Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 35
(
(
(
(
j
(
<
(
(
(
(
(
(
(
<
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
<
MINNINGAR
+ Ragnheiður Guð-
mundsdóttir
fæddist á Hamraend-
um í Stafholtstungum
27. september 1911.
Hún lést á Hrafnistu í
Reykjavík 29. desem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Guðmundur Krist-
jánsson bóndi, síðast
á Sleggjulæk, og kona
hans Guðbjörg Olafs-
dóttir. Hún var yngst
sjö systra, sem allar
eru látnar. Þær hétu
Guðrún, Steinunn,
Ingibjörg, Gunnhildur, Ólafína og
Sigurbjörg. Eftirlifandi bróðir er
Kristján, f. 1905, búsettur í Borg-
amesi.
Ragnheiður giftist 24. aprfl
1943 Sigurði Grímssyni, f. 24
ágúst 1906, d. 31. desember 1985.
Dætur þeirra eru: 1) Vilborg, f.
1945, gift Sigurði Hermannssyni.
Börn þeirra eru Sigurður og
Hinn 29. desember síðastliðinn
lést ömmusystir mín Ragnheiður
Guðmundsdóttir 86 ára að aldri.
Hún var alla tíð mikil vinkona syst-
urdóttur sinnar, Guðbjargar móður
minnar. Eg hef því þekkt hana alla
mína ævi, sem er nákvæmlega hálf
ævi hennar. Ranka móðursystir var
hún alltaf kölluð og framan af æf-
inni vissi ég ekki hvað hún hét ann-
að en það.
Sigurður Grímsson, eiginmaður
Ragnheiðar, var sjómaður á sínum
yngri árum, en var verkamaður hjá
Eimskip eftir að þau stofnuðu heim-
ili sitt á Kaplaskjólsvegi 60. Þar átti
ég þrjár hláturmildar frænkur, sem
skemmtilegt var að heimsækja.
Ragnheiður var alltaf mjög vinnu-
söm og dugleg kona. Henni tókst að
gera mikið úr litlum efnum. Hún
var hög í höndunum og bar um-
hverfi hennar þess glöggt vitni. Sér-
staklega var garðurinn hennar fal-
legur og vel hirtur.
Þau Ragnheiður og Sigurður
vora alltaf gestir okkar í Teigagerð-
inu á tyllidögum fjölskyldunnar, í
fermingum, útskriftarveislum og
brúðkaupum. Aðrir góðir gestir
sömu kynslóð voru Imba móður-
systir, en það var Ingibjörg systir
Ragnheiðar alltaf kölluð, Þórarinn
maður hennar, Jón Þorsteinsson
íþróttakennari, afabróðir minn og
Eyrún kona hans. Það var alltaf létt
yfir Ragnheiði og hún hafði gaman
af að tala við glókoll, sem hefur
alltaf verið dálítill orðhákur.
Þegar ég fór til náms í útlöndum
skildu leiðir okkar um alllangt
skeið, en þær lágu saman á ný árið
1986, þegar við urðum nágrannar.
Þá hófust kynni okkar á nýjan hátt.
Við litum inn hvort hjá öðru, að vísu
allt of sjaldan, en oftast hittumst við
þó á fórnum vegi. Við stóðum þá oft
undir berum himni og spjölluðum
saman.
Ragnheiður. 2) Ást-
hildur, f. 1948, gift
Sigmundi Arthúrs-
syni. Börn þeirra eru
Sverrir, Eyrún og
Signý. 3) Ásdís, f.
1953.
Ragnheiður fluttist
til Reykjavík um tví-
tugsaldur og vann
ýmis störf, lengst í
Leðuriðjunni. Þau
Sigurður fluttu inn í
nýbyggt hús sitt á
Kaplaskjólsvegi 60
árið 1946 og þar bjó
Ragnheiður þar til
hún fluttist á Hrafnistu fyrir fjór-
um árum. Ragnheiður var lengst
af húsmóðir en stundaði hluta-
störf við ræstingar hjá Ríkisút-
varpinu og síðar sá hún um kaffi-
stofu Raunvísindastofnunar Há-
skólans um árabil.
Utför Ragnheiðar fer fram frá
Áskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 10.30.
Samtöl okkar Ragnheiðar voru
fróðleg og skemmtileg fyrir mig,
vegna þess að hún var stálminnug
og sagði vel frá. Hún upplýsti mig
mikið um skyldmenni mín úr Borg-
ai-firðinum, þar á meðal um Hjálm
afa minn og Steinunni ömmu mína.
Við töluðum mikið um gamla tíma,
en einnig um þjóðmál líðandi stund-
ar. Hún fylgdist vel með og hafði
ákveðnar skoðanir á hlutunum. Hún
hafði sterka réttlætiskennd, tók
alltaf málstað þeirra smáu í samfé-
laginu og var talsmaður jöfnuðar
þeim til handa.
í samtölum okkar komst ég að
því hvað Ragnheiður frænka mín
var vel að sér um margt, listhneigð
og vel máli farin. Hún var ein af
fjölmörgum íslendingum af alda-
mótakynslóðinni, sem fluttu úr
sveitunum til Reykjavíkur á miklum
krepputímum. Margir höfðu hug á
því að mennta sig og hún var ein af
þeim. Til þess hafði hún nægar gáf-
ur og hæfileika, en enga fjárhags-
lega möguleika. Hún var á margan
hátt dæmigerð fyrir þessa merku
kynslóð Islendinga, sem var uppfull
af bjartsýni og trú á landið og fram-
tíðina, og var tilbúin að leggja mikið
á sig til þess að búa í haginn fyrir
komandi kynslóðir.
Ég heimsótti Ragnheiði á átt-
ræðisafmæli hennar og þá sagði
hún mér frá því að nú væri hún bú-
in að ákveða að selja húsið sitt og
fara á Hrafnistu. Það var að sjálf-
sögðu tímamótaákvörðun í lífi
hennar, en ég gat ekki betur séð en
að hún væri sátt við þá ákvörðun.
Ekki var Ragnheiður hrumari en
svo á þessum merkisdegi ævi sinn-
ar, að hún lagðist á hnén á gólfið og
skellti sér í boltaleik við yngsta son
minn, 79 árum yngri. Ragnheiður
undi hag sínum vel þau fjögur ár
sem hún bjó á Hrafnistu og var
þakklát því starfsfólki sem hugsaði
um hana.
Ragnheiður er sú síðasta til að
kveðja þennan heim af þeim systk-
inum Hjálms afa míns og Steinunn-
ar ömmu minnar sem ég þekkti.
Það var mér og fjölskyldu minni
sérstök ánægja að við skyldum ná
svona vel saman á síðustu áram
ævi hennar. Það er því með sökn-
uði sem ég kveð þessa ágætu
frænku mína. Ég sendi þeim Vil-
borgu, Ásthildi og Ásdísi, og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Ragnar Sigurðsson.
í dag er kvödd hinstu kveðju
Ragnheiður Guðmundsdóttir, móð-
ursystir mín. Ragnheiður var fædd í
Borgarfirði 27. september 1911,
yngst sjö systkina. Eftir lát fóður
síns fluttist hún ung að áram til
Reykjavíkur með móður sinni og
systur, Gunnhildi, sem var móðir
mín og bjuggu þær alla tíð í sama
húsi þar til móðir mín lést árið 1962.
Árið 1943 giftist Ragnheiður Sig-
urði Grímssyni sjómanni og verka-
manni frá Hafnarfirði, en hann lést
1985. Eignuðust þau þrjár dætur,
sem allar eru búsettar i Reykjavík
og nágrenni.
Árið 1947 reistu þau húsið við
Kaplaskólsveg 60 í Reykjavík. Þar
bjó Ragnheiður í 46 ár, þar til hún
fluttist á Hrafnistu í Reykjavík og
bjó hún þar það sem eftir var.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að alast upp á Kaplaskjólsveg-
inum, og eiga þar heima þar til ég
eignaðist eigið heimili.
Eftir lát móður minnar gerði ég
mér betur grein fyrir mannkostum
Ragnheiðar, þegar hún tók okkur
bræður í fóstur. Á Kaplaskjólsveg-
inum var haldið hefðbundið íslenskt
heimili þess tíma, húsmóðirin
heimavinnandi og sá um öll heimil-
isstörfin. Nýtni og ráðdeild var alls
ráðandi á því heimili. Það var oft
mikið um að vera þegar eitthvað
þurfti að gera fyrir daga hitaveitu
og nútíma heimilistækja.
Aðaláhugamál hennar var garð-
urinn við húsið, en þar vann hún
mikið starf meðan þrek entist.
Alltaf var jafn gott að koma í
heimsókn til þeirra hjóna, þar sem
alltaf var kaffi á könnunni og eitt-
hvert meðlæti. Ragnheiður var ekki
víðförul, en naut þó þeirra ferðalaga
sem hún fór.
Er Ragnheiður fluttist á Hrafn-
istu seint á árinu 1993 vonaðist hún
eftir að eiga þar rólegt og gott ævi-
kvöld.
Ég fann alltaf er ég heimsótti
hana þangað að henni leið vel og
ávallt voru móttökurnar jafngóðar.
Árið 1996 var hún flutt á sjúkra-
deild Hrafnistu og naut hún þar
góðrar umönnunar starfsfólks.
Það var svo í desember að heilsu
hennar hrakaði, og lést hún að
morgni 28. desember.
Ég vil nú er ég kveð Ragnheiði
hinstu kveðju þakka henni innilega
fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og
mína fjölskyldu.
Ég votta dætrum, tengdasonum
og barnabörnum innilega samúð.
Trausti Guðjónsson og Qölskylda.
RAGNHEIÐUR
GUÐMUNDSDÓTTIR
KATRÍN
GUNNARSDÓTTIR
+ Katrín Gunnars-
dóttir fæddist í
Reykjavík 13. aprfl
1927. Hún lést á
Sjúkrahúsi Reykja-
víkur 27. desember
síðastliðinn eftir
langvarandi og erfið
veikindi. Foreldrar
hennar voru Margrét
Magnúsdóttir frá Seli
og Gunnar Bjarna-
son, bæði látin fyrir
nokkrum áram. Þijú
systkina hennar eru
látin, Óskar, Krist-
jana og Svanhvít, en
tveir bræður, Ingi og Karl, lifa
systur sína.
Eftirlifandi eiginmaður Kat-
rínar er Helgi Guð-
mundsson. Þau eignuð-
ust þijú börn og eru
dæturnar, Margrét og
Guðný, á lífi.
Útfiir Katrínar fer
fram frá Kristskirkju í
Landakoti í dag og
hefst athöfnin klukkan
13.30.
Mig langar að minn-
ast með fáum orðum
elskulegrar frænku
minnar og uppeldis-
systur, Katrínar Gunn-
arsdóttur (Lillu). Hún
var dagfarsprúð og hjartahlý, auk
þess að vera umhyggjusöm móðir.
Katrín var ævinlega glöð á vina- og
fjölskyldusamkomum, jafnvel eftir
að hún veiktist, og bros hennar
voru einlæg. Þungt haldin á
sjúkrabeði brosti hún til okkar
hjónanna.
Minningin um Katrínu mun lifa í
hjörtum okkar, og efalaust munum
við öll hittast síðar.
Manni hennar, Helga Guðmunds-
syni, dætrunum Margréti og Guð-
nýju, barnabörnunum, svo og
bræðrum hennar, Inga og Karli,
sendum við hjónin innilegar samúð-
arkveðjur og vonum að Guð gefi
þeim styrk í sorginni.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þen-i tregatárin stríð.
(V. Briem)
Magnús Aðalsteinsson.
+
Móðir okkar,
MARIE TUVNES THORODDSEN,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn
3. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Anna Thoroddsen,
Bjöm Thoroddsen,
Sigurður Thoroddsen,
Þórdís Thoroddsen.
+
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, afi og langafi,
HRÓBJARTUR LÚTHERSSON
fyrrv. heilbrigðisfulltrúi,
lést á dvalarheimilinu Seljahlíð laugardaginn
3. janúar síðastliðinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Steinunn Hróbjartsdóttir, Lúther Hróbjartsson,
Hróbjartur Jónatansson, Valgerður Jóhannesdóttir,
Jóhann Egill Hólm,
Pjetur E. Árnason,
Agnar Þ. Árnason,
Áslaug Árnadóttir,
Hróbjartur Lúthersson,
Helga Jónsdóttir,
Unnur Hansdóttir,
Lára Ingólfsdóttir,
Sigurður Harðarson,
Anna Rósa Þórðardóttir
og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA JÓNSDÓTTIR,
Víðihvammi 13,
Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum föstudaginn
2. janúar.
Ólöf Jóna Stefánsdóttir,
Þórunn Stefánsdóttir,
Olga Stefánsdóttir, Gylfi Hauksson,
Birna Stefánsdóttir, Hólmgrimur Heiðreksson,
Sigríður Stefánsdóttir,
Jón Stefánsson, Bryndfs Hilmarsdóttir,
Björn Stefánsson,
barnabörn og barnabamabörn.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
HALLUR S. GUNNLAUGSSON
íþróttakennari,
Hjarðarholti 15,
Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness að kvöldi laugar-
dagsins 3. janúar. |
Kristín Hallsdóttir, I Gísli Bjömsson,
Hrönn Hallsdóttir, I Hjörtur K. Einarsson,
Katla Hallsdóttir, Flosi Einarsson,
Heimir Hallsson, Sigþóra Ævarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
ELSU KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR,
Norðurvangi 29,
Hafnarfirði,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðviku-
daginn 31. desember sl. fer fram frá \
Víðistaðakirkju á morgun, miðvikudaginn
7. janúar, kl. 13.30. ív;
Þeim, sem vildu minnast hennar, er benf á Krabbameinsfélag íslands.
Baldvin Hermannsson,
Guðrún Heiður Baldvinsdóttir, Mats Strid,
Laufey Baldvinsdóttir, Auðunn Helgi Stígsson,
Baldvin Þór Baldvinsson, Edda Sif Sigurðardóttir,
Andri Örvar Baldvinsson, Linda María Þórólfsdóttir
og barnabörn.
V-