Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.01.1998, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Attalus plasthúöun • Fjölbreytt vandaö úrval af efnum • Fullkomnar plasthúöunarvélar • Vönduö vara - betra verö í sambandi við neytendur frá morgni til kvöids! - kjarni málsins! _____________AÐSENPAR GREINAR Deila sem verður að leysa Torfi _ Tryggvi Magnússon Ásmundsson DEILA ungra lækna við ríkið hefur nú staðið í rúmar 2 vikur. Enn sem komið er gætir áhrifa henn- ar mest meðal sér- fræðinga og yfir- lækna, sem hafa orð- ið að manna vaktir spítalanna yfir hátíð- irnar. Hefur það verið lítið tilhlökkunarefni manna, sem sumir eru komnir á sjötugs- aldur, að standa í eldlínunni í rúman sólarhring og fást við verk sem þeir eru orðnir óvanir, þótt þeir hafí eitt sinn verið fullfærir um að vinna þau. Hefur það helst verið til bjargar að um hátíðimar er venjulega lítið umleikis á sjúkra- húsunum og þangað leita aðeins sjúklingar með mjög bráða sjúk- dóma. Nú eftir áramótin munu aðrir en læknar fara að fínna í vaxandi mæli fyrir þessari deilu. Það liggur í augum uppi að eldri læknar munu ekki geta gengið að sínum venjulegu störfum eins og ekkert hafí í skorist eftir að hafa staðið rúmlega sólarhring á vakt. Spítalarnir munu þó vonandi áfram geta sinnt bráðveiku fólki, en allar lækningar sem hugsanlega geta beðið verða að bíða. Biðlistar munu þá lengjast og eru þó sumir þeirra ærið langir fyrir. Eldri læknar munu ekki halda út núverandi vaktabyrði án þess hreinlega að örmagnast og brotthvarf þeirra af vöktum mun leiða til upplausnar á sjúkrahúsunum. Deila þessi er því miður óvenju- erfið. Það er ekki torvelt að skilja að því sé ekki tekið með fögnuði í fjármálaráðuneytinu að nýgerðir og samþykktir kjarasamningar dugi ekki til að fá lækna til vinnu. En ungir læknar eiga annarra kosta völ en að starfa á spítulum. Skortur er á læknum til starfa á landsbyggðinni og flestir yngri læknar hyggja á sérmenntun er- lendis og geta flýtt þangað för sinni. íslenskir læknar hafa átt auðvelt með að komast í slíkar námsstöður og nú bjóða sumar nágrannaþjóðir gull og græna skóga þeim læknum sem vilja koma til starfa hjá þeim. Ef þessi deila leysist ekki strax með góðri sátt má gera ráð fyrir að fáir ungir læknar heQi störf á ný á spítulun- um. Ekki bætir úr skák að óvenjufáir læknastúdentar munu ljúka embættisprófi í læknisfræði Nú eftir áramótin, segja Torfi Magnússon og Tryggfvi Ásmundsson, munu aðrir en læknar fara að finna í vaxandi mæli fiirir þessari deilu. í vor. Það er því afar brýnt að deiluaðilar finni strax lausn á þess- ari erfiðu deilu. Það er ekki í verkahring lækna- ráða spítalanna að hafa afskipti af kjaradeilum. Hins vegar eiga læknaráðin að fylgjast með því að gæði læknisþjónustunnar séu við- unandi og helst meira en það. Það virðist því miður stefna í það á allra næstu dögum að þjónusta við sjúklinga skerðist og það litla sem nú ber á milli deiluaðila réttlætir á engan máta þá dauðans alvöru sem við blasir. Torfi Míignússon er læknir og formnihir læknaráðs Sjúkrahúss Reykjavíkur. Tryggvi Ásmundsson er læknir og formaður læknaráðs Landspítalans. RAOAUGLÝSIINIGAR BHS •ÓKMCNN7 MANDMCNNT SIDMKNNT Vorönn í Borgarholtsskóla Dagskóli: Stundatöflur verða afhentar dagskólanemum á skrifstofu skólans við Mosaveg í Grafarvogi þriðjudaginn 6. janúar kl. 13.00—16.00. Bóka- listi fylgir stundatöflum. Nemendur eru minntir á að gera skil á þeim gjöldum þsem þeir kunna að eiga ógreidd í síðasta lagi þegar stundatöflur eru sóttar. Nýnemar eru boðaðirtil fundar í skólanum kl. 8.30 miðvikudaginn 7. janúar. Kennsla í dag- skóla hefst samkvæmt stundaskrá þann sama dag kl. 9.00. Kvöldskóli: -^prgarholtsskóli býður upp á kvöldnám, bæði fýrir þá sem hafa áhuga á að Ijúka einstökum áföngum framhaldsskóla og einnig fyrir þá sem hyggjast stunda nám í málmiðngreinum. Innritun í kvöldskólann verður 5. og 6. janúar kl. 16.00—19.00. Mikilvægt er að nemendur komi til innritunar á þeim tíma og taki með sér gögn um fyrra nám. í kvöldskóla er kennt eftir kl. 18 mánudaga—fimmtudaga. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánu- daginn 12. janúar. í boði eru (með fyrirvara um næga þátttöku): Almennar bóklegar greinar: BÓK 102, DAN 102, ENS 102 og 202, ÍSL 202, STÆ 122, TÖL 103. I^agbóklegar greinar málmidna. Verklegar greinar málmiðna. Suður, rennismíði, smíðar, aflvélar, vélbúnað- ur. Við innritun er greitt grunngjald, kr. 10.000 og auk þess kr. 1.000 fyrir hverja námseiningu sem valin er. Skólameistari. Starfsnám fyrir stuðnings- og meðferðarfulltrúa 8 vikna grunnnámskeið fyrir stuðnings- og með- ferðarfulltrúa og fólk í líkum störfum verður haldið á Grettisgötu 89 og byrjar 2. febrúar nk. Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannafélagi ríkisstofnana, Grettisgötu 89. Umsóknarfrestur til 9. janúar. Fræðslunefnd félagsmálaráðuneytisins. Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Útskrift verður í Fella- og Hólakirkju laugardaginn 10. janúar 1998, kl. 14.00 Allir nemendur dagskóla og kvöldskóla, er lokið hafa eftirtöldum prófum, eiga að koma þá og taka á móti prófskírteinum. Um er að ræða nemendur, er lokið hafa: burtfararprófi tæknisviðs af húsasmiðabraut burtfararprófi tæknisviðs af rafvirkjabraut, burtfararprófi tæknisviðs af vélsmiðabraut námi af handíðabraut matartæknanámi sjúkraliðanmi snyrtifræðinganámi námi af uppeldisbraut verslunarprófi stúdentsprófi. Eldri útskriftarárgangar, foreldrar, aðrir ætt- ingjar svo og velunnarar skólans eru velkomnir á útskriftina. Skólameistari. Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Upphaf vorannar 1998 6. janúar — þriðjudagur: Kennarafundur kl. 9.00. Töfluafhending nýnema og námskynning kl. 13.00. Töfluafhending eldri nema kl. 12.00—15.00 8. janúar — fimmtudagur: Deildarstjórafundur kl. 10.00. 9. janúar — föstudagur Deildafundir. 12. janúar — mánudagur: Kennsla hefst skv. stundaskrám. Innritun í kvöldskóla FB: 5. janúar kl. 16.30—19.30. 7. janúar kl. 16.30—19.30 8. janúar kl. 16.30—19.30. Skólameistari. fj Olbrautasxóunn BREifiHOtn Innritun Innritað verður í Kvöldskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrirvorönn 1998: Mánudaginn 5 jan k) 16.30-19.30. Miðvikudaginn 7 jan k) 16.30-19.30. Fimmtudaginn 8. jan. kl. 16.30-19.30. Skólameistari. SMÁAUGLÝSINGAR KENNSLA Sundnámskeið Sundskólans Svamla. 1. námskeið hefst 5. janúar 1998. Ungbarnasund 1 og 2. Aðlögun og leikir 1 og 2/framhald 1 og 2. Innritun og upplýsingar í síma 587 5277. Sundskóli S.D. KR. Sundnámskeið fyrir 3ja til 6 ára börn hefjast 6. janúar 1998. Aðlögun og leikir 1 og 2/fram- hald 1 og 2. Innritun og upplýsingar í síma 587 5277. FÉLAGSLÍF Landsst. 5998010316 I Rh. kl. 16.00 FERDAFÉIAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Sunnud. 4. janúar kl. 13.00 Nýársganga: Ásfjall- Hvaleyrarvatn Fögnum nýja árinu í léttri og hressandi göngu með Ferðafé- laginu. Verð 700 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Einnig stansað v. kirkjug. Hafn- arfj. Munid þrettándagöngu og blysför um álfabyggðir í Öskjuhlíð á þrettándanum 6. janúar kl. 20.00 frá Perlunni. Blys seld á staðnum kr. 300. Sunnudaginn 4. janúar: Nýárs- og kirkjuferð Útivistar. Brottför frá BSl kl. 09.00. Farið í kirkjusókn Goðalands og kirkjan að Holti heimsótt. Heimasiða: centrum.is/utivist Eitt blað fvrir alla! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.