Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MORGUNB L AÐIÐ
AKUREYRI
Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Glerárkirkju
Píanókonsert eftir Beethoven
og sinfónía eftir Dvorák
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Norð-
urlands fagnar nýju ári með tónleik-
um í Glerárkirkju á morgun^ sunnu-
daginn 4. janúar kl. 17. A efnis-
skránni eru tvö verk, 8. sinfónía
tékkneska tónskáldsins Antoníns
Dvoráks og Píanókonsert nr. 3 eftir
Ludwig van Beethoven. Einleikari á
tónleikunum er Daníel Þorsteinsson
píanóleikari.
„Ég hef oft spilað með smærri
hljómsveitum, en aldrei áður einleik
með sinfóníuhljómsveit. Þannig að
þetta er svolítið nýtt fyrir mér,“
sagði Daníel en hann ásamt Sigurði
Halldórssyni sellóleikara lék á liðnu
ári öll verk Beethovens sem skrifuð
voru fyrir píanó og selló. „Maður
sökkti sér ofan í Beethoven og það
var ágætis undirbúningur fyrir
þessa tónleika þó svo að þeir hafi
reyndar ekki verið til komnir þá,“
sagði Daníel. Beet-
hoven frumflutti Pí-
anókonsert nr. 3 árið
1803, en með því verki
var brotið blað í tón-
listarsögunni þar sem
tónskáldið fór ótroðn-
ar slóðir í tónsetningu
og stfl, en þetta hríf-
andi og magnþrungna
verk hefur æ síðar
snortið áheyrendur
djúpt.
Dvorák samdi 8. sin-
fóníuna þegar hann var
á hátindi frægðar sinn-
ar, en um hana hefur
verið sagt að hugmynd-
ir tónskáldsins hafí
flætt svo hratt fram að
það hafí vart getað hamið þær, enda
kemur verkið áheyrendum sífellt á
óvart í endalausum
margbreytileika sínum.
„Þetta er ein af
stærstu rómantísku
sinfóníunum, sú sem
kemur á undan nýja-
heimssinfóníunni,
þeirri númer 9. Hún er
líkt og Dvorák er, stór-
ar, miklar línur og oft
dálítið þjóðlagakennd,"
sagði Daníel.
Hann sagði bæði
verkin magnþrungin
og hann hlakkaði til að
takast á við að leika
þau á tónleikunum á
morgun. „Ég hef
kannski ekki verið sér-
lega skemmtilegur yfir
jólin, með þetta alveg á heilanum, en
maður verður að slíta sig frá æfing-
unum, þótt það sé erfitt. Nú er ég
orðinn óþreyjufullur. í rauninni er
þetta stórkostlegt tækifæri fyrir
mig. Oftast er maður sjálfur í því að
skapa sér sín tækifæri, þess vegna
er svo yndislegt þegar manni er boð-
ið að taka þátt í tónleikum af þessu
tagi,“ sagði Daníel.
Hljómsveitarstjóri _ á tónleikunum
verður Guðmundur Oli Gunnarsson,
en hann hefur verið aðalhljómsveit-
arstjóri sveitarinnar frá upphafi.
Hann er auk þess fastur stjórnandi
Caput hópsins og hefur stjómað
hljómsveitum heima og í útlöndum,
m.a. Sinfóníuhljómsveit Islands.
Þetta er fimmta starfsár Sinfóníu-
hljómsveitar Norðurlands sem held-
ur að jafnaði ferna til fimm tónleika
á hverju starfsári. A nýárstónleikun-
um skipa um fimmtíu manns hljóm-
sveitina.
Daníel Þorsteinsson
pfanóleikari.
Messur
AKUREYRARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 14 á morg-
un, sunnudag. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 17.15 næst-
komandi fimmtudag, bænar-
efnum má koma til prestanna.
GLERÁRKIRKJA: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14 á
morgun, Barnakór Glerár-
kirkju syngur.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Al-
menn samkoma á morgun,
sunnudag, kl. 17, Majórarnir
Turid og Knut Gamst stjórna
og tala.
Jólafagnaður fyrir unglinga-
klúbbinn kl. 20.30 á þriðju-
dag, krakkaklúbbur kl. 17 á
miðvikudag, bæn og lofgjörð
kl. 17.30 á fimmtudag, fyrsti
fatamarkaður ársins frá kl. 10
til 17 næsta föstudag og kl.
19.30 þann dag er fundur hjá
11 plús mínus.
KFUM og K, Sunnuhlíð.
Bænastund kl. 20 á sunnu-
dagskvöld, 4. janúar.
Morgunblaðið/Kristján
Mikill fjöldi fólks á ferð um áramót
Náttúrulækningafélag íslands
og Akureyrarbær
V ílj ay nrlýsing
um leigu
á Kjarnalundi
FYRIR liggur viljayfirlýsing frá
stjóm Náttúrulækningafélags Is-
lands sem á Kjarnalund í Kjama-
skógi og bæjaryfirvalda á Akureyri
um að leita samninga um flutning á
starfsemi dvalarheimilisins í Skjald-
arvík í Kjarnalund.
Vilhjálmur Ingi Arnason í stjórn
NFLÍ sagði að Hótel Harpa hefði
Kjarnalund á leigu næstu árin og
eftir ætti að ræða við forsvarsmenn
þess um málið. Kjarnalundur er
2.400 fermetra stór bygging og um
200 milljóna króna virði að sögn Vil-
hjálms Inga. Ailt að 70 manns geta
gist hótelið en verði því breytt í
dvalarheimili má gera ráð fyrir að
rými verði fyrir um 50 manns.
Leita Ieiða til að halda lífí
„Við eigum þessa stóru eign og
hún kostar okkur mikla peninga, við
erum að leita allra leiða til að
tryggja að hún verði okkur ekki
myllusteinn um háls og drekld okk-
ur. Heilbrigðisyfirvöld hafa lýst því
yfir að þau muni ekki nota húsið á
næstunni, þannig að við erum bara
að leita leiða til að halda lífi,“ sagði
Vilhjálmur Ingi.
I haust fól bæjarráð Akureyrar
Jakobi Bjömssyni bæjarstjóra, Sig-
urði J. Sigurðssyni bæjarfulltrúa og
Valgerði Magnúsdóttur félagsmála-
stjóra að eiga viðræður yið fulltrúa
Náttúrulækningafélags íslands um
hugsanlega leigu á Kjamalundi með
það fyrir augum að flytja starfsemi
dvalarheimilisins Skjaldarvíkur
þangað. Gera þarf miklar og kostn-
aðarsamar endurbætur á húsnæði
Skjaldai-víkur, þannig að bæjaryfir-
völd hafa á síðustu mánuðum leitað
annan-a lausna, m.a. hvort hugsan-
legt sé að leigja Kjamalund og flytja
starfsemi dvalarheimilsins þangað.
Það á að gefa
börnum bók
SIGRÚN Klara Hannesdóttir flytur
fyrirlestur við Háskólann á Akureyri
næstkomandi þriðjudag 6. janúar kl.
16 í húsnæði háskólans á Sólborg,
gengið inn um aðaldyr frá bílastæði.
Fyrirlesturinn nefnist Það á að
gefa börnum bók - jólabækur, lestr-
arvenjur, Netnotkun barna og ung-
linga á íslandi. Ekki hefui- þótt síður
mikilvægt að gefa bömum bók að
líta í en „brauð að bíta í“ á jólunum,
en tímar hafa breyst og læðist sá ótti
að mörgum að börn og unglingar
hafi meiri áhuga á tónlist, tölvuleikj-
um og því að kafa í undirheima Nets-
ins, en að sitja yfir bókum.
Sigrún Klara mun velta upp ýms-
um spurningum í fyrirlestri sínum,
til dæmis hvort gjafavenjur, bóklest-
ur og Netnotkun eru breytilegar eft-
ir aldri, kyni og búsetu. Dr. Sigrún
Klara er prófessor í bókasafns- og
upplýsingafræði við Háskóla ís-
lands.
/ 0PÍnn
A^SllÍbeywÍ fyrirlestur
Tími: Þriðjudagur 6. janúar
Staður: Háskólinn á Akureyri, Sólborg, aðalbygging
(gengið inn frá bílastæði)
Flytjandi: Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir
Efni: Það á að gefa börnum bók...
Jólabækur, leslrarvenjur og Internetnotkun barna
og unglinga á íslandi
410 fæðingar á FSA á nýliðnu ári
Fyrsta Norðlend-
ingsins beðið
FJÖLDI fólks var á ferðinni á
Akureyri um áramótin. Margir
fóru að áramótabrennum og urðu
nokkrar tafír á umferð einkum í
kringum brennu við Réttar-
hvamm. Eftir að dansleikjum lauk
klukkan fjögur um nóttina safn-
aðist mikill mannfjöldi saman á
Ráðhústorgi en ölvun var ekki
áberandi mikil, að sögn varð-
stjóra lögreglunnar.
Flestir hefðu verið til fyrir-
myndar, en sumir hefðu ekki get-
að stillt sig um smáslagsmál
þannig að einhverjir hefðu fagnað
nýju ári með glóðarauga eða blóð-
nösum.
FÆÐINGAR á fæðingardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri urðu
alls 410 á árinu 1997, eða 18 færri en
árið áður. Alls fæddust 419 börn á
nýliðnu ári, 216 stúlkur og 203 dreng-
ir og voru tvíburafæðingarnar 9.
Nýársbarn hafði ekki komið í
heiminn á Norðurlandi um miðjan
dag í gær, hvorki á Akureyri, Húsa-
vík, Siglufirði né Sauðárkróki.
Fæðingar á Sjúkrahúsinu á Húsa-
vík urðu alls 43 á síðasta ári, 44 á
Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki og 13 á
Sjúkrahúsinu á Siglufirði.