Morgunblaðið - 03.01.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 33
LEIKIR
Goldeneye, leikur fyrir Nin-
tendo 64 leikjatölvur.
leikurinn styður Rumble Pack.
007 er nafn sem við könn-
umst líklega flest við, enda er
það nafn á frægasta njósnara
allra tíma sem heitir í raun
Bond, James Bond. Þrátt fyr-
ir miklar vinsældir Bond-
myndanna hefur aldrei verið
gerður leikur eftir myndun-
um fyrir leikjatölvur. Nú hafa
leikjafyrirtækin Rareware og
Nintendo loks brotið ísinn.
Útkoman er einn sá allra
besti skotleikur sem komið
hefur út, en hann er eingöngu
til fyrir Nintendo 64.
Goldeneye leikurinn er eins
og nafnið gefur til kynna að
öllu leyti byggður á mynd-
inni Goldeneye sem var
frumsýnd fyrir rúmum tveim
árum. Menn velta því
kannski fyrir sér hví leikur-
inn er að koma út fyrst núna
en biðin var þess virði. Gold-
eneye er sannkallaður braut-
ryðjandi og gervigreind ill-
menna hans ein sú allra
besta sem hefur sést í leikj-
um, illmennin fínna alltaf
bestu leiðina til að sitja fyrir
þér eða koma sér undan
Mið-
heima-
diskur
MIÐHEIMAR gáfu fyr-
ir skemmstu út geisla-
disk með safni af helsta
hugbúnaði sem nýtist
netvinum, en á disknum
er að auki að finna kynn-
ingarútgáfur nokkurra
leikja og veffræðslu.
Guðmundur Hannes-
son hjá Skímu segir að
diskurinn sé helst ætlað-
ur viðskiptavinum Mið-
heima, enda sé uppsetn-
ing miðuð við tengingu
við Miðheima og diskur-
inn fylgii' nýjum netá-
skriftum hjá Miðheim-
um. „Það geta þó að
sjálfsögðu allir sem vilja
keypt sér diskinn, en við
seljum hann nú á jólatil-
boðsverði og fylgir
þriggja mánaða áskrift
að netþjónustu Mið-
heima.“
Á disknum eru upp-
setningarfonit fyrir
Netið, Macintosh og
Windows 3.11, NT og 95.
Guðmundur segir að
hann sé settur saman að
'frumkvæði, undir verk-
stjórn og á ábyrgð
Skímu hf. „Við efnisval
var haft að leiðarljósi að
nýir notendur fengju að-
gang að skemmtilegu,
fjölbreyttu og fræðandi
efni sem gerði þeim
kleift að kynnast Vefnum
og Netinu á auðveldan
hátt. Sem dæmi má
nefna að sem notendaskil
er notaður vefrápari.
Þannig getur nýr not-
andi lært á og vanist því
viðmóti sem hann fer að
vinna með á Netinu,“
segir Guðmundur en
einnig er á disknum safn
HTML-skjala sem Mið-
heimar kjósa að kalla
Vefskólann, en í þeim er
kennsla á öll helstu hug-
tök og heiti netnotkunar.
James Bond
Bond,
árásum þínum.
Vopnabúr leiksins er
einnig mjög gott og spannar
allt frá litlu hljóðdeyfðu PP7
byssunni hans Bonds til
árásariffla og handsprengna,
en of langt væri að telja þau
öll upp.
Goldeneye nýtir innbyggt
minni tölvunnar svo ekki
þarf að kaupa sérstakt
minniskort til að hægt sé að
vista og sækja gamla leiki.
Erfitt væri að bera hann
saman við aðra álíka leiki
vegna þess að þetta er fyrsti
skotleikurinn sem hannaður
er einungis fyrir leikjatölvur
og hyggjast leikjahönnuðir
ekki gefa hann út fyrir PC-
tölvur, eða að minnsta kosti
alls ekki í bráð.
Hægt er að festa svokall-
aðan Rumble Pack við
stýripinnann svo hann hrist-
ist allur og nötrar þegar
skotið er úr byssunum eða
sprenging verður. Þær era
frekar margar sprengingar í
þessum leik svo það borgar
sig að kaupa þetta litla
sniðuga tæki, þó það væri
aðeins fyrir Goldeneye.
Ekki er þó nóg að ganga
um og skjóta, einnig er þörf
á njósnaleiðöngram þar sem
þú þarft að taka myndir af
tölvuskjáum eða gervihnött-
um, stela teikningum eða
myndbandsspólum eða
myrða á laun einhvem óvin
konungdæmis Breta, í slík-
um borðum er oftar en ekki
þörf á mikilli varkárni þar
sem minnsta hreyfing getur
sett af stað þjófavarnakerfi
sem sendir hálfan rússneska
herinn á staðinn með þann
eitt á heilanum, að ná þér
dauðum eða lifandi.
Grafík leiksins er næstum
gallalaus, öll horn og veggir
passa saman og ekki er hægt
að sjá hinn minnsta galla á
öllu umhverfinu sem er það
skemmtileg tilbreyting frá
þvf sem gengur og gerist í
flestum slíkum skotleikjum
fyrir leikjatölvur. Meirihlut-
ann af vopnabúrinu færðu
frá hinum fjölmörgu her-
mönnum sem þú neyðist til
að taka úr umferð á leiðinni,
mundu að þú hefur leyfi til
að drepa, en hluti er þó frá Q
sem sér þér fyrir sérgerðum
eða breyttum vopnum til
sérstakra borða þar sem
þeirra er þörf. Gaman er að
því hversu mikil áhrif þú get-
ur haft á umhverfi þitt en
næstum allt er hægt að eyði-
leggja og/eða taka upp og
nota gegn óvinum þínum.
Tónhstin svíkur ekki sanna
Bond aðdáendur, en hún er öll
tekinn úr fyrri Bond-myndum.
I byrjun hvers verkefnis, en
þau eru um 20 talsins, færðu
skýrslu um hvað þú átt að
gera; M segir þér hvað og
hvemig þú átt að gera það, Q
segir þér hvað þú átt að nota
til verksins og að lokum kem-
ur Moneypenny og segir þér
hversu varlega þú átt að fara,
líkt og hefur oftast verið í
myndunum. Ekki má þó halda
að allt sé nákvæmlega eins og
í myndinni, en gott að vita um
hvað myndin fjallar svo þú vit-
ir hvað þú átt að gera á erfið-
um stöðum og líka gott að vita
þegar fyrirmælin era óljós,
það kemur nefnilega fyrir að
þú hafir ekki hugmynd hvað
þú átt að gera á borðinu.
Aldrei borgar sig að drepa
fleiri en þú nauðsynlega þarft
og ekki eltast við óvini sem
hlaupa í burtu. Ef þeir komast
til samherja og þú ert á eftir
þeim er vanalega kveikt á við-
vöranarkerfmu sem best er að
forðast af öllum mætti. Einnig
borgar sig að taka sér svolít-
inn tíma í að kynnast stjórn-
uninni á leiknum því mjög
erfitt er að miða í byrjun
leiksins.
Ingvi M. Árnason
Civilization
verður Civ
► EINN helsti leikur
tölvusögunnar er Civi-
lization eftir Sid Meier
sem flestir kannast við.
Sá seldist gríðarlega vel
og gat af sér óteljandi
afbrigði ýmissa fram-
leiðenda.
Upphaflegur útgef-
andi Civilization og síð-
ar Civilization II var
MicroProse, sem GT
gleypti fyrir skemmstu,
en áður en það gerðist
hafði Sid Meier stofnað
annað fyrirtæki og tek-
ið til við nýja gerð
leikja. Activision keypti
síðan réttinn að nafni
leiksins, Civilization, og
þegar MicroProse hugð-
ist setja á markað við-
bót við Civilization II
var úr vöndu að ráða,
því hvorki mátti nota
nafnið né nafn höfund-
arins, sem þó var alltaf
tengt við leikinn. Niður-
staðan varð því að kalla
leikinn einfaldlega Civ
II, Fantastic Worlds og
þar við situr.
Glæsilegur
gallagripur
Shadow of the Empire krefst Pentium ör-
gjörva, 16 MB innra minnis, fiögurra
hraða geisladrifs, sextán bita hljóðkorts
og þrívíddarskjákorts. Hann styður allar
helstu gerðir skjákorta, 3Dfx Voodoo,
Rendition Vérité og 3Dlabs Permedia 2,
en einnig þarf til DirectX 5, sem fylgir.
Ef notað er 3Dfx-kort, til að mynda Mon-
ster 3D, er nóg að hafa 90 MHz Pentium,
en 120 MHz er lágmark fyrir önnur kort.
LucasArts gefur út.
GEORG LUCAS hefur komið ár
sinni vel fyrir borð; ekki er bara að
hann sé vinsæO kvikmyndaframleið-
andi og leikstjóri heldur hefur hann
byggt upp öflugt tölvuleikjafyrirtæki
sem kallast LucasArts. LucasÁrts hef-
ur sent frá sér grúa góðra leikja og oft-
ar en ekki verið í fararbroddi í leikja-
heiminum fyrir snjallar lausnir, lipur-
lega grafík eða skemmtilega geggjaða
kímni. Mjög hefur borið á leikjum sem
byggja á sögupersónum eða atburðum
í Star Wars myndaröðinni, enda mikil
markaðssetning í gangi á þeim bæ,
gömlu myndimar endurútgefnar og
nýjar í vændum.
Shadows of the Empire kom á sínum
tíma út fyrir Nintendo 64, með fyrstu
leikjum sem gefnir voru út fyrir þá vél,
en þó menn hafi staðið á öndinni af
hrifningu yfir grafíkinni í honum þótti
leikmánn sjálfur heldur klénn. Sögu-
persónan er málaliðinn og ævintýra-
maðurinn Dash Rendar sem reyndir að
spilla samsæri prinsins Xizor og lags-
manna hans um að ráða Loga Geim-
gengil af dögum. Meðal helstu kosta
leiksins er hversu fjölbreyttur hann er,
þ.e. ýmist er verið að fljúga flaug í
gegnum loftsteinaský og skjóta á ill-
menni um leið, fljúga lítilli þotu í glímu
við vélfákana ógurlegu, þeysa um á
loftfáki eða berjast í líku umhverfi og í
Dark Forces. Hængurinn á er að hlut-
fóllin eru ekki góð; þ.e. of mikill tími fer
í síðastnefnda hlutverkið, en of litlum
er varið í hin fjölbreyttu störf í barátt-
unni gegn hinu illa. Skotleikminn er
nefnilega ekkert sérstakur, hættur all-
ar fyrirsjáanlegar, gangarnir sem
þvælst er um ekki spennandi, of lítið
um þrautir í leiknum og illþýðið sem
fella á er líkara sláturfénaði en út-
smognum morðhundum. Sem dæmi um
leiðinlegt borð er eitt sem felst helst í
því að standa lengi á færibandi og hafa
ekkert annað fyrir stafni en beygja sig
eða stökkva eftir því sem hindranir
gefa tilefni til. Þetta er nokkuð sem
ætti ekki að sjást nema kannski í leikj-
um fyrir yngstu kynslóðina. Síðan eru
lokaóþokkamir í borðunum, sem eiga
vitanlega að vera erfiðastir, full auð-
veldir viðureignar því hægt er að
standa álengdar, til að mynda rétt utan
seilingar, og salla þá niður í rólegheit-
unum. Nefni sem dæmi höfuðóþokkann
í flóttanum frá Echo-stöðinni, því þá er
nóg að koma sér fyrir rétt utan við
gættina svo hann sjái leikandann ekki
eða illa og síðan skjóta á hann í hvert
sinn sem hann kemur í færi.
Annars er nóg við að vera í Shadows
of the Empire, því borðin era tíu og
mikið um undirborð. Grafíkin er og
framúrskarandi, líkt og var í Nintendo
64 útgáfunni, en hann gerir líka kröfu
um þrívíddarhraðal; ekki er hægt að
keyra leikinn á tölvu með venjulegu
skjakorti.
Ástæða er til að geta um hljóðrásina,
sem er sérdeilis vel heppnuð og undir-
strikar rækilega tengslin við kvik-
myndirnar. Að mörgu leyti er Shadows
of the Empire því vel heppnaður leik-
ur, en gallarnir era þó fullmargir frá
leikjaframleiðanda á við LucasArts.
Getið er galla í leiknum sjálfum og
endurtekninga, en einnig má nefna
þess að leiðinlegt er að geyma í leikn-
um og galið að ekki er hægt að geyma
nema verkefni sé lokið. Kemur ekki að
sök í styttri verkefnunum, en í þeim
lengstu getur verið ansi pirrandi að
þurfa að byrja upp á nýtt vegna smáó-
heppni undir lok borðsins.
Árni Matthíasson
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni
Uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem
eiga við streitu, kvíða og fælni að
stríða og/eða eru að ganga í gegnum
miklar breytingar í lífinu. Kenndar
verða leiðir til þess að slaka á og
öðlast aukið frelsi og lífsgleði.
Engin reynsla eða þekking á jóga
nauðsynleg.
Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 13. janúar.
Heildarjóga (grunnnámskeið)
Námskeið fyrir þá sem vilja kynnast jóga og
læra leiðir til slökunar. Kenndar verða hatha
jógastöður, öndun, slökun og hugleiðsla.
Fjallað verður um jógaheimspekina,
mataræði o.fl.
Leiðbeinendur: Daníel, Arnbjörg og Lárus.
Mán. og mið. kl. 20.00. Hefst 7. janúar.
Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 8. janúar.
Þri. og fim. kl. 17.15. Hefst 13. janúar.
Mán. og mið. kl. 20.00. Hefst 14. janúar.
Morgunjóga í 10 vikur
Mán., mið. og fös. kl. 8.00. Hefst 12. janúar
Jógatímar alla virka daga
Mánaðarkort, þriggja mánaða kort,
hálfsárskort og árskort. Öll kortin gilda
einnig í tækjasal.
Mán.-fös. kl. 12.10, 17.15 og 18.25.
Laugardaga kl. 10.30.
Pólunarmeðferð fyrir líkama og sál
Heildræn meðferð sem hentar fólki á öllum aldri.
Ójafnvægi á orkusviði manneskjunnar brýst fram
í líkamlegum og andlegum einkennum. Með léttri
snertingu örvar þólun orkusviðið og stuðlar að
bættu jafnvægi og betri heilsu. Unnið er með
heilbrigðan kjarna sem er að finna í hverri
manneskju. Pólun er byggð á jóga, ayurveda og
oesteopathy. Llsa Björg Hjaltested er meðlimur í
APTA, ameríska pólunarfélaginu.
Viö bjóðum upp á jógatíma, jóganámskeið, tækjasal
og pólunarmeðferð allt árið í kring í notalegu og
afslöppuðu umhverfi. ATH. afsláttinn á www.afsláttur.is
Afgreiðslutími kl. 10.30-13.15 og 14.30-18.30.
Arnbjörg
Lísa
YOGA^
STU D IO
Hátúni 6a,
sími 511 3100
verslun fyrir líkama og sál