Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 49
_____FÓLK í FRÉTTUM__
Vinsælasta náttúru-
/
perla Astralíu
FRÆGASTA strönd Ástralíu er
án efa Bondi-ströndin í nágrenni
Sydney en vinsældir hennar vaxa
nú dag frá degi. Fasteignaverð á
svæðinu hefur rokið upp á
skömmum tíma og ný kaffi- og
veitingahús opnuð næstum viku-
lega.
Það sem veldur þessum nýlegu
vinsældum er nýtt holræsakerfi
með lögn sem
var færð 8 kíló-
metra frá
ströndinni og
gerbreytti
henni. Áður fyrr
voru ströndin og
sjórinn svo
mengnð að suma
daga var allt að
því hættulegt að
hafast þar við og
klóaklyktin
óþolandi. í dag
er Bondi-strönd-
in einhver vin-
sælasti dvalar-
staður ríka og
fræga fólksins í
Ástralíu.
„Þegar ég
byijaði að starfa
við fasteignasölu
fyrir 15 árum
gat ég ekki gef-
ið húsin við
Bondi-strönd-
ina,“ sagði John
McGrath sem er
orðinn milljóna-
mæringur á fast-
eignaviðskiptum
á svæðinu síð-
ustu ár. „Þar til fyrir fjórum ár-
um hefði aldrei verið hægt að
selja hús hér fyrir eina milljón
dollara en á síðasta ári seldum
við fimm fasteignir fyrir meira
en 1,5 milljónir dollara hvei-ja."
Meðal þeirra sem eiga hús á
Bondi-ströndinni eru James
Packer, sonur ríkasta manns
Ástralíu, og leikarinn Jason
Donovan. Fleiri leikarar eiga eft-
ir að halda sig á ströndinni því
innan skamms verða þættirnir
„Breakers" teknir til sýninga í
áströlsku sjónvarpi en þeir ger-
ast á Bondi-ströndinni. Einn af
framleiðendum þáttanna segir þá
hvort tveggja fjalla um glæsilíf
íbúa straiidarinnar og umhverfið
sjálft.
Annar sjóvnvarpsþáttur er í bí-
gerð og hefur hann hlotið nafnið
„Bondi“ og er framleiddur af
þeim sömu og standa að baki hin-
um geysivinsælu „Baywatch"-
þáttum. Þeir þættir verða hasar-
þættir og því greinilegt að Bondi-
ströndin verður vel nýtt af lögu-
legum leikurum og fylgdarliði
þeirra.
Framtíð Bondi-strandarinnar
er óviss því margir hugsa sé
gott til glóðarinnar og hyggjast
nýta sér vinsældir svæðisins íbú-
unum til mikillar hrellingar.
Það vekur athygli að helmingur
þeirra 12 þúsund íbúa sem
byggja Bondi eru útlendingar
þar á meðal frá Rússlandi, Ung-
verjalandi, Taflandi, Indlandi og
Brasilíu. Á sumrin koma hundr-
uð japanskra, breskra og írskra
bakpokaferðamanna sem búa á
svæðinu og
hittast á jóla-
dag á strönd-
inni í einu
allsherjar
strand-
arpartýi.
Margir
hafa sótt um
byggingarleyfi og uppi er hug-
mynd um að leggja járnbrautar-
línu frá aðalkerfi Sydney-borgar
svo samgöngur verði greiðari.
Ekki líst þó öllum vel á þessa
hugmynd og óttast margir
átroðning og spillingu svæðis-
ins.
HORFT niður á Bondi-ströndina frá einu af mörg-
um kaffihúsum þessa vinsæla dvalarstaðar
ríka fólksins í Ástralíu.
„Baywatch“-
þættir
Ástrala með
aðseturá
Bondi-
ströndinni.
ÚTSALA - ÚTSALA
Halló!
5-50%
afsláttur
Úlpur - ullarjakkar
kápur - pelsar
alpahúfur - hattar
Kíkið inn
\o^HÚ5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Bílastæði við búðarvegginn.
MODELING & CAREER CENTER
Sjálfsstyrkingarnámskeið
fyrir barnið þitt!
Fjárfesting til framtíóar
10-12 ára
stelpur - strákar
6 vikna námskeið -12 kennslustundir.
Próf og tískusýning í lokin, allir fá
vióurkenningarskjal, skírteini með mynd
og skólatösku frá Skóla John Casablancas
Framsögn - kynningar - módel - ganga -
snyrting - dans - samtalstækni - betra sjálfstraust og sjálfsmat.
Námskeið sem eru skemmtileg og skila árangri
Innritun daglega í símum 588 7799 og 588 7727^
Skólinn byrjar 17. janúar.
V/SA
skóli ólafs gauks
Innritun er hafin og ferfram í skólanum, Síðumúla 17, daglega kl. 14-17, sími 588-3730, fax 588-3731.
Eftirtalin námskeiö eru í boði á vorönn, en nánari upplýsingar er að fá í skólanum á innritunartíma eða í
ítarlegum bæklingi um skólann, sem við sendum þeim sem þess óska, hvert á land sem er:
LETTUR
UNDIRLEIKUR
1. FORÞREP FULLORÐINNA
Byrjendakennsla, undirstaða,
léttur undirleikur við alþekkt lög.
2. FORÞREP UNGLINGA
Byrjendakennsla, sama og
Forþrep fullorðinna.
3. LÍTIÐ FORÞREP
Byrjendakennsla fyrir börn að 10
ára aldri.
4. FORÞREP II
Beint framhald Forþreps eöa
Forþreps 3 - meiri undirleikur,
einkum „plokk" o.m.fl.
5.
FORÞREP III
Beint framhald Forþreps eða
Forþreps 2, dægurlög
undanfarinna 20-30 ára, byrjun á
þvergripum o.m.fl. j
BÍTLATÍMINN
Eitt af Forþrepunum. Aðeins leikin
lög frá bítlatímabilinu, t.d. lög
Bítlanna sjálfra, Rolling Stones,
vinsæl íslensk lög o.fl.
TÓMSTUNDAGÍTAR
Byrjendakennsla (sama og
Forþrep fullorðinna, en styttra)
fyrir 16 ára og eldri í samvinnu við
Tómstundaskólann.
HEFÐBUNDINN
GÍTARLEIKUR
8. FYRSTA ÞREP
Undirstöðuatriöi nótnalesturs íyrir
byrjendur lærð með því að leika
léttar laglínur á gítarinn o.m.fl.
Forstig tónfræði. Próf.
9. ANNAÐ ÞREP
Framhald fyrsta þreps, leikin
þekkt smálög eftir nótum,
framhald tónfræði- og
tónheyrnarkennslu. Próf.
10. ÞRIÐJA ÞREP
Beint framhald Annars þreps.
Verkefnin þyngjast smátt og
smátt. Framhald tónfræði- og
tónheyrnarkennslu. Próf.
11. FJÓRÐA PREP
Beint framhald þriðja þreps. Bæði
smálög og hefðbundið
gítarkennsluefni eftir þekkt
tónskáld. Tónfræöi, tónheyrn.
Tekur tvær annir. Próf.
12. FIMMTA ÞREP
Beint framhald Fjórða þreps.
Leikiö námsefni verður
fjölbreyttara. Tónfræöi, tónheyrn.
Tekur tvær annir. Próf.
HÆGT AÐ FÁ LEIGÐA
HEIMAGÍTARA
KR. 1500 Á ÖNN
Sendum vandaðan
upplýsingabækling
ONNUR
NÁMSKEIÐ
13. JAZZ-POPP I
Þvergrip, hljómauppbygging,
tónstigar, hljómsveitarleikur
o.m.fl. Nótnakunnátta áskilin.
14. JAZZ-POPP II / III
Spuni, tónstigar, hljómfræði,
nótnalestur, tónsmíð, útsetning
o.m.fl.
15
TÓNSMÍÐAR I / II
Byrjunarkennsla á hagnýtum
atriðum varðandi tónsmíðar.
Einhver undirstaða er
nauðsynleg.
16. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN l/ll
Innifalin í námi.
17. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN
FYRIR ÁHUGAFÓLK
Fyrir þá, sem langar aö kynna
sér hiö einfalda en fullkomna
kerfi nótnanna til þess m.a. að
geta sungið eða leikið eftir
nótum.
18. KASSETTUNÁMSKEIÐ
Námskeið fyrir byrjendur á tveim
kassettum og bók, tilvaliö fyrir þá,
sem vegna búsetu eða af öðrum
ástæðum geta ekki sótt tíma í
skólanum en langar að kynnast
gítarnum. Sent í póstkröfu.
(D 588-3730
INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17