Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 37
AÐSENDAR GREINAR
Góður árangur í bar-
áttu gegn spilliefnum
Á SÍÐASTA ári voru
samþykkt á Alþingi lög
um spilliefni, sem
höfðu að geyma nokk-
ur nýmæli í íslenskri
umhverfislöggj öf.
Þessum lögum var síð-
an breytt á Alþingi nú
í þessum mánuði til
þess að taka á nýjum
viðfangsefnum, sem
upp hafa komið við
framkvæmd laganna.
Með álagningu sérs-
taks spilliefnagjalds
var mengunarbóta-
reglan fest í sessi, en
hún felst í því að sá
sem mengar beri
kostnað af því að bæta fyrir og
draga úr menguninni. Þá var gert
ráð fyrir að einstakar vörur gætu
verið undanþegnar spilliefnagjaldi,
ef atvinnugreinar eða fyrirtæki
kæmu upp viðunandi kerfi fyrir
söfnun og förgun efnanna. Með
þessu er opnað fyrir möguleika á
fijálsum samningum ríkisvaldsins
og atvinnulífisins á sviði umhverfis-
mála og er útlit fyrir að gengið
verði frá slíkum samningum í ná-
inni framtíð.
Framkvæmd laganna hefur
gengið vonum framar. Verk spilli-
efnanefndar, sem sér um fram-
kvæmdina, er á undan áætlun. Skil
á spilliefnum hafa batnað. Losun
spilliefna í umhverfið er af mörgum
talin alvarlegasta mengunai-vanda-
mál Islendinga og það er ekki of-
mælt að segja að við
séum að ná góðum tök-
um á því vandamáli á
stuttum tíma.
Efnamengun á
norðurslóðum
Spilliefni eru úr-
gangsefni, sem spilla
umhverfinu og flest
þeirra teljast einnig
eitruð eða hættuleg
heilsu manna eða líf-
vera. Stærsti flokkur
vara sem verða að
spilliefnum eru olíuvör-
ur ýmiskonar (einkum
smurolía), en af öðrum
vöruflokkum má nefna
málningu, leysiefni, rafhlöður og
rafgeyma, meindýraeitur, framköll-
unarvökva og fleiri efni í ljósmynd-
un og prentiðnaði.
Sum þessarra efna geta verið
bráðeitruð, önnur eru einkum
áhyggjuefni vegna hugsanlegra
langtímaáhrifa á heilsu manna og
lífvera. Sem dæmi um virkni sumra
efnanna má nefna að nákuðungar
í Faxaflóa og jafnvel víðar við ís-
land hafa greinst vanskapaðir
vegna áhrifa eiturefnisins tbt, sem
áður fyrr var notað í botnmálningu
skipa. Talið er að ekki þurfi nema
eitt milligramm af efninu í milljón
rúmmetrum af sjó til að valda van-
sköpuninni.
Á síðustu árum hefur komið í
ljós að mikið magn eiturefna á borð
við PCB og margs konar skordýra-
Spilliefni eru líklega al-
varlegasti mengunar-
valdurinn við ísland,
segir Guðmundur
Bjarnason, en það
gengur framar vonum
að draga úr losun þeirra
í umhverfið.
eitur finnst í iífverum á norðurslóð-
um, m.a. á Svalbarða og í inúíta-
byggðum Kanada. Þessi efni safn-
ast fyrir í lífkeðjunni og finnast í
mestu magni í efstu hlekkjum henn-
ar, s.s. í ísbjörnum og selum og
mönnum. Ekki hefur orðið vart við-
líka mengunar á íslandi eða miðun-
um við landið, magn PCB og
skyldra efna er t.d. miklu minna í
íslenskum fiski en í fiski úr Norð-
ursjó en eigi að síður er það
áhyggjuefni fyrir okkur að alvarleg
efnamengun skuli finnast í lífverum
á norðurslóðum, langt frá upp-
sprettum mengunarinnar.
8.000 tonn af spilliefnum á ári
Stærstur hluti spilliefna í um-
hverfinu við Ísland kemur langt að,
en engu að síður ber okkur íslend-
ingum skylda til að sjá til þess að
draga sem mest úr mengun af völd-
um spilliefna hér á landi. Talið er
Guðmundur
Bjarnason
að um 7.500-8.000 tonn af spilli-
efnum falli til á ári hverju hér á
landi og að hluti þeirra berist út í
umhverfið, m.a. með fráveitum. Nú
er unnið að stórfelldum umbótum
á fráveitum á höfuðborgarsvæðinu
og víða um land, en sú mikla fjár-
festing sem þar liggur að baki skil-
ar sér ekki að fullu nema þess verði
jafnframt gætt að hættulegustu
efnin fari ekki út í fráveituvatn.
Nær 900 tonnum af spilliefnum
er skilað árlega til Sorpu bs., sem
fargar efnunum innanlands eða
sendir þau utan til eyðingar. Olíufé-
lögin senda um 5.500 tonn af olíu-
vörum til brennslu í Sementsverk-
smiðjuna á Akranesi, þar sem
hættulegustu efnin eyðast. Þetta
teljast góðar heimtur ef miðað er
við önnur lönd, en þó er hægt að
bæta skilin, sem er eitt helsta mark-
mið spilliefnalaganna. Annað lykil-
atriði laganna er að koma á sann-
gjörnu kerfí í söfnun og förgun.
Aður fyrr var mönnum gert að
greiða fyrir förgun efnanna við
móttöku, sem þýddi að hinir lög-
hlýðnu borguðu en skussarnir
sluppu.
Nú er spilliefnagjald tekið af efn-
unum strax við framleiðslu innan-
lands (sem er reyndar sáralítil,
nema á málningu) eða í tolli þegar
um innflutt efni er að ræða. Af-
rakstur þess er síðan látinn standa
undir kostnaði við eyðingu efnanna.
Með þessu er enginn fjárhagslegur
ávinningur af því að losa sig við
spilliefni í niðurfallið, eins og var,
þar sem kostnaður við förgun hefur
verið greiddur fyrirfram.
Nú er lagt spilliefnagjald á hættu-
legar rafhlöður og rafgeyma, ljós-
myndavörur ýmiss konar, málningu,
varnarefni og ísósýanöt. Líklegt er
að frjálsir samningar verði gerðir
við atvinnulífíð um ábyrga förgun á
úrgangsolíu og fleiri spilliefnum inn-
an skamms. Spilliefnanefnd áætlar
að endanlegum ramma utan um
söfnun og förgun allra spilliefna
verði komið á á fyrri hluta næsta
árs, sem er á undan áætlun.
Þátttaka atvinnulífsins
- lykill að árangri
Fyrir sjö árum var varla farið að
huga að söfnun og förgun spilliefna
á Islandi. Sjálft hugtakið spilliefni
var ekki til í íslenskri tungu, en það
er notað sem samheiti yfír hvers
kyns eitruð og hættuleg úrgangs-
efni. Það hefur hins vegar mikið
áunnist á stuttum tíma. Spilliefna-
nefnd hefur varið gífurlegum tíma
og lagt mikinn metnað í störf sín,
sem hafa gengið mjög vel. Eiga
nefndarmenn sérstakar þakkir skild-
ar fyrir alla þá vinnu. Innan nokk-
urra ára höfum við vonandi náð því
marki að mengun af völdum hættu-
legustu efnanna sé hverfandi hér á
landi, þó að við þurfum áfram að
berjast fyrir því á alþjóðavettvangi
að draga úr þeirri mengun sem hing-
að berst með loft- og hafstraumum.
Einn helsti lykillinn að góðum
árangri á þessu sviði er áhugi at-
vinnulífsins og virk þátttaka við að
leysa vandann. Matvælaframleiðsla
er mikilvægasta útflutningsgrein
okkar íslendinga og þar er hrein
ímynd íslensks físks og landbúnað-
arafurða eitt helsta tromp okkar.
Umræða víða erlendis um mikið
magn PCB og annarra þrávirkra
lífrænna efna í fiski er umhugsun-
arefni fyrir okkur. Erlendir kaup-
endur íslenskra afurða og umhverf-
isverndarsamtök munu fylgjast með
því hvernig meðferð spilliefna er
hagað á íslandi. Þar getum við ver-
ið ánægð með þann árangur sem
náðst hefur, en við megum aldrei
sofna á verðinum hvað varðar efna-
mengun umhverfisins og þá hreinu
ímynd sem íslenskar afurðir hafa.
Höfundur er umhverfisráðherra.
200 námsmenn
í vinnu við nýsköpun
Baldur
Þórhallsson
NYSKOPUNAR-
VERÐLAUN forseta
Islands verða afhent
nk. fimmtudag. Rann-
sóknarverkefnin sem
keppa um verðlaunin
eru unnin á vegum
Nýsköpunarsjóðs
námsmanna. Átta
nemendur standa að
verkefnunum sem eru
sex en alls unnu 200
nemendur á háskóia-
stigi að verkefnum á
vegum Nýsköpun-
arsjóðs námsmanna sl.
sumar. Fjöldi þeirra
nemenda sem sjóður-
inn veitti atvinnu hefur
aldrei verið meiri og er það einkum
að þakka auknum fjárframlögum
fyrirtækja.
Flestar umsóknir til sjóðsins
koma frá nemendum en það hefur
færst verulega í vöxt að fyrirtæki
sæki beint um styrki til sjóðsins til
að ráða námsmenn í vinnu. Það
hefur einnig færst í vöxt að fyrir-
tækin greiði hluta af launum náms-
manna sem hljóta styrk úr sjóðn-
um. Það má því gera ráð fyrir að
rúmlega 40 milljónum sé varið til
launagreiðslna námsmanna sem
vinna við nýsköpun í tengslum við
Nýsköpunarsjóð námsmanna. Við
þetta bætist síðan óbeinn kostnaður
fyrirtækja og stofnana sem ráða
námsmenn í vinnu en erfítt er að
áætla hversu mikill sá kostnaður er.
Aukið samstarf fyrirtækja
og háskóla
Það hefur verið ánægjulegt að
fylgjast með auknum áhuga fyrir-
tækja á Nýsköpunarsjóði náms-
manna. Eitt af markmiðum sjóðsins
er einmitt að koma á
auknum tengslum at-
vinnulífs og háskóla.
Það er ánægjulegt að
sjá að þetta markmið
er að nást. Forsvars-
menn fyrirtækja og
háskólakennarar vinna
í auknum mæli saman
og sækja sameiginlega
um styrki til að ráða
námsmenn í vinnu yfír
sumarmánuðina. Állir
aðilar hagnast á slíku
samstarfi. Nemendur
njóta þó einkum ávaxt-
anna í formi betri
tengsla við atvinnulíf-
ið. Þeir fá hugmyndir
að lokaverkefnum og geta oft tengt
fræðileg viðfangsefni við daglegan
vanda sem fyrirtæki glíma við.
Námsmenn sem unnið hafa ný-
sköpunarverkefni hjá fyrirtækjum
eða stofnunum hafa einnig oft á
tíðum fengið áframhaldandi vinnu
að námi loknu.
Verkefnin sem keppa
um forsetaverðlaunin
Rannsóknarverkefnin sem keppa
um Nýsköpunarverðlaun forseta
íslands sýna þá fjölbreytni sem ein-
kennir þær rannsóknir sem unnar
eru á vegum Nýsköpunarsjóðs
námsmanna. Dómnefnd skipuð val-
inkunnum fræðimönnum og ein-
staklingum úr atvinnulífinu valdi
verkefnin, eftir að hafa farið í
gegnum þann fjölda vandaðra verk-
efna sem sjóðurinn styrkir. Verk-
efnin sex eru: Samþætting heim-
speki og eðlisfræði í elstu bekkjum
grunnskóla, Hvernig eru biðlistar
í heilbrigðisþjónustunni uppbyggð-
ir?, Menningararfurinn í nútíman-
Nýsköpun í atvinnulíf-
inu og í vísindum, segir
Baldur Þórhallsson,
fer saman eins og aukin
ásókn fyrirtækja í sjóð-
inn sýnir.
um, Fáfnir - hugbúnaður fyrir
flokkun hráefnis í fískvinnslu, Próf-
un á efnum úr íslenskum fléttum
með tilliti til verkunar á krabba-
meinsfrumur og bólguviðbrögð og
Rannsóknir á líffræðilega virkum
efnum í sjávargróðri og öðru sjáv-
arfangi. Dómnefndin mun útnefna
það verkefni sem hlýtur fyrstu
verðlaun og verður spennandi að
sjá hvert þeirra verður fyrir valinu.
Hvað er nýsköpun?
Við sem komum að rekstri Ný-
sköpunarsjóðs námsmanna erum
oft spurð að því hvað nýsköpun sé.
Það má eflaust endalaust deila um
rétta skilgreiningu á nýsköpunar-
hugtakinu og ég efa stórlega að
einhver ein rétt skilgreining sé til.
Spurningin er samt góð en henni
er erfitt að svara einkum í ljósi
þess að sjóðurinn á að stuðla bæði
að nýsköpun á fræðasviðum og í
atvinnulífinu.
Surnir vildu eflaust skilgreina
nýsköpun sem framleiðslu á tæki,
helst þá umfangsmiklu tæki, sem
hreyfist og hægt er að stinga í sam-
band. Við í stjórn Nýsköpunarsjóðs
námsmanna höfum hins vegar skil-
greint nýsköpunarhugtakið mjög
vítt. Við lítum á nýsköpun sem
framleiðslu á nýjurn hugmyndum.
í okkar skilgreiningu er það til
dæmis nýsköpun að koma með
nýjar hugmyndir að því hvernig
kynna megi betur þann menningar-
arf sem Arnastofnun geymir. For-
sendur verkefnisins Menningararf-
urinn í nútímanum er að menning-
ararfur þjóðarinnar sé að mörgu
leyti vannýtt auðlind og að bætt
framsetning og markviss kynning
á honum geti bætt þar verulega
úr. Benda má t.d. á þá staðreynd
að einungis 1 prósent erlendra
ferðamanna heimsækir Árnastofn-
un.
Nýsköpun getur líka verið ný
aðferð, eins og aðferðin til að
bæta eðlisfræðikennslu í grunn-
skólum landsins með því að sýna
fram á tengsl heimspeki og eðlis-
fræði. Verkefnið Samþætting
heimspeki og eðlisfræði í elstu
bekkjum grunnskóla gerir það með
því að sýna fram á hvernig hægt
er að nota heimspekilegar vinnu-
aðferðir til að bæta náttúrufræði-
kennslu og með því að leggja drög
að heimspekilegu námsefni í nátt-
úrufræðum fyrir 7.-9. bekk grunn-
skóla.
Það er einnig nýsköpun að afla
nýrra upplýsinga eins og til dæmis
að kanna hvernig biðlistar í heil-
brigðisþjónustunni eru uppbyggðir.
Þetta var gert með því að spyrja
spurninga eins og hvort allir fái
sömu þjónustu þegar raðað er á
biðlista, hvort misjafnar starfsað-
ferðir sérfræðinga leiði til mismun-
andi samsetningar á biðlistum
o.s.frv. Engar skriflegar vinnuregl-
ur eru til um röðun á biðlista eða
sameiginlegt vinnulag stofnana og
einstakra deilda. Rannsókn á bið-
listum sjúkrastofnana er því ein af
forsendum þess að hægt sé að
bregðast við þeim vanda sem bið-
listarnir skapa.
Nýsköpun má einnig skilgreina
sem nýtt ferli eða nýja aðferð til
að útskýra ákveðið mynstur eins
og til dæmis rannsóknir á líffræði-
lega virkum efnum í sjávargróðri
og prófun á efnum úr íslenskum
fléttum með tilliti til verkunar á
krabbabeinsfrumur og bólguvið-
brögð.
Hönnun nýrrar vöru og nýs hlut-
ar er að sjálfsögðu einnig nýsköpun
og er e.t.v. hin hefðbundna skil-
greining á nýsköpun. Þeir náms-
menn sem standa að verkefninu
Fáfnir, hugbúnaður fyrir flokkun
hráefnis í fiskvinnslu, hafa hannað
hugbúnað sem aðstoðar fram-
leiðslustjóra við afurðaval á loðnu
og síld. Þetta er gert með því að
nota upplýsingar um stærðar- og
kynjadreifmgu loðnu og síldar frá
sýnatökuvog til að fínna hagkvæ-
mustu flokkamörk.
Eins og af þessu má ráða getur
nýsköpunarhugtakið tekið á sig
hinar ýmsu myndir. Við leggjum
áherslu á að nýsköpun innan allra
fræðigreina fái að njóta sín. Ný-
sköpun í atvinnulífinu og í vísindum
fer saman eins og aukin ásókn
fyrirtækja í sjóðinn sýnir.
Kjörið tækifæri fyrirtækja
og námsmanna
Mikil samkeppni er um styrki
úr sjóðnum en alls bárust sjóðnum
280 umsóknir sl. sumar og af þeim
hlutu 165 styrki. Að hverri umsókn
standa oft tveir eða fleiri náms-
rnenn og er fjöldi námsmanna sem
sækja um styrki úr sjóðnum því
mun meiri en umsóknarfjöldinn
segir til um þar. Námsmenn fá
greidd laun í 1 til 3 mánuði yfir
sumarmánuðina en í flestum tilfell-
um greiða fyrirtæki eða stofnanir
sem námsmenn vinna hjá hluta af
launakostnaði á móti sjóðnum. All-
ir námsmenn sem stunda nám á
háskólastigi geta sótt um styrki til
að vinna að rannsóknum. Náms-
mönnurn, sem vilja vinna við rann-
sóknir yfir sumarmánuðina, gefst
kjörið tækifæri til þess með því að
sækja um styrk hjá Nýsköpunar-
sjóði námsmanna. Fyrirtæki sem
og stofnanir geta einnig sótt beint
um styrki til þess að ráða náms-
menn í vinnu við rannsóknarverk-
efni. Umsóknarfrestur til að sækja
um sumarvinnu við nýsköpun renn-
ur út 10. mars nk.
Höfundur er stjórnmálafræðingur
og fornmður stjórnnr
Nýsköpunarsjóðs námsmanna.