Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998
MORGUNBLADIÐ
FRETTIR
Skákþing
Reykjavíkur
SKÁKÞING Reykjavíkur 1998
hefst nk. sunnudag, 11. janúar, kl.
14.00. Mótið skiptist í aðalkeppni,
unglingakeppni og síðan hraðskák-
mót, sem fram fer að lokinni aðal-
keppninni.
I aðalkeppninni verða tefldar ell-
efu umferðir eftir svissnesku kerfí.
Umhugsunartími er 1,5 klst. á 30
leiki og síðan 45 mínútur til að ljúka
skákinni. Teflt verður þrisvar í viku,
á miðvikudögum og fóstudögum kl.
19.30 og á sunnudögum kl. 14.00.
Öllum er heimil þátttaka á skák-
þinginu og er skráning hafín í sím-
um félagsins og á tölvupósti
tr@mmedia.is
Keppni í unglingaflokki hefst síð-
an laugardaginn 24. janúar kl. 14.00
og Hraðskákmót Reykjavíkur verð-
ur 8. febrúar kl. 14.00.
Skákþing Reykjavíkur er eitt
viðamesta skákmót sem Taflfélag
Reykjavíkur stendur fyrir og er það
jafnan skipað öflugum skákmeistur-
um, segir í fréttatilkynningu. Nú-
verandi skákmeistari Reykjavíkur
er Þröstur Þórhallsson.
Allar upplýsingar um skákþingið
og starfsemi Taflfélags Reykjavíkur
má finna á heimasíðu félagsins sem
er: http:/Avw\v,mmedia.is/Itr.
--------------
Jólin dönsuð
út í Gjábakka
EINS og undanfarin ár verða jólin
dönsuð út í Gjábakka í dag, þriðju-
dag. Heitt verður á könnunni og
heimabakað meðlæti um kl. 15 og
síðan verður gengið í kring um jóla-
tréð og sungin jólalög. Eldri borg-
arar í Kópavogi eru hvattir til að
mæta og bjóða með sér yngri kyn-
slóðinni. Allir eldri borgarar og
gestir þeirra eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
A miðvikudag 7. og 8. janúar
verða kynningardagar í Gjábakka
og þá verður sérstaklega óskað eftir
hugmyndum og óskum frá eldri
borgurum í „Óska- og hugmynda-
bankann“ sem er alltaf opinn f Gjá-
bakka. Miðvikudag munu Félag
eldri borgara í Kópavogi, Frí-
stundahópurinn Hana nú, Gjábakki
og áhugamannahópar meðal eldri
borgara kynna fyrirhugaða starf-
semi í Gjábakka það sem eftir er
vetrar en á fimmtudaginn verða
námskeið á vegum Gjábakka kynnt
og þá fer einnig fram innritun fyrir
námskeið til vors, segir í fréttatil-
kynningu.
--------------
Skemmdir
á skiltabrú
ÞRIÐJUDAGINN 30. desember
milli klukkan 16 og 18 var ekið á
skiltabrú á Reykjanesbraut við
Breiðholtsbraut í Reykjavík og
urðu á henni nokkrar skemmdir.
Þeir sem kynnu að geta gefið
upplýsingar um hver þama var að
verki eru beðnir að hafa samband
við lögregluna í Reykjavík.
Jakka
peysur
fallegt
úrval
Glugginn
Lausavesi 60 sími 551 2854.
Anand og Karpov sitja að tafli í Lausanne.
Reuter
Ótrúleg
yfirsjón
Karpovs
SKÁK
Úlympfusafnið
f Lausanne,
I .—9. janúar 1998
HEIMSMEISTARAMÓT
FIDE
Anand vann aðra skákina og
jafnaði metin, eftir að Karpov
lék vinningsstöðu í tap.
KARPOV vann fyrstu skákina
nokkuð örugglega og á laugardag-
inn fékk hann gullið tækifæri til
að tryggja sér tveggja vinninga
forskot og þar með næsta örugg-
an sigur í einvíginu. En á úrslita-
stundu brást innsæið honum
herfilega. Hann þurfti að verjast
máti og opnaði kóngi sínum út-
gönguleið með peðsleik. Það
reyndust herfileg mistök, í staðinn
gat Karpov skákað með riddara
og síðan valdað mátið. Þá hefði
hann átt vinningsstöðu.
Indverjinn var ekki seinn á sér
að notfæra sér þessi mistök. Hann
skákaði með drottningu sinni og
lék síðan snotrum hróksleik sem
forðaði riddaraskákinni og skapaði
um leið hættulegar hótanir. Kar-
pov féllust hendur, skákin hafði
skipt um eigendur og eftir nokkra
tilgangslitla leiki til viðbótar gafst
FIDE-heimsmeistarinn upp.
Sigurinn gat ekki komið á betri
tíma fyrir Anand. Hann var dauð-
þreyttur eftir nærri daglega tafl-
mennsku frá 10. desember og eftir
tapið í fyrstu skákinni var útlitið
allt annað en bjart. Nú horfir allt
öðru vísi við. Hroðaleg yfirsjón
Karpovs, sem er 46 ára gamall,
hlýtur að hafa mjög slæm áhrif á
sjálfstraust hans. Fyrir tíu árum
hefði hann ekki gert sig sekan um
slíka yfirsjón í útreikningum.
Hann hefur sýnt á sér snöggan
blett, nú veit Anand, sem er 28
ára, að hann verður að flækja tafl-
ið hvað sem það kostar!
Það sýndi sig afar vel að í flókn-
um útreikningum er Indverjinn
sterkari, þótt stöðuskilningur
hans sé ekki eins þroskaður og hjá
Karpov. I þriðju skákinni á sunnu-
daginn lagði Rússinn ekki í að
taka neina áhættu með hvítu og
var samið jafntefli eftir aðeins
nítján leiki. Nú er einvígið hálfnað
og í gær hvíldu kapparnir sig. Það
hlýtur að hafa verið afar kærkom-
inn frídagur fyrir Anand. Fjórða
skákin er tefld í dag.
Onnur skákin:
Hvítt: Anand
Svart: Karpov
Spánski leikurinn
1. e4 _ e5 2. Rf3 _ Rc6 3. Bb5 _ a6
4. Ba4 _ Rf6 5. 0-0 _ Bc5
Karpov hefur ekki teflt þetta
afbrigði áður svo vitað sé. Venju-
lega teflir hann hefðbundinn lok-
aðan spánskan leik.
6. c3 _ b5 7. Bb3 _ d6 8. a4 _ Bg4
9. d3 _ 0-0 10. h3 _ Bxf3 11. Dxf3
_ Ra5 12. Bc2 _ b4 13. Rd2 _ Hb8
14. De2
Þessi eðlilegi leikur er nýjung í
stöðunni. Aður hefur hér verið
leikið Hel, en Anand vill láta
drottninguna ógna svarta peðinu á
a6 eftir að miðborðið opnast.
14. _ He8 15. Rf3 _ bxc3 16. bxc3
_ Rb3 17. Bxb3 _ Hxb3 18. d4 _
exd4 19. cxd4
19. _ Hxf3!
Það er rétt ákvörðun í snarpri
baráttu um frumkvæðið að fórna
skiptamun. Fyrir hann fær Karp-
ov tvö sterk miðborðspeð.
20. Dxf3 _ Bxd4 21. Ha2 _ Rxe4
22. Dd3 _ c5 23. Dxa6 _ d5 24. a5
Svartur hefur öll völd á mið-
borðinu. A peðið er eina tromp
Anands.
24. _ c4 25. Be3! _ Be5 26. Bb6 _
Dd7 27. Da7 _ Dc6 28. Bd4 _ Bc7
29. Hb2 _ c3 30. Hb7 _ Hc8 31.
Bb6?
Síðustu leikir hafa verið rökrétt-
ir á báða bóga, en hér leikur Anand
af sér. Það er hvíta a peðið sem
skiptir mestu máli, en ekki sókn á
svarta kónginn. Best virðist 31. a6!
og Kaipov á úr vöndu að ráða: a)
31. _ Dd6 32. Hxc7! _ Dxc7 33.
Dxc7 _ Hxc7 34. a7 _ Hc8 35. Hbl!
_ c2 36. Hcl og hvítur vinnur, því
hann leikur næst 37. Hxc2.
b) 31. _ c2 32. Hcl _ Rd6 33. Hb2
_ Rb5 34. Db7 og hvítur vinnur.
+- c) 31. _ Rg5! (Virðist best. Það
er ekki að sjá að hvítur eigi neitt
betra en:) 32. Hcl _ Rxh3+! 33.
gxh3 _ Dg6+ 34. Kfl _ Dd3+ 35.
Kg2 _ Dg6+ og jafntefli með þrá-
skák) 31. _ Be5! 32. Hxf7 _ c2 33.
Hcl _ Rc3! 34.HÍ3
Auðvitað ekki 34. Hxc2??
Re2+ 35. Hxe2 _ Dcl+ og mátar.
Nú hótar Anand máti í öðrum leik
með 35. Df7+. Karpov bregst við
á alrangan hátt:
34...h6??
Þetta gæti verið örlagaaugna-
blik einvígisins. Svai-tur hefur
vinningsstöðu eftir hina einfóldu
riddaraskák 34. _ Re2+! og nú:
a) 35. Kfl _ De8! (E.t.v. hefur
Karpov yfirsést þessi hárnákvæmi
leikur) 36. Be3 _ Rxcl 37. Bxcl _
Bb2! og hvítur er varnarlaus.
b) 35. Khl _ Bf6! 36. Be3 _ Rxcl
37. Bxcl _ Ha8 38. De3 _ Hxa5 og
Karpov ætti ekki að verða skota-
skuld úr því að vinna á umfram-
peðinu.
35. Df7+ _ Kh8 36. He3!
Það hlýtur að hafa verið góð til-
finning fýrir Anand að eiga þenn-
an leik. Hann hindrar riddara-
skákina á e2 og hótar jafnframt
biskupnum á e5 og frípeðinu á c2.
Svartur er skyndilega glataður!
36. _ d4
Eða 36. _ Ra2 37. Hxc2 _ Dxc2
38. Hxe5 _ d4 39. Kh2 _ d3 40.
Bd4 og vinnur.
37. Hxe5 _ d3 38. Bd4 _ Hg8 39.
He6 _ d2 40. Hxc6 _ dxcl=D+ 41.
Kh2 _ Dd2 42. Hc8 og Karpov
gafst upp, því mátið er yfirvofandi.
Þriðja skákin
Hvítt: Karpov
Svart: Anand
Slavnesk vörn
1. d4 _ d5 2. c4 _ c6 3. Rc3 _ Rf6
4. e3 _ e6 5. Rf3 _ Rbd7 6. Bd3 _
dxc4 7. Bxc4 _ b5 8. Bd3 _ Bb7 9.
a3
Karpov lék 9. e4 í fyrstu skák-
inni, sem er miklu hvassara. Hann
vill ekki fá að sjá endurbót Ind-
verjans.
9. _ b4 10. Re4 _ Rxe4 11. Bxe4 _
bxa3 12. bxa3 _ Bd6 13. 0-0 _ 0-0
14. Bb2 _ Hb8 15. Dc2 _ c5! 16.
Bxb7
Karpov er ekki ginnkeyptur
fyrir svarta h peðinu. 16. Bxh7 + _
Kh8 17. Bd3 (Ekki 17. dxc5? _
Bxf3 18. cxd6 _ Dg5 19. g3 _ f5 og
svartur vinnur) 17. _ Bxf3 18. gxf3
_ Dg5+ 19. Khl _ Dh5 20. f4 _
Df3+ 21. Kgl _ Dg4 og jafntefli
með þráskák.
16. _ Hxb7 17. dxc5 _ Bxc5 18.
Hfdl _ De7 19. a4 og hér bauð
Karpov jafntefli sem Anand þáði,
enda lítið púður í stöðunni.
Jólahraðskákmót TR
Jólahraðskákmót T.R. 1997 fór
fram 29. og 30. desember. Fyrri
daginn fóru fram undanrásir en
síðari daginn úrslit. Keppendur
voru 44. Magnús Örn Úlfarsson
varð Jólahraðskákmeistari TR
1997 en úrslit urðu sem hér segir:
A flokkur
1. Magnús Örn Ulfarsson 13 v. af 17
2. Jón Viktor Gunnarsson 12‘/2 v.
3. Bergsteinn Einarsson 12V4 v.
4. Bjöm Freyr Bjömsson 12!/ v.
5. Bjöm Þorfinnsson 12 v.
6. Páll Agnar Þórarinsson 12 v.
7. Bragi Þorfinnsson ll'/s v.
8. Sigurbjöm Bjömsson 11/2 v.
B flokkur
1. Láms Knútsson 10 v. af 11 v.
2. Halldór Garðarsson 8/2 v.
3. Þór Stefánsson 7/2 v.
4. Kristján Öm Elíasson 7V4 v.
5. Valgarð Ingibergsson 6 v.
6. Kjartan Ó. Guðmundsson 5V4 v.
7. Sveinn Þór Wilhelmsson 4V4 v.
8. Ólafur ísberg Hannesson 4 v.
C flokkur 1. Ómar Þór Ómarsson 12/2
v. af 13 v.
2. Davið Guðnason 10V4 v.
3. Eiríkur Garðar Einarsson 10 v.
4. Elí B. Frímannsson 8V2 v.
5. Benedikt Öm Bjarnason 8 v.
6. Ami Pálsson 7V4 v.
7. Guðmundur Kjartansson 7 v.
8. Frímann Sturluson 7 v.
Firmakeppni TR í hraðskák
Taflfélag Reykjavíkur stendur
íyrir firmakeppni í hraðskák dag-
ana 5._8. janúar. Þá verða tefldar
undanrásir þar sem keppendur
draga út fyrir hvaða fyrirtæki þeir
tefla. Efstu fyrirtækin komast síð-
an í úrslit sem háð verða mánu-
dagskvöldið 22. janúar. Öllum er
heimil þátttaka í firmakeppninni
og er þátttaka ókeypis. Veitt
verða vegleg peningaverðlaun fýr-
ir bestan árangur úr samanlagt
fjórum mótum og fýrir bestan ár-
angur í úrslitum. Ávallt verða
tefldar 7 umferðir samkvæmt
Monrad kerfi, tvær skákir við
hvem andstæðing. Umhugsunar-
tími er 5 mínútur. Taflmennskan
hefst stundvíslega kl. 20 öll kvöld.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson