Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.01.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Heilbrigðisráðherra biður sjúklinga að geyma reikninga frá sérfræðingum Reikningar verða greiddir þegar samningar takast Útboð á Gullinbrú verði heimilað BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær tíllögu borgar- stjóra um að leitað verði eftír heimild Vegagerðarinnar til að bjóða hið fyrsta út breikkun Gullinbrúar frá Stórhöfða að Hallsvegi. I 'tíllögö borgarstjóra er beiit á að framkvæmdin þoli ekki meiri bið en orðin er, þar sem ófremdarástand sé á veginum á mesta annatíma. Jafnframt sam- þykkti borgarráð að ríkisstjórn- inni yrði veitt lán fyrir fram- kvæmdinni ef þörf krefði þar til fé fengist á vegaáætlun. I greinargerð með tillögunni kemur meðal annars fram að í sameiginlegum tíllögum sveitar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu að forgangsverkefnum á næstu vegaáætlun er gert ráð fyrir 150 millj. framlagi tíl brúarsmíðinn- ar á árinu 1998 og 50 millj. árið 1999. Ekkert ættí þvi að vera því til fyrirstöðu að hefja fram- kvæmdir. Bent er á að brýnt sé að útboð getí farið fram hið fyrsta enda þoli framkvæmdin enga bið. Brúin sé aðalaðkomu- leið að 14 þús. manna byggða- kjarna, sólarhringsumferð sé 22 þús. bilar og arðsemi fram- kvæmdanna metin 84%. Borgarráðsfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins minntu á í bókun sinni að þeir hefðu ítrekað bent á nauðsyn þess að flýta fram- kvæmdunum við brúna og haft forystu um tiUögugerð. Það sé því fagnaðarefni, segir í bókun- inni, að tekið er undir tillöguna og að um það sé full samstaða í borgarráði. I bókun borgarstjóra segir að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem borgarráð samþykki tillögu um breikkun Gullinbrúar. Sam- gönguráðherra hafi hins vegar gefið fyrirheit sl. haust, og ekki sé ástæða til að ætla annað en að það verði efnt á árinu. INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra segir að heilbrigðisyflrvöld og Tryggingastofnun muni koma á móts við þá sjúklinga sem leitað hafa til sérfræðinga sem sagt hafa upp samningi við TR. Hún beinir því til sjúklinga að geyma reikningana. Ekki verði hins vegar hægt að greiða þá fyrr en búið verði að ljúka gerð samninga við sérfræðinga. „Við biðjum fólk að halda til haga reikningum frá læknum sem ekki eru á samningi við Ti-ygg- ingastofnun. Við getum ekki greitt þessa reikn- inga fyrr en búið er að gera nýja samninga við sérfræðinga og greiðslumar hljóta að miðast við samninga. Þessi yfirlýsing er gefin nú vegna þess að það er jákvæðari tónn í samningunum. Það er unnið að krafti að því að ljúka samning- um í þessum 16 sérgreinum. Sumir samningarn- ir era á lokastigi," sagði Ingibjörg. Tryggingastofnun hefur hvatt sjúklinga til að geyma reikninga sína allt frá því að fyrstu sér- fræðingamir fóra af samningi í haust. Ingibjörg sagði nauðsynlegt að skýrt kæmi fram á reikn- ingunum um hvaða læknisverk væri að ræða og að þeir væra stimplaðir og undirritaðir af við- komandi sérfræðingi. Sumir sérfræðingar munu hafa hækkað gjaldskrá sína til samræmis við kröfur sínar en Ingibjörg sagði að endurgreiðsl- ur TR yrðu að miðast við samninga. Hún tók fram að ekki væri búið að útfæra í smáatriðum hvemig endurgreiðslum yrði hagað en ljóst væri að komið yrði á móts við sjúklinga. Um helgina notaði Karl Steinar Guðnason, forstjóri TR, orðið hryðjuverk um framgöngu sérfræðinga í þessu máli. Ingibjörg sagði að þetta orð væri afar óheppilegt í þessu samhengi. „Orðið hryðjuverkamaður á ekki við þegar verið er að fjalla um heilbrigðisstéttir. Þetta er því af- ar óheppilegt orðaval að ekki sé meira sagt. Þó að menn séu í kjaradeilu og séu harðir í kjara- baráttunni verða menn að gæta sín hvaða orð þeir nota.“ Vegna ummæla Karls Steinars varð lítið úr fundahöldum deiluaðila um helgina. Ingibjörg sagði að sem betur fer væri samningavinnan komin á fullt að nýju. Þetta væri hins vegar flókin og tímafrek vinna. ■ Fyrirheit ráðherra/29 Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson ÚTIMARKAÐUR vinkvennanna. Þær eru frá vinstri: Birna Þórsdóttir, Ýrena Lilja Haraldsdóttir, Margrét Rut Halldórsdóttir, Jóhanna Lind Þrastardóttir og Kolbrún Biraa Ebeneserdóttir. Útimark- aður í vorveðri í Vestmannaeyjum halda menn því fram að vorveður hafí ríkt frá því í apríl í fyrra og gengur tíðin í Eyjum gjarnan undir nafninu „Vorið langa“. Þessar ungu stúlkur sem urðu á vegi ljósmyndara Morgunblaðsins kunna svo sannarlega að njóta góðviðrisins og réðust í það nú um miðjan janúar að halda úti- markað, rétt eins og um há- sumar væri. Stöllurnar höfðu að sögn fullan hug á að láta ágóðann af uppátækinu renna til Rauða krossins og eða skát- anna. ___ Ising sleit raflín- ur á Austurlandi VIÐA varð rafmagnslaust á Fljótsdalshéraði svo og á Borg- arfirði eystra og í Mjóafirði í fyrrinótt og megnið af gærdeg- inum vegna ísingar sem sligaði línur og sleit á nokkrum stöð- um. Starfsmenn Rarik á Egils- stöðum, Neskaupstað og Eski- firði unnu að viðgerðum og átti rafmagnið víðast að vera komið á í gærkvöld og í síðasta lagi í nótt. Þegar frysta tók í fyrrinótt eftir slyddu og snjókomu hlóðst ísing á raflínur. Slitnuðu þær víða og nokkrir staurar brotn- uðu og fór rafmagn af í Fellum, Eiðaþinghá, Hjaltastaðaþinghá, Hróarstungu, Borgarfirði eystra og Mjóafirði. Fyrst tókst að koma rafmagni á í Eiðaþing- há, Fellum og Tungu og um kvöldmat var búist við að raf- magn kæmist á ný á flesta bæi í Hjaltastaðaþinghá og á Borgar- firði. Við bæinn Hlégarð, um miðja Hjaltastaðaþinghá, brotn- aði staur og nokkrir næstu staurar bognuðu. Gera átti við línuna á þessum kafla til bráða- birgða og skoða staurana síðan betur þegar um hægðist. Um tugur manna vann að viðgerð- unum á Héraði. Erfiðast gekk að heQa við- gerðir í Mjóafirði en þangað var sendur flokkur manna með björgunarskipi frá Neskaup- stað. Þar hafði einnig orðið bil- un í spennistöð. Heimir Sveins- son, tæknifræðingur hjá Rarik á Egilsstöðum, vonaðist til að við- gerð þar lyki í gærkvöld eða nótt. Raflina í endurvarps- stöð sligaðist Vaðbrekku, Jökuldal. Einstök blíða hefur verið lengst af á Jökuldal í vetur, undan- tekning er smá skodda um miðj- an nóvember, og segja má að síðan hafi ekki komið frost eða snjór svo teljandi sé. Nú á sunnudagskvöldið og mánudaginn brá svo við að hann gekk í norðan og snjókomu með hálfgerðri bylyitju, sem segja má að sé fyrsti bylur vetrarins. Ekki hefur þó verið mikið frost samfara þessum hvelli sem er lán í óláni, því vegna þess að hiti var um frostmark þegar bylurinn gekk yfir settist ísing á raflínur og raflínan upp í endur- varpsstöðina á Háurð gaf sig á mánudagskvöldið og fóru þá út sjónvarpssendingar, FM send- ingar útvarps og farsímaendur- varpið. Þessi endurvarpsstöð þjónustar efra Jökuldal og þess- vegna er sjónvarps- og farsíma- sambandslaust á efra Jökuldal þar til gert hefur verið við bil- unina en FM sendingar útvarps nást á nokkrum bæjum þar. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir ÍSING hlóðst á raflínur víða á Fljótsdalshéraði í fyrrinótt. Við Hlégarð í Hjaltastaðaþinghá brotnaði staur og nálægir staurar lögðust á hliðina. Elín Hirst til Ríkis- sjónvarpsins ELÍN Hirst, fréttastjóri á Dag- blaðinu-Vísi, verður lausráðin sem fréttamaður á fréttastofu Ríkissjónvarpsins á næstunni og hættir störfum á DV. Ráðn- ing Elínar var kynnt á fundi út- varpsráðs í gær, að sögn Gunn- laugs Sævars Gunnlaugssonar, formanns ráðsins. Elín var áður fréttastjóri Stöðvar 2 og sótti nýlega um starf fréttastjóra Ríkissjón- varpsins, en Helgi H. Jónsson var ráðinn í stöðuna. Skilorðsbundið varðhald fyr- ir lrkamsárás og dráp á hundi KARLMAÐUR í Neðstaleiti í Reykjavík var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í 30 daga skilorðsbundið varðhald fyrir lík- amsárás á nágrannakonu sína og fyrir að hafa drepið tík sem var í hennar umsjá í maí á seinasta ári. Var maðurinn sakfelldur fyrir líkamsárás og þótti dómaranum fjarstæðukennd sú frásögn hans að tíkin hefði valdið sér sjálf þeim áverkum sem leiddu til dauða hennar. Þótti sannað að tíkin hefði drepist af áverkum, sem ákærði veitti henni, enda þótt ósannað væri hvort það hefði verið vegna barsmíða og sparka eða þeirrar Frásögn ákærða af dauða hundsins sögð fjarstæðukennd háttsemi sem hann hefði sjálfur lýst og dýralæknar telja hafa get- að valdið dauða hennar, að því er segir í dómsniðurstöðu. Snöggt ójafnvægi Þótti 30 daga skilorðsbundið varðhald hæfileg refsins þar sem ákærði hefði ekki áður hlotið refs- ingu og hefði að best yrði séð framið brot sín vegna snöggs ójafnvægis, sem eigi augljóslega rætur að rekja til sífelldra ögrana eigenda hundsins með brotum þeirra á banni við hundahaldi í um- ræddu fjöleignarhúsi, að því er segir í dómsniðurstöðunni. Óllum bótakröfum eigenda hundsins var vísað frá dómnum og var ákærði einnig sýknaður af kröfii um að hann verði sviptur heimild til þess að hafa dýr í umsjá sinni. Var manninum hins vegar gert að greiða allan sakarkostnað og 100 þús. kr. málsvamarlaun verjanda síns. Sverrir Einarsson héraðsdómari kvað upp dóminn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.