Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Þrettándagleði Þórs frestað vegna aurbleytu á félagssvæðinu Stundum frestað vegna stórhríðar en aldrei áður vegna hlýinda EITT drullusvað er yfir malar- vellinum á félagssvæði Þórs eftir stórrigningar síðustu daga þannig að svæðið er gjörsam- lega ófært álfakóngi, drottn- ingu hans, púkum og tröllum sem hugðust dansa þar út j’ólin að venju í kvöld, þrettánda- kvöld. Þórsarar hafa því gripið til þess ráðs að fresta árlegri þrettándagleði sinni fram á sunnudag, en samkvæmt upp- lýsingum sem örvæntingafullir forsvarsmenn félagsins fengu á Veðurstofunni er ekki að sjá ýkja miklar breytingar á veðri næstu daga. Arni Gunnarsson, starfs- maður Þórs, hamaðist við það í gær að leita niðurfalla á svæð- inu en grasvöllurinn var al- gjörlega á floti í gærmorgun. VöIIurinn kom vel undan poll- unum og sagði Arni hann líta betur út nú í byrjun janúar en verið hefði um mánaðamótin maí og júní í fyrra, í upphafi keppnistímabils. „Það hefur oft á vorin verið spilað við verri aðstæður en nú eru, ef stytti upp í smástund og völlur- inn þornaði væru aðstæður hinar ákjósanlegustu," sagði Arni. Höfum oftast verið að drepast úr kulda Hann hefur starfað að undir- búningi þrettándagleði Þórs síð- ustu 10 ár og verið viðloðandi mun lengur. „Við höfum tvisvar eða þrisvar þurft að færa þrett- ándagleðina til vegna óveðurs, stórhríðar og norðanbyls og það gerðist síðast 1991, þegar línu- veðrið gerði og rafmagnslínur fóru hér í stórum stíl. Mér finnst í minningunni að við höfum allt- af verið að undirbúa brennuna, selja upp senu og því um Iíkt í 15 frosti, alveg að drepast úr kulda,“ sagði Arni. Þórsarar gæla við það að geta haldið þrettándagleðina næst- komandi sunnudag kl. 17 og sagði Árni að það ætti að takast ef kæmi örlítið frost. Þær upp- lýsingar hefðu hins vegar feng- ist hjá Veðurstofu að litlar breytingar væru framundan. „En það er janúar og maður hefur séð snöggar veðrabreyt- ingar í þeim mánuði," sagði Árni og ríghélt í bjartsýnina. Morgunblaðið/Kristján ÁRNI Gunnarsson, starfsmaður Þórs, leitaði niðurfalla í gær, en pollar lágu yfir grasvelli félagsins sem nú lítur betur út en að jafnaði í upphafi keppnistímabils. Drullusvað er yfir malar- velli og því ekki hægt að efna til árlegrar þrettándagleði í kvöld. lllÍSÍi ■: m i v. Morgunblaðið/Kristján Leikfélag Akureyrar Daisy á ferðina á ný FYRSTA sýning Leikfélags Akur- eyrar á nýju ári á bandaríska leikrit- inu Á ferð með frú Daisy eftir Alfred Uhry verður á Renniverkstæðinu við Strandgötu næstkomandi laugardag, 10. janúar kl. 20.30. Leikritið var frumsýnt annan dag jóla og var góð aðsókn á þær fjórar sýningar sem voru milli jóla og nýjárs. í leikritinu segir frá frú Daisy Werthan, bandarískri konu af gyð- ingaættum og þeldökkum bílstjóra hennar að nafni Hoke Coleburn en einnig kemur Boolie Werthan sonur Daisyar við sögu. Leikritið gerist í Atlanta í Georgíu á árunum 1948 til 1973. í upphafi verksins er Daisy 72ja ára og Hoke sextugur. Boolie, sonur Daisyar ræður móður sinni Morgunblaðið/Kristján SIGURVEIG Jónsdóttir og Aðalsteinn Bergdal. bílstjórann Hoke gegn vilja hennar og segir verkið frá kynnum þeirra, en þau bindast sterkum böndum þrátt fyrir gerólíkan bakgrunn og forsend- ur í lífinu. Sigurveig Jónsdóttir leikur titil- hlutverkið, Þráinn Xarlsson fer með hlutverk bílstjórans og Aðalsteinn Bergdal leikur soninn. Elísabet Snorradóttir þýddi leikritið, Ingvar Bjömsson hannar lýsingu, Hlín Gunnarsdóttir, leikmynd og búninga og Ásdís Skúladóttir leikstýrir sýn- ingu Leikfélags Akureyrar á verkinu. Fæðingardeild FSA Fyrsta barn- Útköll Slökkviliðs Akureyrar á síðasta ári 121 talsins Mikið tjón í einum • / A • ið myndar drengur FYRSTA barnið sem fæddist á fæðingardeild FSA á þessu ári, myndar drengur, kom í heiminn skömmu eftir miðnætti þann 3. janúar sl. Drengurinn var tæpar 13 merkur að þyngd og 50 sm langur. Móðrinn, Jóhanna Þorvarðar- dóttir, sagði að fæðingin hafi gengið mjög vel og að bæði móð- ur og syni heilsaðist vel. „Ég gekk viku fram yfir og það er miklu flottara að fæða fyrst hér á nýju ári.“ Jóhanna, sem er tæplega tvítug að aldrí, er búsett á Akureyri og er þetta hennar fyrsta barn. Ungi snáðinn lét heimsókn ljósmyndara Morgunblaðsins ekki mikið á sig fá og svaf vært meðan myndin var tekin. Á LIÐNU ári urðu útköll hjá Slökkviliði Akureyrar alls 121, þar af 9 utanbæjar á svæði Bruna- varna Eyjafjarðar og einu sinni aðstoðaði Slökkilið Akureyrar ná- grannaslökkvilið. Árið áður urðu útköllin nokkru færri eða 100 tals- ins, þar af 6 utanbæjar. Stærsta brunatjón liðins árs varð þegar mjólkurhús og fjós brann að Leyningi í Eyjafjarðar- sveit 15. apríl síðastliðinn. Ekki varð manntjón í bruna á síðasta ári á svæði Slökkviliðs Akur- eyrar. Oftast lítið tjón Útköllin skiptast þannig að í 86 tilfellum var ekki um að ræða eld, heldur til að mynda björgun, t.d. úr bílflökum, aðstoð af ýmsu tagi, hreinsun hættulegra efna og reyk- losun, vatnsdælingu, bilaða boða eða gabb. í 35 tilvikum var um eld að ræða og langoftast var hann í rusli, sinu eða mosa eða 16 sinn- um, 6 sinnum var eldur laus í íbúð- arhúsum, tvisvar í skólum eða samkomuhúsum, tvisvar í skipum og þrisvar í ökutækum eða vinnu- vélum. Aðeins varð mikið tjón í kjölfar eldsvoða í einu tilviki og talsvert tjón í þremur brunanna, en annars lítið eða nánast ekkert. Hvað upp- tök eldsins varðar var oftast um að ræða íkveikju eða í 16 tilvikum, 8 sinnum var orsökin sú að óvar- lega var farið með eld. Sjúkraútköll urðu 1000 talsins á liðnu ári, þar af voru 190 utanbæj- ar en til samanburðar má geta þess að árið á undan urðu sjúkraútköllin 1091, þar af 175 utanbæjar. Um bráðatilfelli var að ræða í 277 skipti. eldsvoða í 55 skipti voru ferðir 40 kílómetr- ar eða lengri, þar af 23 yfir 90 kílómetra. I 38 skipti voru tveir sjúkrabílar eða fleiri úti samtímis. 77 sjúkraflug Á árinu fóru sjúkrafiutninga- menn í 77 sjúkraflug með flugvél- um Flugfélags Norðurlands og Flugfélags íslands þar sem sóttir voru sjúklingar til staða á Norður- og Austurlandi og fluttir til Akur- eyrar eða farið með sjúkjinga frá Akureyri til Reykjavíkur. Einnig voru sjúklingar sóttir til Græn- lands. Eldvarnafræðsla var í öllum grunnskólum bæjarins í desember fyrir 8 ára börn. 13 eldvarnanám- skeið voru haldin fyrir starfsmenn •fyrirtækja og stofnana og sóttu þau 145 manns. Hrottaleg árás VEIST var hrottalega að stúlku á einu af veitingahúsum Akur- eyrar aðfaranótt sunnudags. Sparkað var í andlit hennar og varð að flytja hana á slysadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri þar sem gert var að sárum hennar. Meiðsl hennar eru ekki fullrannsökuð en að líkindum hefur hún nefbrotnað auk þess sem blæddi inn á auga. Fjórar aðrar líkamsárásir hafa verið kærðar til lögreglu eftir áramót en engin þeirra alvarleg. Tilkynnt var um sex innbrot um helgina, en í öllum tilfellum var lítið skemmt og litlu stolið. Á slysadeild eftir bílveltu ÖKUMAÐUR jeppabifreiðar var fluttur á slysadeild eftir að bíll hans fór út af veginum við Mold- haugaháls og valt síðastliðinn laugardag. Mjög hált var þegar óhappið átti sér stað. Ökumaður- inn var einn í bílnum, hann skarst á höfði og var fluttur á sjúkrahús. Bifreiðin skemmdist mikið og fór farþegahús m.a. af henni þannig að mildi þykir að ekki fór verr. Lögreglumenn voru enn á vettvangi þegar önnur bifreið rann út af veginum á svipuðum slóðum sökum hálkunnar og hafnaði hún á hliðinni utan veg- ar. Ökumaður og tveir farþegar úr bifreiðinni voru fluttir á slysa- deild en meiðsli munu ekki hafa verið alvarleg. Lögregla aðstoðaði einnig nokkrum sinnum vegfarendur sem lentu í vandræðum á Öxna- dalsheiði um helgina vegna erf- iðra akstursskilyrða. Lentu nokkrar bifreiðar utan vegar en tjón varð ekki mikið. Alls hafa orðið 14 umferðaró- höpp í umdæmi lögreglunnar á Akureyri síðustu daga, en skil- yrði hafa verið erfið til aksturs á köflum vegna fljúgandi hálku. Rúmlega 6 þúsund mál kærð FJÖLDI skráðra verkefna lög- reglunnar á Akureyri á nýliðnu ári var 17.171 alls. Fjöldi kæru- mála var 6.042. Þar af voru 1.536 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og 156 fyrir ölvun við akstur. Umferðaróhöpp urðu 597 talsins, þar af 160 með meiðslum. 246 gistu fanga- geymslur lögreglunnar og 445 voru kærðir fyrir ölvun á al- mannafæri. Skráð voru 303 minniháttar eignaspjöll og 109 innbrot. Á liðnu ári komu upp 42 fíkniefnamál. Atvinnulaus- um fjölgar NU UM áramótin voru 411 manns á atvinnuleysisskrá á Akureyri, samkvæmt yfirliti frá Vinnumiðlunarskrifstofunni, 160 karlar og 251 kona. Á sama tíma fyrir ári, voru 433 á atvinnuleysisskrá, 175 karlar og 258 konur. Atvinnu- lausum hefur íjölgað nokkuð í bænum síðustu vikur en í lok nóvember sl. voru 355 á skrá, 124 karlar og 231 kona. At- vinnulausum fjölgaði því um 56 manns í síðasta mánuði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.