Morgunblaðið - 03.01.1998, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998 61
Vefsíða Stofnunar
Sigurðar Nordals
STOFNUN Sigurðar Nordals hef-
ur opnað heimasíðu á alnetinu og
er slóðin http://www.rhl.hl.is/
HI/Stofn/Nordals. Þar er að finna
almennar upplýsingar um stofnun-
ina á íslensku og ensku. Einnig er
þar gerð grein fyrir starfsemi
hennar: ráðtefnum, námskeiðum,
bókaútgáfu og styrkjum, sem hún
veitir.
Jafnframt er þar að finna upp-
lýsingar um íslenskukennslu fyrir
útlendinga, ráðstefnur á sviði ís-
lenskra fræða víða um heim, nýjar
og væntanlegar bækur og tímarit
°g þýðinar úr íslensku. Þá er unnt
að tengjast vefsíðum annaira
stofnana í íslenskum fræðum á ís-
landi í gegnum heimasíðu Nordals-
stofnunar.
„Á undanförnum árum hefur
stofnunin safnað saman miklum
upplýsingum um þá sem stunda ís-
lensk fræði í heiminum. Er nú unn-
ið að því að tengja þennan upplýs-
ingabanka vefsíðu stofnunarinnar.
Frá árinu 1989 hefur stofnunin
gefið út fréttabref tvisvar á ári.
Það hefur verið sent efndurgjalds-
laust til meira en eitt þúsund stofn-
ana og einstaklinga sem vinna að
íslenskum fræðum og kynningu á
íslenskri menningu í heiminum og
íslenska bókmenntakynningu. Þótt
Stofnun Sigurðar Nordals hafi
opnað heimasíðu er ætlunin að gefa
út fréttabréf enn um sinn enda eru
margir sem ekki hafa aðgang að al-
netinu.
Heimasíða Stofnunar Sigurðar
Nordals er enn þá í mótun og leit-
ast verður við að endurnýja þær
upplýsingar, sem þar er að finna,
stöðugt. Stofnunin hvetur lesendur
heimasíðunnar til að koma ábend-
ingum um efni hennar á framfæri
svo að unnt verði að taka tillit til
óska þeirra við endurskoðun á því.
Ritstjóri heimasíðunnar er Jón
Yngvi Jóhannsson. Netfang hans
er: jjþrhi.hi.is," segir í fréttatil-
kynningu.
Utskrift hjá Flugmennt
ÚTSKRIFT nemenda af einkaflugmannsnámskeiði aðaleinkunn meðal flugskóla. Ásdkn í flugnám hef-
frá Flugskólanum Flugmennt fór fram 29. nóvem- ur aukist verulega milli ára og einnig leggja fleiri
ber sl. og náði þessi hópur að útskrifast með hæstu stúlkur stund á flugnám.
Kirkjuferð Útivist-
ar að Stóra-Dal
Umræða um raf-
magnsöryggi
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir til
kirkjuferðar við upphaf nýs árs og
verður farið frá Úmferðanniðstöð-
inni sunnudaginn 4. janúar kl. 9.
„Kirkjuferðin í ár verður farin í
þá kirkjusókn sem er næst skálum
Útivistar í Básum á Goðalandi. Ekið
verður sem leið liggur austur yfir
Markarfljót og gamla leiðin gengin
frá gömlu brúnni heim að Stóra-
Dal.
Stóri-Dalur er fornt höfðuból,
kirkjustaður og fyi-rum prestsetur í
Holtasókn undir vestur Eyjafjöll-
um. Þar bjó Runólfur Úlfsson er
var fyrir heiðnum mönnum á Al-
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun sem var sam-
þykkt á stjórnarfundi í Verkamanna-
félaginu Hlíf, föstudaginn 2. janúai-
1998: „Þar sem ekkert bitastætt
svar hefur borist frá stjórnvöldum
um jólauppbót á atvinnuleysisbætur
Röng mynd
MEÐ frétt á bls. 20 í blaðinu á
gamlársdag birtist röng mynd af af-
hendingu styrks Menningarsjóðs
Islandsbanka til Vesturfaraseturs-
ins. Myndin var tekin af því tilefni
er Valgeir Þoiwaldsson fram-
kvæmdastjóri tók við bókinni „Nýja
Island" frá höfundinum, Guðjóni
Arngrímssyni, er hann færði Vest-
urfarasetrinu að gjöf.
Um leið og rétt mynd er birt af
Val Valssyni formanni stjórnar
þingi er kristni var lögtekin. Þar
var höfðingjasetur langt ofan öld-
um. I Stóra-Dal var kirkja helguð
kaþólskum sið. Sóknin var sérstakt
prestakall til 1867 en enginn prest-
ur fékkst að brauðinu eftir það og
var það gert að útkirkjusókn frá
Holti árið 1880.
Núverandi kirkja í Stóra-Dal er
teiknuð af Ragnari Emilssyni arki-
tekt og er byggð úr steini árið 1969.
Séra Halldór Gunnarsson, sókn-
arprestur í Holti, mun taka á móti
hópnum í Stóra-Dalskirkju og verð-
ur þar stutt helgistund," segir í
fréttatilkynningu.
eins og Verkamannafélagið Hlíf
lagði til 13. desember sl., ítrekum við
þá ályktun og væntum þess að ríkis-
stjórnin taki jákvætt í málið og að
þær greiðslur sem þar kunna að
verða ákveðnar gildi einnig fyrir yf-
irstandandi jól.“
Menningarsjóðs íslandsbanka af-
henda styrkinn Valgeiri Þorvalds-
syni forstöðumanni Vesturfaraset-
ursins á Hofsósi, er beðist velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Helga er
Björnsdóttir
í FRÉTT í Morgunblaðinu á gaml-
ársdag um þríburaskírn á Selfossi
var ranglega farið með föðurnafn
Helgu Björnsdóttur og hún sögð
Bjarnadóttir. Beðist er velvirðingar
á þessum mistökum.
Fundur
á þriðju-
dag um
þróunar-
aðstoð
DAVID Steel lávarður flytur
fyrirlestur um þróunaraðstoð
og áhrif hennar í Afríku, á
vegum Þróunarsamvinnu-
stofnunar íslands og utanrík-
isráðuneytisins, þriðjudaginn
6. janúar. Fundurinn verður
haldinn í stofu 101, Odda, húsi
félagsvísindadeildai’ Háskóla
Islands og hefst með ávarpi
Halldórs Asgrímssonar utan-
ríkisráðherra kl. 17. Fundar-
stjóri verður dr. Jónas Haralz
íyrrverandi aðalfulltrúi Norð-
urlandanna í stjórn Alþjóða-
bankans.
„David Steel er fytrverandi
formaður Frjálslynda flokks-
ins í Bretlandi og var leiðtogi
hans um 12 ára skeið. Hann
er sérfróður um utanríkismál
og málefni þróunarlanda og
hefur um langt skeið stjórnað
sjónvarpsþáttum um þau mál-
efni. Hann barðist hart gegn
Apartheid-stefnunni í S-Af-
ríku og var formaður samtaka
gegn henni. Hann er kunnur í
heimalandi sínu fyrir baráttu
sína í þágu þróunarlanda.
Fyrirspurnir og umræður
verða að loknu framsöguer-
indi. Fundurinn er öllum op-
inn og eru áhugamenn um
þróunarmál hvattir til að
koma,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Kominn í
afplánun
FRANKLÍN Steiner hefur
hafið afplánun sem hann var
kvaddur til á Þorláksmessu
en þá skilaði hann sér ekki.
Lögi-eglan hafði leitað hans
að beiðni Fangelsismálastofn-
unar en ekkert fréttist af hon-
um fyrr en lögreglunni í
Hafnarfirði var bent á að
hann hefði verið fluttur á spít-
ala á nýársdag.
Fulltrúar Fangelsismála-
stofnunar tóku þá við málinu
og hefur hann nú hafið af-
plánun.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Samorku:
„Vegna fréttaflutpings undan-
farna daga um ástand rafmagnsör-
yggismála í landinu óskar Samorka,
Samtök raforku, hita- og vatns-
veitna, eftir að eftirfarandi komi
fram:
Þar til fyrir einu ári önnuðust raf-
veitui-nai- rafmagnseftirlit á heimil-
um og í fyrirtækjum. Rafveitumar
töldu þetta eftirlit ekki samræmast
því hlutverki sínu að framleiða,
dreifa og selja raforku. Þær töldu
eftirlitið vera hlutverk stjómvalda.
Fyrir einu ári var lögum um raf-
magnsöryggismál breytt í sam-
ræmi við óskir rafveitnanna. Raf-
magnsöryggisdeild Löggildingar-
stofu hefur nú með höndum yfir-
stjórn þessara mála og óháðar
skoðunarstofur annast eftirlit.
Jafnframt hefur ábyi'gð fagmanna í
rafiðnaði verið aukin. Þeim er ætlað
að skila af sér verkum sem full-
nægja settum reglum um frágang
og öryggi.
Samorka getur engan veginn
ÁRLEG nýársbrenna Vals verður á
félagssvæði Vals að Hlíðarenda
sunnudaginn 4. janúar nk. Sem fyrr
hefst dagskráin með blysför og fjöl-
skyldugöngu frá Perlunni að brenn-
unni og hefst hún kl. 17. Þátttaka er
ókeypis en göngublys verða seld við
upphaf göngunnar við Perluna.
Veitingar, flugeldar, blys, stjörnu-
ljós o.þ.h. verður selt við brennuna.
Að lokinni blysför verður kveikt í
Valsbrennunni og sungin verða ára-
móta- og varðeldalög, þjóðlög og
barnalög. Tónlistarmenn spila undir
HER hefur verið óvenju milt tíðar-
far yfir alla jóladagana, hvergi snjó-
díll né frost í jörðu, oft þokuslæð-
ingur og væta. Segja má að hér hafí
verið kjörveður fyrir allar þær teg-
undir af lífverum er lifa sínu lífi
undir berum himni.
Það vekur því óneitanlega miklar
spurningar að ekki skuli sjást nokk-
ur fýll hér í hömrum í Mýrdal í fleiri
vikur, sem undir slíkum aðstæðum
eru oftast gráir af þessum bergbú-
tekið undir fullyrðingar um að
ástand raftnagnsöryggismála sé
bágborið, eins og nokkrir þingmenn
og sumir fjölmiðlar hafa fullyrt.
Eftirlit með rafmagnsöryggi hefur
íyrst og fremst breyst og ekki er
hægt að bera það saman við það
sem áður tíðkaðist.
Samorka telur einna mestu fram-
farir rafmagnsöryggismála felast í
því að fagmenn og húseigendur
bera nú aukna ábyi'gð á rafmagns-
öryggi. Til langframa er það far-
sælli leið en að halda úti umfangs-
miklu og dýru eftirliti á vegum hins
opinbera. Opinbert eftirlit verður
heldur aldrei jafn skilvirkt og sú
aðgæsla sem ábyrgir einstaklingar
og forráðamenn geta sjálfir haft
með höndum.
Mikilvægt er að öll gagnrýni sé
efnisleg og vel ígrunduð. Ekki er
óeðlilegt að einhverjir ágallar komi
fram á nýrri skipan sem þessari.
Samorka leggur áherslu á sú gagn-
rýni og ábendingar sem þegar hala
komið fram verði notað til þess að
gera gott fyrirkomulag betra.“
fjöldasöng og Valskórinn syngur
með. Dagskránni lýkur með flug-
eldasýningu Hjálparsveitar skáta.
Þetta er sjöunda árið í röð sem
Knattspyrnufélagið Valur stendur
fyrir brennu að Hlíðarenda til að
fagna nýju ári. Að þessu sinni er
brennan haldin sunnudaginn 4. jan-
úar til að mæta þörfum fjölskyldna
þar sem þrettándann ber upp á virk-
an dag og kvölddagskrá er ekki
hentug fyi-ir yngstu börnin, segir í
fréttatilkynningu frá Knattspyrnu-
félaginu Val
um. í sumar virtist með allra
minnsta móti af varpi fýlsins er
komst úr hreiðri og mjög stór hluti
fuglanna var illa gerður.
Getgátur voru um að æti það sem
fýllinn lifir á úr sjónum muni hafa
farið illa vegna framburðar í sjó úr
Skeiðarárhlaupinu fyrir rúmu ári.
En varla tiúir maður því að það
virki svo að ekki sjáist nokkur fýll
af þeim tugþúsundum er eiga hér
heimastöðvar í hömrunum.
Itreka alyktun
um jólabónus
Nýársbrenna Vals
Engir fýlar í hömr-
um í Mýrdal
Litla-Hvammi. Morgunblaðið.