafi almennt verið mjög
ánægðir með lækkun fargjalda en á
sama hátt óánægð með hækkun far-
gjalda. Jakob Björnsson, bæjarstjóri
á Akureyri, segir að það geti orðið
erfitt að átta sig á öllum þeim flokk-
um sem nú er boðið upp á.
„Ég veit ekki hvort hækkunin
hefur áhrif á ferðatíðni almennings,"
segir Sturlaugur. En það er ljóst að
hækkunin getur komið beint við
bæjarsjóð. Við höfum notið góðs af
þeim lágu fargjöldum sem hafa ver-
ið. Við breytum ekki fjárhagsáætl-
unum okkar í samræmi við breytt
flugfargjöld þannig að hækkunin
kemur niður á ferðatíðni starfs-
manna bæjarins. Þessi flokkun er
reyndar nýtilkomin og við höfum
ekki alveg áttað okkur ennþá á
henni," sagði bæjarstjórinn á Höfn.
Jakob Björnsson, bæjarstjóri á
Akureyri, segir að hækkunin sé nei-
félagi fyrir sig en eftirleiðis verða
bæturnar eingöngu afgreiddar á
tveimur stöðum hjá VR og Dags-
brún. „Við höfum verið með um
800 manns á atvinnuleysisbótum
lyá okkur og borgað út á tveggja
vikna fresti en nú verða þetta
sennilega um 1.500 manns sem
við verðum að þjóna með atvinnu-
leysisbætur," sagði hann.
Töluverðir flutningar hafa ver-
kvæð fyrir þá sem nota þennan sam-
göngumáta. „Það þarf þó að horfa
til þess að það þarf að vera hægt
að halda uppi þjónustu. Félögin hafa
ið í Húsi verslunarinnar á síðasta
ári. Samvinnulífeyrissjóðurinn
sem áður var á þriðju hæð er
kominn á aðra hæð. Vinnumála-
sambandið flutti inn á aðra hæð
og SR-mjöl hefur keypt þriðju
hæðina. Félag ísl. stórkaupmanna
keypti níundu hæðina og Lífeyris-
sjóður verslunarmanna keypti
fimmtu hæðina af Félagi ísl. stór-
kaupmanna.
bæði gefið það upp að fargjöldin
hafi verið heldur of lág. Það þýðir
ekkert að beija hausnum í steininn
í sambandi við það, flugið verður
að bera sig. Ég vona þó að menn
fari eins vægilega í breytingar og
hægt er. Varðandi alla þessa flokka
og hve flókið það virðist vera orðið
að átta sig á þeim þá sýnist mér
það ekki vera af hinu góða. Þekki
ég þetta rétt var aðeins eitt fargjald
hjá íslandsflugi,“ sagði Jakob.
Hann sagði að starfsmenn Akur-
eyrarbæjar væru á sérstökum kjör-
um með svokölluð þjónustubréf.
Bærinn keypti fyrirfram farseðla
fyrir ákveðna upphæð. Þau fargjöld
voru töluvert lægri en fullt verð frá
Flugfélagi íslands og Flugleiðum þar
á undan sem flestir starfsmenn bæj-
arins hefðu þurft að nota vegna
þess að yfirleitt er um skemmri ferð-
ir að ræða.
„Það er hins vegar slæmt ef verið
er að gera mönnum erfiðara fyrir
að nýta sér lægstu fargjöldin og
hækkunin sé e.t.v. meiri í raun en
í fyrstu virðist. Mér finnst það altént
blasa við að það verði ansi flókið
fyrir menn að átta sig á því hvernig
þeir komast best út úr þessum far-
gjöldum," sagði Jakob.
Morgunblaðið/Þorkell
GYLFI Aðalsteinsson, starfsmaður Verslunarmannafélags Reykja-
víkur, í nýju skrifstofunni á jarðhæð í Húsi verslunarinnar.
Friður 2000 vill
í Reykholt
ÁSTÞÓR Magnússon, forsvarsmað-
ur Friðar 2000, telur allt benda til
að ganga eigi framhjá umsókn Frið-
ar 2000 um að setja á stofn alþjóð-
legt friðarsetur og skóla í Reykholti
í Borgarfirði. Hann segist vera mjög
undrandi á afstöðu séra Geirs Wa-
age, sóknarprests í Reykholti, sem
hafi lýst andstöðu við hugmyndina.
Ástþór segist hafa lagt mikla
vinnu í að undirbúa umsókn Friðar
2000 um að samtökin fái aðstöðu í
Reykholti. Forsvarsmenn alþjóð-
legra friðar- og mannúðarsamtaka
hafi lýst stuðningi við hugmyndina
og lýst sig tilbúna til að taka sæti
í stjórn friðarseturs í Reykholti.
Hann segist hafa leitað eftir stuðn-
ingi séra Geirs við hugmyndina í
þeirri von að stuðningur hans myndi
auka líkur á að umsókninni yrði vel
tekið af hálfu Hagsýslu ríkisins og
menntamálaráðuneytisins, sem fara
með forræði skólamannvirkjanna í
Reykholti. Geir hafi hins vegar lýst
yfir andstöðu við hugmyndir Friðar
2000 og einnig að samtökin fengju
aðstöðu í Reykholti.
Ástþór segir að viðbrögð séra
Geirs hafi komið sér mjög á óvart.
Hann hafi talið að kirkjan og Friður
2000 stefndu að sameigjnlegu
markmiði um frið á jörðu. Ástþór
segist ekki geta sætt sig við þessa
afstöðu séra Geirs og segist g;era
kröfu til þess að honum verði vikið
úr embætti. Komi í ljós að kirkjan
sem heild hafi sömu afstöðu til frið-
arboðskapar Friðar 2000 og séra
Geir ætli hann að segja sig úr kirkj-
unni.
Ástþór hefur sent biskupi íslands
bréf þar sem spurt er um afstöðu
kirkjunnar til boðskapar Friðar 2000
og ummæla sem hann hefur eftir
séra Geir.
Hlutu rithöfunda-
styrk Ríkisútvarpsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
KRISTÍN Ómarsdóttir og Kristján Árnason ásamt Inga Boga Bogasyni formanni
Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins.
ÁRLEG styrkveiting úr Rithöfundasjóði Rík-
isútvarpsins fór fram á gamlársdag við athöfn
í Bláfjallasal útvarpshússins að viðstöddum
forseta Islands, menntamálaráðherra, útvarps-
stjóra og fleiri gestum. Sjóðinn mynda m.a.
höfundalaun sem höfundar finnast ekki að og
var heildarfjárhæðin nú ein milljón króna, sem
skiptist til helminga milli tveggja höjfunda.
Þeir sem hlutu verðlaunin eru Kristín Ómars-
dóttir og Kristján Árnason. Kristín hefur vak-
ið eftirtekt á undanförnum árum fyrir frum-
lega og sérstaka bókmenntasköpun og Kristján
er löngu kunnur fyrir vandaðar þýðingar nýrra
og eldri meistara í bundnu og lausu máli, eins
og formaður sjóðsstjórnar, Ingi Bogi Bogason,
orðaði það við afhendinguna.
Konur að sækja í sig veðrið
Þar kom fram að á 41 árs ferli Rithöfunda-
sjóðsins hafa verið veittar úr honum
16.320.000 krónur til 77 rithöfunda, 62 karla
og 15 kvenna. í þakkarávarpi sínu vakti Krist-
ín athygli á því að á árinu sem er að kveðja
komu út margar nýjar frumsamdar bækur
eftir konur og að á síðustu árum hafa konur
á þessari eyju verið að sækja í sig veðrið,
skrifa og koma efni sínu áleiðis til lesenda
með hjálp útgefenda. Kvaðst hún nefna þetta
svona af ótta við að það hefði farið framhjá
fólki vegna þess að það þarf að segja hlutina
og það þarf að segja þá oft. Alveg eins og
þarf að segja þá á einfaldan hátt - með fáum
eða_ mörgum stjörnum.
Á þessu hausti gaf Kristín út skáldsöguna
„Elskan mín ég dey“, fjölskyldusögu sem ger-
ist í íslensku sjávarþorpi og fjallar um látna
sem lifendur. I stuttu spjalli kvaðst Kristín
ánægð með góðar viðtökur. Það sé gott að fá
slík viðbrögð, sem gefi höfundi gott skap til
að takast á við nýtt verkefni, nýja skáldsögu
sem hún vildi ekki segja meira um, en kvaðst
vera á förum í sumarbústað til að loka sig af
og hefjast handa.
Sígildar þýðingar
Kristján Árnason hefur á undanförnum
árum sent frá sér rómaðar þýðingar á verkum
eldri sígildra meistara. í fyrra komu út Rilke-
þýðingar hans og hann hefur verið og er enn
að fást við að flytja á íslensku hinn viðkvæma
og undurfagra skáldskap latneska skáldsins
Ovids, höfund Metamorphoses. Síðast kvaðst
hann hafa verið að reka endahnútinn á þýð-
ingu á Cyrano de Bergerac eftir franska skáld-
ið Edmond Rostand, sem er í bundnu máli.
Leikritið liggur hjá Þjóðleikhúsinu og hefur
dregist að það kæmist á fjalimar, en á meðan
bíður verkið útgáfu líka, en Kristján kvaðst
nú vera farinn að ókyrrast eftir að koma því
á prent. Kristján kvaðst í þakkarávarpi sínu
vera vanari því að eiga sæti í nefndum sem
veita verðlaun fremur en vera í sporum þess
sem við tekur. Þótt það kæmi honum í opna
skjöldu þá segði hann alls ekki að hann hefði
orðið fyrir vonbrigðum. Þó svo sagt sé að
sælla sé að gefa en þiggja, þá geti hið síðar-
nefnda einnig verið Ijúft, að minnsta kosti
þótti forföður okkar Agli ekki leitt að þiggja
sitt eigið ljóta höfuð að skáldalaunum forðum
og trúlega ekki heldur ástmegi okkar, Jónasi,
að þiggja hörpudiskinn af systur sinni, en það
séu einu skáldalaunin sem hann kvaðst muna
til að Jónas hefði fengið. Hér skipti einnig
máli hver sá aðili er sem viðurkenningu veit-
ir. Áður fyrr þótti nú ekki spilla fyrir að hann
væri konungborinn. Kristján kvað það mikið
ánægjuefni að hér og nú sé það Ríkisútvarpið
sem hlut á að máli. „Ríkisútvarpið er í mínum
augum okkar sanna akademía eða háskóli allr-
ar þjóðarinnar og höfuðvígi þeirrar sjálfstæðu
menningar okkar sem nú er sótt að úr öllum
áttum, jafnt utanfrá sem innan,“ sagði hann
og lét í ljós von um að okkur megi auðnast
að standa vörð um þessa ágætu stofnun þann-
ig að hún verði áfram sá menntabrunnur og
vettvangur vitsmunalegrar umræðu sem hún
hefur verið til þessa.
Stjórn Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins er
skipuð fimm mönnum. Formaður er Ingi Bogi
Bogason, skipaður af menntamálaráðherra,
Margrét Oddsdóttir og Sigurður Valgeirsson
skipuð af Ríkisútvarpinu og Anton Helgi Jóns-
son og Gerður Kristný, skipuð af Rithöfunda-
sambandinu.