Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Skrifstofutækni
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á
skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu.
Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á
verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni
nemenda og býr þá undir krefjandi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
■ Handfært bókhald "ftlkjrtÍ ■ L
■ Tölvugrunnur
■ Ritvinnsla m r [
■ Töflureiknir
■ Verslunarreikningur V-Í, " ■ ‘
■ Glærugerð
■ Mannleg samskipti
■ Tölvubókhald
■ Internet
■ Lokaverkefni „ ....—
STARFSMENNTUN 1
fjárfesting til framtíðar f
FÓLK í FRÉTTUM
Islendingamessa í New York
KÓRINN, frá vinstri: Margrét Hjaltested, Edda Kristjánsdóttir,
Fríða Þórarinsdóttir, Ásdís Kristmundsdóttir, Björg Jakobsdóttir
og Ingibjörg Stefánsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Haukur Ingi Jón-
asson, Magnús Sigurðsson, Styrkár Hendriksson, Jón Ólafsson og
Sigurbjörn Þorkelsson.
Skrýtnar skepnur
í útlöndum
Morgunblaðið/Kristín Hauksdóttir
GUÐMUNDUR Sigurðsson,
Ilaukur Ingi Jónasson cand.
theol. og Magnús Jónsson.
Mig langaði að vera vel samkeppnisfær í
öllum almennum skrifstofustörfum og eftir
vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla
Islands. Þar bætti ég kunnáttuna í Word-
ritvinnslu og Exceltöflureikni og lærði
hand- og tölvufært bókhald, glærugerð,
verslunarreikning ásamt
undirstöðuatriðum í mannlegum
samskiptum og Interneti.
Námið er var vel skipulagt og kennsla
frábær. Kennt var 3 kvöld i viku í 4 mánuði
og enginn heimalærdómur. Nú finnst mér
ég vera fær í flestan sjó!
Guðrún Skúladóttir, deildarstjóri,
iðnaðar- og viöskiptaráöuneyti.
. Öll námsgögn innifalin
Tölvuskóli íslands
Bíldshöfða 18 Sími 567-1466
Islendingar í útlöndum eru skrýtnar skepnur - allra manna
sjálfstæðastir en líka fúsir að gera eitthvað sem minnir á landið og
þjóðina „heima“. Vilhjálmur Vilhjálmsson fann fyrir því að þörfín
fyrir að hitta landa sína er aldrei eins sterk og yfír hátíðirnar.
ÞEGAR þeirri hugmynd var
hreyft hjá íslendingum í New
York að koma saman til
messu á öðrum sunnudegi í aðventu
leið ekki á löngu áður en öll hjól voru
farin að snúast. Kirkjusókn landans
hefur í seinni tíð sjaldan þótt til mik-
illar fyrirmyndar og einungis sjö
manns sáu sér fært að mæta á Is-
lendingamessu hér í borg fyrir 15 ár-
um.
Það var því að sumum þótti full
mikillar bjartsýni gæta hjá skipu-
leggjendum er settu það ekki fyrir
sig að stofna kór og skipa í sóknar-
og kaffinefnd. Pönnukökupönnur
voru leitaðar uppi um alla heimsborg
og störfum hlaðið fólk fann tíma til
BUSETI
Búseturéttur til sölu
umsóknarfrestur til 13. janúar
2ja herb.
Dvergholt 3 , Hafnarfirði
72m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 855.922
Búsetugjald kr. 29.613
Miðholt 13, Mosfellsbæ
37m2 einstakl. íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 567.089
Búsetugjald kr. 20.536
Miðholt 5, Hafnarfirði
77m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 774.262
Búsetugjald kr. 31.515
Arnarsmári 6 , Kópavogi
54m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 604.836
Búsetugjáld kr. 34.309
Héimasíða
http://www.centruin.ls/buseti
Myndir af öllum húsum félagsins
3ja herl).
Trönuhjalli 17, Kópavogi
85m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.433.478
Búsetugjald kr. 37.162
Skólatún 2, Bessastaðarhreppi
93m2 íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.236.185
Búsetugjald kr. 48.915
Bæjarholt 9, Hafnarfirði
97m2 íbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.008.254
Búsetugjald kr. 34.923
4ra herb.
Frostafold 20, Reykjavík
88m2 íbúðir Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.107.706
| Búsetugjald kr. 42.112
Garðhús 4, Reykjavík
1 115m2 íbúð Félagslegt lán
I Búseturéttur kr. 1.918.356
I Búsetugjald kr. 42.900
4ra herb.
Trönuhjalli 17, Kópavogi
95m2 fbúð Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.493.772
Búsetugjald kr. 41.622
Breiðavík 9, Reykjavík
90m2 íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 936.279
Búsetugjald kr. 53.620
Skólatún 6, Bessastaðarhreppi
114m2íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.516.832
Búsetugjald kr. 59.528
Krókamýri 78, Garðabæ
100mz íbúð Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.424.778
Búsetugjald kr. 49.292
Heimasíða
http://www.centrum.is/buseti
Upplýsingar um húsnæðisbætur
Umsóknarblöð liggja frammi á skrifstofu Búseta hsf. ásamt teikningum og nánari upplýsingum.
Skrifstofan er opin alla virka daga, nema miðvikudaga, frá kl. 9 til 15.
íbúðirnar eru til sýnis eftir samkomulagi til 13. janúar. Með umsóknum þarf að skila skattframtölum
síðustu þriggja ára, staðfestum af skattstjóra, ásamt Ijölskylduvottorði.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 14. janúar kl. 12 að Hávallagötu 24.
Gerist félagsmenn í Búseta og aukið möguleikana í húsnæðismálum
Búseti hsf., Hávallagötu 24, 101 Reykjavík,
\ sími 552 5788, myndsendir 552 5749
BUSETI
að koma saman og æfa sálma og
söngva. Messusókn var hins vegar
með albesta móti þennan fallega
vetrarmorgun í James kapellunni
þar sem boðað var til guðsþjónustu.
Eitthvað á milli sjötíu og áttatíu
manns mættu og víluðu ekki fyrir
sér að ferðast um langan veg frá hin-
um aðskiljanlegustu borgarhverfum
og nágrannabyggðum New York
fylkis. James kapellan tilheyrir guð-
fræðideild Colombia háskólans sem
menntað hefur flesta þekktustu og
framsæknustu guðfræðinga 20. ald-
ar. Hún stendur ekki allfjarri landa-
mörkum Harlem hverfisins, þar sem
margar heitustu eldmessur blökku-
manna í New York hafa verið haldn-
ar í gegnum tíðina og trú,' stjórnmál
og mannréttindabarátta eru sam-
tvinnuð í órjúfanlega heild.
Messan hófst örlítið seinna en
áætlað var því þótt ekkert væri að
færð höfðu einhverjir tafist
og von var á fleirum. Kirkju-
gestir voru á öllum aldri.
Kornabörn og eldri dömur
með fallega hatta og náms-
menn sem eru alla jafna
mun hagvanari á annars
konar stofnunum borgar-
innar. Jerry Jensen, sem
allaf er fremstur í flokki
á öllum samkomum Is-
lendinga hér í borg, er
mættur með íslenska
fánann sem hann skil-
ur helst aldrei við sig.
Samt hefur hann lítil
önnur tengsl við Is-
land en að eiga son
sem einu sinni þjón-
aði í herstöðinni í
Keflavík.
Haukur Ingi
Jónasson, cand.
theol., annaðist at-
höfnina en hann stundar nám í
sjúkrahússprestskap við fyrrnefnd-
an Colombia háskóla. Guðmundur
Sigurðsson lék á orgel og ritningar-
greinar lásu Hófí Steingrímsdóttir
og Gauti Eggertsson. Kórinn, sem í
voru meðal annarra mannfræðingur,
leiklistarnemi, tónlistar- og mynd-
listarmenn, allt fólk sem dvelur við
hin ýmsu störf hér í borg, söng
hverja tónlistarperluna á fætur ann-
ari.
Edda Kristjánsdóttir flautuleikari
og Margrét Hjaltested víóluleikari,
prímus mótor í öllum undirbúningi
messunnar, önnuðust tónlistarflutn-
ing og Ásdís Kristmundsdóttir
sópransöngkona söng stólvers. Jón
Ólafsson heimspekingur flutti
predikun þessa sunnudags og lagði
út af þjóðernishyggju, því að vera Is-
lendingur á íslandi og íslendingur í
útlöndum. Einhverjir innfæddir vinir
og vandamenn slæddust með til
messu fyrir forvitnissakir til að sjá
hvemig þessir norðanmenn ræktu
guð sinn og fylgdust með af athygli.
Þegar kór og söfnuður tóku til við
að syngja bamasöngva með tilheyr-
andi handahreyfingum og gassa-
gangi, mátti sjá skelfingarsvip fær-
ast yfir andlit eins þeÚTa, sem
seinna trúði mér fyrir því að á tíma-
bili hélt hann að samkoman væri að
breytast í einhvers konar popp-
messu. Annar tjáði mér eftir messu
að þótt hann hefði ekki skilið nema
einstaka „amen“ af því sem fram fór
hefði allt virst mjög trúarlegt.
í lok guðsþjónustu var kveikt á
kerti og ljósið látið ganga manna á
milli. Þjóðsöngurinn var sunginn og
einhverjir urðu rakir um hvarma. Og
svona var þessi fyrsta íslendinga-
messa í New York í 15 ár, hæfileg
blanda af hátíðleik og fjöri. Að
messu lokinni safnaðist þessi hópur,
sem á fátt annað sameiginlegt
en að vera Islend-
ingar í útlandi,
saman í björtum og fallegum sal og
gæddi sér á kaffi, pönnukökum og
öðru góðgæti og það var tekið
hraustlega til matar síns.
Machintosh-baukur, fullur af jóla-
smákökum, vakti hlýjar tilfinningar í
brjóstum einhverra og andrúmsloft-
ið var eins og í fjölskylduboði. Allir
höfðu sögur að segja, það var mikið
hlegið og ekkert benti til að margir
væru að hittast í fyrsta sinn. Það
mátti merkja á mæli sumra af eldri
kynslóðinni að þeir hafa dvalið hér
um langt skeið, þeir hengdu einstaka
„darling“ aftan við setningar. „Og
hvenær verður aftur messað?“
spurði einhver og annar stakk upp á
páskum, ,jól og páskar," sagði hann,
„svona rétt eins og hreingerningarn-
ar.“