Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 56
BS minni eyðsla - hreinni útblástnr meiri spamaður 6611 Hringdu núna og fáðu þér miða! HÁSKÓLA^SLAND MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 MIÐYIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Samkeppnisráð bannar skilmála greiðslukortafyrirtækja Kostur á misjöfnu verði eftir greiðslumiðlum Islandsflug sinnir inn- anlandsflugi íBretlandi ÍSLANDSFLUG hefur hafið áætl- unarflug milli Humberside í Englandi og Aberdeen í Skotlandi. Er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt flugfélag tekur að sér innanlands- flug erlendis. Farþegaflug þetta hófst 1. desember síðastliðinn og hefur farið vel af stað, að sögn Gunnars Þorvaldssonar, stjómar- formanns íslandsflugs. Gunnar segir þetta flug lið í þeirri stefnu Islandsflugs að auka erlenda starfsemi félagsins, en hún nemm- nú rúmum helmingi af um- svifum þess. ^ ■ íslandsflug/20 SAMKEPPNISRÁÐ hefur bannað skilmála greiðslukortafyrirtækja í samningum við verzlanir og þjón- ustufyrirtæki, sem kveða á um að seljanda vöru sé skylt að veita kort- höfum sömu viðskiptakjör, verð og þjónustu og þeim, sem greiða með reiðufé, og að seljanda sé óheimilt að hækka verð á vöru eða þjónustu sé korti framvísað við kaupin. Samkeppnisráð telur að skilmál- amir taki eingöngu mið af hags- munum kortafyrirtækjanna en tak- marki viðskiptafrelsi kaupmanna og þjónustufyrirtækja og hefti því samkeppni. Ráðið telur að afnám skilmálanna geti leitt til lækkunar þjónustugjalda, en slík þróun hafi átt sér stað erlendis. Lægra verð fyrir þá sem borga með reiðufé Stefán Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenzkra stórkaupmanna, segir að úrskurður samkeppnisráðs þýði að kaupmenn hafi aukið frelsi til að ákvarða verð á vörum sínum. Þeir geti nú miðað almennt verð við staðgreiðslu en ákveðið álag á það verð, sé greitt með korti, til að mæta þeim kostn- aði sem til fellur við notkun greiðslukorta. „Þetta getur jafnvel þýtt að þetta álag verði misjafnt eftir því hvort viðskiptavinurinn greiðir með Visa eða Euro,“ segir Stefán. Hann segir að íyrir neytendur þýði þessi úrskurður að fólk, sem til þessa hafi kosið að greiða með reiðufé, losni nú við að greiða kostn- aðinn af kortanotkun þeirra, sem eingöngu noti greiðslukort. ■ Skilmálar takmarka/12 Sandmökkur í sex daga á Rangár- völlum SAND- og moldarmökkurinn, sem legið hefur yfir meginhluta Rang- árvallasýslu frá miðvikudegi, virð- ist nú horfinn og sex daga bylur- inn vera á enda. Sandfokið náði hámarki á sunnudagskvöld og mánudag og var skyggni þá svo slæmt að erfitt var að rata sums staðar í sýslunni. Kristinn Guðnason, bóndi á Skarði, kannaði ummerki á rofa- ^Uiörðunum á Skarðsmelum í gær. "víðast hvar hafði gróðurinn haldið velli, en Sveinn Runólfsson land- græðslusljóri segir að töluverðar skemmdir hafi orðið á landi sem var að gróa upp. Hann spáir því samt að innan fimm ára muni auk- in uppgræðsla iands koma í veg fyrir fok sem þetta í Landsveit. Landeyðingaröflin/6 Morgunblaðið/RAX Stjórnsýsla fjármálaráðuneytisins í máli lífeyrissjóðs harðlega gagnrýnd Virtu álit umboðsmanns Alþingis að vettugi Fjármálaráðherra segist taka gagnrýni umboðsmanns mjög alvarlega FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ virti álit umboðsmanns Alþingis að vettugi í máli er varðaði erindi lífeyrissjóðs um staðfestingu á breyttri reglugerð sjóðsins. Það synjaði um staðfestingu reglugerðarinnar þrátt fyi-ir fyrir- liggjandi álit umboðsmanns um að synjun væri ólögmæt og lét hjá líða að svara erindi umboðsmanns þess vegna í rúma 14 mánuði, þótt það væri margítrekað og tilmæli um það sett fram á fundi með ráðuneytis- stjóra fjármálaráðuneytisins. Auk þess gaf ráðuneytið engar skýringar á drættinum á svarinu þótt eftir þeim væri leitað og loks þegar svör bárust voru þau ófullnægjandi. Umboðsmaður segir að fjármálaráðu- neytið skeri sig að þessu leyti veru- lega úr miðað við önnur stjórnvöld og hefur af þeim sökum ákveðið að gera forsætisráðherra og forseta Alþingis grein fyrir málinu. Það er mjög fátitt skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Ennfremur segir í niðurlagsorðum álits umboðsmanns í málinu nr. 1754/1996, sem afgreitt var 8. janúar siðastliðinn, að sú ákvörðun fjármála- ráðuneytisins að afgreiða ekld lífeyr- issjóðinn með staðfestingu á reglu- gerð fyrir hann með formlegum hætti á grundvelli gildandi laga hafi verið ólögmæt. Síðan segir: „Með viðbrögð- um sínum við áliti mínu frá 6. október 1995 í máli A og erindum mínum í til- efni af kvörtun sjóðsins í kjölfar álits- ins og með afstöðu sinni hefur fjár- málaráðuneytið að mínum dómi, gert hvort tveggja í senn, aukið rangindi þau, sem það hafði áður beitt A og lagt stein í götu starfs umboðsmanns Alþingis." Fátækleg lagafyrirmæli Þá telur umboðsmaður tilefni til að minna á að óréttmæt synjun um af- greiðslu mála geti leitt til bótaskyldu hins opinbera. Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, sagðist taka þessa gagnrýni á ráðuneytið mjög alvarlega. „Ég er sammála umboðsmanni Alþingis að stjórnvöld eiga að sjálfsögðu að byggja ákvarðanir sínar á gildandi rétti, en ekki á lagafrumvörpum eða hugmyndum um það sem sett kunni að verða í lög. Eina afsökun ráðu- neytisins í þessu máli er sú að það var svo mikil óvissa í þessum málum, lagafyrirmælin fátældeg og augljóst að það þurfti að gera breytingar," sagði Friðrik meðal annars. ■ Svöruðu ekki/28 Aftur- kalla beiðni um rannsókn EKKI fer fram opinber rann- sókn á meintum brotum á lög- um um lögheimili og kosning- ar vegna gruns um mála- myndatilflutninga á lögheimili í Skorradal fyrir 1. desember síðastliðinn. Meirihluti hrepps- nefndarinnar sem óskað hafði eftir þessari rannsókn hefur boðað afurköllun kærunnar. Vegna deilna í Skorradal um lögmæti lögheimilisflutn- inga í og úr sveitinni og áhrifa þeirra á sameiningu við önnur sveitarfélög óskaði meirihluti hreppsnefndar, þrír fulltrúar af fimm, eftir því við sýslu- manninn í Borgamesi að fram færi opinber rannsókn á meintum brotum á lögum um lögheimili, lögum um tilkynn- ingu aðsetursskipta og kosn- ingalögum. Einstakir hrepps- nefndarmenn hyggjast gera athugasemdir Sýslumaður lýsti því yfir í bréfi til hreppsnefndarinnar 6. janúar sl., þegar hann vís- aði deilu um kjörskrá aftur til hreppsnefndarinnar, að hann myndi á næstu dögum taka afstöðu til beiðninnar. I fram- haldi af því samþykkti hreppsnefndin kjörskrána en einstakir hreppsnefndarmenn hafa lýst því yfir að þeir muni gera athugasemdir við íbúa- skrá þegar hún berst hrepps- nefnd. Stefán Skarphéðinsson sýslumaður segir að ekki verði tekin afstaða til beiðn- innar um opinbera rannsókn þar sem meirihlutafulltrúam- ir hafi boðað afturköllun hennar. Ekki sé þó útilokað að síðar komi til þessarar rannsóknar, eftir að hrepps- neftidin hafi unnið sína vinnu við að fara yfir íbúaskrána. ■ Kosið um sameiningu/18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.