Morgunblaðið - 03.01.1998, Page 58
58 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Steinar hafði ekki miklar tekjur
á þessum árum en stundaði ýmis
tilfallandi störf sem hjálpuðu upp á
fjárhaginn. En spumingin um hvað
ætti að verða lífsstarf hans sótti
stöðugt á hann. Hann lauk tveimur
bekkjum í Iðnskólanum og reyndi
fyrir sér í úrsmíði og gullsmíði en
líkaði hvorugt.
Með hjálp prófessors Snorra fór
hann til náms í Danmörku. Trygg-
ingastofnun ríkisins gerði það
kleift með því að tvöfalda örorku-
bætur Steinars. Það átti að duga
honum ásamt smávasapening sem
hann fékk í laun fyrir smíðarnar í
náminu. Hann bjó lengst af í litlu
kvistherbergi á fímmtu hæð í
næsta nágrenni við spítalann, sem
ekki var mjög heppilegt fyrir fatl-
aðan mann.
Hann átti aðeins töskuna sína
þegar hann kom út. Siðan tókst
honum að spara fyrir skrif-
borðslampa og notuðum her-
mannabedda. Síðar bættust við
skrifborð, gólfteppi og leigt orgel
en hann reyndi að læra svolítið á
það, aðallega fyrir ánægjuna. „Elsa
dóttir mín hefur bætt úr því sem
aldrei varð hjá mér.“
Steinar lærði skósmíðar fyrir
fatlaða og fékk silfurmedalíu fyr-
ir vel unnið sveinsstykki. Síðan
fór hann í framhaldsnám í gervi-
limaskósmíði (að búa til skó á
gervilimi) í Þýskalandi í tæpt ár.
Það var aðeins fyrir meistara og
varð hann því að Ijúka meistara-
gráðu áður en hann gat hafið
námskeiðið. Þetta nám var undir-
staða þess sem síðar beið á ís-
landi og gaf víðari sýn í starfi. An
þess hefði hann ekki treyst sér til
að opna sérhæft skósmíðaverk-
stæði.
Skósmíðar
„Ég byrjaði skósmíðar 1957 eftir
að ég kom heim frá námi. Þá var
ég eini maðurinn á landinu sem
hafði fengið þessa menntun. Verk-
stæðið var í mjög litlum bílskúr við
hliðina á Styrktarfélagi lamaðra og
fatlaðra á Sjafnargötu 14 sem ég
leigði. Svavar Pálsson, einn af for-
ystumönnum Styrktarfélagsins,
sýndi mér mikla lipurð. Hann
leigði mér þetta pláss og lánaði
mér fyrir útgjöldum í upphafi sem
ég er sem betur fer búinn að
greiða til baka. En þetta var það
sem ég þurfti til þá. Prófessor
Snorri hafði hugsað sér að Land-
spítalinn sæi mér fyrir húsnæði.
Eg beið eftir því í nokkur ár en
það gekk ekki.“
Þegar í upphafi hóf Steinar að
flytja inn tréskó og bamaskó og
sameinaði skósmíðar og skósölu.
Hann smíðaði mikið af innleggjum
á fyrstu árunum. Síðan jókst rekst-
urinn og starfsemin var flutt í
Domus Medica þegar það var
byggt. Reksturinn þar gekk það
vel að fyrirtækið færði út kvíarnar
og verslunin Toppskórinn við Ing-
ólfstorg var opnuð. Síðan bættist
verslunin í Kringlunni við, en það
var mikið gæfuspor þótt það kost-
aði fórn fyrir fjölskylduna. Hún
varð að selja húsið sitt í Garðabæ
og bjó í leiguhúsnæði í sex ár á
meðan búðin var að koma undir sig
fótunum.
Bryddað hefur verið upp á ýms-
um nýjungum í verslunum Steinar
Waage, eins og t.d. 5% stað-
greiðsluafslætti, sem margir aðrir
kaupmenn hafa tekið til efth--
breytni.
Upphaf viðskipta
Það var erfitt að reka fyrirtæki í
kringum 1960 því að kerfið var
erfitt viðureignar. Öll mál þurfu að
fara fyrir svo kallaða skömmtunar-
nefnd og innflutningsnefnd og það
reyndi mjög á þolrifin. Gera þurfti
grein fyrir hverri vöru sem flutt
var inn og afla heimildar til að fá að
taka hana inn í landið. Ef gerð voru
mistök gátu menn átt á hættu að
missa innflutingsheimildina. Þá
voru tollamálin líka erfið. Það
þurfti margar hringingar og ferðir
áður en hægt var að leysa vöru út
úr tolli.
Harður heimur
Eru viðskiptin ekki óvægin og
grimm?
„Jú, þau geta verið það. Það er
engin miskunn þegar út í sam-
keppnina er komið. Það er tals-
verður vandi að starfa við þær að-
stæður og fylgja siðareglum kaup-
mannastéttarinnar en samkvæmt
þeim eiga menn að reyna að virða
sambönd og hefðir starfsbræðra,
en í harðri samkeppni þar sem fyr-
irtæki verða færri og stærri er til-
litslausari aðferðum beitt.“
Hvað er erfiðast við að vera
kaupmaður?
„Það er sú neikvæða afstaða
fólks almennt til okkar kaupmanna
og það álit að við séum sífellt að
hafa fé af því. Mér finnst þessi af-
staða neikvæðari en hún var.“
Stuðningur við kristilegt
starf og góð málefni
Hvað er mest virði eftir 40 ára
starfsævi?
„Mér finnst Guð hafa leitt mig
inn í störf min og að blessun hans
hafi hvílt yfir þeim. Mér finnst að
hann hafi gert mig að ráðsmanni til
að geta styrkt kristilegt starf. Orð
úr söng sr. Friðriks Friðrikssonar
hafa jafnan verið í huga mér: „Ef-
laust mætti finna, verk að vinna til
heiðurs þér.“„
Eins og áður segir hefur Steinar
stutt kristilegt starf og önnur góð
málefni af mikilli rausn. Hann hef-
ur sent notaða skó til Grænhöfða-
eyja í samvinnu við Þróunarsam-
vinnustofnun Islands og einnig til
Þýskalands, þaðan hafa þeir verið
sendir til Afríku og Suður-Amer-
íku.
Hann hefur einnig staðið straum
af kostnaði við gerð árlegs alman-
aks Kristniboðssambandsins, og
jólakorta KFUM&K sem eru mik-
ilvægar fjáröflunarleiðir fyrir þessi
samtök.
BRIDS
Umsjún Arnúr G.
Ragnarsson
Svæðamót Norðurlands vestra
- parakeppni í brids
Svæðamót Norðurlands vestra
- parakeppni í brids - verður
haldið laugardaginn 10. janúar
1998 á Kaffi Króki Sauðárkróki.
Spilaður verður Barómeter með
forgefnum spilum og hefst spila-
mennskan kl. 10. Mótið er öllum
opið og er spilað um silfurstig.
Skráningu þarf að vera lokið fyrir
fimmtudaginn 8. janúar nk.
Keppnisgjald er kr. 3.000 fyrir
parið. Mótið er í umsjón Brídsfé-
lags Sauðárkróks.
Allar nánari upplýsingar veita
Asgrímur Sigurbjömsson. s. 453-
5030 og 453-5353 og Jón Öm
Bemdsen, s. 453-5319 og 453-5050.
Bridsfélag Akureyrar
Islandsbankamótið í tvimenn-
ingi fór fram laugardaginn 27.12.
með þátttöku 29 para. Spilaðar
vora 2 lotur með Mitchell útreikn-
ingi. Karl Steingrímsson og Svein-
björn Sigurðsson náðu forystu
snemma og héldu henni til loka
þótt nokkuð væri saumað að þeim
ISLENSKT MAL
VETURLIÐI Óskarsson mál-
fræðingur sýnir þættinum enn
ræktarsemi sem umsjónarmanni
þykir vænt um:
„Kæri Gísli.
Nú er ég sestur að í Uppsölum
og farinn að kenna sænskum ís-
lensku. Ég fæ Morgunblaðið
reglulega og les það nokkurra
daga gamalt, þá gjaman 3 blöð í
einu. Ég hef hingað til verið seinn
til umkvartana en kannski er það
þessi stóri blaðaskammtur sem
veldur því að nú fæ ég ekki leng-
ur orða bundist um málbreytingu
sem á sér einkar frjóan jarðveg á
þeim síðum Morgunblaðsins sem
kenndar eru við Fólk ífréttunum,
og á blaðsíðum þar um kring. Eitt
dæmi nægir til að sýna hvað
þarna er á ferðinni, þau era
venjulega nokkur í hverri viku og
er helst eða eingöngu að finna í
fyrirsögnum og myndartextum.
Éimmtudaginn 2.10. á bls. 54 stóð
undir mynd af leikstjóranum
Roman Polanski: „Hamingjusam-
ur Polanski". Áður hef ég m.a. séð
„Rauðhærð Samantha", „Bros-
andi Baltasar" ef ég man rétt, og
margt fleira sem ekki þarf að tína
til. Nú vitum við að lýsingarorðs-
einkunn er gjaman höfð á undan
samnafni eða tegundarheiti:
„hamingjusamur maður“, „rauð-
hærð kona“, „brosandi leikari",
en til skamms tíma sást hún ekki
á undan mannanöfnum, enda væri
þá gefið í skyn að um tegund væri
að ræða (er það ekld?). Eðlilegt
er hins vegar að hafa sagnfyllingu
á eftir mannanöfnum: Polanski er
hamingjusamur" og í fyrirsögn-
um og jafnvel myndartextum í
dagblöðum hefur lengi tíðkast að
sleppa þarna sögninni vera: „Pol-
anski hamingjusamur" og fer það
ekki illa. Auðvitað þarf ekki að
leita lengi til að finna fyrirmynd-
ina að hinni nýju orðaröð; þetta er
úr ensku, auðvitað. Ég hef sáralít-
ið orðið var við þessa orðaröð
annars staðar í Morgunblaðinu
eða í öðrum blöðum en ég er
hundóánægður með að hún skuli
þrífast svona vel einmitt í þeim
hluta blaðsins sem höfðar mikið
til unglinga og stálpaðra barna;
margir unglingar lesa nánast ekk-
ert annað í Morgunblaðinu en
þessar síður og bíóauglýsingam-
ar. Ég giska á að óreynt fólk vinni
að gerð þessara síðna og þýði trú-
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
934. þáttur
lega beint upp úr erlendum blöð-
um fréttir af þekktu fólki og
þannig slæðist hin enska orðaröð
inn. - Ég veit að þú getur ekkert
við þessu gert, Gísli, en sendi þér
þessar línur í von um að þú getir
sagt eitthvað af skynsamlegu viti
um fyrirbærið í pistlunum þín-
um.“
Um „skynsamlegt vit“ (orða-
lagið úr Fyrstu málfræðiritgerð-
inni) skal hér ekkert sagt, en til
þess að valda Veturliða ekki al-
gerum vonbrigðum sé ég ekki
annað ráð vænna en taka þrjú
dæmi héðan úr þættinum (806,
871 og 879):
1) „Sagnarviðurlag er einhver
sérkennilegasti og fallegasti setn-
ingarliður í máli okkar. Það fer á
eftir sögn og kemur í staðinn fyrir
heila setningu. Dæmi: Hann lá
sofandi í rúminu. Hún stóð keik í
baráttunni. Jafnan er hægt að
skjóta og + vera inn á undan
sagnarviðurlagi: Hún stóð í bar-
áttunni [og var] keik. En þá erum
við búin að gera eina setningu að
tveimur, til verulegra lýta.
Hér í blaðinu 28. júní sl. stóð
undir mynd: „Sitjandi til hægri er
brosmildur Norman Lamont...“
Þetta er ensk orðaröð, ekki ís-
lensk. Hér hefði farið vel á að
nota sagnarviðurlag: Lengst tii
hægri sat Norman Lamont [og
var] brosmildur á bekknum.
Sagnarviðurlag er í mikilli
hættu, en brotthvarf þess væru
syrgileg málspjöll."
2) „Hér í blaðinu mátti lesa
þessa fyrirsögn fyrir nokkru: „Ní-
ræð Cookson hefur söngferil."
Þessi orðaröð dugir ekki á ís-
lensku þótt hún geti dugað í
ensku. Á máli setningafræðinnar
er þarna notuð einkunn í viður-
lags stað. Fyrirsögnin hefði átt að
vera: Cookson hefur söngferil ní-
ræð. Þá er viðurlagið á sínum
stað.“
3) „Við skulum hugsa okkur
eitt augabragð að við værum að
endursegja Njálu og komið væri
út í brennufrásögnina. „Ég var
ung gefin Njáli,“ sagði Bergþóra
og þá ekki útgöngu.
Þetta gætum við endursagt:
Bergþóra sagðist ung liafa verið
gefin Njáli, eða: Bergþóra sagð-
ist hafa verið gefin Njáli ung. En
við „gætum“ ekki sagt: ?Ung
Bergþóra sagðist hafa verið gefin
Njáli, enda merkir það annað. Við
værum búin að setja einkunn í
stað viðurlags, svo að talað sé
mál setningafræðinnar.
Ég hef með löngum hléum
reynt að halda uppi vöm fyrir
viðurlag sem er ekki aðeins fag-
urt oft og tíðum, heldur einnig
svo merkingarríkt, að það getur
komið í stað heillar setningar. Og
það er nú ekki ónýtt. Því miður
finnst mér viðurlagið vera á und-
anhaldi, og ég kenni enskum
áhrifum um.
Lítum á feitletruðu dæmin
fremst í pistlinum. Bergþóra seg-
ist hafa verið gefin Njáli, þegar
hún var ung. Viðurlagið kemur í
stað heillar tíðarsetningar. Við
megum ekki missa þetta.
Lítum svo hér í blaðið 7. nóv-
ember sl. Þar eru tvær litlar fyr-
irsagnir: 1) „Sáttfús Gingrich", 2)
„Plástraður Clooney". Þama sjá-
um við hættumerkin, og skaðinn
er reyndar skeður. Enskan hefur
sigrað. Enskt orðalag er komið
með einkunn í stað viðurlags.
Þetta á að vera með íslenksum
hætti: Gingrich sáttfús (=
Gingrich [Newt(on)] er sáttfús).
Þetta merkir ekki að einhver eða
einhver Gingrich sé sáttfús. Og í
síðara dæminu á að vera: Clooney
plástraður. Það er þessi tiltekni
Clooney sem er plástraður, ekki
bara einhver. Fyrirmynd ensk-
unnar Ieynir sér ekki í dæmum
eins og þessum. En reynum að
stemma á að ósi. Látum ekki ein-
kunn að enskum hætti rýma burt
einhverjum sérkennilegasta, fal-
legasta og merkingarauðgasta
setningarhluta máls okkar."
Dæmin hér á undan gefa lík-
lega til kynna að við Veturliði les-
um Morgunblaðið meira en önnur
blöð. Bitamunur er það, og ekki
fjár, hvort við tölum um sagnar-
viðurlag, tímaviðurlag eða sagn-
fyllingu í dæmunum. En við biðj-
um þess, að menn hafi íslenska,
en ekki enska, orðaröð í dæmum
eins og þeim sem að framan
greinir.
★
Áslákur austan sendir:
Eg sá sköpulag skrýtið á Hnyðju,
þó er skandall að kall’ana bryðju
og mörg þomhringju-Bil
skökk að því leyti til,
að þar er ekkert mitti í miðju.
Fjölskyklan
Eiginkonan, Clara er færeysk.
Sjálfur segist Steinai- hafa kynnst
henni með brögðum í Danmörku!
„Hún hefur alltaf staðið við bak-
ið á mér, sérstaklega þegar ég var
að byggja fyrirtækið upp og vann
frá morgni til miðnættis.“ Þau
hjón eiga þrjú börn, Óla, lyfja-
fræðinema sem býr í Danmörku,
Elsu, söngkonu sem býr á Ítalíu,
og Snorra, framkvæmdastjóra fyr-
irtækisins.
Trúin
„Trúin er þýðingarmesti þáttur-
inn í lífi mínu og hefur haft áhrif á
afstöðu mína til margra mála. Þeg-
ar vanda ber að höndum hefur hún
verið sterkasta haldreipið og veitt
mér kjark, þegar hann hefur verið
að bila.“
Áttu þér draum?
„Já, mig langar til að leikritið
Sérhver (Jedermann) eftir Hoff-
mann verði sett á svið á kristni-
tökuafmælinu árið 2000 í Hall-
grímskirkju. Það fjallar um ríka
manninn og Lasarus. Ég reyni að
sjá það þegar ég er á ferð í Þýska-
landi á sumrin. Það er sýnt á
tröppum dómkirkjunnar í Salzburg
á hverju sumri.
Listin er þýðingarmikil og hefur
ekki verið nýtt sem skyldi í kirkju-
legu starfi á Islandi. Við höfum
ekki átt neina meiriháttar rithöf-
unda lengi sem túlka kristna trú á
jákvæðan hátt. Þjóðin gæti tekið
kristindóminum betur ef listin
væri notuð til að tjá hann og út-
skýra.“
Ég kveð Steinar. Það hefur verið
gott að vera í návist hans. Frá hon-
um streymir mildi og það verður
ljósara en áður að það era hin
„mjúku“ gildi sem mestu máli
skipta í lífinu.
Höfundur er trúboði.
í lokin af þeim bræðrum Grétari
og Örlygi Örlygssonum. íslands-
banki gaf flugeldaverðlaun í 5.
efstu sætin, bikara fyrir sigurveg-
arana auk aukaverðlauna. Röð
efstu para var þessi:
Karl Steingrímsson - Sveinbjöm Sigurðsson 702
Grétar Örlygsson - Örlygur Már Örlygsson 700
Hörður Steinbergsson - Óm Einarsson 684
ÆvarArmannsson-Hilmar Jakobsson 681
Stefán Stefánsson - Hróðmar Sigurbjömsson 670
Björgvin Leifsson - Hilmar Björgvinsson 665
Þriðjudaginn 30.12. var leikinn
eins kvölds gamlárstvímenningur
þar sem sprengiefni var í verðlaun.
Pörin sem mættu til leiks voru 17
og spilaður var Mirchell. Röð efstu
para var þessi:
Stefán Stefánsson - Þorsteinn Guðbjömsson 211
Grétar Örlygsson - Örlygur Már Örlygsson 206
Soffla Guðmundsdóttir - Olína Sigurjónsdóttir 194
Kristján Guðjónsson - Haukur Harðarson 192
Vegna þrettándafagnaðar Þórs
verður spilað næst á miðvikudegi 7.
janúar í stað þriðjudags. Spilaður
verður eins kvölds Mitchell tví-
menningur.
Sveitakeppni BA hefst 13. janú-
ar og er þegar byrjað að skrá sveit-
ir. Menn era hvattir til að skrá sig
hið fyrsta. Þeir sem era á lausu og
vilja vera með ættu að láta vita af
sér hjá stjómarmönnum eða
keppnisstjóra (461-3497).
LífstyífjgoBúðin,
Laujjavegi 4, s. 551 4473