Morgunblaðið - 14.01.1998, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998
MORGUNBLADIÐ
FRÉTTIR
Stefnumótun í upplýsingamálum innan heilbrigðiskerfísins
Heilbrigðisnet fyrir starfsmenn
og heilsuvefur fyrir almenning
Morgunblaðið/Þorkell
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðis- og tryggingamáiaráðherra kynnti nýja stefnumótun í upplýsingamál-
um innan heilbrigðiskerfisins á blaðamannafundi í gær.
STEFNUMÓTUN í upplýsinga-
málum innan heilbrigðiskerfisins er
heiti rits sem út er komið á vegum
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins. Ritið inniheldur tillögur
sem nefnd um stefnumótun í upp-
lýsingamálum heilbrigðisþjónust-
unnar skilaði nýlega til ráðherra,
ásamt lýsingu ráðuneytisins á því
hvemig staðið verði að framkvæmd
tillagnanna. Stefnumótunin tekur til
næstu tíu ára og er framhald á
vinnu ráðuneytisins vegna stefnu-
mörkunar ríkisstjórnarinnar um
upplýsingaþjóðfélagið sem lögð var
fram árið 1995.
í formála Ingibjargar Pálmadótt-
ur heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra að ritinu kemur fram að
ráðuneytið leggi megináherslu á
eftirtalin stefnumið við uppbygg-
ingu fjarskipta-, tölvu- og upplýs-
ingakerfis heilbrigðisþjónustunnar:
Þjónusta við sjúklinga verði bætt,
trúnaður við sjúklinga tryggður,
kostnaði haldið í skefjum, stjómun
gerð einfaldari og skilvirkari og að-
gangur að upplýsingum fljótvirkari
og öruggari.
Eitt af meginmarkmiðunum sem
stefnumótunin byggist á er að gæði
og hagkvæmni heilbrigðisþjónust-
unnar verði aukin með markvissri
uppbyggingu og nýtingu upplýs-
ingatækni. Þannig er t.d. ætlunin að
koma á tölvusamskiptum milli allra
aðila sem tengjast heilbrigðisþjón-
ustunni og skipulagningu hennar,
svokölluðu heilbrigðisneti. Þar
verður hægt að skiptast á upplýs-
ingum sem nú er miðlað bréflega,
eins og t.d. læknabréfum, lyfseðlum
og rannsóknasvömm. Heilbrigðis-
netið verður lokað og um það munu
gilda strangar öryggisreglur.
Þá stendur til að byggja upp sam-
hæfð upplýsingakerfi fyrir stofnanir
heilbrigðisþjónustunnar. Heilsu-
gæslustöðvamar em í þann veginn
að taka upp samræmt upplýsinga-
kerfi en fram að þessu hefur lítið
samráð verið milli sjúkrahúsanna
um uppbyggingu kerfa. Guðbjörg
Sigurðardóttir, varaformaður
nefndarinnar og formaður stýrihóps
um stefnumótun í upplýsingamálum
innan heilbrigðiskerfisins, segir þá
miklu uppbyggingu sem framundan
er háða því að starfsmönnum á öll-
um sviðum kerfisins takist að vinna
saman að þróun samræmdra kerfa.
Varðveisla og öryggi gagna
verði tryggð
Fjarlækningar era eitt af lykil-
orðunum í heilbrigðisþjónustu
framtíðarinnar en með þeim verður
unnt að bæta aðgengi landsmanna
að þjónustunni. A undanfömum ár-
um hafa verið gerðar tilraunir með
að senda röntgenmyndir á tölvu-
tæku formi um símalínu frá sjúkra-
húsum á landsbyggðinni til sérfræð-
inga á Landspítalanum og sem ann-
að dæmi um fjarlækningar nefnir
heilbrigðisráðherra að innan
skamms verði hægt að taka heila-
línurit af sjúklingi á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, sem svo
verði lesið úr á Landspítalanum.
Þetta fyrirkomulag hafi í för með
sér mikinn spamað auk þess sem
veralegt hagræði sé að því að draga
úr ferðalögum sjúklinga.
Annað meginmarkmið sem byggt
er á er að varðveisla og öryggi gagna
verði tryggð með viðeigandi tækni
og öryggisstöðlum og verður megin-
reglan sú að gögn séu varðveitt þar
sem þau verða til. Þá skal gæta þess
að tryggja friðhelgi einkalífs þegar
ný tækni er innleidd. Guðbjörg segir
þetta afar mikilvæg atriði, ekki síst
vegna þess að nú á tímum sé safnað
mun meira magni upplýsinga um
heilsufar einstaklinga en nokkra
sinni og ásókn í slíkar upplýsingar sé
gífurlega mikil.
Enn eitt meginmarkmið er að al-
menningur eigi kost á greiðum sam-
skiptum við heilbrigðiskerfið og að-
gangi að þjónustu og upplýsingum
um heilbrigðismál með aðstoð upp-
lýsingatækninnar. Þannig er t.d.
ætlunin að koma á svokölluðum
heilsuvef, þar sem tengdir verða
saman gagnagrannar með upplýs-
ingum um heilbrigðisþjónustu, heil-
brigðismál og heilbrigðisfræðslu.
Heilbrigðisráðuneytinu til aðstoð-
ar við framkvæmd stefnunnar verð-
ur samstarfsráð í upplýsingamálum,
sem sldpað verður fulltrúum Land-
spítala, Sjúkrahúss Reykjavfloir,
Landlæknisembættisins, Lands-
samtaka heilsugæslustöðva, Lands-
sambands sjúkrahúsa á íslandi og
Tryggingastofnunar ríkisins, auk
fulltrúa ráðuneytisins, sem stýrir
starfi ráðsins.
Suðurskautsfararnir
til Islands í dag
Héldu „litlu
jólin“ í Or-
lando í gær
ÍSLENSKU suðurskautsfararnir,
Ólafur Öm Haraldsson, Haraldur
Öm Ólafsson og Ingþór Bjarnason,
vom væntanlegir til Keflavíkur
snemma í morgun með Flugleiða-
vél frá Flórída í Bandaríkjunum.
Hefur ferðalag þremenninganna
frá Suðurskautslandinu á undan-
förnum dögum verið bæði langt og
strangt, að sögn Haraldar, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í gær
skömmu áður en þeir lögðu af stað
áleiðis til íslands.
Þremenningamir komu í gær-
morgun til Orlando og dvöldu þar í
góðu yfirlæti á meðan beðið var
eftir flugi heim til íslands. Voru
þeir hjá Örvari Ólafssyni, sem er
sonur Ólafs Arnar og bróðir Har-
aldar, en hann er við nám í
Flórída. „Það var tekið vel á móti
okkur. Við voram að borða hangi-
kjöt með uppstúf og öllu tilheyr-
andi. Þetta er í fyrsta skipti sem
við náum að setjast aðeins niður og
slaka á. Maður er fyrst núna að
átta sig á að þetta sé allt um garð
gengið. Það má segja að við séum
að halda „litlu jólin“ hérna,“ segir
Haraldur.
Mikil tilhlökkun að koma heim
„Það er mikil tilhlökkun að
koma heim. Þetta er búinn að vera
langur túni en ánægjulegur. Við
töfðumst talsvert á Suðurskauts-
landinu en eftir að veðrið gekk nið-
ur og tókst að fijúga höfum við
verið á stanslausu ferðalagi," segir
Haraldur. Eftir að hafa verið veð-
urtepptir í Patriot Hills-stöðinni í
heila viku flugu þeir til Punta
Arenas í Suður-Chile og komu
þangað að næturlagi. Þaðan var
svo flogið tíl Santiago og áfram
með næturflugi til Orlando í fyrr-
inótt.
Haraldur segir þá þremenninga
hafa jafnað sig ágætlega af kali
sém þeir fengu á göngunni á Suð-
urpólinn. „Þetta hefur gróið mjög
vel og það er allt annað að sjá okk-
ur í dag en þegar við komum á pól-
inn,“ sagði Haraldur.
Forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra efna til móttöku fyrir
Suðurpólsfarana í Ráðherrabú-
staðnum í dag.
Mismunur á landgæðum ríkja og neyzlunnar af þeim
Island með mestan
„vistfræðilegan afgangu
ÍSLAND er með mestan „vistfræði-
legan afgang“ allra ríkja, samkvæmt
endurskoðaðri skýrslu rannsóknar-
stofnunarinnar Centre for Sustaina-
bility Studies. Þetta þýðir að hlut-
deild íslands í gæðum jarðarinnar er
meiri en neyzla þjóðarinnar af auð-
æfum landsins og fiskimiðanna.
Ekkert ríki á jafnmikinn „vistfræði-
legan auð“ á hvern íbúa, samkvæmt
niðurstöðum skýrslunnar, en ófáar
þjóðir nota meira af gæðum jarðar-
innar á hvem íbúa en Islendingar.
Skýrsla stofnunarinnar kom fyrst
út í fyrra og kom ísland þá afar illa
út í samanburði við önnur rfld. Nið-
urstaða stofnunarinnai- þá var sú að
ekkert land ofnýtti náttúragæði
jafnmikið. ísland ætti þvi heimsmet í
„vistfræðilegum hallarekstri".
Niðurstöðum breytt vegna at-
hugasemda ráðuneytis
I fréttatilkynningu frá umhverfis-
ráðuneytinu kemur fram að eftir út-
komu skýrslunnar hafi ráðuneytið
farið ofan í saumana á útreikningum
þeim, sem að baki niðurstöðunum
lágu, og komizt að því meðal annars
að auðlindum hafsins hafi verið skipt
jafnt á milli allra jarðarbúa. Þannig
hafi hver íbúi í landluktum ríkjum á
borð við Sviss talizt eiga jafnmikla
hlutdeild í auðæfum hafsins og hver
íslendingur. Frjósemi og afrakstrar-
geta lands hafi hins vegar verið ná-
kvæmlega metin.
Ráðuneytið segist hafa sent einum
höfunda skýrslunnar athugasemdir
og ábendingar og í kjölfar þess hafi
skýrsluhöfundar ákveðið að endur-
skoða aðferðafræði sína og skipta
auðlindum hafsins á milli ríkja eftir
hlutdeild þeirra í heimsafla.
Neyzla íslendinga með því
mesta sem gerist
Eftir sem áður er neyzla Islend-
inga af gæðum náttúrunnar með því
mesta sem gerist. Skýrsluhöfundar
nota þá aðferð að umreikna öll gæði
náttúrannar yfir í hektara ræktar-
lands. Samkvæmt þeirri aðferða-
fræði nemur neyzla Islendinga 7,4
hekturam á mann. Af 52 ríkjum, sem
athugunin nær til, era aðeins Banda-
ríkin, Ástralía, Kanada og Nýja Sjá-
land þurftafrekari á gæði jai-ðar.
Fram kemur að væri eingöngu
tekið tillit til landgæða á Islandi
sjálfu stæðu þau engan veginn undir
neyzlu þjóðarinnar. Þegar hlutdeild
íslands í auðæfum hafsins hefur hins
vegar verið reiknuð inn í dæmið
snýst það við, þannig að náttúraauð-
ur íslendinga telst þrisvar sinnum
meiri en það, sem af er tekið til inn-
anlandsneyzlu, eða sem nemur 21,7
hekturum á mann. Afgangurinn er
14,3 hektarar á mann.
Gæði jarðar ofnýtt
Eingöngu Nýja Sjáland telst búa
við svipaðar aðstæður. ísland er efst
á lista yfir þau ríki, sem skila „vist-
fræðilegum afgangi" í heimsbúskap-
inn. Hong Kong og Singapore, fjöl-
menn ríki með afar lítið landrými og
litlar auðlindir, teljast vera rekin
með mestum „vistfræðilegum halla“.
I heild komast höfundai- skýrsl-
unnar að því að íbúar ríkjanna, sem
skoðuð vora, en í þeim búa fjórir
fimmtuhlutar mannkynS, ofnýti gæði
jarðar og að neyzla þeirra sé um 35%
meiri en vistkerfi þeirra geti staðið
undir tfl lengri tíma litið.
Nýja útgáfu skýrslunnar er að
finna á veraldarvefnum og er slóðin:
http://www.ecouncil.ac.cr/rio/
NOTKUN Á GÆÐUM JARÐAR
Samanburður á íslandi og nokkrum ríkjum
RÍKI í ÍSLAND Landgæði Neyslaágæðum I hekturum nátturunnar Vistfræðilegur
j hvern íbúa 21,7 . ha/íbúa 7,4 afgangur/halli
Nýja Sjáland 20,4 7,6 c mmmmm
Perú 7,7 1,6 □ I 6,1
Ástralía 14,0 9,0 □ □ 5,0
Finnland 8,6 6,0 c □ 2,6
Kanada 9,6 7,7 □ 1,9
Svíþjóð 7,0 5,9 □ 1,1
Frakkland 4,2 4,1 1°,1 --
Noregur 6,3 6,2 |0,1 /K
Bangladesh 0,3 0,5 -0,2 S
Eþíópía 0,5 0,8 -0,31 /
Kína 0,8 1,2 -0,41 1 - nðw jjip ytA
Danmörk 5,2 5,9 ■0,7 □
Nígeria 0,6 1,5 -0,9 i
Ungverjaland 2,1 3,1 -1,0@ j
Thaíland 1,2 2,8 -1,6D l / \ /
Rússland 3,7 6,0 -2,30 \ w****91W
Þýskaland 1,9 5,3 -3.4 n i í \
Japan 0,9 4,3 -3.41 I / V \ ( áú.k
Bretland 1,7 5,2 -3,5 r I \ /
Holland 1,7 5,3 -3,6I I V *■ r ■ i-j-iÉáiSn /
Bandaríkin 6,7 10,3 -3,61 I 1
Belgía 1,2 5,0 -3,81 I