Morgunblaðið - 14.01.1998, Page 1
72 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1918
10. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR14. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Irakar hindra vopnaeftirlit Sameinuðu þjóðanna
Rússar leitast við
að miðla niáluni
Moskvu. Reuters.
Konurnar
noti titla í
karlkyni
París. Tlie Daily Telegraph.
FRANSKA akademían hefur
gagnrýnt konur í frönsku
stjórninni fyrir að brjóta mál-
fræðireglur með því að nota
starfstitla sína í kvenkyni þótt
þeir eigi að vera í karlkyni.
Akademían sendi Jacques
Chirac forseta bréf þar sem
hún benti á að starfsheitið ráð-
herra, eða „ministre" - eins og
frönsku orðin yfir kennara, for-
seta, lögfræðing, borgarstjóra
eða lækni - væri í karlkyni,
óháð kyni ráðherrans.
„Svo virðist sem nokkrar
konur í stjórninni hafi ákveðið
að kalla sig „madame la
ministre" [í stað „le ministre"].
Pótt ráðherrar séu valdamiklir
hafa þeir ekki vald til að breyta
franskri málfræði og mál-
venju,“ sagði í bréfinu.
Taleban-
vél hrapar
Quetta. Reuters.
FLUGVÉL i eigu Taleban-hreyf-
ingarinnar í Afganistan hrapaði í
gær í fjallaskarði nálægt landamær-
unum að Pakistan með að minnsta
kosti 51 mann innanborðs.
„Það er engin von um að einhver
hafi komist lífs af,“ var haft eftir ut-
anríkisráðherra Taleban-hreyfing-
arinnar. Hríð var á þessum slóðum
þegar vélin hrapaði.
KREPPAN í Suðaustur-Asíu er nú
þegar farin að hafa neikvæð áhrif á
hagvaxtarhorfur í Evrópu, að áliti
sérfræðinga, þar sem Ijóst er nú
þegar að útflutningur til svæðisins
frá Evrópu mun minnka og búist er
við að það taki Asíuríkin langan
tíma að byggja aftur upp viðskipta-
traust.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, lagði í ræðu,
sem hún hélt í Washington í gær,
áherzlu á að umbætur á efnahags-
kerfum þessara ríkja kæmust fljótt
til framkvæmda svo að endurvekja
mætti sem fyrst tiltrú fjárfesta og
koma á stöðugleika í fjármálum.
Ryutaro Hashimoto, forsætisráð-
herra Japans, ræddi í við Bill Clint-
Jeltsín á
vélsleða
RÚSSNESKA sjónvarpið ORT
sýndi í gær myndir af Borís
Jeltsín Rússlandsforseta aka
vélsleða á Valdai-vatnasvæðinu
vestan við Moskvu þar sem hann
hefur dvalið í vetrarleyfí frá 4.
janúar. Einnig voru sýndar
myndir af forsetanum ræða við
Borís Nemtsov aðstoðarforsætis-
ráðherra. Nemtsov og talsmaður
Jeltsíns höfðu lofað að halda á
fund forsetans með myndbands-
tökuvél tii að sanna að hann væri
við góða heilsu.
on Bandaríkjaforseta í síma í gær
og lýsti áhyggjum japanskra stjórn-
valda af kreppunni í fjármálum álf-
unnar. Hashimoto áréttaði hins veg-
ar að Japanar væru staðráðnir í að
veita alla þá aðstoð þeir gætu til að
bæta ástandið.
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjómar Evrópusambands;
ins, sló á bjartsýnni strengi. í
ávarpi til ráðamanna í Singapore
sagði Santer að efnahagslegur
grundvöllur Asíu væri traustur eftir
sem áður og þessi heimshluti myndi
rísa sterkari upp úr þessari kreppu,
að því gefnu að réttum ráðstöfunum
væri fylgt eftir.
■ Athafnir fylgi/23
RUSSAR sögðust í gær hafa gert
ráðstafanir til að draga úr spennu
milli Iraka og Sameinuðu þjóðanna
og hvöttu til þess að ný deila um
vopnaeftirlitið í Irak yrði leyst með
samningaviðræðum.
írakar stöðvuðu starfsemi eins
af vopnaeftirlitshópunum í gær á
þeirri forsendu að Bandaríkjamað-
urinn Scott Ritter, sem fer fyrir
hópnum, væri njósnari.
Valerí Nesterúshkín, talsmaður
rússneska utanríkisráðuneytisins,
sagði að ráðuneytið hefði gert ráð-
stafanir til að reyna að leysa deil-
una. „Rússar telja að nefndin eigi
að geta haldið uppi eftirliti eins og
kveðið er á um í ályktunum örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna og að
öll hugsanleg vandamál beri að
leysa með viðræðum."
íraskt dagblað lýsti Ritter sem
„híenu er gengur erinda banda-
rísku leyniþjónustunnar". Ritter
ÞÚSUNDIR atvinnulausra
Frakka efndu til mótmæla í
París í gær og kröfðust þess að
stjórnin hækkaði atvinnuleysis-
bætur. Mótmælendurnir gengu
að höfuðstöðvum stærstu sam-
taka franskra atvinnurekenda,
CNPF, og nokkur hundruð
þeirra réðust inn í byggingu
verðbréfafyrirtækis í miðborg-
inni. Óeirðalögreglan var
kölluð á staðinn og ætlaði að
beita táragasi gegn mótmælend-
unum, sem búa sig hér undir
átök við lögregluna. Fólkið
gekk þó út úr byggingunni
að beiðni franskra embættis-
manna án þess að til átaka
kæmi.
Hvetja til samn-
ingaviðræðna
um deiluna
var foringi sveitar bandarískra
landgönguliða í stríðinu fyrir botni
Persaflóa 1991 og hefur ítrekað
sætt gagnrýni Tareqs Aziz, aðstoð-
arforsætisráðheiTa Iraks.
Bjóða fleiri
eftirlitsmenn
Nesterúshkín sagði ekkert um
hvort Jevgení Prímakov, utanríkis-
ráðherra Rússlands, hygðist sjálf-
ur reyna að leysa deiluna eins og í
nóvember þegar hann miðlaði mál-
um í svipaðri deilu.
Talsmaðurinn sagði að Irakar
myndu að öllum líkindum krefjast
þess að bandarísku eftirlitsmönn-
unum í írak yrði fækkað þegar
Ernest-Antoine Seilliere, for-
maður CNPF, hvatti mótmæl-
endurna til að beina frekar
spjótum sínutn að atvinnumála-
ráðuneytinu, sem er að leggja
drög að frumvarpi um að vinnu-
vikan verði stytt í 35 stundir frá
árinu 2000. Hann sagði að lög-
gjöf um styttri vinnuviku myndi
torvelda atvinnurekendum að
skapa ný störf og verða til þess
að fyrirtæki flyttu starfsemi
stna til annarra landa.
Fimm samtök franskra at-
vinnurekenda, þeirra á meðal
CNPF, hvöttu Lionel Jospin for-
sætisráðherra til að falla frá
frumvarpinu en hann sagði það
ekki koma til greina.
Richard Butler, formaður eftirlits-
nefndarinnar, færi til Bagdad á
mánudag til að ræða deiluna. Hann
bætti við að Rússar hefðu hug á að
gegna auknu hlutverki í vopnaeft-
irlitinu og hefðu boðist til að senda
60 rússneska eftirlitsmenn til við-
bótar til Iraks.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, ræddi við
Prímakov fyrir fund í öryggisráð-
inu í gærkvöldi og útilokaði ekki að
beitt yrði hervaldi ef írakar héldu
áfram að hindra vopnaeftirlitið.
Sendiheira Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum hvatti örygg-
isráðið til að „senda Irökum mjög
sterk skilaboð" um að þeir hefðu
brotið gegn ályktunum ráðsins.
Frakkar sögðust harma ákvörðun
íraka og Bretar fordæmdu
Saddam Hussein Iraksforseta íyrir
að „virða vilja Sameinuðu þjóðanna
að vettugi“.
Blair lofar
hugrekki
Norður-Ira
Tókýó, Belfast, Washington. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, lofaði í gær viðbrögð
stjórnmálamanna á Norður-írlandi
við nýju friðaráætluninni og sagði,
að með þeim sýndu þeir mikið hug-
rekki. Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, hefur einnig fagnað áætl-
uninni en í gær ákváðu fulltrúar
norður-írsku stjórnmálaflokkanna
að hefja eiginlega samninga með
hana að leiðarljósi.
„í fyrsta sinn höfum við eitthvað
áþreifanlegt við að styðjast en það
gleðilegasta er, að stjórnmálamenn
og fólk um allt Norður-íriand hefur
hert upp hugann og stigið út úr
skugganum," sagði Blair á blaða-
mannafundi í Tókýó á síðasta degi
Japansheimsóknar sinnar. Kvaðst
hann þó ekki efast um, að ýmislegt í
friðaráætluninni væri lítt að skapi
deiluaðila en hún væri þó vettvang-
ur fyrir raunverulegar viðræður um
framtíð landsins.
Bjölmiðlar
hrifnir
„Viðbrögðin við áætluninni eru
mikil tíðindi og nú verðum við að
stíga skrefið til fulls,“ sagði Mo
Mowlam, N-írlandsráðherra bresku
stjórnarinnar, í viðtali við breska
ríkisútvarpið, BBC, í gær og bresk-
ir fjölmiðlar leyndu ekki hrifningu
sinni. „Róttæk, djörf, jafnvel hug-
Ijómunarkennd," sagði í leiðara
dagblaðsins The Independent.
Clinton Bandaríkjaforseti fagnaði
líka tíðindunum frá Norður-írlandi
og skoraði á stjóramálamenn þar að
grípa tækifærið.
Fulltrúar n-írsku stjórnmála-
flokkanna, átta að tölu, hafa fallist á
að halda áfram viðræðum á grund-
velli áætlunarinnar.
■ Vekur vonir/21
Kreppan í Asíu seg-
ir til sín í Evrópu
London. Reuters.
Atvinnulausir
Frakkar mótmæla
Reuters