Morgunblaðið - 03.01.1998, Síða 66
MORGUNBLAÐIÐ
k 66 LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 1998
áfp ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra suiðið kl. 20.00:
YNDISFRÍÐ OG ÓFRSKJAN - Laurence Boswell
Frumsýning 11/1 ki. 14.00 - sun. 18/1 kl. 14.00 - sun. 25/1 kl. 14.00.
HAMLET — William Shakespeare
4. sýn. sun. 4/1 uppselt — 5. sýn. fim. 8/1 nokkur sæti laus — 6. sýn. fös. 9/1 örfá sæti
laus — 7. sýn. fim. 15/1 — 8. sýn. sun. 18/1.
GRANDAVEGUR 7 — Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson og Sigríður M. Guðmundsdóttir.
I kvöld 3/1 örfá sæti laus — sun. 11/1 — lau. 17/1.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick
Lau. 10/1 — fös. 16/1.
Sýnt i Loftkastalanum kl. 20.00:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
í kvöld 3/1 - lau. 10/1.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Mánudagur 5. janúar kl. 20.30
Dansleikhús með ekka. Hin rammgervi kastali: hjartað. Dans- og leiksýning.
---GJAFAKORT ER GJÖF SEM GLEÐUR—-
Miðasalart eropin mán.—þri. 13—18, mið.—sun. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Ht/er mifrti Karó(inu)
lau. 10. jan. kl. 20 og fös. 16. jan. kl. 22
Gleiitegt <rr
og þöftkum spœjurum hjútpina d tiinu óri
„Hugmyndin um gagnvirkt samband leikara og áhorf-
enda eins og hún er útfærð í þessari sýningu er
\skemmtileg og hefur ekki verið notuð áður í íslensku
l léikhúsi." (SAB.Mbl.)
ALLTAF FYRIR OG EFTIR LEIKHÚS
fc SK r 1 1 MAT EÐA DRYKK
LIFANDI TÓNLIST ÖLL KVÖLD
KRINGLUKRÁIN
- á góðri stund
I
%
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
1897 1997
BORGARLEIKHUSIÐ
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla!
Stóra svið kl. 14.00
eftir Frank Baum/John Kane
Sun. 4/1, örfá sæti laus, lau. 10/1,
sun. 11/1, lau. 17/1, sun 18/1.
Munið ósóttar miðapantanir.
Stóra svið kl. 20.00
FEÐUR OG SYNIR
F0ÐIÍR BG SVIIir
eftir Ivan Túrgenjev
Þýðandi: Ingibjörg Haraldsdóttir.
Leikendur: Björn Ingi Hilmarsson,
Eggert Þorleifsson, Guðlaug E.
Ólafsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir,
Halldóra Geirharðsdóttir, Kristján
Franklín Magnús, Pétur Einarsson,
Sóley Elíasdóttir og Þorsteinn Gunn-
arsson.
Hljóð: Baldur Már Arngrímsson.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Leikmynd og búningar: Stanislav
Benediktov.
Leikstjórn og leikgerð:
Alexei Borodin.
Frumsýntfös. 9. janúar, 2. sýn. fim.
15. jan. grá kort.
Stóra svið kl. 20.30
Tónlist og textar Jónasar og
Jóns Múla. Ljósaijós og ijúffengir
drykkir í anddyrinu frá kl. 20.00.
Sun. 4/1, sun. 11/1, fös. 16/1.
Kortagestir ath. valmiðar gilda.
Höfuðpaurar sýna á Stóra sviði:
Htol
Lau. 10/1 kl. 2^00, fös. 16/1 kl. 22.00
Nótt & dagur sýnir á Litla sviði
kl. 20.30:
GALLERf --*■
NTALA
eftir Hlín Agnarsdóttur
Fös. 9/1, lau. 10/1.
Miðasalan er opin daglega frá kl.
RALPH Fiennes og mótleikkona
hans Cate Clanchett í kvikmynd-
inni „Oscar and Lucinda".
Frábiður sér
fleiri tilboð
► RALPH Fiennes var nýlega
inntur eftir því í viðtali hvort líf
hans hefði tekið miklum stakka-
skiptum eftir að hann var til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir
Lista Schindlers og „The English
Patient".
„Eg verð ekki var miklar breyt-
ingar,“ svaraði hann, - þótt hann
viðurkenndi að hann fengi mun
fleiri tilboð um að leika í kvik-
myndum. „Vandamálið er að ég
er bókaður svo langt fram í tím-
ann að ég frábið mér fleiri til-
boð.“
Nýjasta kvikmynd Fiennes
„Oscar and Lucinda" var frum-
sýnd á fóstudag í Bandaríkjunum.
Þar leikur Fiennes predikara sem
er forfallinn fjárhættuspilari.
Bráðlega liefjast svo tökur á kvik-
myndinni „The Avengers" sem er
byggð á samnefndum sjónvarps-
þáttum frá sjöunda áratugnum.
Þar verður mótleikkona hans
Uma Thurman.
FÓLK í FRÉTTUM
Alvörumyndir
Kvikmyndaskóli ís-
lands hefur nú útskrif-
að þriðja árganginn
sinn. Afrakstur náms-
ins voru tvær stutt-
myndir sem nýlega
voru sýndar í Tjarnar-
bíói. Hildur Loftsdóttir
svindlaði sér inn og
skemmti sér vel.
ÞAÐ er greinilegt að margir
hafa áhuga á því sem unga
fólkið er að fást við í kvik-
myndum í dag, því Tjamarbíó var
stútfullt og inn á milli aðstandenda
og vina nemendanna mátti sjá
marga af helstu „kvikmyndagúrú-
um“ Islands.
Stuttmyndirnar sem sýndar
voru heita „Spennuííkillinn“ og
„Dælt er heima hvað“, og sáu nem-
endumir algjörlega um framleiðslu
og gerð myndanna eins og um at-
vinnumennsku væri að ræða.
Þeir skiptu með sér verkum
og stóðu leikstjórar mynd-
anna fyrir svömm.
Börkur Gunnarsson
leikstýrði Dælt
er heima hvað
„I Kvikmyndaskólanum
skrifuðu allir eitt handrit
og síðan var eitt þerra
valið úr til að gera eftir
því mynd. Pétur M.
Gunnarsson skrifaði
okkar handrit sem fjall-
ar um 320 kílóa mann
sem kemst ekki út út
húsi. Hann á sér vin
sem vill bjarga hon-
um með því að saga
hann út en þeim
feita líður vel heima
hjá sér.
Þegar ég skráði
mig, gerði ég það
með það fyrir aug-
um að leikstýra,
því ég hef þegar
skrifað verk sem
hafa verið kvik-
mynduð og sett
upp í leikhúsi,
og var því að
sækjast eftir
nýrri reynslu.
Þetta er mjög
skemmtileg-
ur skóli, og
ég mæli með
að fólk komi
þangað LEIKsTJÓPa
með það að son v0r..,.. ^AT/Í
markmiði 1 oitt
að læra og leggja sitt af
mörkum; að þeir viti hvað þeir vilja
fá út úr skólanum. Eg fékk það
sem ég vildi og fannst alveg frá-
bært.
Það var gaman að vinna úr þessu
handriti, en eins og alltaf var tím-
inn of naumur. Við fengum hand-
ritið á sunnudegi og áttum að vera
búin að fínna leikara og hefja tökur
á miðvikudegi. Það er enginn heil-
brigður kvikmyndagerðarmaður
sem mundi vinna á þennan hátt.
- Eru einhverjir heilbrigðir
kvikmyndagerðarmenn á íslandi?
„Nei, reyndar ekki!“
Björn Ingi Hilmarsson
er vinur fítubollunnar
„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
ég leik í stuttmynd fyrir nemendur
Kvikmyndaskólans og það er alltaf
jafn skemmtilegt. Flestir nemend-
urnir eru að gera mynd í fyrsta
skipti og þá er áhuginn og ákafínn
svo mikill að þótt þeir viti ekki
hvernig eigi að framkvæma hlutina
þá gera þeir það samt.“
MEÐAL áhorfenda voru Böðvar Bjarki Pétursson skólastjóri og Þor-
finnur Ómarsson, framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs.
- Færðu borgað fyrir?
„Það kemur fyrir. Bæði í ánægju
og kannski í veraldlegum hlutum
eins og peningum."
Stefán Vilbergsson er
leikstjóri Spennufíkilsins
„Eg fór í skólann því mig langaði
til að læra og gera allt, en vonaðist
eftir að fá að leikstýra. Það væri
gaman að halda áfram að
gera stuttmyndir
og jafnvel fá að starfa við ein-
hverja bíómynd til að safna
reynslu.
„Spennufíkillinn" er um ungan
mann sem á við geðræn vandamál
að stríða. Hann áttar sig á því og
lætur alltaf undan þeirri fíkn sinni
að brjótast inn í hús hjá fólki og
fara í bað hjá því.“
- Nú leikur Þröstur Leó aðal-
hlutverkið. Hvernig tilfínning var
aðleikstýra honum?
„Það var undarlegt til að byrja
með, en Þröstur Leó er það frábær
náungi að hann var mjög þægileg-
ur á allan hátt og var strax eins og
einn af hópnum.“
- Heldurðu að það sé raunsæ
nasasjón sem þú fékkst af kvik-
myndaheiminum við gerð þessarar
myndar?
„Eftir því sem ég hef heyrt er
kvikmyndagerð á Islandi redding-
ar, stress og svefnleysi og þannig
var það hjá okkur.“
Þorfínnur Ómarsson er
framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóðs Islands
- Hvað ert þú að gera hér?
„Eg er hér til að sjá það sem er
að gerast í stuttmyndagerð. Þar að
auki skipaði ég helming handrita-
dómnefndar á móti Böðvari Bjarka
Péturssyni, skólastjóra Kvik-
myndaskólans. Við lásum um 40
handrit og völdum þessi tvö sem
við sáum hér í kvöld.
Mér líst vel á myndimar og
þótt á þeim megi
finna
hnökra, þá
stóðu þær
undir þeim
væntingum
sem ég gerði
til þeirra eftir
lestur handrit-
anna. I þessum
byrjendamynd-
um eru atvinnu-
leikarar sem
lyfta þeim upp á
hærra plan. Þeir
vilja greinilega
leggja þessu lið, og
það skiptir miklu
máli því þetta verða
„alvörumyndir“ fyr-
ir vikið.
- Býstu við að
þetta séu framtíðar-
styrkþegar hjá þér?
„Eg veit það ekki
en það eru svo margir
sem koma að þessum
myndum að það eru
sjálfsagt einhverjir sem
munu halda áfram á
þessari braut. Ég vona
að svo verði, því handrits-
höfundarnir og sjálfsagt
ýmsir aðrir eiga framtíð-
ina fyrir sér.“
Óskar Jónasson er leið-
beinandi í leikstjórn
„Það er margt sem kom á
óvart í þessum myndum. Það
er þokkaleg bygging í hand-
ritunum og ágætis fílingur
köflum. A myndum sem eru
unnar svona hratt dettur stundum
tempóið niður í klippingunum,
skotin eru misgóð og það er greini-
legt að það er verið skiptast að
halda á myndavélunum, og kannski
verið að rífast um það á tökustað
um hvað myndirnar séu.“
- Heldurðu að þessi skóli sé
góður undirbúningur fyrir frekara
kvikmyndagerðarnám ?
„Já, þetta er örugglega ágætis
skref á þeirri leið. Þetta eru
kannski ekki nákvæmlega þær
myndir sem nemendumir vilja
standa fyrir, enda eru þær afrakst-
ur af samvinnu sem snýst aðallega
um að læra að reyna af henni. Eg
mæli með þessu fyrir þá sem hafa
áhuga á kvikmyndagerð því það er
mjög hvetjandi að koma inn í hóp
þar sem allir hafa sama áhugamál.
Þetta er fínn vettvangur fyrir það
að læra að rífast án þess að verða
óvinir.“