Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Herra, hvers vegna eru Haltu bara á pok- sumar golfkylfurnar anum, Magga... þfnar { inniskóm? BREF HL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Eiga sjúklingar einir að greiða tvö- falda skatta? Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur og Jórunni Sigurðardóttur: HVERT stefnir hér í aðgerðarleysi heilbrigðisyfirvalda gagnvart þeim er leita þurfa eftir hjálp lækna ei* samningslausir eru við Trygginga- stofnun ríkisins? Hve lengi á fólk að þurfa að búa við mismunun sem slíka að þurfa að greiða þjónustu þessa úr eigin vasa vegna samn- ingaþrefs ríkisins við verktaka þjónustunnar. Fólkið hefur nú þeg- ar greitt dálaglega upphæð í formi skatta hvað varðar skipulag, sam- kvæmt lögum og reglugerðum er kveða á um kostnaðarþáttöku sjúklinga í einstökum læknisverk- um. Á sama tíma er sjúklingum er þurfa á þessari þjónustu að halda, bent á að leita til sjúkra- húsa, en þar fylgir nú sá ann- marki að sjúkrahúsin eru lömuð vegna skorts á sérfræðilæknum til að standa vaktir, og sjúklingum þaðan bent á að leita til heilsu- gæslustöðva. Sem sagt sjúklingur- inn má gjöra svo vel að arka fyrst til sérfræðings sem er samnings- laus við T.R., þaðan á sjúkrahús, og síðan á heilsugæslustöðina, eins og staðan er í dag samkvæmt skilaboðum þeim er borist hafa frá heilbrigðisyfirvöldum. Ætla núver- andi heilbrigðisyfírvöld að endur- greiða kostnaðinn er af þessu hlýst, ellegar reyna að taka í taum- ana og flýta samningsgerð við sér- fræðilækna. Skipulag mála á þennan veg af hálfu stjómvalda mánuð eftir mán- uð, heldur hvorki vatni né vindum, frekar en helsta bráðasjúkrahús landsins, samkvæmt Almanna- varnaskipulagi. Við viljum hvetja forstjóra Tryggingastofnunar, Trygginga- ráð, og önnur yfirvöld heilbrigðis- mála, sem og sérfræðilækna, að fínna nú þegar lausn á deilu þess- ari, svo linna megi óviðunandi ráð- stöfun mála gagnvart sjúklingum er Ieita þurfa sérfræðiþjónustu, einnig viljum við skora á formann Læknafélagsins, að beita sér fyrir lausn á deilu þessari. Fyrir hönd Lífsvogar. GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR, formaður. JÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR, stjórnarmaður. Hugleiðing um Hanes-málið Frá Pauline Scheving- Thorsteinsson: ÉG HEF af áhuga fylgst með skrif- um Morgunblaðsins um mál Ha- nes-hjónanna. Mig langar til að ræða nokkuð það orðaval sem not- að hefur verið við lýsingar á máli þeirra. í grein sem birtist í blaðinu 19. des. 1997 segir í undirfyrirsögn að Hanes-hjónin séu „eftirlýst vegna bamsráns“. Þetta em hörð orð og í raun röng. Hjónin hafa verið sökuð um „custodial interfer- ence“ eða forræðisafskipti, en við- urlög við slíku era miklum mun léttari. í sömu grein, og í fyrri greinum Morgunblaðsins, er talað um barn- ið Zenith Elaine sem „dótturdóttur Connie Jean Hanes“. Þótt þetta sé líffræðilega rétt gerir það orðaval lítið úr því foreldrahlutverki sem Donald og Connie Hanes hafa gegnt í lífí Zenith. Barnið var lagalega í umsjá Hanes-hjónanna frá fæðingu til rúmlega tveggja ára aldurs, meðan ættleiðing var í gangi. Bæði líf- móðir og faðir samþykktu ættleið- inguna (og má sjá þau ættleiðing- arskjöl á http://www.geociti- es,com/CapitolHill/6304) og átti sú ættleiðing að gilda fyrir lífstíð. Hanes-hjónin ólu telpuna upp sem eigin dóttur og gerðu aldrei ráð fyrir að hún yrði frá þeim tekin. Það hlýtur að særa þau að sjá skrifað um bamið er þau ólu upp sem dótturdóttur Connie. Einkum hlýtur það að særa Donald Hanes, því Zenith er einkabarn hans — hann er í raun eini faðirinn sem bamið hefur þekkt. Til að öðlast betri skilning á þessu ættum við að hugleiða mun- inn á afa eða ömmu og föður eða móður. Afi og amma era ekki þau sem vakna nótt eftir nótt til að hugga grátandi barnið. Afí og amma verða yfirleitt ekki vitni að fyrsta brosinu, tönninni, skrefínu eða orðinu „mamma". Þessir at- burðir marka foreldrahlutverkið og bamið lítur á þá sem uppfylla þetta hlutverk sem mömmu og pabba. En vegna lagadeilu hefur engin niðurstaða enn fengist og fjölmiðl- ar tala ekki um Zenith Elaine sem dóttur Hanes-hjónanna. Þess í stað hefur kona, sem telpan þekkir vart, orðið „móðirin“ og eini faðir henn- ar er gjörsamlega virtur að vett- ugi, eða það sem verra er, gerður að bamaræningja. Tilfíningalega og siðferðilega era Hanes-hjónin einu raunverulegu foreldrarnir. Sé því hafnað er lítið gert úr rétti ættleiðingar. PAULINE SCHEVING- THORSTEINSSON, Hrísrima 2, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt f upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.