Morgunblaðið - 03.01.1998, Síða 56

Morgunblaðið - 03.01.1998, Síða 56
56 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Skósmiður með stðrt hjarta LEO Tolstoy ritaði jólasögu sem fjallar um fátæka skósmiðinn Pa- von afa. Hann óskaði þess að frels- arinn vitjaði hans í einsemdinni á aðfangadagskvöld. Hann ætlaði að gefa honum litlu bamaskóna sem hann hafði smíðað íyrir löngu og voru þeir bestu sem hann hafði nokkru sinni gert. Frelsarinn kom ekki en þess í stað hýsti Pavon afí vegalausa, einstæða móður sem ráfaði úti í kuldanum með litla bamið sitt. Hann gaf baminu skóna. Það var Kristur í náungan- um. Þessi saga kom í hug mér þegar ég hlustaði á Steinar Waage skó- kaupmann segja sögu sína. Hann var aðeins sex ára að aldri er hann hélt í fyrsta sinn upp á jólin fjarri fjölskyldunni. „Eg man vel eftir fyrstu jólunum á spítala,“ segir hann. „Þá var mér gefið lítið jólatré sem var ekki nema kannski hálfur metri á hæð. Þetta var gervijólatré, eina jóla- tréð sem fjölskylda mín átti á stríðsárunum." Flestir landsmenn kannast við skóbúðir Steinars Waage, sem halda upp á 40 ára afmæli um þess- ar mundir, en fæstir þekkja mann- inn sjálfan. Steinar er rúmlega meðalmaður á hæð og þéttur á velli, hljóðlátur og hógvær. Veraldleg velgengni hefur ekki stigið honum til höfuðs og hann man vel eftir uppeldi sínu við kröpp kjör, enda hefur hann ávallt verið reiðubúinn að bretta upp ermarnar og óhreinka hend- umar. Hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum í samfélaginu, var lengi formaður Skókaupmannafé- lagsins, sem síðar var sameinað Félagi vefnaðarvörukaupmanna, og sat í stjórn Kaupmannasam- bandsins um árabil. Steinar hefur verið virkur í kristilegu starfi frá bamæsku og stutt starf Gídeonfé- lagsins, KFUM&K og Kristniboðs- sambandsins á ýmsan hátt. Varla er gefið út blað eða pési á vegum þessara hreyfínga að útgáfan sé ekki styrkt með auglýsingu frá Steinari Waage. Margir era honum því afar þakklátir íyrir örlæti hans sem minnir á hjartalag Pavons afa í sögu Tolstoys. Eg spjallaði við hann á dögunum á fallegu heimili hans og Clöra, konu hans, í Garðabænum. Ljúf tónlist flæddi um húsið, er mig bar að garði, og gaf til kynna að þar byggju unnendur góðrar tónlistar. Sjálfur sat hann í stólnum sínum góða sem hefur þann kost að skem- ill kemur fram þegar hann hallar sér aftur á bak. Steinar notar skemilinn aðallega íyrir annan fót- inn sem er visinn. Segja má að fót- urinn hafi á vissan hátt orðið ör- lagavaldur í lífi hans. Bernska „Endurminningar mínar tengj- ast að mestu þeim tímamótum er ég fékk lömunarveiki fimm ára gamall upp úr inflúensu sem þá gekk. Ég hafði verið í sveit um sumarið vestur á Fjörðum hjá Jóni föðurbróður mínum sem var bóndi á Tjaldanesi og síðar Hrafnseyri við Arnarfjörð. Það er mér mjög minnisstætt að það ágæta fólk sendi mér myndarlegt magn af krækiberjum og bláberjum sem það hafði tínt. Mér var stungið inn á Farsóttarheimilið en þá réð Mar- ía Maack þar ríkjum. Hún var dug- leg að fá mig til að borða og hafði mikla trú á því að góð matarlyst skipti máli íyrir heilbrigðið. Ég var settur í einangran á stofu uppi á efri hæð og var svo máttlaus að ég gat bara hreyft hendur og höfuð. Rúmið mitt var fært út að glugga, en ég sá lítið annað en dúf- ur. Eg gat séð út um gluggann með þvi að rétta spegil upp í áttina að Um þessar mundir eru 40 ár frá stofnun skó- verslunar Steinars Waage. IQjartan Jóns- son ræðir við kaup- manninn um starf hans og áhugamál, en Stein- ar hefur verið virkur þátttakandi í kristi- legu starfí, allt frá barnæsku. honum. Ætli þetta hafi ekki verið fyrstu not mín af spegli." Ég man ekki mikið frá þessum tíma en minnist þess að veikur maður var í herberginu hjá mér og ég gerði mér grein fyrir því einn morguninn að hann hafði dáið um nóttina. Fólk mátti ekki koma nærri mér af ótta við smit en þeir sem hjúkraðu mér vora sennilega taldir ónæmir! Foreldrar mínir urðu að láta sér nægja að koma í dymar og tala við mig þaðan. Þá lærði ég að senda fingurkoss. Móðir mín var dugleg að heim- sækja mig og kom yfirleitt dag- lega. Til að auðvelda það fluttu for- eldrar mínir úr Laugarnesinu á Ei- ríksgötuna. Minningamar frá þessum tíma era góðar og tengjast flestar Maríu Maack, sem ég held að hefði viljað standa á höfði fyrir mig ef á hefði þurft að halda. Ég man ekki eftir að hafa verið einmana. Þama var ég í nokkra mánuði en var síðan fluttur yfir á lyfjadeild Landspítalans þar sem Jón Hjalta- lín prófessor réð ríkjum. Hann tók mig föstum tökum og nýtti kunn- áttu nuddkonu sem starfaði þar. Hún var ákaflega dugleg að nudda mig og reyna að fá mig til að nota fæturna. Rafmagn var þá mikið notað til að reyna að fá líf í vöðva. Mér fannst það ekki þægilegt. Hún nuddaði fætur mína með púðum, sem hún hélt á með handfongum. Því meira rafmagn sem var í púð- unum því óþægilegra var nuddið. Þetta var gert í marga mánuði og mátturinn jókst og ég hreyfði mig sífellt meir, var meira að segja far- inn að ganga. Þegar annar fóturinn fór að snúast var bragðið á það ráð að setja mig í rúmið á meðan ég beið eftir spelkum. Það tók sinn tíma, en á meðan var reynt að halda mættinum við, sem farið var að kræla á í fótunum, með því að láta mig gera æfingar. Ég átti að gera þær sjálfur, en gerði það víst eitthvað slælega, enda ekki nema sjö ára patti. Ég held að það hafí verið mistök að setja mig í rúmið. Frekar hefði ég átt að halda áfram að ganga. Með seinni tíma þekk- ingu hefði mátt rétta fótinn við. V* * ' ‘í . ' ' •. ' ' STEINAR með sveinsstykkið gðða árið 1957. Það þótti svo vel unnið að hann fékk silfurmedalfu fyrir það. SAMHERJAR. Feðgarnir Steinar og Snorri. Snorri hefur tekið að mestu við daglegum rekstri skóbúðanna. Mátturinn hvarf alveg úr öðrum fætinum. Þegar á leið varð ég efalaust ekki allt of þægilegt kjörbam þama og skreið út um alla Land- spítalalóðina og sleit stundum ein- um buxum á dag. Mér leið mjög vel þama og fann til væntumþykju til starfsfólksins og öryggiskenndar. Ég var svo lengi á spítalanum að á einu til tveimur árum var ég búinn að vera á flestöllum stofunum á lyfjadeildinni, bæði á karla- og kvennagangi. Ég var lengst af á herbergi númer sjö og kynntist mörgum ágætis mönnum. Síðar fékk ég spelkurnar sem ég hafði beðið eftir og gat þá stigið í máttlausa fótinn og gengið. Þá var ég átta ára en fór í sjö ára bekk í Austurbæjarskólanum. Það var reynt að kenna sjúklingum svolítið í almennum fögum en lærdómurinn hefði mátt ganga betur. Af spítal- anum flutti ég yfir á Eiríksgötuna þar sem foreldrar mínir bjuggu og tveir bræður, en við urðum fjórir. Þai'na bjó ég á stríðsáranum og man vel eftir þeim tíma. Húsin era þriggja hæða blokkir. íbúðin okkar var í kjallaranum, en þangað átti fólk að fara ef loftvamaflautur yrðu þeyttar. Nokkuð háar tröppur vora fyrir framan útidyrnar og þar sátum við löngum og horfðum á ýmsar gerðir stríðsflugvéla sem komu og fóra. Ég man vel eftir því, þegar ég lá á Landspítalanum, að ég sá flug- vélar út um gluggann sem nýttu sér aðstöðuna í Vatnsmýrinni, en það var eini flugvöllurinn sem þá var notaður. Reyndar var hann bara grasflatir. Síðan var Reykja- víkurflugvöllur lagður og þá kynnt- ist maður þeim umsvifum sem fylgdu slíkum herflugvelli. Þegar ég átti heima á Eiríksgötunni fór- um við bræðumir á hverjum sunnudagsmorgni út á götuna til að horfa á Skotana marsera við undirleik sekkjapípuflauta. Það var mjög sérstakt. A leið í skólann gekk ég alltaf fram hjá heilmiklum braggakampi sem var á Skóla- vörðuholtinu. Þá hafði ég gaman af að fylgjast með hermönnum sem gengu á vakt meðfram girðingunni. Við bræðurnir reyndum oft að sníkja okkur ís eða eitthvað slíkt af hermönnunum." Foreldrar „Ég er fæddur í Reykjavík árið 1932. Faðir minn var Skarphéðinn Waage, ættaður vestan af Fjörð- um, fæddur og uppalinn í Amar- firði. Hann var sjómaður en vann á Klöpp hjá Lýsissamlagi íslenskra botnvörpunga á þessum árum. Þá var efnahagur almennings annar en nú er. Það munaði um það ef mjólkurflaska brotnaði eins og gerðist einu sinni hjá mér. Móðir mín var Málfríður Tómasdóttir, dóttir Tómasar Snorrasonar skó- smiðs sem rak skóverkstæði vestur í bæ. Þaðan kemur eitthvað af skilningnum á skóm. Hann var mikill Ijúflingsmaður, ákaflega vandvirkur og góður skósmiður Hann hafði ekki mikið umleikis a: því starfi. Síðar vann hann sen vélamaður hjá svo kölluði Milljónafélagi úti í Viðey. Þegæ Reykjavíkurhöfn var gerð var lögc járnbraut frá Skólavörðuholti nið- ur að höín. Grjótmulningsvél sen notuð var við hafnargerðina kon ósamsett til landsins og engar leið- beiningar um samsetninguní fylgdu henni. En afa tókst að setj; hana saman.“ Kristilegt starf „Þegar ég átti heima á Eiríksgöt unni kynntist ég mörgum góðun mönnum. Það þótti enginn ver; maður með mönnum nema hanr væri í KFUM og því fylgdi ég fé lögunum þangað. Það var upphafic að kynnum mínum af því félagi sen hafa staðið síðan. Ég gekk á hverj- um sunnudegi niður á Amtmanns- stíg á drengjafundi. Mörg hundrac drengir komu þar að staðaldri. Ég byijaði að sækja svo kallaða vina- deild sem var fyrir drengi að m'i ára aldri. Þar var ég hjá Bjarn; Ólafssyni, síðar lektor við Kennara- háskólann. Hann gaf okkur verð laun fyrir góða fundarsókn. Ég fékk Nýja testamenti. Síðar þegai ég fór í sumarbúðir KFUM Vatnaskógi lærði ég að lesa í Nýj; testamentinu mínu og gerði það ac fastri reglu sem ég hef haldið síðan Ég sótti allar deildir KFUM og endaði í aðaldeildinni þar sem ég er enn. Ég varð sveitarstjóri KFUM og hafði mína deild sen náði yfír allt Kleppsholtið. Húr kom saman í húsi KFUM í Laugar nesi sem var svo lítið að stundun urðum við að taka alla bekkina Ú1 úr húsinu til að fleiri drengii kæmust fyrir inni. Þeir sen komust ekki inn stóðu úti vic gluggana. Síðar stofnaði ég m.a KFUM í Garðabæ ásamt öðram. Mörg undanfarin ár hef ég tekic mikinn þátt í starfí Gídeonfélagsin; og það hefur verið hluti af tilver- unni að fara í skóla og gefa 11 ár; bömum Nýja testamentið. Méi finnst mikill heiður að fá að tak; þátt í því starfi og það hefur gefic mér mikið.“ Áhrifavaldar Hvaða menn hafa haft mest áhri: áþig? „Magnús Runólfsson, fram- kvæmdastjóri KFUM, var mér sér- staklega góður vinur og ég á hon um miklar þakkir að gjalda, sér- staklega í Biblíulestai-hópnum sen ég sótti í nokkur ár. Ég á honun trú mína fyrst og fremst að þakka. Ég skulda Bjama Eyjólfssyni fyrrverandi formanni KFUM einnig miklar þakkir. Hann gæ mér örlátlega af tíma sínum þrátt fyrir miklar annir. Þegar ég varð eldri varð sr Jónas Gíslason, síðar vígslubiskup mikilsverður í lífi mínu. Hann s; um Biblíulestra og trúarlega upp fræðslu fyrir okkur, hóp ungmenn; sem var kallaður Akraneshópur inn, en við fóram reglulega upp i Akranes og héldum samkomur Hann var þá stúdent í Reykjavík. Söngvar sr. Friðriks Friðriks- sonar höfðu mikil áhrif á mig 0£ hafa verið mér gott veganesti.“ Þú hefur lagt mikið á þig í starf fyrir KFUM og ekki fengið ki-óni fyrir? „Ég fékk annað betra: Samfélaj og blessun sem ég er í ævarand skuld út af og þykir vænt um ac hafa getað aðeins endurgoldið." Skór „Ýmis atvik urðu til þess að éf fór að vinna með skó. Eitt sumar vann ég sem sjálf- boðaliði við smíðar við að reis; skála sumarbúða KFUK í Vindás- hlíð. Tókst mér vel að vinna þótt éj; haltraði um á öðram fætinum. Ein- hver óvarkárni varð til þess að ég datt af kassa einn daginn og braul á mér verri fótinn og var fluttur sjúkrabíl til Reykjavíkui'. Þar tól Snorri Hallgrímsson á móti mér í slysavakt Landspítalans." SJÁ SÍÐU 58

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.