Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 33 + Hildur (Guð- munda) Magnús- dóttir fæddist í Fornubúð, Súðavíkur- hreppi í Norður Isa- Qarðarsýslu 24. mars aldamótaárið 1900. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 27. nóv- ember 1997. Foreldr- ar hennar voru hjónin Magnús Guðmunds- son, f. 16. september 1869 í Kaldbak á Ströndum, d. 3. janú- ar 1959, en hann var af Pálsætt á Strönd- um, og Júlíana Þorvaldsdóttir, f. 15. september 1874 á Fæti í Súða- víkurhreppi, d. 31. maí 1904. Börn þeirra hjóna voru: Sophus Salómon, f. 19. október 1893. Þorvaldur Matthías, f. 19. ágúst 1895. Óskar, f. 31. desember 1896. Hildur (fyrr Guðmunda), f. 24. mars 1900. Kristveig, f. 4. apríl 1903. Júlíana, f. 14 maí 1904. Þau eru öll látin. Hálfsystk- ini Hildar, samfeðra: Svanberg, f. 9. janúar 1909. Petrína Sigríður, f. 5. október 1910. Þorsteinn, f. 13. apríl 1913. Aðalheiður, f. 3 október 1915. Guðmundur, f. 3. júlí 1917. Anna, f. 3. júlí 1917. Skarphéðinn, f. 16. febrúar 1921. Öll látin. Eftirlifandi eru: Einar, f. 4. júlí 1924, og Pálína, f. 1926. Hildur giftist 17. september Minningar mínar um mömmu mína eru margar og ná yfir nokkuð langan tíma, yfir sextíu ár. Jón Ingvar Pétursson föðurbróðir minn og fósturmóðir mín sem ég hef alla tíð kallað mömmu, tóku mig í fóstur viku gamlan til að létta undir með raunverulegri móður minni Petrínu Sigrúnu Skarphéðinsdóttur og föð- ur mínum Magnúsi Pétursyni. Þær tvær voru alla tíð mjög góðar vin- konur og giftar bræðrum að auki. Sigrún móðir mín var á þessum tíma búin að missa tvö af þeim tíu börnum sem hún eignaðist í tveimur hjónaböndum með bræðrunum Pétri og Magnúsi. Tvíburasystir mín var einnig sett í fóstur því móð- ir okkar lést tveimur mánuðum eftir fæðingu okkar. Sigríður elsta systir mín tók þá við uppeldi eldri systk- ina minna ásamt föður mínum Magnúsi Pétursyni. Mér eru minnisstæðar áhyggjur fósturmóður minnar ef eitthvað kom fyrir mig sem lítinn strák, t.d. smáskeina við að hrasa við leik. Henni var mjög annt um mig og dætur sínar Jóhönnu og Kristjönu og reyndist mér sem besta móðir. Hún hvatti mig vel þegar ég var í skóla og fyrirgaf mér öll mín bernskubrek. Hannyrðakona var mamma alla tíð og hafði lært hannyrðir af kon- um sem voru henni samtíða á Vífíls- stöðum, en þar barðist hún við berkla á sextánda aldursári. Hún saumaði í, prjónaði mikið og heklaði með ótrúlegum afköstum meðan við bjuggum á Flateyri. Reyndar hekl- aði hún í því sem hún kallaði „partí- um“ það er að segja marga dúka sem hún gaf vinum og vandamönn- um. Þessari handavinnu hélt hún áfram daglangt til 97 ára aldurs og voru margir undrandi á elju hennar eftir að hún var orðin það öldruð. Mamma var ágætlega að sér í söng og söng mikið meðan hún bjó fyrir vestan. Ég man að hún lék líka í leikritum í samkomuhúsinu á Flat- eyri og það nokkuð oft, eftir því sem kvenfélaginu gekk að setja upp leik- rit, en hún var virk í þeim félags- skap þau tuttugu ár sem hún bjó með manni og börnum á Flateyri. Á stríðsárunum óttaðist mamma stöðugt um pabba, sem var í sigling- um allt stríðið. Hann var á því happaskipi Lagarfossi sem slapp lítt skaddað frá öllum ógnum stríðs- ins, þó mörg önnur íslensk skip fær- ust á þeim árum vegna stríðsað- gerða. Hún var mjög trúuð kona og líklega hefur trú hennar aukist við 1921 Jóni Ingvari Péturssyni, f. 25. mars 1897 að Hálsi, Ingjaidssandi, d. 9. maí 1974. Þau skildu. Börn þeirra: Jó- hanna, f. 6. febrúar 1922 á Flateyri, d. 23. júní 1943. Kristjana, f. 24. ágúst 1923 á Flateyri, d. 29. mars 1996. Ingvar Magn- ússon, fóstursonur, f. 25. febrúar 1933 á Flateyri. Hildur gift- ist aftur 10. júlí 1953, Einari Einarssyni, f. 3. september 1882 í Svínadal í Skaftártungum, d. 19. september 1973 í Reykjavík. Afkomendur yngri dóttur Hildar og Jóns Ingv- ars Péturssonar, Kristjönu og fyrri manns hennar Brynjólfs Að- alsteins Jónssonar frá ísafirði, sem lést 1948 eru; Jóhanna og Brynjólfur Aðalsteinn. Börn af seinna hjónabaudi Kristjönu og Sveinbjörns Kristjánssonar frá ísafirði eru; Jón Ingvar og Krist- ján, sem iést 1977. Börn fóstur- sonar Hildar og Jóns, Ingvars Magnússonar og konu hans Guð- nýjar Jennýar Bjarnadóttur eru; Bjarni, Fríða Björk og Ingvar Örn. Langömmubörnin eru sex og langalangömmubarn eitt. títför Hildar fór fram í kyrrþey. áföll lífsins, eins og missi hálfbróður síns í stríðinu. Tveimur árum seinna missti hún frumburð sinn Jóhönnu úr bráðaberklum, yndislega stúlku rétt yfir tvítugt. Hálfsystir hennar féll einnig fyrir berklaveikinni. Mamma syrgði einnig mikið missi tengdasonar, eiginmann yngri dótt- ur sinnar Kristjönu, er fórst á sjó árið 1948 eftir aðeins fjögurra ára hjónaband frá eiginkonu og tveimur bömum. Einnig syrgði hún mikið er Kristjana og seinni eiginmaður hennar misstu yngri son sinn árið 1977, aðeins átján ára að aldri. Seinni eiginmaður Kristjönu féll einnig í valinn á undan mömmu, og féll henni það þungt og þá ekki síð- ur að sjá á bak þessari yngri dóttur sinni sem lést árið 1996. Bestu ár mömmu voru að hennar dómi árin á Flateyri þar sem hún var hamingjusömust á ævinni, uns hún og pabbi ákváðu að flytja til Reykjavíkur til að vera nær Jó- hönnu dóttur sinni sem þá lá sjúk á Vífilstöðum. Nokkrum árum seinna skildi móðir mín við pabba eftir þrjátíu ára hjónaband. Síðar giftist hún aftur, þá 53 ára að aldri, Einari Einarsyni. Báðir eiginmenn eru nú löngu látnir. Móður minnar er sárt saknað af mér, sem rita þessi fátæklegu kveðju, einnig af Jenný konu minni og okkar börnum og bamabömum. Hún fékk hinsta hvílustað við hlið dóttur sinnar, Jóhönnu sem lést 1943 og liggur nú hjá foreldrum sín- um báðum. Með þeirri ósk að mamma hafi við brottför sína úr þessu lífi endur- heimt æskuástvini sína, dætumar tvær og annað skyldulið henni kært, bið ég henni blessunar Guðs og Jesú Krists, sem hún svo innilega bað um að taka á móti sér við andlátið. Ingvar Magnússon. Hún er sofnuð síðasta svefninum og þrautir á bak og burt. Við ástvin- ir hennar höfum kvatt hana en minning stendur eftir, sterk en um leið Ijúf. Það voru síðustu 25 árin sem við styrktum systra- og vináttuböndin og var það okkur báðum kært. Ég ætla að varðveita minninguna í hjarta mér. Finnst mér það við eiga að láta hér fylgja ljóð eftir vinkonu mína, Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, og gera að mínu. Barst mér í fangið ffegnin, - fregn, sem ég vissi áður - MINNINGAR efnis - en ekki lífs þíns - að væri slitinn þráður. En minningin reis og rakti ' rúnir frá horfnum stundum, svipheiðum, glöðum, góðum, og glitið frá síðustu fundum. Og nú er það mitt að muna, - að minnast og liðið þakka - og innst er eitthvað sem gleður: - En hvað ég vil til þess hlakka að hitta þig aftur heila í heimkynnum morgunlanda og gleðjast við geisla í svörum og glampandi ljós þíns anda. Með þessum fáu orðum kveð ég elskulega systir. Ingvari, bama- bömum, barnabamabörnum og mökum votta ég innilega samúð. Megi Guð og góðu englarnir vera með Hildi. Pálína Magnúsdóttir. Amma mín Hildur Magnúsdóttir er látin 97 ára að aldri. Með henni er horfin á vit eilífðarinnar síðasta tenging fjölskyldu minnar við forn- an tíma og hætti. í mínum augum tengdist amma Hildur hluta af þeirri fortíð sem okkur nútímabörn- um er að mestu leyti hulin. Er hún sagði frá ævi sinni og uppvexti þá hljómaði það eins og þáttur úr þjóð- sögu eða þjóðháttafræði, - en samt stóð það okkur svo nærri. Amma var alin upp af fósturforeldrum, fólki sem var komið vel yfir miðjan aldur er þau tóku hana að sér, svo gera má ráð fyrir að hún hafi á barnsaldri kynnst siðum og venjum fólks allt frá því fyrir miðja síðustu öld. Þessa arfleifð bar hún með sér alla sína ævi, jafnframt því sem hún heillaðist af því sem nútíminn hafði upp á að bjóða. Þannig brutust um í henni ein- kennilegar andstæðm-, sem oft og tíðum gerðu henni lífið kannski óþarflega erfitt. Um miðjan aldur yfirgaf hún Vestfirðina og það sam- félag sem verið hafði kjölfestan í lífi hennar í hartnær hálfa öld, til að setjast að í Reykjavík. Skömmu eftir þau umskipti ákvað hún að hefja nýtt líf á eigin forsendum, skipti um nafn og gerði tilraun til að snúa sér að því sem hugur hennar hefúr lík- lega alltaf staðið til, málaralist og ljóðagerð. Amma fór ekki varhluta af áföllum lífsins og hafa þau eflaust ráðið þama nokkru um. Hvort henni tókst að fitja upp á nýjum þræði í lífsbaráttunni þori ég ekki að full- yrða en víst er að þama gerði hún tilraun til að brjóta nýtt blað. Listfengi ömmu var mikið, hún var ekki einungis mjög orðhög held- ur komu hæfileikar hennar sterkast í ljós í handavinnu sem hún sinnti eins og hverju öðm starfi. Allt fram undir það síðasta setti hún sér fyrir og hætti ekki að hekla fyrr en dags- veridnu var lokið hverju sinni. Þannig var amma, hún hélt reisn sinni fram í andlátið. Hún var að mörgu leyti dæmi- gerð fyrir fjölmargar kynslóðir ís- lendinga sem bjuggu við ki-ingum- stæður þar sem ekki var um marga kosti að veija. Margir bjuggu við lít- il efni og algengt var að börn létust á unga aldri eða þá að þau misstu foreldra sína og væri komið fyrir. Amma segir sjálf frá því í minning- um sínum að þegar henni var komið fyrir fjögurra ára gamalli eftir að móðir hennar dó, hafi hún grátið svo mikið að fólk gafst upp á að hafa hana. Það var ekki fyrr en hún kom til þessara eldri hjóna og fóstra hennar leyfði henni að fylgja sér all- an daginn, að hún hætti að gráta. Amma talaði oft um hvað hún hafi liðið fyrir skort á menntun og var tíðrætt um fáfræði sína þó hún hafi í raun sannri alltaf verið ákaflega vel að sér um flesta hluti. Ég er því ekki í nokkrum vafa um að ef hún hefði verið fædd á öðrum tíma hefði hún gengið menntaveginn og hæfi- leikar hennar notið sín jafnvel á því sviði og þeir gerðu í þeim fjölmörgu verkefnum sem lífið lagði henni á herðar. Við sem höfum nú kvatt ömmu, minnumst hennar með þakklæti og þeirri fullvissu að hennar bíði bjart- ir dagar hjá almættinu sem hún trúði á og treysti. Fríða Björk Ingvarsdóttir. + Sigríður Stefáns- dóttir fæddist í Hafnarfirði 10. októ- ber 1914. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- nesja 7. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Stefán Grímsson, f. 25. febrúar 1880, d. 25. febrúar 1918, og María Sveinsdóttir, f. 6. desember 1885, d. 5. apríl 1958. Systur hennar voru Guðlaug Stefánsdóttir og Ásdís Stefánsdóttir sem eru báðar látnar. Sigríður var þeirra yngst. Sigríður giftist 10. desember 1938 Steinþóri Sighvatssyni, f. 15. janúar 1906, sem var sjómaður og síðar innheimtumaður hjá Kefla- víkurbæ, d. 25. nóvember 1991. Eignuðust þau hjónin tvær dætur sem eru: 1) Lára, húmóðir, f. 12. nóvember 1939, gift Braga Magn- ússyni, eiganda Vélsmiðju Isa- fjarðar, f. 6. september 1936. Börn þeirra eru þrjú, Sigríður, verka- kona, f. 20. janúar 1958 og á hún þrjú börn, Ornu Láru, Braga og Gunnlaug. Bryndís, hárgreiðslu- meistari, f. 9. september 1959. Eiginmaður heimar er Ásgeir Blöndal, skipstjóri, f. 12. júni 1958, og eiga þau tvö böm, Svövu og Kristján. Yngstur er Steinþór, vélfræðingur, f. 3. júli 1969, unnusta hans er Ama Björk Sæ- mundsdóttir, nemi, f. 26. október 1973. 2) Unnur Ingunn, húsmóðir, f. 13. febrúar 1942, gift Jóni Willi- Með þökk í huga vil ég minnast ömmu minnar, Sigríðar Stefáns- dóttur, hjartahlýju hennar og kær- leika. Amma var fædd í Hafnar- firði. Foreldrar hennar voru María Sveinsdóttir og Stefán Grímsson. Á yngri árum flutti hún til Keflavíkur og bjó þar alla tíð. Árið 1938 giftist hún afa mínum, Steinþóri Sighvats- syni, og eignuðust þau tvær dætur. Bjuggu þau fyrst í Vinaminni og siðar við Hafnargötu í Keflavík en árið 1958 fluttu þau að Vatnsnes- vegi 36 og áttu þar saman fallegt heimili í rúm 30 ár. Elskulegur afi minn lést 25. nóvember 1991 og bjó amma ein eftir það í tæp þrjú ár þar til hún flutti á Hlévang í sept- ember 1994. Amma var mikil húsmóðir og bar allt heimilishald þess merki. Hún hafði svo sannarlega „grænar hendur", eins og sagt er, og naut þess að hlúa að plöntum jafnt úti sem inni. Þá hafði hún gaman af að föndra og eru margir hlutirnir hér heima sem minna á það. Amma vann ýmis störf um ævina og var alls staðar vel liðin. Gamlir vinir og kunningjar voru tíðir gestir á heim- ili ömmu og afa enda voru þau góð heim að sækja. Fyrstu minningar okkar systk- ina um ömmu eru tengdar heimili hennar og afa á Vatnsnesvegi 36. Þangað var alltaf gott að koma, hlýtt og notalegt og við systkinin á gólfinu í stofunni með dótakassann. Amma á þönum til að vera viss um að allir hefðu það sem best. Alltaf átti amma smágóðgæti til að rétta okkur hvort sem það var hálf tyggjóplata eða erlent sælgæti sem þá var ekki algengt. Á mínum uppvaxtarárum var ég tíður gestur hjá ömmu og afa í há- deginu. Þar var iðurlega á borðum soðinn fiskur og skyr. Hugsunin um hvernig amma stappaði fiskinn am Magnússyni, eig- f" anda Ofnasmiðju Suð- urnesja og Hótels Keflavíkur, f. 16. des- ember 1940. Börn þeirra eru fjögur, Magnús, sjómaður, f. 2. febrúar 1962. Egin- kona hans er Ella Björk Bjömsdóttir, húsmóðir, f. 25. mars 1967 og eiga þau þrjú börn, Sigrún Ellu, Jón Þór og Onnu Marý. Steinþór, hótelstjóri, f. 22. október 1963. Eiginkona hans er Hildur Sigurðardóttir, leikskóla- kennari, f. 11. maí 1966 og eiga þau fjögur börn, Lilju Karen, Katrínu Helgu, Unni Maríu og Guðríði Emmu. Guðlaug Helga, heimilisfræðikennari, f. 31. októ- ber 1966 og á hún þrjá syni, Sam- úel Albert, Jakob Elvar og Sigurð Hauk. Yngstur er Davíð, nætur- vörður, f. 16. ágúst 1976. Sigríður er fædd og uppalin hjá móður sinni og tveimur systr- um í Hafnarfirði. Aðeins þriggja ára að aldri missti hún föður sinn. Á yngri ámm fluttist hún til Keflavíkur í vist. Þar kynntist hún eiginmanni sínum. Vann Sig- *"< ríður hin ýmsu störf, svo sem fiskvinnslu og heimilishjálp. Lengst af bjó hún á Vatnsnesvegi 36 í Keflavík en síðust þrjú árin dvaldist hún á dvalarheimilinu Hlévangi. títför Sigríðar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. og kartöflurnar fyrir mig er enn ljóslifandi í huga mínum. Eftir matinn lagðist ég á sófann inn stofu og vaknaði undantekningar- laust með teppi sem lagt hafði ver- ið yfír mig og fann ömmu strjúka mér létt um bakið um leið og hún lét vita að tími væri kominn til að koma sér af stað. Þannig var gott að vakna. Og þá er að minnast mat- arboðanna en þvílíkar kræsingar voru án efa sjaldgæfar á þeim tíma. Kjúklingurinn með raspi steiktur upp úr smjöri var svo góður að enn í dag hafa hin bestu veitingahús ekki fundið svo góða uppskrift. Ekki voru jólaboðin síðri. Heima- bakaðar kökur og tertur, heitar pönnukökur og kleinur sem öllu var rennt niður með sérlöguðu heitu súkkulaði. Þegar ég hugsa til < baka man ég ekki hvar amma sat enda var hún á þönum fram og til- baka úr eldhúsinu og gaf sér lítinn tíma til að hugsa um sjálfa sig þeg- ar ættingjar og vinir komu í heim- sókn. Eftir að amma flutti á Hlévang passaði hún alltaf vel upp á að eiga eitthvað gott í skápum til að gefa. Hún brosti fallega þrátt fyrir veik- indin þegar hún fékk mynd af stelp- unum minum í jólagjöf enda voru bamabörnin og barnabamabörnin ávallt henni kær. Vil ég nota tæki- færið og þakka starfsfólki Hlé- vangs sérstaklega fyrii- fórnfúst starf í þau ár sem hún dvaldi þar. Einnig starfsfólki á Sjúkrahúsíi Suðurnesja fyrir góða aðhlynningu síðustu vikurnar. I dag þakka ég elsku ömmu minni fyrir allar stundimar sem við fjölskyldan áttum með henni og fyrir hvað hún var mér alltaf góð. Ég kveð ömmu mína með söknuði og virðingu. Megi góður Guð geyma þig. Steinþór Jónsson. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. HILDUR MAGNÚSDÓTTIR SIGRIÐUR STEFÁNSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.