Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 29 ,
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VIRKJANIR
Á HÁLENDINU
VIRKJUN vatnsfalla á hálendinu norðan Vatnajökuls
vekur margar spurningar. Það kemur m.a. fram í
skýrslu Önnu Dóru Sigþórsdóttur, landfræðings, um áhrif
slíkra virkjana á ferðamennsku, sem gerð var grein fyrir
hér í blaðinu í fyrradag.
í skýrslunni kemur fram að með virkjunarframkvæmdum
yrði hróflað við svæði, sem til þessa hefur verið nánast
ósnert af manna höndum. Þar yrðu reist hús, lagðar há-
spennulínur, vegir lagðir, uppistöðulón yrðu til og jarðgöng
og skurðir grafnir. Hin ósnortnu víðerni myndu minnka,
en á hinn bóginn yrðu þau aðgengilegri fyrir ferðamenn,
m.a. vegna lagningar vega. Niðurstaðan er sú að yrði virkj-
að norðan Vatnajökuls myndi sérstaða íslands sem ferða-
mannalands minnka og samkeppni við önnur ferðamanna-
lönd á norðurslóðum myndi harðna.
Er rætt er um hvort virkja beri jökulárnar norðan Vatna-
jökuls togast margs konar sjónarmið á og þörf er á að
huga vandlega að þeim öllum. Krafturinn í fallvötnunum
er ein af helztu auðlindum þjóðarinnar og nýting hans
hefur stuðlað_ að uppbyggingu öflugra og fjölbreyttara
atvinnulífs á íslandi. Ósnortin víðátta hálendisins er einn-
ig auðlind, sem hægt er að verðleggja, eins og Anna Dóra
bendir á í skýrslu sinni. Ferðamenn sækjast eftir því að
heimsækja slík svæði, enda eru þau fá í okkar heimshluta.
Tilfinningar manna til íslenzkrar náttúru skipta auðvitað
máli í þessu samhengi, en það eru ekki eingöngu hagnaðar-
sjónarmið og tilfinningasjónarmið, sem togast á, heldur
líka tvenns konar hagnaðarsjónarmið. Spurningin er, hvort
virkjun vatnsfalla komi í veg fyrir að hægt sé að hafa
þann hagnað af nýtingu náttúru landsins í þágu ferðaþjón-
ustu, sem menn þykjast sjá fram á.
Það er heldur ekki sama hvers konar ferðaþjónusta er
rekin á hálendi íslands. Verði ferðamenn of margir og
verði ekki haft fullnægjandi eftirlit með umgengni þeirra
um viðkvæma náttúru getur það leitt til eyðileggingar
hálendisins. í áðurnefndri skýrslu kemur fram að vilji ferða-
málayfirvöld höfða áfram til sama hóps, þ.e. fólks sem
vill vera í beinni snertingu við ósnortna náttúru og kærir
sig hvorki um söluskála né malbikaða vegi, verði að tak-
marka fjölda ferðamanna á hálendinu. Slík takmörkun
kann að setja vexti tekna þjóðarbúsins af ferðamönnum
skorður.
Afstaða manna til virkjana á hálendinu ræðst líka af
mismunandi skilgreiningu á lífskjörum þjóðarinnar. Óspillt
umhverfi er hægt að meta til lífsgæða, ekki síður en þær
upphæðir, taldar í krónum, sem virkjanir og stóriðja skila
landsmönnum. Tilfinningatengsl þjóðarinnar við náttúru
landsins eru sterk og framhjá því verður ekki gengið.
Ákvörðun um virkjunarframkvæmdir á hálendinu norðan
Vatnajökuls snýst ekki sízt um mat á því, hvernig bezt
er hægt að tryggja efnahagslegar framfarir í góðri sátt
við bæði þjóðina og landið, sem er í okkar umsjá.
VÁ Á VEGUM
MEÐFRAM erlendum þjóðvegum og hraðbrautum er
víða að finna skilti er vara ökumenn við þeirri hættu
er stafar af elgum, hjörtum og öðrum dýrum er kunna að
taka upp á því að hlaupa í veg fyrir bifreiðar fyrirvara-
laust. Slíkar merkingar eru ekki algengar á íslenskum
vegum þrátt fyrir að rúmlega hundrað ökumenn aki árlega
á búfé, Iíkt og fram kemur í grein í Morgunblaðinu sl.
sunnudag.
Ferðum elga og hjarta verður seint stjórnað. Hins vegar
ætti að vera hægt að hafa hemil á búfé. Lausaganga bú-
fjár er verulegt vandamál á íslenskum vegum og löngu
orðið tímabært að gripið verði í taumana til að draga úr
þeirri hættu sem hún veldur. Sú hætta verður sífellt meiri
eftir því sem vegir verða greiðari og hraði eykst.
Hámarkshraði á hringveginum er á flestum stöðum níu-
tíu kílómetrar á klukkustund. Hlaupi hestur eða kind í veg
fyrir bifreið á þeim hraða gefst lítið svigrúm til að forða
slysi. Öryggi ökumanna hlýtur að vera í fyrirrúmi og því
er óviðunandi að lausaganga búfjár skuli víða vera heimil
í kringum víðförnustu þjóðvegi. Vissulega þarf að taka á
mörgum þáttum í því sambandi, til dæmis hvað varðar
réttindi og skyldur þeirra bænda sem eiga bú í grennd við
vegi. Lausn verður hins vegar að finnast.
LANGTÍMAÁÆTLUN í VEGAGERÐ
TÖLUVERÐ breyting verður
á úthlutun vegafjár, verði
langtímaáætlun 1999-
2010 samþykkt á Alþingi í
þeirri mynd sem hún hefur verið lögð
fram. Fallið er frá fornri aðferð við
að skipta fénu milli kjördæma út frá
kostnaði, ástandi og arðsemi vega í
framtíðarkerfí og láta síðan þingmenn
viðkomandi kjördæma ákveða for-
gangsröðun verkefna innan kjördæm-
isins. Upp er tekin sú aðferð að skil-
greina fyrst framkvæmdamarkmið og
raða síðan þeim verkefnum sem falla
að þeim inn í langtímáætlunina. Stefn-
an miðast því meira við þarfír vega-
kerfísins í heild en einstakra lands-
hluta. Þingmenn kjördæmanna hafa
þó áfram ákveðna fjármuni til ráðstöf-
unar.
Millifærslum í ríkissjóð hætt
Þingsályktunartillagan gerir ráð
fyrir að meira fé verði varið til vega-
gerðar en undanfarin ár. Miðað er við
að markaðir tekjustofnar vegasjóðs
standi undir útgjöldum við áætlunina
en millifærslum í ríkissjóð verði hætt,
fyrir utan hálft prósent umsýslugjald.
Gert er ráð fyrir að tekjustofnam-
ir, það er að segja bensíngjald og
þungaskattur, vaxi að raungildi um
1,6% á ári að meðaltaii vegna vax-
andi umferðar. Þá er miðað við að
tekjustofnamir hækki um 3,5% hinn
1. júní næstkomandi og í samræmi
við verðlag eftir það, auk 2% hækk-
unar til viðbótar 1. júní á næsta ári.
Bensíngjald og þungaskattur nema
í ár og á síðasta ári um 7,7 milljörðum
kr. Gert er ráð fyrir að skattar þessir
verði liðlega 8,8 milljarðar kr. að
meðaltali á árunum 1999 til 2002,
fyrsta tímabili langtímaáætlunar. Á
öðm tímabilinu, 2003-2006, verða
þeir um 9,3 milljarðar kr. á ári og á
því þriðja, 2007-2010, verða þeir 9,7
milljarðar að meðaltali ef áætlanir
ganga eftir.
„Við vonum einlæglega að menn
haldi trúnað við þetta plagg. Það er
gmndvöllur þess að fólk trúi áætlana-
gerð sem þessari," segir Helgi Hall-
grímsson vegamálastjóri þegar hann
er spurður að því hvort tekjuáætlunin
sé raunhæf í ljósi þess að oft hefur
ríkið tekið til sín hluta af mörkuðum
tekjustofnun vegasjóðs. Þessu til við-
bótar má benda á að samgönguráð-
herra leggur þingsályktunartillöguna
fram á Alþingi eftir umfjöllun í ríkis-
stjóm og með samþykki þingflokka
beggja stjómarflokkanna.
Komnir í öngstræti
Þær breytingar á vinnubrögðum
sem lagðar em til með þingsályktun-
artillögunni og vegaáætlun fyrir
næstu ár em mjög tímabærar að sögn
Helga Hallgrímssonar vegamála-
stjóra. Þær varða einkum val verkefna
á stofnvegum, röðun þeirra og úthlut-
un §ármagpis til einstakra verkefna.
Uthlutun ijármagns til stofnvega á
landsbyggðinni byggist á fomri skipti-
reglu sem miðast við að koma öllu
vegakerfínu í gott horf. Hlutföll milli
kjördæma hafa verið reiknuð út frá
kostnaði hvers einasta vegarkafla,
ástandi og arðsemi í framtíðarkerfí.
„Það er svo umfangsmikið viðfangs-
efni að koma öllu vegakerfínu í æski-
legt ástand að það tæki að jafnaði
upp undir 30 ár að ljúka því. 30 ár
er langur tími og gerir allt mat erf-
itt, til dæmis um það hvað skuli taka
með og hvað ekki. Þetta gerði kannski
ekki svo mikið til á meðan vegakerfíð
í heild var lélegt en eftir að eitthvað
fór að vinnast urðu kjördæmin misvel
stödd að þessu leyti,“ segir Helgi.
Hann bendir á að út úr þessu hafí
menn brotist með því að taka upp
skilgreiningu svokallaðra stórverk-
efna, utan almennrar skiptingar vega-
flár milli kjördæma, og síðan sérstök
framkvæmdaátök sem byggjast á
íbúafjölda. „Þetta er togstreita sem
aldrei getur endað,“ segir Einar Krist-
inn Guðfínnsson, formaður sam-
göngunefndar Alþingis. Telur hann
nýju aðferðimar góða leið til að brjót-
ast út úr því öngstræti sem gerð
vegaáætlunar var komin í.
Markmiðin skilgreind fyrst
í þeim tillögum sem nú hafa verið
lagðar fyrir Alþingi er reynt að nálg-
ast vandann úr annarri átt. Hætt að
líta á verkefnið út frá því langa sjónar-
horni sem gert hefur verið. í staðinn
eru skilgi'eind nokkur einföld mark-
mið og síðan gerður listi yfír þær
framkvæmdir, svokölluð stórverkefr.i,
sem uppfylla skilyrði þeirra og þeim
ioks skipt á þijú áætlanatímabil fram
til 2010.
Fyrsta markmiðið sem upp er talið
í langtímaáætluninni og það sem
skiptir mestu máli er að ljúka hring-
veginum með bundnu slitlagi og veg-
um af honum til þéttbýlisstaða með
200 íbúa eða fleiri. Þetta þýðir til
dæmis að ráðist verður í miklar fram-
kvæmdir á Snæfellsnesi, Vestflörðum,
Norðausturhorninu og Austljörðum
til að tengja bæi sem undir þetta falla
við hringveginn með góðum vegi og
ljúka hringtengingu landsins með
þundnu slitlagi.
Annað markmið er að tengja saman
með uppbyggðum vegi nálæga
byggðakjarna með fleiri en 1.000 íbúa
á hvcrum stað. Miðað er við ákveðna
flarlægð og möguleika á styttingu
leiðarinnar. Einu staðimir sem undir
þetta falla em Ólafsfíörður og Siglu-
flörður og virðist þetta markmið vera
klæðskerasaumað fyrir þá. I samræmi
við þetta og aðra forsendu áætlunar-
innar, að ekki skuli gert ráð fyrir jarð-
göngum á tímabilinu, er úthlutað íjár-
magni til að leggja nýjan veg um
Lágheiði.
Þriðja markmiðið er að Ieggja bund-
ið slitlag á mikilvægar ferðamanna-
leiðir með mikla umferð. Miðað er við
200 bíla umferð á dag yfír sumarið.
Af einstökum framkvæmdum sem
undir þetta falla má nefna Þingvalla-
veg, Lyngdalsheiði og vegi að Gull-
fossi og Geysi.
Markmiðin em fleiri og snúa meðal
annars að umferðaröryggi. Endur-
byggja á brýr á helstu flutningsleiðum
sem ekki þola fullan þunga samkvæmt
Evrópustöðlum, breikka vegi þar sem
umferð er svo mikil að flutningsgeta
og umferðaröryggi verða vandamál,
endurbyggja kafla með mikiili umferð
þar sem bundið slitlag var lagt á
gamla vegi án endurbóta og reynst
hafa hættulegir svo og breikka ein-
breiðar brýr á hringveginum þar sem
umferð er mikil. Stærsta verkefnið í
lagfæringum vega til að auka um-
ferðaröryggi er tvöföldun Reykjanes-
brautar.
Kjördæmin hafa svigrúm
Þau verkefni á landsbyggðinni sem
hér um ræðir eru talin kosta tæpa
20 milljarða kr. Tekið er fram í áætl-
uninni að meginforsenda hennar sé
að ljúka við þennan verkefnalista.
„Ljóst er að mörg brýn verkefni falla
utan við áætlunina og vitað er að upp
munu að koma mikilvæg verkefni á
áætlunartímabilinu og því þarf að
vera svigrúm utan verkefnalistans,"
segir vegamálastjóri. Þetta hefur ver-
ið leyst með því að veita áfram nokkru
fé til kjördæmanna sem þingmanna-
hópamir ráðstafa. Eru þetta rúmir 5
milljarðar kr. sem skiptast jafnt á
milli kjördæmanna utan Reykjavíkur,
þannig að hvert kjördæmi fær um það
bil 65 milljónir á ári. Samtals verður
því 25 milljörðum kr. varið til stofn-
vega á landsbyggðinni á þessu tólf
ára tímabili.
Gerð er tillaga um að fjárveitingar
til vegagerðar á höfuðborgarsvæðinu
hækki í sömu hlutföllum og fé til
stofnvega á landsbyggðinni. Ganga
því 12,6 milljarðar kr. til verkefna á
höfuðborgarsvæðinu á --------------
þessu tímabili eða rúmur
milljarður kr. á ári. Verk-
efnum hefur enn ekki verið
forgangsraðað, að sögn
vegamálastjóra, vegna þess
að ekki hefur unnist til þess tími.
Ætlunin er að leggja tillögu um röðun
verkefna fyrir samgöngunefnd Al-
þingis, eftir að hún fær þingsályktun-
artillöguna til meðferðar þegar þing
byijar nú eftir áramótin.
Engin jarðgöng
í áætluninni er ekki fjallað um
framkvæmdir við jarðgöng. I athuga-
semdum við tillöguna kemur fram að
ef til slíkra framkvæmda komi á
áætlunartímabilinu verði það sam-
kvæmt sérstakri ákvörðun stjórnvalda
þar sem jafnframt verði tekin afstaða
til fjármögnunar. „Jarðgöng eru afar
dýr og leysa yfirleitt staðbundin
vandamál en ekki vandamál lands-
AÆTLUN I VEGAGERÐ 1999-2010
Gemlufalls-
heiði
1.40 m.kr.
Hringvegur - Vopnafjörður 1.100 m.kr. 2.100 m.kr. 3.290 m.kr.
7 V j On'-
Bundið slitlag
Aðrir vegir
AÆTLUÐ FJAROFLUN:
1.1999-2002: 34.297 milljónir kr.
2.2003-2006:37.217 milljónir kr.
3. 2007-2010: 38.839 milljónir kr.
Tímabær breyting
á vinnubrögðum
Millifærslum í
ríkissjóð
verður hætt
kerfísins," segir vegamálastjóri.
Kröfur hafa verið um stórfelldar
jarðgangaframkvæmdir á Austur-
landi, á milli Sigluijarðar og Ólafs-
fjarðar og milli norður- og suðurhluta
Vestfjarða. Öllum þessum fram-
kvæmdum er skotið á frest. Hins veg-
ar er undirbúningi haldið áfram með
því að 120 milljónum kr. er varið til
rannsókna á göngum á þessum þrem-
ur svæðum.
Jón Kristjánsson, alþingismaður
Austurlands, telur ekki að með sam-
þykkt langtímaáætlunar sé verið að
afskrifa jarðgöng. Áfram verði unnið
að rannsóknum og ákvarðanir um ný
jarðgöng verði síðan að taka með
sérstökum lögum. „Við höfum verið
að vinna í þeim anda að halda áfram
rannsóknum og ákveða hvar við vilj-
um byija á Austurlandi. Miklar hrær-
ingar eru í atvinnumálum á svæðinu,
hugsanlegur stóriðnaður á miðhlut-
anum. Línur í þeim málum skýrast á
-------- árinu og munu hafa áhrif
á ákvarðanir í samgöngu-
málum,“ segir Jón.
Hér á eftir fer umijöllun
um einstakar framkvæmd-
ir áætlunarinnar.
Átak á Snæfellsnesi
Tengingar Hvailjarðarganga koma
inn á langtímaáætlun þótt fram-
kvæmdum ljúki að mestu áður en hún
tekur gildi. Er það vegna endur-
greiðslna á lánsfé. Ráðist er í dýrar
vegaframkvæmdir á Snæfellsnesi á
fyrstu tveimur tímabilum áætlunar-
innar. Fyrst verður lagðui' nýr vegur
um Búlandshöfða milli Ólafsvíkur og
Grundarijarðar, síðan nýr vegur um
Vatnaheiði, rétt vestan við núverandi
Stykkishólmsveg um Kerlingarskarð,
og loks vegur um Kolgrafarfjörð milli
Stykkishólms og Grundarijarðar. Á
þessu stigi málsins er miðað við að
farið verði fyrir Kolgrafarfjörð, hann
Miklar breytingar verða á vinnubrögðum við
gerð vegaáætlunar ef þingsályktunartillaga
um langtímaáætlun í vegagerð nær fram að
ganga. Vegaáætlun verður meiri landsáætlun
en kjördæmaáætlun og heildarhagsmunir eiga
að ráða. Helgi Bjarnason kynnti sér stefnu-
breytinguna og einstakar framkvæmdir.
verði ekki brúaður. Á öðru og þriðja
tímabilinu verður lagður nýr vegur
um Bröttubrekku sem liggur milli
Borgarfjarðar og Búðardals og um
Svínadal milli Búðardals og Gilsijarð-
arbrúar.
Á öðru og þriðja tímabilinu er ætl-
unin að lagfæra hringveginn frá
Haugavegamótum í Stafholtstungum
að Dalsmynni í Norðurárdal. Áður á
að ljúka varanlegum vegi í Húsafell
samkvæmt markmiðum um lagfær-
ingu ferðamannaleiða. Athygli vekur
að miðað er við tengingu Húsafells
og Reykholts við hringveginn í gegn-
um Stafholtstungur, ekki um Bæjar-
sveit og Andakíl niður að Borgarijarð-
arbrú, en á síðamefndu leiðinni er nú
slitlag aðeins að Hvanneyri. Helgi
Hallgrímsson vegamálastjóri segir að
Stafholtstungnaleiðin sé það langt
komin að rétt hafí þótt að miða við
hana. Hins vegar yrði eitthvað gert á
hinni leiðinni, þegar lausn væri fundin
á deilum um vegarstæðið milli Klepp-
járnsreykja og Varmalækjar en það
yrði að gera með almennu vegafé kjör-
dæmisins.
Hvorki er gert ráð fyrir lagfæringu
vegarins_ úr Staðarsveit um Fróðár-
heiði í Ólafsvík né fyrir Jökul. Ekki
er heldur gert ráð fyrir lagfæringum
á veginum um Skógarströnd, frá
Stykkishólmi í Búðardal.
Djúp og Barðaströnd
Á Vestfjörðum verða mörg stór-
verkefni unnin. Á fyrstu tveimur tíma-
bilunum fer rúmur milljarður í ísa-
fjarðardjúp og á fyrsta tímabilinu
verður einnig unnið við að ljúka iagn-
ingu bundins slitlags á Steingríms-
flarðarheiði, á Barðastrandarvegi frá
Bijánslæk að Patreksfírði og um
Gemlufallsheiði til Þingeyrar. Á öðru
og þriðja tímabili verður síðan unnið
að lagningu vegarins um Barða-
strönd, frá Flókalundi í Bjarkarlund,
en það er talið kosta um 1.250 millj-
ónir kr. Kostnaðartalan miðast við að
farið verði fyrir Gufuijörð, ekki yfir
hann.
Á síðasta tímabili langtímaáætlunar,
2007-2010, er gert ráð fyrir tengingu
Hólmavíkur við hringveginn. Ekki er
þó kveðið upp úr um það hvort vegur-
inn eigi að liggja frá Hólmavík og
suður Strandir í Hrútaijörð, eins og
nú, eða hvort taka eigi tengingu frá
Hólmavík yfír Tröllatunguheiði og suð-
ur um Gilsijarðarbrú.
Einar Kristinn Guðfinnsson, þing-
maður Vestfjarða og formaður sam-
göngunefndar Alþingis, er spenntur
fyrir Tröllatunguleiðinni, það er að
segja veg um Arnkötludal og Gauts-
dal. Hann segir að ef sú yrði niður-
staðan yrði samt sem áður að halda
áfram uppbyggingu suður Strandir.
í áætluninni er ekki gert ráð fyrir
að lokið verið við lagningu bundins
slitlags frá Vestijarðavegi og út á
Reykhóla eða frá Djúpvegi út á
Drangsnes. Þessir staðir ná ekki 200
manna markinu og yrðu framkvæmd-
imar því að takast af almennu stofn-
vegafé kjördæmisins. Ekki er heldur
gert ráð fyrir heilsárstengingu norð-
ur- og suðurhluta Vestijarða, þ.e. frá
Bíldudal til Þingeyrar, enda yrðu dýr
jarðgöng að vera hluti af þeirri leið.
Þá er ekki gert ráð fyrir endurbótum
á vinsælum ferðamannaleiðum, t.d.
út á Látrabjarg eða norður Strandir.
Þverárfjallsvegur kemur
Á Norðurlandi vestra verður lokið
við Sigluijarðarveg og unnið að
breikkun brúa. Á öðru tíma- --------
bili á að endurbæta hring-
veginn í Norðurárdal í
Skagafirði og á öðm og að
nokkru leyti þriðja tímabili
er ætlunin að leggja 700
milljónir í veginn um Lágheiði, milli
Fljóta og Ólafsíjarðar. Ekki er gert
ráð fyrir Þverárfjallsvegi, milli Sauð-
árkróks og Skagastrandar, sem verið
hefur baráttumál heimamanna.
Hjálmar Jónsson, þingmaður Norð-
urlands vestra, mótmælti því i þing-
flokki sjálfstæðismanna að langtímaá-
ætlun sem hvorki gerði ráð fyrir
göngum til Sigluijarðar né vegi á
Þverárijalli yrði lögð fram. „Það er
forgangsverkefni að sameina byggð-
irnar með vegi yfír Þvcrárfjall," segir
Hjálmar. Hann segir að inn í tillöguna
hafí verið sett heimild til að færa 200
milljónir kr. tímabundið milli verk-
efna. Þá heimild væru stjómarþing-
menn í Norðurlandskjördæmi vestra
sammála um að nýta með því að fresta
endurbótum á hringveginum í Norður-
árdal en leggja þess í stað Þverárijalls-
veg og til þess almennt framkvæmda-
fé kjördæmisins.
Varðandi tengingu Sigluflarðar og
Ólafsfjarðar sem í tillögunni er gert
ráð fyrir að verði um Lágheiði segir
Hjálmar nauðsynlegt að gera þokka-
legan veg í byggðinni beggja vegna
Lágheiðar en heilsársvegur yrði aldrei
lagður yfír sjálfa heiðina. Hann segist
hafa talið heppilegra að hafa hlut-
laust hejti á tengingu milli Sigluijarð-
ar og Ólafsijarðar og vera ekki að
binda það við Lágheiðina því óskyn-
samlegt væri að leggja 600-700 millj-
ónir í Lágheiði þegar jarðgöng væm
miklu betri kostur og sífellt ódýrari.
Kristján L. Möller, forseti bæjar-
stjómar Sigluíjarðar, fagnar tillögum
í langtímaáætlun um íjárveitingar til
rannsókna á möguleikum jarðganga
frá Siglufirði um Héðinsfjörð til Olafs-
Qarðar. Segist hann binda miklar von-
ir við að ráðist verði í lagningu gang-
anna og lýsir andstöðu við það að átt
verði við vegagerð á Lágheiði. „Eg
er jafn bjartsýnn og áður á að jarð-
göngin verði opnuð 19. október 2003,
klukkan 4,“ segir Kristján.
Ljóst er að jarðgöng rúmast ekki
innan þeirra tillagna að vegaáætlun
sem nú liggja fyrir og ekki yrði hægt
að færa það fjármagn sem ætlað er
til vegagerðar á Lágheiði í jarðganga-
sjóð, nema með sérstakri samþykkt
Álþingis, enda kosta jarðgöngin fimm-
falt meira. Helgi Hallgrímsson vega-
málastjóri segir að fyrir árið 2003,
þegar áformað er að heijast handa
við Lágheiði, yrði að fara yfír málið
og ákveða hvemig ætti að standa að
þessari tengingu í framtíðinni, hvort
það yrði með vegi yfír heiðina eða
jarðgöngum.
Vegur á norðurhjarann
Haldið verður áfram með tengingu
Norðurlands og Austurlands og lagður
rúmur milljarður í það verkefni, aðal-
lega á fyrsta tímabili. Jafnframt verð-
ur ráðist í það stórvirki að leggja
nýjan veg frá Húsavík, um Tjömes,
Öxarfjörð og yfir Öxarijarðarheiði til
Raufarhafnar og Þórshafnar. Fellur
kostnaðurinn, liðlega 2,5 milijarðar
kr., með vaxandi þunga á öll tímabil
áætlunarinnar. I kostnaði er reiknað
með T-tengingu á Öxarfjarðarheiði,
það er að segja vegi milli Kópaskers
og Þórshafnar með legg til Raufar-
hafnar, en endanleg ákvörðun hefur
ekki verið tekin um leiðarval.
Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri
á Raufarhöfn, segir að það sé áfangi
að vera kominn með vegabætumar á
áætlun en minnir jafnframt á að ekki
sé komið að framkvæmdum og stund-
um hafi góðum áformum í vegafram-
kvæmdum á þessu svæði verið frestað
eða alveg hætt við þau. Hann segir
að það hefði orðið reiðarslag fyrir íbú-
ana ef þessi framkvæmd hefði ekki
verið á langtímaáætlun enda væri það
mikilvægt fyrir búsetuþróun þarna,
eins og víða annars staðar, að sjá eitt-
hvað handfast í samgöngumálum.
Gert er ráð fyrir lagningu bundins
slitlags til Grenivíkur á fyrsta tima-
bili áætlunarinnar, einnig lagfæringar
á hringveginum á Mývatnsheiði en
Kísilvegurinn frá Húsavík til Mývatns
er ekki á dagskrá langtímaáætlunar.
Ekki er gert ráð fyrir nýrri brú á
Skjálfandafljót í Köldukinn, núverandi
----------------- brú er talin geta dugað
Engin jarð- l'ram yfh' áætlunartímann
göng byggð á
næstu árum
með miklu eftirliti.
Breiðdalsheiði sleppt
Á Austurlandi er mikið
átak gert í lagningu bundins slitlags
enda hefur vegakerfíð þar orðið á
eftir að því leyti. Fara um 1,3 milljarð-
ar kr. í hringveginn í kjördæminu,
aðallega á fyrstu tveimur tímabilum
áætlunarinnar. Gert er ráð fyrir teng-
ingu frá hringvegi á Möðrudalsöræf-
um niður í Vopnafjörð en að því verki
ljúki ekki fyrr en á síðasta tímabilinu.
Hins vegar er ekki gert ráð fyrir teng-
ingu með ströndinni frá Þórshöfn um
Bakkafjörð og í Vopnafjörð.
Byggðar verða nýjar brýr, fyrst á
Eyvindará við Egilsstaði og Hólmsá
á Mýrum, síðar á Jökulsá í Lóni og
loks á síðasta tímabilinu yfir Lagar-
fljót og ár í Öræfum.
Jón Kristjánsson, þingmaður Aust-
urlands, telur tillögur í vegaáætlun-
inni til stórra bóta fyrir kjördæmið
enda sé einna mest eftir í þeim lands-
hluta. „Það stendur þó út af að hring-
veginum um Breiðdalsheiði skuli ekki
hafa verið lokað. Ég tel óviðunandi
að ekki skuli vera lokið við hringveg-
inn fyrir 2010 en vona að hægt verði
að leysa það öðruvísi,“ segir Jón.
Hann vísar hér til þess að í langtímaá-
ætluninni er miðað við að ljúka lagn-
ingu vegarins frá Héraði og um fírð-
ina til Hornaijarðar, en láta Breiðdals-
heiði bíða þótt hún sé enn formlega
hluti af hringveginum.
Ný brú á Hvítá
I Suðurlandskjördæmi verður gert
átak í lagfæringum á fjölförnum
ferðamannaleiðum. Lokið verður við
Þingvallaveg úr Grímsnesi að Gjá-
bakka á fyrsta tímabili og síðan verð-
ur á öðru og þriðja tímabili lagðui'
nýr vegur þaðan og að Laugarvatni,
svokallaður Gjábakkavegur á leið sem
í daglegu tali er nefnd Lyngdalsheiði.
Að þessu loknu verður kominn góður
vegur frá Reykjavík um Mosfellsheiði
til Þingvalla og síðan suður Grímsnes
eða austur á Laugarvatn, Gullfoss og
Geysi.
Á fyrsta tímabilinu verða lagðir
kaflar á veginum austan við Laugar-
vatn og Biskupstungnabraut. Einnig
er gert ráð fyrir nýrri brú á Hvítá
og vegum útfrá henni milli Flúða í
Hrunamannahreppi og Reykholts í“
Biskupstungum. Það verður gert á
öðru framkvæmdatímabili langtímaá-
ætlunarinnar.
Loftur Þorsteinsson, oddviti Hruna-
mannahrepps, fagnar tillögum um
nýja vegtengingu yfir Hvíta,_ sem
tengir betur saman uppsveitir Ámes-
sýslu og er að hans mati forsenda
fyrir aukinni samvinnu og sameiningu
sveitarfélaganna sem nú er verið að
ræða um. Hann er hins vegar afar
ósáttur við að það skuli hafa verið
gert á kostnað endurbóta á veginum .
frá Flúðum, upp Hrunamannahrepp
og yfír Hvítá hjá Brúarhlöðum, sem
stóð til að byggja upp.
Þá verður einnig gert átak í breikk-
un brúa á Suðurlandi á öllum tímabil-
um áætlunarinnar og á fyrsta tímabil-
inu verður auk þess byggð ný brú á
Þjórsá.
Reykjanesbraut breikkuð
í Reykjaneskjördæmi er öll áhersl-
an lögð á eitt yerk, breikkun Reykja-
nesbrautar. Áætlað er að fram-
kvæmdin kosti 2,4 milljarða kr. Á
fyrsta tímabili áætlunarinnar er geit
ráð fyrir undirbúningi og að fram-
kvæmdir verði á öðra tímabili en þó
aðallega á því síðasta, eftir árið 2007.
„Það þarf margt að gera um allt land
og með lagfæringum á Reykjanes-
brautinni eigum við að geta búið við
hana í nokkur ár til viðbótar," segir
vegamálastjóri aðspurður um tíma-
setningu framkvæmdarinnar; af
hveiju hún sé ekki höfð framar í röð-
inni. Hann bendir þó á að þama komi
óvissuþáttur, það er hvað umferðin á
Reykjanesbraut aukist mikið á næstu
áram.
Ekki er gert ráð fyrir Suðurstrand-
arvegi, frá Grindavík til Þorlákshafnar.
Brýn verkefni
Þeim 12,6 milljörðum sem veita á
til vegagerðar á vegum ríkisins á
höfuðborgarsvæðinu næstu tólf árin.
hefur ekki verið skipt niður á verk-
efni, en tillögur um það verða bráð-
lega lagðar fram. Heigi Hallgrímsson
vegamálastjóri segir að verkefnin séu
bæði stór og brýn. Á þessu ári verður
líklega byijað á mislægum gatnamót-
um á Skeiðarvogi og Miklubraut og
því verki lokið á fyrsta tímabili lang-
tímaáætlunar. Hann segir mjög brýnt
að breikka Vesturlandsveg um
Keldnaholt og hugsanlega þui-fí að
byggja þar ný gatnamót. Tvöfalda
þurfí Guilinbrú.
Þá segir hann nauðsynlegt að tvö-
falda Reykjanesbrautina frá Breið-
holti til Hafnaríjarðar með tilheyrandi
gatnamótum á fímm stöðum. Það er
framkvæmd upp á 2,5 milljarða kr.
Sundabraut í Álfsnes og upp í Kolla-
fjörð kemur væntanlega á dagskrá
síðar á áætlunartímabilinu og segir
vegamálastjóri að sú framkvæmd
héldist vafalaust í hendur við skipu-
lagningu byggðar í Álfsnesi.