Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÚR VERIIMU
Hlutabréf Sam-
herja og Tækni-
vals lækka á ný
Hlutabréfavísitalan lækkaði um 1%
GENGI hlutabréfa í Tæknivali og
Samherja lækkaði á nýjan leik í
gær í fyrstu viðskiptum með þessi
bréf á nýju ári. Hlutabréf í Tækni-
vali lækkuðu mest, eða um tæp
17% en hlutabréf í Samheija lækk-
uðu um tæp 4%. Viðskipti með
hlutabréf voru með minna móti á
Verðbréfaþingi í gær, eða um 13
milljónir króna og lækkaði hluta-
bréfavísitalan um tæplega 1%
Eins og fram hefur komið varð
mikil hækkun á hlutabréfum þess-
ara fyrirtækja auk hlutabréfa í
íslenskum sjávarafurðum og Bása-
felli undir lok viðskipta á gamlárs-
dag til þess að Verðbréfaþing fór
þess á leit við bankaeftirlit Seðia-
banka að það kannaði hvort um
sýndarviðskipti hefði verið að
ræða.
17% lækkun
Tæknivalsbréfa
Gengi hlutabréfa í Tæknivali
lækkaði í gær um 110 punkta eða
tæp 17% og var það við lokun í
gær 5 punktum lægra en það var
þann 30. desember. Sem kunnugt
er hækkaði gengi bréfanna hins
vegar um 20% í viðskiptum þar sem
Tæknival var kaupandi bréfanna,
fáeinum mínútum fyrir lokun á
gamlársdag. Gengi bréfanna fór
hæst í 6,60 en sölutilboðum á þeim
nótum sem sett voru inn í við-
skiptakerfi Verðbréfaþings í gær
var ekki tekið. Þrenn viðskipti áttu
sér hins vegar stað á genginu 5,5.
Þá lækkaði gengi hlutabréfa í
Samheija um 35 punkta í 8,65 eða
sem samsvarar tæpum 4%. Gengi
bréfanna hækkaði hins vegar um
6% á gamlársdag og áttu innhetjar
aðild að stærstum hluta þeirra við-
skipta.
Engin viðskipti urðu hins vegar
með hlutabréf í íslenskum sjávar-
afurðum eða Básafelli í gær, en
gengi hlutabréfa þessara fyrir-
tækja hækkaði einnig nokkuð á
gamlársdag. Hagstæðasta sölutil-
boð í ÍS var 3 í gær, en gengi
bréfanna fór sem kunnugt er hæst
í 3 á gamlársdag. í Básafelli var
hagstæðasta sölutilboð 2,3 eða 20
punktum fyrir neðan lokagengi
þeirra á gamlársdag.
Verðtryggðir vextir lækka
Nokkur viðskipti urðu með hús-
bréf í gær og lækkaði ávöxtunar-
krafa þeirra um 1 punkt í 5,28%.
Alls námu húsbréfaviðskipti 451
milljón króna í gær.
Þá lækkaði ávöxtunarkrafa
spariskírteina með rúmlega 7 ára
líftíma um 4 punkta í gær og nam
5,26%. Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa
hækkaði hins vegar um 6 punkta
miðað við hagstæðasta kauptilboð
en engin viðskipti urðu með bréfin.
Stjórnendur fyrirtækja
Erum aö endurnýja fyrirtækjaskránna hjá okkur eins og venjulega
um áramót. Vinsamlega hafið samband sem fyrst því oft eru menn
að huga að stórbreytingum fyrst eftir áramót. Allar upplýsingar með-
höndlaðar sem trúnaðarmál hjá okkur eins og fyrr.
Höfum fjársterka kaupendur að eftirtöldum fyrirtækjum:
1. Góðum heildverslunum.
2. Tölvufyrirtæki, þjónusta eða innflutningur.
3. Gistiheimili, jafnvel hótel á Suðurlandi.
4. Lítil framleiðslufyrirtæki.
5. Matvöruframleiðslufyrirtæki.
6. Útflutnings- eða þjónustufyrirtæki fyrir sjávarútveg.
7. Þjónustufyrirtæki sem getur verið úti á landi.
8. Rekstrarlega hagstæð fyrirtæki.
9. Ýmiss önnur fyrirtæki.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
KiGIIiSgZkmWIIlSE
SUÐURVERI
SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
MEST af síld hefur verið saltað hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað á yfirstandandi vertíð. Þar hefur
einnig verið fryst mikið af síld í hinu nýja frystihúsi fyrirtækisins. Næst mest hefur verið saltað á Eskifirði.
Aðeins saltað í 86.000
tunnur á vertíðinni
Aðeins helmingur
af leyfilegum
kvóta veiddur
Síld Samtals
önnur en flök Flökuð síld tunnur
Vopnafjörður 1.728 0 1.728
Neskaupstaður 18.949 10.396 29.345
Eskifjörður 18.389 4.852 23.241
Fáskrúðsfjörður 4.482 1.266 5.748
Djúpivogur 5.546 1.715 7.182
Hornafjörður 6.170 8.750 14.920
Vestmannaeyjar 2.348 2.257 4.605
Samtals tunnur: 57.533 29.236 86.769
SÍLDARSÖLTUN er nú með
minnsta móti og alltaf frá upphafi
yfirstandandi síldarvertíðar hefur
veiði verið treg og mun minna síld-
armagn fundist á hefðbundnum
veiðisvæðum fyrir austan land en
venja hefur verið á þeessum tíma
undanfarin ár. í september og
október voru veiðarnar einkum
stundaðar með hringnót en í nóv-
ember og desember var meginhluti
síldaraflans veiddur í flotvörpu,
einkum af stærri skipum. Þegar
hlé var gert á veiðunum vegna jóla-
leyfa var áætlað að einungis hafi
veiðst um 50 þúsund tonn, sem er
um helmingurinn af úthlutuðum
kvóta.
Treg veiði hefur sett mark á
söltunina. Frá því söltun hófst 20.
september sl. hefur verið saltað í
um 86 þúsund tunnur sem er nokk-
uð minna magn en á sam tíma
undanfarin ár. Enn á eftir að fram-
leiða í um 30 þúsund tunnur upp
í þegar gerða samninga, auk þess
sem viðbótarsölumöguleikar hafa
ekki verið nýttir.
Söltunin skiptist sem hér greinir
eftir söltunarstöðvum við upphaf
jólahlés:
Veiðar og söltun hefjast að nýju
fljótlega eftir áramótin. Tímabundið
bann hefur verið sett á síldveiðar í
flotvörpu frá jólahléi til 15. janúar
nk. meðan fiskifræðingar mæla
síldarstofninn, en nótaveiðar eru
heimilar frá 2. janúar. Á sama tíma
og tímabundnu banni við síldveiðum
í flotvörpu lýkur er vfirvofandi
verkfall vélstjóra á stærstu fiski-
skipunum, en það verkfall hefur
verið boðað 16. janúar nk. Verkfall
gæti haft veruleg áhrif á gang veiða
og söltunar eftir áramótin ef síldin
verður ekki veiðanlega í nót, þar
sem meginhluti síldaraflans seinni
hluta vertíðarinnar veiddist í flot-
vörpu.
Veður hamlar
nótaveiðum
VEÐUR hamlaði nótaveiðum í
gær og lágu flest skipin í höfnum
inni á Austfjörðum í gær. Skipin
héldu til veiða eftir jólafrí um
helgina og voru við leit aðfara-
nótt sunnudags en fóru þá í land
vegna veðurs. Að sögn skip-
stjórnarmanna var leitað á stóru
svæði allt norðan frá Langanesi
suður með öllum Austfjörðum en
ekkert hefur sést, hvorki til síld-
ar né loðnu. Þeir eru þó ekki
úrkula vonar um að úr rætist
enda eigi enn eftir að skoða stór
hafsvæði. Það verði gert um leið
og veður verði skaplegt.
Verslunarskóli íslands
Öldungadeild
Lœríð hjá þeim sem þekkja þarfir viðskiptalífsins
Á vorönn 1998 verða eftirtaldar námsgreinar í boði:
Bókfærsla
Enska
Forrítun
fslenska
Líffræði
Gjald fyrir hvern áfangafer eftir fjölda kennslustunda.
Bókhalds- og tölvunám (208 kennnslustundir )
Kennsla á vorönn hefst 12. janúar.
Innritað verður á skrifstofu skólans, Ofanleiti 1,
103 Reykjavík 5.-8 janúar nk.
Ritvinnsla
Saga
Skattabókhald
Spænska
Stærðfræði
Tölvubókhald
Tölvunotkun
Þjóðhagfræði
Þýska