Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 47
FÓLK í FRÉTTUM
Derri
hætt
EINHVER vinsælasta persóna
þýskrar sjónvarpssögu er vafalít-
ið iögregluforinginn Derrick,
sem ásamt aðstoðarmanni sínum
Harry Klein hefur leyst ótrúleg-
ustu glæpamál. Fyrsti þátturinn
sem ríkisstöðin ZDF framleiddi
var sýndur árið 1974 og alls hafa
þættirnir orðið 281 og þeir verið
sýndir í 102 löndum. Nú verða
aðdáendur lögregluforingjans
þögla hins vegar að bíta í það
súra epli að þættirnir verða ekki
fleiri, þótt eflaust eigi Derrick
eftir að verða vinsælt endursýn-
ingarefni á næstu árum og ára-
tugum. Framleiðslu þáttanna
verður hætt á þessu ári og leysir
Derrick síðustu morðgátu sína í
septembermánuði.
Níu milljónir Þjóðverja fylgjast
spenntir með hverjum þætti en
utan Þýskalands eru aðdáendur
Derricks síst færri, því talið er
að um 500 milljónir áhorfenda
sjái hvern þátt.
Það er leikarinn Horst Tapp-
ert, sem nú er 74 ára, er leikið
hefur Derrick frá upphafi. í við-
tali við þýska tímaritið Focus
segir Tappert að hann hafí þegar
fyrir nokkrum árum velt því fyr-
ir sér að leggja Derrick-hlut-
verkið á hilluna. Persóna
Derricks hafi ekki lengur fengið
að njóta sín í þáttunum og hann
hætt að hafa gaman af hlutverk-
inu. Hann segist ekki hafa orðið
ríkur á því að leika þetta vinsæla
hlutverk þótt vissulega þurfi
hann ekki að hafa áhyggjur af
peningamálum framar. Hins veg-
ar hafi stærstur hluti teknanna
horfið í skatta.
Tappert tæpir á ýmsu í viðtal-
inu og segir m.a. að ástæða þess
að Derrick hafi aldrei verið við
konu kenndur megi rekja til þess
hve stuttir þættirnir voru. Það
hafi ekki gefist tími til að blanda
kvennamálum inn í söguþráðinn.
Hins vegar sé ljóst að margar
konur hafi heillast af Derrick,
þótt Tappert viðurkenni að hann
sé sjálfur ekki mikið fyrir augað.
ÞEIR voru ekki öfundsverðir
sem lentu í klónum á Harry
Klein og Derrick.
Einnig er hann spurður að því
hvaða glæp hann hefði helst vilj-
að leysa sjálfur í raunveruleikan-
um. Tappert segist gjarnan hafa
viljað leysa mál er vörðuðu kyn-
ferðisafbrot gegn börnum. Þá
hefðu menn hins vegar varla
þekkt Derrick gamla því að öll-
um líkindum hefði hann þá barið
ódæðismennina í klessu. „Það
hefði enginn komist inn í réttar-
sal án glóðarauga," segir Tapp-
ert.
I frístundum sínum dvelst
Tappert gjarnan í Norður-Nor-
egi og segir að eflaust muni Nor-
egsferðunum fjölga á næstunni.
Þar noti hann tímann til að Iesa
bækur og dorga úti á sjó. Hann
ætli hins vegar ekki að starfa aft-
ur fyrir sjónvarp en hefur undir-
ritað samning um leik í kvik-
mynd. Tappert vill ekki fara mik-
ið út í efnisatriði varðandi kvik-
myndina enda hafi hann undirrit-
að samning sem skuldbindi hann
til að þegja um efni hennar. Hins
vegar segir hann að myndin
verði tekin upp í Tælandi og sé
hann eini þýski leikarinn í alþjóð-
legum hópi leikara.
MYNDBOND
Að
elskast
rétt
Unaður
(Bliss)
D r a m a
Framleiðandi: Allyn Stewart. Leik-
stjóri: Lance Young. Handritshöfund-
ar: Lance Young. Kvikmyndataka:
Mike Molloy. Tónlist: Jan A. P.
Kaczmarek. Aðalhlutverk: Craig
Sheffer, Sheryl Lee, Terence Stamp,
Casey Siemaszko, Spalding Gray. 103
mín. Bandaríkin. Skífan 1997. Út-
gáfudagur: 29. desember. Myndin er
bönnuð bömum innan 16 ára.
JOSEPH og Maria hafa verið gift í 6
mánuði og komast þá að því að þau
þekkja ekki hvort annað og bitnar
það mest á kynlífi
Bþeirra. Hjóna-
komin leita bæði
til kynlífsráð-
gjafa, sem veitir
þeim nýja sýn á
unað kynlífs (jg
ásta. Brátt virðist
allt vera að kom-
ast í lag en þá
skyndilega rifjast
upp fyrir Mariu margar óþægilegar
minningar úr barnæsku sinni og virð-
ist það ætla gera út af við hjónaband-
ið.
Þessi mynd byrjar eins og annars
flokks kynlífsfræðslumyndband þar
sem hjónin reyna fyrir sér í nýrri að-
ferðafræði innan svefnherbergisins.
Leikurinn í þessum fyrri hluta mynd-
-arinnar er vélrænn og tilþrifalítiUr.
Þegar líður á myndina verður hún at-
hyglisverðari og persónumar öðlast
meiri dýpt og leikur Sheffer og Lee
byrjar að taka á sig mannlegri mynd.
Þrátt fyrir að myndin skáni töluvert
nær hún aldrei þeim áhrifum sem
hún leitast eftir að ná fram hjá áhorf-
endum og er þar um að kenna slöppu
handriti og einnig hinum alvitra per-
sónuleika kynlffsráðgjafans, Baltaz-
ars, sem leikin er af Terence Stamp.
Ef maður kemst í gegnum hinn
kuldalega fyrri hluta Unaðar er hægt
að fmna mátulega vel gerða ástar-
mynd.
Ottó Geir Borg
HORST Tappert er Derrick
holdi klæddur.
PRJONANAMSKEIÐ
Kennt er einu sinni í viku í 6 vikur.
Kennslan miðast við kunnáttu hvers nemanda
og nýtist því bæði byrjendum og fagfólki.
1. námskeið mánudagar 19. jan.-23. feb.
2. námskeið þriðjudagar 20. jan.-24. feb.
3. námskeið mánudagar 2. mars.-6. apr.
4. námskeið þriðjudagar 3. mars.-7. apr.
5. námskeið þriðjudagar 21. apr.-26. maí.
ÚTSAUMSNÁMSKEIÐ
Kennt er tvö kvöld.
Miðvikudaga 4. og 11. febrúar.
Kennsla á öllum námslceiðum fer fram í Storkinum
frá kl. 19.30-22.30.
Kennari á öllum námskeiðum er Sunneva
Hafsteinsdóttir og hefur hún til aðstoðar leiðbeinanda
frá Storkinum.
INNRITUN ER HAFIN
STORKURINN
acumvieiis&in
gaittuJenevun
UTSALAN
HEFST I DAG
kl. 9:00
LAUGAVEGI 32 • SlMI 552 3636