Morgunblaðið - 06.01.1998, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 06.01.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ PRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 27 MENNTUN AÐSENDAR GREINAR DR. SIGMUNDUR Guðbjarnason, formaður Sammenntar, afhendir Antomusi Alexanderssyni bakaranema verðlaun frá Landsskrifstofu Leonardós en þau verðlaun voru nú veitt í fyrsta sinn. Menntaskólinn í Kópavogi stækkar og útskrifar MENNTASKÓLANUM í Kópavogi var slitið við hátíðlega athöfn í Digraneskirkju föstudaginn 19. desember. Menntaskólinn býður nú jöfnum höndum upp á hefðbundið bóknám til stúdentsprófs og verk- nám á sviði hótel- og matvæla- greina auk náms í ferðagreinum. Að þessu sinni útskrifuðust 34 nem- endur, 29 verknámsnemar úr fjór- um deildum, matreiðslu, fram- reiðslu, bakaradeild og grunnnámi matvælasviðs. Einnig útskrifúðust 5 stúdentar sem eru þeir fyrstu sem ljúka skólanum á miðju skólaári eftir að tekið var upp áfangakerfi við skólann. Margrét Friðriksdóttir skóla- meistari greindi í ræðu frá hraðri þróun innan skólans eftir að hús- næðið stækkaði um helming með verknámshúsi. Nemendafjöldi hef- ur tvöfaldast og eru um 900 nem- endur í dagskóla og á annað hundr- að í kvöldskóla. Menntaskólinn í Kópavogi býður nú upp á 20 mis- munandi námsleiðir, þar af 17 á framhaldsskólastigi og 3 á fag- skólastigi sem er alþjóðlegt ferða- fræðinám, meistaraskóii hótel- og matvælagreina og leiðsögunám. Tvær nýjar Ieiðir bættust við námsframboð MK á liðinni haustönn, annars vegar fyrir mat- artækna og hins vegar sérstakt meistaranám fyrir hótel- og mat- vælagreinar. Margrét segir að ekki verði látið staðar numið við það og á vorönn verði síðasti áfangi verk- námshúss tekinn f notkun eða alls 1.800 fm sem hýsa mun kjötiðnað- ardeild, smurbrauðsdeild og fiskiðn ásamt búningsaðstöðu verk- námsnema og innkaupadeild skól- ans. Hún segir líka að á næstu þremur árum muni 8 nýjar brautir bætast við hótel- og matvælasviðið. Tveir nemendur skólans hlutu viðurkenningu fyrir framúrskar- andi árangur í starfsmenntun og fengu þeir 75 þúsund krónur hvor. Það voru Antoníus Alexanderson bakaranemi og Eyjólfur Einar Elí- asson matreiðslunemi. Kennaranemar í nýjum háskóla Fyrsta önn í nýjum skóla er að hefjast Kennaramenntun er nú undir einu nafni og einni stjórn í Kennaraháskóla Islands NÝ LÖG um Kennara- háskóla íslands tóku gildi 1. janúar 1998 með sameiningu Fóst- urskóla íslands, íþróttakennaraskóla íslands, Kenn- araháskóla íslands og Þroskaþjálfa- skóla íslands. Rektor Kennarahá- skólans verður Þórir Ólafsson og er ætlunin að aðalbækistöðvar verði á Rauðarárholtinu í Reykjavík. Markmiðið er að efla uppeldis- og kennaramenntun á íslandi, faglegt umhverfi og bæta nýtingu kennslu- krafts, húsnæðis og önnur aðfóng. Nýi Kennaraháskólinn mun byggja starf sitt á þeim grunni sem þegar er fyrir hendi í stofnununum sem sam- einast og verður markvisst stefnt að því að efla nám og rannsóknir á þeirra sviðum. 1.200 nemendur verða í honum og starfsmenn 140. Kennaraháskóli Islands mun í fyrstu starfa í þremur deildum: grunndeild, framhaldsdeild og end- urmenntunardeild. Grunnnám leik- skólakennara, grunnskólakennara, framhaldsskólakennara, íþrótta- kennara og þroskaþjálfa mun fara fram í grunndeild. I framhaldsdeild verður nám til meistaragráðu á svið- um kennslufræða, sérkennslufræða, stjórnsýslufræða og uppeldisfræða. A vegum endurmenntunardeildar verður fjölbreytt endurmenntunar- starfsemi og styttra grunnnám fyrir ólíka hópa. Fjarnámsleiðir verða boðnar við flestar námsbrautir hins nýja háskóla. Rannsóknir styrktar Kennaraháskóli Islands tók til starfa samkvæmt nýju lögunum 2. janúai’ og sagði Björn Bjamason menntamálaráðherra í ræðu í athöfn af því tilefni að nýr kafli í skólasögu íslensku þjóðarinnar væri haflnn. Hann sagði miklu skipta að virð- ing yrði borin fyrir sérstökum áherslum sem mótast hefðu innan einstakra skóla sem nú væru að sam- einast og að hið besta úr hverjum hinna gömlu yrði nýtt. Ráðherra sagði að kennarar við háskólann yrðu ráðnir samkvæmt nýjum lögum um háskóla og að þeir úr gömlu skólunum sem ekki upp- fylltu kröfur um meistarapróf eða jafngilda þekkingu fengju tíma til að laga sig að breytingunum. Björn minntist þess að árið 1908 hefðu fyrstu lögin um fræðslu bama tekið gildi og fannst vel við hæfi að minnast þessa 90 ára afmælis með því að stofna nýjan Kennaraháskóla og einnig að Magnús Helgason hefði sett fyrsta sérstaka kennaraháskól- ann árið 1908. í ræðu menntamálaráðherra kom einnig fram að sjálfstjórn Kennara- háskólans yrði meiri en annarra rík- isháskóla og væru til dæmis allir starfsmenn hans ráðnir af rektor. Hann sagði einnig að forsendur til rannsókna yrðu styrktar og náms- kröfur yrðu sambærilegar og erlend- is tíðkaðist. skólar/námskeið ________myndmennt______________ ■ MYND-MÁL, myndlistarskóli Málun — fjölbreytileg verkefni. Teiknun. Byrjendur, framhald í fámennum hópum. Uppl. og innritun kl. 14-21 alla daga. Sfmar 561 1525 og 898 3536. Rúna Gísladóttir, listmálari. Kennaraháskóli Islands - fjórir skólar í nyjum háskóla NÝR skóli tók til starfa 1. janúar 1998. Langþráðu marki var náð, þegar Alþingi samþykkti ný lög um Kennaraháskóla Is- lands. Hafa þau verið gefin út í Stjórnartíð- indum, eru númer 137/1997 og tóku gildi 1. janúar 1998. Samkvæmt lögunum er Kennaraháskóli Is- lands miðstöð kennara- og uppeldismenntunar á íslandi, vísindaleg fræðslu- og rannsókn- arstofnun, sem veitir nemendum sínum menntun til þess að gegna störfum á sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis og umönnunar og til þess að sinna sjálfstætt fræðilegum rannsóknum á því sviði. Með lögunum verða þn'r fram- haldsskólar: Fósturskóli íslands, Iþróttakennaraskóli íslands og Þroskaþjálfaskóla Islands auk Kennaraháskóla íslands að einum. Saga þeirra er misjafnlega löng. Innan hvers skólanna hafa þróast hefðir og skólabragur, sem ber að virða eftir því sem kostur er í hinum nýja skóla. Skólaandinn verður þó aðeins til hjá þeim, sem í skólanum starfa. Hann skapar enginn annar en kennarar og nemendur. Skiptir miklu, að eftir því, sem kostur er, verði borin virðing fyrir sérstökum áherslum, sem mótast hafa innan einstakra skóla. Við skipulag innra starfs hins nýja skóla ber að nýta hið besta úr gömlu skólunum og leyfa því að njóta sín áfram. Kennarar og nemendur í nýsamþykktum lögum um há- skóla, númer 136/1997, sem einnig tóku gildi 1. janúar 1998, segir, að kennarar í háskóla skuli hafa lokið meistaraprófi hið minnsta eða hafa jafngilda þekkingu og reynslu að mati dómnefndar. Kennarar, sem nú færast á háskólastig án þess að uppfylla þessi starfsskilyrði, fá nokkurn tíma til að laga sig að breytingunum. Kennarar, sem full- nægja kröfunum, urðu starfsmenn hins nýja skóla um áramótin. Hann er því frá fyrsta degi vel mannaður. Með nýju lögunum er tryggt, að nemendur, sem nú eru í skólunum geta loldð prófum samkvæmt gild- andi námsskipulagi skólanna. Vilji þessir nemendur hins vegar ljúka háskólaprófi, er háskólaráði heimilt að taka ákvörðun um, hvernig að því verði staðið. Stjómir nemenda- félaga skólanna fjögurra skulu sam- eiginlega tilnefna tvo fulltrúa af tíu í háskólaráðið. I nýju háskólalögunum er að finna ákvæði, sem mælir fyrir um skyldu menntamálaráðherra til að setja reglur um kærur eða mál- skotsrétt nemenda í málum, þar sem þeir telja brotið á rétti sínum. Er heimild til að hafa í reglunum ákvæði um sérstaka kærunefnd eða áfrýjunarnefnd, sem hefur endan- legt úrskurðarvald í kærumálum nemenda. Þetta er mikilvægt ný- mæli í þágu nemenda og verður nú gengið til þess að hrinda því í fram- kvæmd. Aukin sjálfsstjórn í nýju lögunum um Kennarahá- skóla íslands felst meira en samein- ing fjögurra skóla í einn. Þau eru einnig fyrstu lög, sem sett eru í samræmi við nýja heildarlöggjöf um háskólastigið. Sameiginlega mynda þessi tvenn lög starfsramma hins nýja skóla. Sjálfstjóm hans er meiri en annarra ríkis- háskóla. Háskólaráð hans fer með úrskurð- arvald í málefnum hans og stofnana, sem tengj- ast skólanum. Allir starfsmenn hans eru ráðnir af rektor skól- ans. Ein þriggja manna dómnefnd dæmir um hæfi allra starfsmanna og nýtur hún ráðgjafar sérfræðings, þegar fræðistörf umsækjenda eru metin. Kennaraháskóli ís- lands gegnir ekki að- eins mikilvægu hlut- verki sem kennslustofnun. Innan hans ber jafnframt að stunda rann- sóknir og í krafti þeirra að vinna að því, sem til framfara horfir í ís- lenskum menntamálum. Var það eitt af höfuðrökunum fyrir samein- ingu skólanna fjögurra, að þar með Þáttaskil urðu í kenn- aramenntun um ára- mótin. Björn Bjarna- son bendir á að næsta stórverkefni á sviði menntamála sé að skil- greina hlutverk kenn- ara og nemenda með nýjum námskrám. yrðu allar forsendur til rannsókna styrktar. I hinni nýju háskólalöggjöf segir, að tryggja skuli að inntökuskilyrði í háskóla og námskröfur svari til þess, sem krafist er í viðurkennd- um háskólum á sambærilegu sviði erlendis. Með þessu staðfestir lög- gjafinn, að strangar alþjóðlegar kröfur skuli gerðar til háskóla á Is- landi. Þessar kröfur eni óhjá- kvæmilegar, þegar haft er í huga, að staða íslensku þjóðarinnar í samfélagi þjóðanna ræðst æ meira af menntunarstigi hennar. Háskólaráð og aðsetur í háskólaráði hins nýja skóla skulu sitja tíu fulltrúar þar af tveir skipaðir af menntamálaráðherra. Hef ég valið þá Ingimund Sigur- pálsson, sveitarstjóra í Garðabæ, og Hauk Ingibergsson, forstöðu- mann Hagsýslu ríkisins, til setu í ráðinu fyrir mína hönd. Ingimund- ur hefur mikla reynslu sem sveitar- stjóri, en sveitarstjómir eru vinnu- veitandi kennara í leikskólum og grunnskólum. Haukur hefm- stýrt verkefnisstjóminni, sem unnið hef- ur að sameiningu skólanna á grundvelli nýju laganna. Hann er því gjörkunnugur öllum úrlausnar- efnum, sem tengjast sameining- unni. Sameinaðir eru fjórir skólar á þremur ólíkum stöðum í Reykjavík og einn á Laugarvatni. Markmiðið er, að starfsemin í Reykjavík verði sem mest á Rauðarárholti. Hug- myndum um aðstöðu fyrir skólann í Sjómannaskólahúsinu hefur ekki beinlínis verið vel tekið. Viðræðum um þann þátt er ekki lokið. Verður nú lagt á ráðin um framhaldið í samvinnu við stjórnendur hins nýja skóla. Eg hef ákveðið, að skólinn fái full yfirráð yfir eigin húsnæði á Laugarvatni og menntamálaráðu- neytið hætti þar afskiptum af húsa- kosti vegna íþróttakennslu. Námskrá Menntamálaráðuneytið stendur nú fyrir mati á kennaramenntun við Kennaraháskóla Islands, Háskól- ann á Akureyri og Háskóla íslands. Er matinu ætlað að veita skólunum tækifæri til að endumýja markmið sín og áætlanir í Ijósi fyrra starfs. Hafa skólamir þegar skilað skýrsl- um um sjálfsmat, sem era nú til at- hugunar hjá óháðum sérfræðingum og ætla þeir að heimsækja skólana í þessum mánuði. Stefnt er að því, að niðurstöður matsins og tillögur til úrbóta liggi fyrir um miðjan mars næstkomandi. Er einsýnt, að þess verði beðið að setja nýjum skóla námskrá, þar til niðurstöður í þessu starfi hafa verið kynntar. Koma þá einnig til álita til- lögur um að lengja kennaranámið í fjögur ár. Er mikilvægt, að um öll skref í því máli náist víðtæk sam- staða. Lögum Samkvæmt á mennta- málaráðherra að gera tillögur um fjárveitingar til Kennaraháskóla ís- lands á gi-undvelli fjárhags- og starfsáætlunar skólans til fimm ára. Er mikilvægt, að strax verði gengið til þess að gera slíka áætlun og leggja þannig grann að samningi um fjárveitingar til skólans, sem kynntur verði fyrir ríkisstjórn og Alþingi. Ný skólastefna - hlutverk kennara íslenskt skólakerfi hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum. Nýrri menntastefnu hefur verið í hrundið í framkvæmd. Með nýju lögunum um háskóla hefur öllum skólastigum verið settur nýr starfs- rammi síðan ný leikskólalög komu til sögunnar árið 1994. Grunnskól- inn er nú í umsjá sveitarfélaganna. Með nýjum skólasamningum og annarri nýbreytni tekur framhalds- skólastigið nú miklum breytingum. Kennaramenntunin er einnig að breytast. A grandvelli hinnar nýju mennta- stefnu og í samræmi við ný lög hef- ur menntamálaráðuneytið undan- farið unnið að því að semja nýja skólastefnu fyrir grann- og fram- haldsskóla. Með hugtakinu skóla- stefna er vísað til innra starfs í skól- um, hins mikilvæga þáttar, sem snýr að hlutverki kennara og verk- efnum nemenda. Skólastefnan er skilgreind og útfærð í námskrám. Ætlunin er, að nýjar aðalnámskrár grunn- og framhaldsskóla sjái dags- ins ljós næsta haust. Þá er einnig unnið að því að endurskoða uppeld- isáætlun leikskólans. Ný skólastefna verður marklítil nema kennsluhættir séu góðir. Störf og áhrif kennara verða aldrei metin til fulls. Um leið og sett era ný skilyrði um inntak kennslunnar er einnig verið að tæknivæða skóla- starfið æ meira í samræmi við kröf- ur þekkingar- og upplýsingasamfé- lagsins, sem sækir styrk sinn að veralegu leyti til nýrrar tölvu- og upplýsingatækni. Kennarinn þarf ekki einvörðungu að hafa fræði sín og kennslutækni á valdi sínu. I huga margra er kenn- arastarfið köllun. Hvað sem því líð- ur verður kennarinn að hafa þekk- ingu á börnunum sjálfum. Stuðla að sem bestum þroska þeirra, opna hug þeirra og hjarta fyrir öllum góðum áhrifum, vekja áhuga til náms, sem endist þeim alla lífsleið- ina. Nám er ekki bundið við hin formlegu skólaár, heldur er það æviverk að viðhalda menntun sinni. Höfundur er menntamálaráðherra. Björn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.