Morgunblaðið - 03.01.1998, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
___________________________________VIÐSKIPTI___________________
Viðskipti á Verðbréfaþingi íslands námu 189 milljörðum króna árið 1997
Aukningin nam rúm-
lega 58% á milli ára
Veltan var um 28 milljarðar króna í desembermánuði
HEILDARVIÐSKIPTI ársins á
Verðbréfaþingi íslands námu tæp-
um 189 milljörðum króna og er
aukningin rúmlega 58% frá árinu
1996. Viðskipti á Verðbréfaþingi
í desember síðastliðnum urðu hin
mestu í einum mánuði í sögu þings-
ins eða alls 27,7 milljarðar króna.
Það er 1,5 milljörðum meira en í
fyrri metmánuði, október síðast-
liðnum.
Margfalt metár
15. desember var mesti við-
skiptadagur í sögu Verðbréfa-
þingsins en þá námu viðskiptin 3,4
milljörðum króna. Tíu stærstu við-
skiptadagar þingsins voru allir á
árinu 1997 og af tíu mestu við-
skiptamánuðum í sögu þess voru
átta á árinu 1997.
Helstu ástæður hinnar miklu
veltuaukningar eru aukin þátttaka
banka og sparisjóða á Verðbréfa-
þingi, aukin útgáfa verðbréfa,
meiri þátttaka fjárfesta og breyttir
viðskiptahættir að því er kemur
fram í fréttatilkynningu frá þing-
inu.
Aukin þátttaka bankanna
Bankar, sparisjóðir og aðrar
íjármálastofnanir hafa í vaxandi
mæli fært fjárstýringaraðgerðir
inn á markaðinn en áður voru þær
einkum framkvæmdar á milli-
bankamarkaði og með viðskiptum
við Seðlabankann. Þannig koma
sveiflur í lausafjárstöðu mun skýr-
ar fram á verðbréfamarkaðnum en
áður tíðkaðist. Jafnframt hefur
útgáfa bankavíxla aukist og orðið
skipulegri en viðskipti með þá hafa
stóraukist. Á sama tíma hafa við-
skipti með ríkisvíxla og ríkisbréf
minnkað enda er minna af þeim í
umferð en áður vegna minnkandi
lánsfjárþarfar ríkissjóðs.
Aukin útgáfa verðbréfa
Verðbréfum á skrá þingsins hef-
ur fjölgað um 6% og eru þau nú
um 325 talsins og verðbréfaflokkar
hafa stækkað. Skráðum hlutafé-
lögum fjölgaði mest, úr 32 í 51
eða um tæp 60%. Skuldabréfa-
flokkum fjölgaði lítillega en veru-
legar breytingar urðu þó á þeim
hluta markaðarins. Ríkissjóður og
Húsnæðisstofnun gefa nú út mun
færri flokka bréfa en áður en
margir þeirra verða hins vegar
miklu stærri en fyrr. í stað þeirra
flokka sem eru útrunnir hafa kom-
ið margir nýir flokkar skuldabréfa,
einkum frá fjármálastofnunum en
einnig frá fyrirtækjum í öðrum
rekstri.
Meiri þátttaka fjárfesta
Verðbréfaþing telur viðskipta-
mynstur hlutabréfa og annarra
bréfa benda til þess að þátttakend-
ur á markaði séu nú mun virkari
í viðskiptum en áður. Viðskipti á
þinginu eru jafnari og dreifast
meira á árið en áður tíðkaðist.
Sérstaklega er þetta áberandi með
hlutabréf og desembermánuður,
sem var áður stærsti viðskipta-
mánuður slíkra bréfa, er nú aðeins
meðalmánuður. Mestu hlutabréfa-
viðskipti í einum mánuði í sögu
þingsins urðu t.d. í apríl síðastliðn-
um.
Breyttir viðskiptahættir
Viðskiptahættir hafa breyst og
þingaðilar hafa í auknum mæli
gerst viðskiptavakar með stóra
flokka skuldabréfa. Þá hafa við-
skipti í senn aukist og orðið sýni-
legri, þ.e. farið fram í viðskipta-
kerfi þingsins. Viðskipti með skráð
bréf utan þings hafa að sama skapi
minnkað.
Vöruskiptajöfnuðurínn óhagstæður fyrstu 11 mánuðina 1997
Halli á vöruskiptum 100 millj.
idglPSí mest seldu fólksbíla- l^tegundlrnar Breyt.frá ■ w 3llt árið 1997 fyrra ári Fjöldi % %
1.Tovota 1.757 17,3 +12,7
2.Volkswaqen 1.103 10,9 +9,9
3. Subaru 1.039 10,2 +93,8
4. Mitsubishi 953 9,4 +55,0
5. Hyundai 756 7,5 +31,9
6. Nissan 743 7,3 -2,5
7,Opel 679 6,7 +48,3
8. Suzuki 551 5,4 +9,8
9. Ford 418 4,1- +16,4
10. Renault 403 4,0 +29,6
11.Honda 349 3,4 +87,6
12. Ssanqvona 203 2,0 +153,8
13. Peuaeot 176 1,7 +109,5
14. Daihatsu 165 1,6 +120,0
15. Mazda 150 1,5 +26,1
Aðrar teg. 701 6,9 -14,0
Samtals 10.146 100,0 +26,2
K Bifreiða-
innfiutn.
árin1996
og 1997
VORU-,
SENDI- og
HÓPFERÐA-
BÍLAR, nýir
1.164
1996 1997 1996 1997
Fjórðungi meiri innflutningur
Rúmlega tíu þúsund nýir fólksbílar voru fluttir til landsins á nýliðnu ári
og nemur aukningin 26,2% á milli ára. Toyota er sem fyrr í fyrsta sæti
með um 13% innflutningsins eða 1.757 bíla, Volkswagen er í öðru sæti
en Subaru t' hinu þriðja. Af meðfylgjandi töflu sést að innflutningur
eykst mismikið eftir tegundum. Aukningin nemur um 10% á
Volkswagen, 94% hjá Subaru og 55% á Mitsubishi bifreiðum.
Innflutningur á Ssangyong jeppum jókst um 153% á árinu. 1.164 nýir
vöru- sendi- og hópferðabifreiðar voru fluttar til landsins á árinu og
nam aukningin 31,5%.
-kjarni málsins!
FLUTTAR voru út vörur fyrir 118,9
milljarða króna fyrstu ellefu mán-
uðina á nýliðnu ári, en fluttar inn
vörur fyrir um 119 milljarða. Halli
var því á vöruskiptunum að fjárhæð
100 milljónir króna á tímabilinu,
en á sama tíma árið áður stóðu þau
í járnum. í nóvembermánuði voru
fluttar út vörur fyrir 11,3 milljarða
og inn fyrir tæplega 10,9 milljarða
og voru vöruskiptin því hagstæð
um 400 milljónir, en í nóvember
árið áður var jafnvægi í vöruskipt-
unum.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
yfirliti var verðmæti vöruútflutn-
ings fyrstu ellefu mánuðina um 6%
meira á föstu gengi en á sama tíma-
bili í fyrra. Þessa breytingu má
einkum rekja til sölu Flugleiða á
einni af flugvélum sínum í janúar
og til aukningar á útflutningi iðnað-
arvara, aðallega á áli. Á móti
minnkaði verðmæti útflutnings á
heilfrystum fiski. Sjávarafurðir
voru 72% útflutningsins og var
verðmæti þeirra 1% meira en á
sama tíma árið áður. Verðmæti
útfluttrar iðnaðarvöru jókst hins
vegar um 17%, en þar af var verð-
mæti útflutts áls 26% meira og
verðmæti kísiljárns 1% meira.
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ings fyrstu ellefu mánuði þessa árs
var 6% meira á föstu gengi, en á
sama tíma árið áður. Mestan þátt
í auknum vöruinnflutningi áttu fjár-
festingarvörur, sérstaklega til stór-
iðju, en einnig jókst innflutningur
á fólksbílum, á neysluvörum og á
eldsneyti og smurolíum. Á móti kom
samdráttur í innflutningi á skipum.
Daewoo kaupir
53,5% í SsangYong
SSANGYONG Motor Company,
framleiðandi Musso og Korando
jeppanna, hefur staðfest við um-
boðsaðila sinn á íslandi, Bílabúð
Benna, að selt hafi verið allt að
53,5% hlutafjár í SsangYong Motor
til annarra fjárfesta. Kaupandinn
er Daewoo Motor Corp., annar
stærsti bílaframleiðandi í Kóreu.
Daewoo var fyrir sameininguna eitt
af 24 stærstu fyrirtækjum í heimi
samkvæmt lista Fortune Magazine.
Að sögn Benedikts Eyjólfssonar,
eie-anda Bílabúðar Benna. verður
eignaraðild Daimler-Benz í
SsangYong Motor óbreytt enda er
sameiningin gerð með samþykki
Benz. Fyrirtækin hafa haft náið
samstarf og mun það halda áfram.
SsangYong verður hins vegar sjálf-
stæð rekstrareining innan Daewoo.
Talið er að helstu kostir sameining-
arinnar séu aukin sérhæfing í fram-
leiðslu og samhæfðar vörulínur.
Framtíðarstefna SsangYong er
að auka markaðshlutdeild á öllum
sviðum bílamarkaðar. Talið er að
brevtinein stvrki bæði fvrirtækin.
Aldur öku-
tækja miðast
við skrán-
ingardag
ALDUR ökutækja hér á landi
mun frá og með 1. janúar
miðast við fyrsta skráningar-
dag í stað framleiðsluárs eða
árgerðar, eins og nú tíðkast í
öðrum Evrópulöndum.
Þetta er í samræmi við
samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið, þar sem
kveðið er á um að öllum aðild-
arlöndum beri að nýskrá nýjar
fólksbifreiðar með sambæri-
legum hætti, skv. evrópsku
samræmisvottorði frá 1. jan-
úar 1998. í þessu vottorði eru
hvorki upplýsingar um fram-
leiðsluár eða árgerð ökutækja
og skráning þessara atriða
fellur því niður, að því er segir
í frétt frá Bílgreinasamband-
inu. Þar segir einnig að mikil-
vægt sé að ein samhæfð skrán-
ing sé ríkjandi á markaðnum,
sem verði fyrsti skráningar-
dagur, enda sé það hagur bíl-
kaupenda að tryggt sé að sam-
bærilegar upplýsingar um ald-
ur ökutækja liggi fyrir við
kaup og sölu notaðra bíla.
Nýjar reglur um
verðtryggingu
Lágmarks-
binditími
inn- og útlána
lengist
LÁGMARKSBINDITÍMI verð-
tryggðra útlána banka og sparisjóða
lengdist nú um áramótin úr þremur
árum í fimm ár og lágmarksbindi-
tími verðtryggðra innlána lengist úr
einu ári í þrjú. Þessi breyting bygg-
ir á reglum Seðlabankans frá því í
júní 1995 og er áfangi að því marki
að draga úr notkun verðtryggingar
til skamms tíma.
í frétt frá Seðlabankanum kemur
fram að fyrsti áfangi þessara breyt-
inga tók gildi í ársbyijun 1996. Þá
var lágmarksbinditími verðtryggðra
innlána lengdur í eitt ár og lág-
markslánstími verðtryggðra útlána
og skuldabréfa í þijú ár.
Jafnframt kom fram í reglunum
að stefnt væri að lokaáfanga breyt-
inga á verðtryggingarreglunum í
byijun ársins 2000 þegar heimild til
verðtryggingar innlána félli brott,
en lágmarksbinditími verðtryggðra
útlána og skuldabréfa lengdist í sjö
ár. Endanleg ákvörðun um þennan
áfanga liggur þó ekki fýrir.
-----♦ ♦ ♦-----
Mastur keypti
10% hlut Húsa-
víkurbæjar
MASTUR hf., eignarhaldsfélag 01-
íufélagsins, íslenskra sjávarafurða
og Samvinnulífeyrissjóðsins, var
kaupandi að 10% hlut í Fiskiðjusam-
lagi Húsavíkur hf., sem Húsavíkur-
bær og félagið sjálft seldu skömmu
fyrir jól. Þetta eignarhaldsfélag er
jafnframt einn stærsti hluthafinn í
Samskipum hf.
Sala bréfanna var skráð í við-
skiptakerfi Verðbréfaþings
skömmu fyrir lokun þingsins á
gamlársdag og var þá um leið til-
kynnt um nafn kaupanda.
Hlutabréf þessi eru að nafnvirði
um 62 milljónir og voru seld miðað
við gengið 2,8 eða fyrir 174 milljón-
ir. Eftir sölu bréfanna er Húsavík-
urbær með um þriðjung hlutafjár-
ins, en átti fyrir rúmu ári rúmlega
helmineinn.