Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Jólablað Herópsins, blaðs Hjálpræðishersins, seldist upp s Ovenjugóðar viðtökur JÓLABLAÐ Herópsins sem Hjálpræðisherinn gefur út seldist upp fyrir jólin, en að sögn Erlings Níelssonar for- ingja lyá Hernum á Akureyri og ritstjóra blaðsins hefúr sala á jólablaðinu verið góð undanfarin ár. „Það er ekki einsdæmi að blaðið seljist upp en við tókum eftir því að við- tökurnar voru einkar góðar fyrir þessi jól,“ sagði hann. Fólk er bjartsýnna Herópið er einungis selt á Akureyri og Reykjavík, þar sem Hjálpræðisherinn hefur starfsemi og aðallega er blað- ið selt í lausasölu. Jólablaðið var gefíð út í 3.500 eintökum. Eitthvað er gengið í hús og blaðið selt þannig en mest er um að fólk kaupi blaðið af þeim sem standa við jólapott Hjálpræðishersins. „Við feng- um óvepju góðar viðtökur núna, maður fann svo vel að fólk er bjartsýnna en var fyrir nokkrum árum, það lítur björtum augum til framtíðar og þá rígheldur það ekki eins í aurana sína,“ sagði Erlingur. „Það eru miklar hetjur sem standa í því að selja Herópið, en ég held að á engan sé hall- að þó ég nefni heiðurshjónin Óskar og Ingibjörgu, Immu, í Reykjavík. Hann er á níræðis- aldri og hún komin fast að átt- ræðu, en þau eru mjög ötulir sölumenn, eru í þessu af lífi og sál og hafa verið um ára- bil,“ sagði Erlingur Níelsson á Akureyri. MA Breki VE fékk gott verð fyrir karfann UM 80 tonn af karfa voru seld úr Breka VE í Bremerhaven í gærmorgun og fengust um 190 krónur íyrir kílóið að með- altali. Breki var í um tvær vik- ur að veiðum yfir hátíðamar, eitt íslenskra skipa, og fengust alls 140 tonn í túrnum. Af- gangur aflans verður seldur í dag. Stefán Friðriksson, útgerð- arstjóri Vinnslustöðvarinnar hf., segir verðið vel viðunandi. Lítið fiskframboð sé á fisk- mörkuðum Evrópu fyrstu viku ársins. Hann segist eiga von á að verðið haldist þar sem enn eigi eftir að selja nýrri og betri fisk. Tveir slösuð- ust í hörðum árekstri HARÐUR árekstur varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í Reykjavík um kl. 20.50 sl. laugardagskvöld. Rákust þar á tveir bílar og slösuðust ökumenn beggja en þeir voru einir í bílunum. Þeir sem kynnu að geta gef- ið upplýsingar um aðdraganda óhappsins eru beðnir að gefa sig fram við lögregluna. Sáttafundur árangurslaus ENGINN árangur varð af sáttafundi vélstjóra og útvegs- manna hjá ríkissáttasemjara í gær og kom ekkert nýtt fram á fundinum, skv. upplýsingum Þóris Einarssonar sáttasemj- ara. Annar fundur verður boð- aður síðar í vikunni. Boðað verkfall vélstjóra hefst á mið- nætti 16. janúar hafi ekki samist fyrir þann tíma. í gær lauk atkvæðagreiðslu félaga í Sjómannasambandi Is- lands og Farmanna- og fiski- mannasambandinu um hvort boða eigi til verkfalls 2. febrú- ar. Talning atkvæða fer fram fimmtudaginn 8. janúar. A morgun hafa deiluaðilar verið boðaðir til sáttafundar en það er fyrsti sáttafundurinn á nýju ári. Þrjú innbrot á dag TILKYNNT voru 1.585 inn- brot til lögreglunnar í Reykja- vík á síðasta ári og er það um 15% fækkun innbrota frá fyrra ári þegar þau voru 1.860. í fyrra voru að meðaltali framin þrjú innbrot á dag. Ránum hefur hins vegar fjölgað. Um helmingur þessara inn- brota er í bíla en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á eftir að greina innbrotin nánar niður. Þá hefur líkamsmeiðingum fækkað lítillega í borginni eða úr 567 árið 1996 í 544 í fyrra. Ránum hefur hins vegar fjölg- að nokkuð eða úr 13 árið 1996 í 25 árið 1997 og eignaspjöllum fjölgaði úr 1.369 árið 1996 í 1.689 eða um 20%. Talsvert tjón er fiskverkun brann í Garði FISKVERKUNARHÚS í Garði brann til grunna í fyrrinótt. Veru- legt tjón varð í brunanum, en í hús- inu var fiskur að verðmæti um 3 milljónir króna. Húsið, sem var 400 fermetra jámklætt timburhús, var illa tryggt. Brunavamir Suðumesja fengu tilkynningu um eld í Fiskverkun Antons laust eftir kl. 3.30 um nótt- ina. Þegar slökkvilið kom á staðinn var húsið alelda og þakið fallið. Slökkviliðið lagði þess vegna höfuð- áherslu á að bjarga skúr við húsið, en í honum var mikið af veiðarfær- um og ein bifreið. Tókst að bjarga skúmum. Nokkuð hvasst var og skapaðist hætta af jámplötum úr brunarústunum. Björgunarsveitin Ægir var kölluð út til að fergja plöt- umar. í húsinu var harðfiskvinnsla og sagði Guðmundur Antonsson, starfsmaður í fiskvinnslunni, að tjónið væri tilfinnanlegt. Mikið af fiski hefði verið í húsinu og verð- mæti hans væri fast að þremur milljónum króna. Mikið af tækjum hefði ennfremur eyðilagst. Sú vinnsla sem var í húsinu hefði hafist fyrir ári og hefði á þeim tíma verið unnið að endurbótum á því. Ekki hefði verið búið að meta þessar end- urbætur inn í trygginguna. Húsið hefði því verið illa tryggt. Guðmundur sagði að lítill tími hefði gefist til að huga að framhald- inu en á því eina ári sem fiskverk- unin hefði verið starfrækt hefði tek- ist að afla góðra sölusamninga. Hann sagðist því reikna með að reynt yrði að komast inn í nýtt hús- næði og hefja rekstur að nýju. Tveir til sex menn hafa starfað við fisk- verkunina. Eldsupptök em óljós en rann- sókn lögreglunnar beindist m.a. að rafmagni. .. MorgunDiaoio/Arm oæoerg LÖGREGLUMENN leituðu eldsupptaka í rústum fískverkunarhússins í gærmorgun og beindist athygli þeirra m.a. að hleðslutæki fyrir lyftara. Mjólkurvörur hækka um 3-5% VERÐ á mjólk, rjóma, jógúrt, ostum og öðmm mjólkurvöram hækkaði nú um áramótin um 4% að meðaltali. Algengt verð á mjólkurlítranum í stórmörkuðum hækkaði úr 70 krónum í 73 eða um 4,3% og er hækkun á öðram mjólkurvöram svipuð. Hækkun á mjólkurvöranum er nokkuð mis- jöfn en á bilinu 3-5%. Að sögn Þórarins Egils Sveinssonar, mjólkurbústjóra KEA á Akureyri, sem er annar fulltrúa mjólkuriðnaðarins í fimmmannanefnd, er aðalástæða hækkunarinnar 4% hækkun launakostnaðar um síðustu mánaða- mót og verðhækkun til bænda. Hann minnti og á að verðhækkun sem bændur fengu í september síðastliðnum hefði ekki farið út í verðlagið. Hann sagði þessa hækkun minni en ýmsir aðrir fram- leiðendur væra að tilkynna um þessar mundir sem væri oft á bilinu 5 til 7%. Þórarinn sagði að kostnaður við meðalneyslu sérhvers íslendings á öllum mjólkurvöram væri um 2.500 krónur á mann á mánuði eftir hækkunina eða um 30 þús- und krónur á ári. Hann sagði vægi mjólkurvara mun minna í vísitölu nú en áður. Hlutur bænda í hækkuninni innan við helmingur Guðmundur Lárasson, formaður Landssam- bands kúabænda, sagði að hlutur bænda í hækk- un mjólkurvara væri innan við helmingur. Auk launaliðar væri hækkunin nú vegna hækkunar á fiskimjöli og flutningum. Sexmannanefnd reikn- ar út fyrir bændur á þriggja mánaða fresti hvernig rekstur kúabúa stendur og sagði for- maðurinn þau hafa verið rekin með tapi að und- anfómu. Næst yrði staðan könnuð 1. mars. Hannn taldi ósennilegt að til hækkunar kæmi þá. Guðmundur sagði mjólkina í mikilli sam- keppni við ýmsar aðrar drykkjarvörur og að neyslan hefði talsvert dregist saman undanfarin ár. Hann taldi þó ekki að verðhækkunin nú hefði mikil áhrif á samkeppnisstöðuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.