Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 4§
/Mériist nel ó, þesinor* kjöthleif Tit/CUÖ hefurðu L honum, ?
& V1- / V^yvWvv/ Jö,5Ck/.ab } ral§' 'naufa. oa \ lcálfadrjol ) Svin.a.kjöi/6or\ j x rna tjjí'
Ferdinand
I SUPP05E VOU REALIZE
THAT VOUR MAIN JOB HERE
15 BEIN6 A WATCHD06..
tUHAT l'M UI0NDERIN6 15, ARE YOU DOIN6 M0RE U)RITIN6 THAN U)ATCHIN6? © 1997 Umted Feature Syndicate, Inc. IF A BUR6LAR C0ME5 AR0UNP HAVE HIM 5TAND RI6HT HERE, ANP l'LL PROP A typewriter 0N HI5 HEAP,.
W j
mmaKKBk
Ég geri ráð fyrir því að þér sé ljóst
að aðalstarf þitt hér er að vera
varðhundur ...
Það sem ég er að velta fyrir mér
er, hvort þú skrifir frekar en
standa á verði?
Ef innbrotsþjófur kemur, láttu
hann standa einmitt hérna og þá
skal ég láta ritvélina falla ofan á
hausinn á honum ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Háir tollar
á bókagjafir
Frá Guðrúnu Stefánsdóttur:
OPIÐ bréf til forsætis- og fjár-
málaráðherra.
Nýlega barst mér frá Noregi
síðbúin fermingargjöf frá frænda
mínum sem ekki átti heimangengt
á fermingardaginn minn. Eins og
mál atvikuðust gat hann ekki ver-
ið hjá okkur um jólin. Því var ekki
um annað að ræða en að senda
pakkann í pósti. í pakkanum var
mér til mikillar ánægju stór og
mikill Atlas, sem mig hafði lengi
langað í.
Eg var ekki lengi að drífa mig
niður á pósthús þegar tilkynningin
barst um að ég ætti von á gjöf frá
frænda mínum í Noregi. Eg var
ekki lítið undrandi þegar pósthús-
ið tjáði mér, að mér bæri að greiða
2.106 krónur í formi tollafgreiðslu-
gjalda, virðisaukaskatts o.fl. af
gjöfínni.
Þetta olli mér miklum vandræð-
um af því að nú varð ég að snúa
mér að næsta banka og taka út
hluta af fermingarpeningunum
mínum, sem átti öllum að verða
varið í greiðslu háskólagjalda þeg-
ar þar að kæmi, til að leysa út
gjöfina.
Nú verð ég að viðurkenna að ég
er enginn sérfræðingur í tollamál-
um en ég verð þó að lýsa undrun
minni á að til skuli vera reglur
sem leggja jafnhá gjöld á einfalda
bókargjöf eins og þessa ferming-
argjöf mína.
Mér finnst þetta sérstaklega
skrýtið með tilliti til þess að ef
frændi minn hefði komið í ferm-
inguna eða um jólin eins og til
stóð, og haft gjöfina í farangri sín-
um hefði ekki þurft að borga þessi
gjöld. Þetta skil ég ekki og vil ég
því spyrja: Gera menn svona?
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR,
nemi í Tjarnarskóla,
Sólvallagötu 15,
Reykjavík.
Pólitík á
villigötum
Frá Ámunda Loftssyni:
TILHUGALÍF A-flokkanna og
Kvennalista er orðið að veruleika.
Ef kosningabandalag þessara
flokka verður að veruleika mun
landsmálapólitíkin einungis hafa
þessi þrjú spil á hendi. Þar með
sýnist mér að búið sé að tryggja
Halldóri Asgrímssyni forsætisráð-
herrastól í næstu ríkisstjórn.
Framsóknarflokknum yrði þar
með komið í örugga oddaaðstöðu
við ríkisstjórnarmyndun.
Tæplega trúi ég að það vaki íyr-
ir Alþýðuflokknum að tryggja
Framsókn varanleg völd. Kannski
að alþýðubandalagsmenn í kosn-
ingabandalagi þessu verði alveg
áfjáðir í stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum? Þetta er svo einfalt mál
að sama er hvernig því er snúið.
Halldór verður forsætisráðherra.
Davíð Oddsson hikar ekki við að
ryksuga og gljápússa forsætisráð-
heri’astólinn fyrir Halldór As-
gi’ímsson ef hann getur með því
tryggt Sjálfstæðisflokknum aðild
að ríkisstjórn.
Þegar vinstri kosturinn er skoð-
aður blasir niðurstaðan við. Hall-
dór getur af stakri kurteisi neitað
að vera með uppá aðrar spýtur.
Þetta kemur sér óneitanlega vel
fyrir stjórnmálaflokk sem á enga
hugmyndafræði. Sem sagt, til
hamingju Halldór.
Víst er þó um þessar pælingar
mínar að ég vona að ég hafi rangt
fyrir mér.
ÁMUNDI LOFTSSON,
Oddeyrai-götu 23,
Akureyri.
Þrekþjálfun
aldraðra
hafði styrkur lær- og mjaðma-
vöðva tvöfaldast hjá flestum. Eftir
þessa þjálfun gat margt af þessu
fólki gengið og sumt án þess að
draga fæturna. Þetta fólk varð því
verulega meira sjálfbjarga í dag-
legum athöfnum og lifði betra lífi.
Það er stöðugt að koma betur í
ljós, að háum aldri þarf ekki endi-
lega að fylgja lélegri heilsa.
SVEINN INDRIÐASON,
Árskógum 8, Reykjavík.
Vinstelu prjóna- og heklndmskeiðin að hejjast hjd
PRJÓNASKÓLA TINNU
* Almennt prjón - kennt 5 kvöld,
eitt kvöld í viku
* Hekl - 3 kvöld, eitt kvöld í viku
* Myndprjón - 1 kvöld.
Skráningarsími 565 4610
GARNBUÐIN
ÍINNA
Hjallahrauni 4,
220 Hafnarfirði,
sími 565 4610
Frá Sveini Indriðasyni:
Á SÍÐASTLIÐNU ári var eitt
tölublað Lesbókar New York
Times næstum eingöngu helgað
öldruðum Bandaríkjamönnum og
kjörum þeirra. í einni þessara
greina var sagt frá tilraun tú þol-
þjálfunar eitthundrað veikburða
vistmanna á hjúkrunarheimili í
Boston.
Meðalaldur var 87 ár og elsti 98
ára. Eftir tíu vikna þjálfun fóta