Morgunblaðið - 14.01.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998 19
tímann eða aftur til þess að hrepps-
nefndin kom í veg fyrir að BSRB
gæti byggt þar upp sumarbústaða-
hverfi. Síðan hefur stundum komið
upp ágreiningur á milli hrepps-
nefndarinnar og þeirra bænda sem
verið hafa að skipuleggja og byggja
upp sumarbústaðahverfi. Fólkið
sem bauð fram á móti hreppsnefnd-
inni fyrir síðustu kosningar er flest
að selja sumarbústaðalóðir eða
hyggst gera það.
Hvaða áhrif hafa deilurnar?
Fólkið sem bauð fram á móti
gömlu hreppsnefndinni er almennt
meðmælt sameiningu Skorradals-
hrepps við aðra hreppa Borgar-
fjarðarsýslu. Sumir vilja reyndar
sjá stærri sameiningu. Rökin fyrir
sameiningu eru þau sömu og annars
staðar, erfiðleikar á framkvæmd
nýrra verkefna, skilvirkari stjómun
og aukinn styrkur til atvinnuupp-
byggingar. Því til viðbótar nefnir
Pálmi Ingólfsson á Hálsum, hrepps-
nefndarmaður úr meirihlutanum, að
í litlum sveitarfélögum eins og
Skorradalshreppi verði návígið mik-
ið og öll mál persónugerð. Hvert
einasta mál sem fjallað er um í
hreppsnefnd snerti hreppsnefndar-
mennina sjálfa á einhvern hátt. Þá
segir hann að félagsleg vandamál
komi ekki upp á yfirborðið eins og
eðlilegt þyki í stærra samfélagi, fólk
veigri sér við að leita hjálpar þegar
það geti átt von á því að nágrann-
amir fjalli um málin. Því þurfi að
leggja niður þessi litlu sveitarfélög.
Jón Jakobsson í Dagverðamesi tek-
ur í sama streng þegar hann ræðir
um deilurnar í sveitinni í viðtali við
Morgunblaðið í síðustu viku: „Ég tel
að þetta sýni hvað það er lífsnauð-
synlegt að færa stjómvaldið út úr
hreppnum svo þessar örfáu mann-
eskjur, sem hér em hversdagslega,
geti hætt að berjast innbyrðis."
Sameiningarfólkið telur að mikill
meirihluti sé gegn sameiningu í
hreppnum og hefur þess vegna lagt
á það áherslu að halda íbúafjöldan-
um innan við 50, þó það hafi kostað
nokkur atkvæði. Davíð Pétursson
oddviti á Gmnd segist ekki vita
hvernig staðan sé nú. Sjálfur segist
hann vera hlynntur frjálsri samein-
ingu en á móti þvingaðri. Hann seg-
ir að miðað við þá miklu samvinnu
sem sveitarfélögin í Borgarfjarðar-
sýslu norðan Skarðsheiðar hafi með
sér væri æskilegt að þau sameinuð-
ust þegar að því kæmi. Sameining
þessarra sveitarfélaga var felld með
miklum mun í Skorradal í stóm
sameiningarkosningunum 1993. Da-
víð segir, þegar hann er spurður að
því hvað hafi breyst síðan, að al-
menn þróun í átt til sameiningar
sveitarfélaga hafi sín áhrif. Þá hafi
það jákvæð áhrif að Hvítársíðu-
hreppur sé nú inni í dæminu.
Ljóst er að deilumar hafa áhrif á
sameiningarkosningarnar í Skorra-
dalshreppi, menn em hins vegar
ósammála um hvort þær hafa snúið
fólki til sameiningar eða frá. Davíð
Pétursson telur að deilumar hafi
haft neikvæð áhrif á sameiningar-
málin. Þá hafi fimm sameiningar-
sinnar með kosningarétt flutt sig úr
hreppnum. Pálmi Ingólfsson telur
að andstæðingar sameiningar hafi
haft mikinn meirihluta fyrir. Hins
vegar hafi deilurnar varpað skýrn
ljósi á málið og menn eigi nú ekki
aðra útleið en að greiða atkvæði
með sameiningu.
Boðað verður til hreppsnefndar-
fundar til að fara yfir íbúaskrá Hag-
stofunnar strax og hún berst til
hreppsins. Pálmi Ingólfsson segir
ljóst að hreppsnefndarmenn muni
gera athugasemdir við íbúaskrána.
Davíð Pétursson vill ekki tjá sig um
kjörskrárdeiluna, segir að sam-
komulag hafi orðið um það í hrepps-
nefndinni þegar kjörskrá var sam-
þykkt að hætta að deila um málið á
opinberum vettvangi.
Ef sameining verður felld í
Skorradalshreppi er Ijóst að reynt
verður að kæra fólk út af íbúaskrá
til þess að koma íbúatölunni aftur
niður fyrir leyfilegan lágmarks-
fjölda þannig að hreppurinn verði
að sameinast þrátt fyrir allt. Ef til
þessa kemur hefst vinna, sem full-
trúi félagsmálaráðuneytisins stýrir,
við að undirbúa sameiningu við ná-
nirigu 6 sveitarfélaga
i 7. janúar _____
Akranes
SAMEINING SVEITARFÉLAGA í BORGARFIRÐI
vegna þess hvað þessi sveitarfélög
hafi haft með sér mikið samstarf
hafi þótt rétt að reyna sameiningu
þeirra, áður en farið væri að athuga
aðra möguleika. Á það reyni nú og
málið sé einfaldlega ekki komið
lengra.
Margir íbúar á þessu svæði vilja
ekki sameiningu við Borgames,
telja að sveitimar yrðu afgangs-
stærð í rekstri slíks sveitarfélags.
Bætist þetta við gamalgróna tor-
tryggni sumra íbúa og forystu-
manna í garð Borgnesinga. Gunnar
Bjarnason, oddviti Reykholtsdals,
útilokar ekki frekari sameiningu í
héraðinu en telur heppilegt að byrja
á því að sameina sveitahreppana.
„Ég reikna með því, miðað við
það hvernig þróunin er í öðmm hér-
uðum. Ekki er hægt að horfa fram
hjá því,“ segir Svava þegar hún er
spurð hvort ekki kæmi til greina að
ganga síðar til sameiningar við
Borgarbyggð.
Kosið aftur
Til þess að sameiningin nái fram
að ganga þarf meirihluta í öllum
sveitarfélögunum sex. Ef samein-
ingin verður felld einhvers staðar
munu hreppsnefndimar strax taka
ákvörðun um það hvort kjósa skuli
aftur um sameiningu þeirra sveitar-
félaga sem samþykkja. Að sögn
Svövu Kristjánsdóttur fer fram-
haldið að sjálfsögðu eftir því
mynstri sem kemur út úr atkvæða-
greiðslunni núna um helgina. Hún
telur til dæmis vel koma til greina
að sameina Reykholtsdalshrepp og
Andakílshrepp, þótt aðrir felldu
sameiningu en segist þó heldur vilja
sjá sem flesta af hinum hreppunum
með.
Verði sameining felld í Hvítársíðu
og/eða Skorradal en samþykkt í
hinum sveitarfélögunum verða vafa-
laust greidd atkvæði að nýju í þeim
sveitarfélögum sem samþykkja.
Sumir af forystumönnum hrepp-
anna óttast áð brottfall eins eða
tveggja hreppa muni hafa neikvæð
áhrif í seinni atkvæðagreiðslunni,
sameining kunni jafnvel að verða
felld einhvers staðar í seinni um-
ferðinni og þá verði allt unnið fyrir
gýg. Er því lögð mikil áhersla á að
fá sameininguna samþykkta í fyrstu
umferð
Atkvæðagreiðsla um samei
í Borgarfirði
Hvitársíöuhreppur
>o | Halsahreppur
■Reykholtsdals- v fK
V^ePPur_V_^
25 km
íbúafjöldi 1. des. 1997"
Skorradalshreppur 52
Lundarreykjadalshr. 96
Andakílshreppur 280
Reykholtsdalshreppur 221
Hálsahreppur 89
Hvítársíðuhreppur 82
SAMTALS 820
* Bráðabirgðatölur Haqstofu ísl.
ESTEE LAUDER
Húðumhirða
Snyrtitaska full af húðsnyrtivörum sem henta þinni húðgerð
grannasveitarfélag eða -sveitarfé-
lög. Þá hljóta að vakna spurningar
um það hvemig beri að líta á niður-
stöðu sameiningarkosninganna, til
dæmis hvort hún verði túlkuð
þannig að íbúarnir hafni samein-
ingu við sveitarfélögin sem þátt
taka í þessari sameiningu.
Tvísýnt í Hvítársíðu
Skiptar skoðanir virðast einnig
vera í Hvítársíðu. Sveitarfélagið er í
Mýrasýslu en efri hluti þess mynd-
ar meiri landft-æðilega heild með
Hálsahreppi. Börn úr efri hluta
hreppsins eru í skóla á Kleppjáms-
reykjum en börnin úr neðri hlutan-
um á Varmalandi. Ágreiningurinn
er því fyrst um það hvort yfirleitt
skuli sameina sveitarfélagið öðmm
og síðan um það hvert skuli samein-
ast. Þessi tvíþætti ágreiningur gerir
fólki það enn erfiðara en ella að átta
sig á stöðu sameiningarmála í Hvít-
ársíðu.
Vegna viðræðna um sameiningu í
Mýrasýslu og Borgarfjarðarsýslu
ákvað hreppsnefnd Hvítái-síðu-
hrepps að kanna vilja hreppsbúa til
málsins. Kom þá í ljós að meirihluti
íbúanna vildi sameiningu og að hug-
ur þeirra stefndi frekar til samein-
ingar við sveitarfélögin í Borgar-
fjarðarsýslu. Varð það til þess að
hreppsnefndin leitaði eftir aðild að
viðræðunum þar. Oddvitinn, Ólafur
Guðmundsson á Sámsstöðum, telur
tvísýnt um úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar.
Sameining Mýrasýslu var kolfelld
í Hvítársíðu í stóru sameiningar-
kosningunum 1993. Ólafur telur að
sú almenna sameiningarbylgja sem
gengur yfir landið um þessar mund-
ir hafi áhrif á fólk, auk ótta við áhrif
þess á fjárhag sveitarfélaganna ef
nægar tekjur fylgja ekki tilflutningi
grannskólakostnaðarins frá ríki til
sveitarfélaga. Þá nefnir hann að
þegar verið sé að ræða sameiningu
sveitarfélaga beggja vegna Hvítár-
síðu telji margir að erfítt verði að
standa þar utan við.
Liður í frekari sameiningu
Þær raddir heyrast á svæðinu að
liðlega 800 manna sveitarfélag í
Borgarfjarðarsýslu sé ekki nógu
öflug eining. Ólafur Guðmundsson á
Sámsstöðum telur skynsamlegt að
sameina allt Borgarfjarðarhérað
norðan Skarðsheiðar og syðstu
hreppa Snæfellsness og telur líkur
á að sú verði þróunin í framtíðinni.
Pálmi Ingólfsson, hreppsnefndar-
maður í Skorradalshreppi, telur að
sameiningin nú sé aðeins byrjunin,
hann talar um sameiningu alls hér-
aðsins eftir eitt eða tvö kjörtímabil
og síðar kunni að koma til samein-
ingar við Akranes, helst þannig að
Vesturlandskjördæmi yrði aðeins
tvö sveitarfélög. Svava Kristjáns-
dóttir, formaður sameiningarnefnd-
ar, segir að vissulega sé sú eining
sem nú er stefnt að tiltölulega smá
miðað við það sem menn sjái gerast
annars staðar á landinu. Sveitarfé-
lögin verði þó mun öflugri sameinuð
en þau eru í dag. Hún segir að
HVANNEYRI verður stærsti þéttbýliskjarninn í nýju sveitarfélagi,
ef íbúar sex hreppa f Borgarfirði samþykkja sameiningu.
tSTEE IAUDER
.
Sptísh A
laskjjnjnnihgldur
* Splash Away eða Tender Creme hi’éinsir
* Resilience Elastin Refirming krem eða lotion,
* Clean Finish andlitsvatn
* Resilience Body Lotion
* Perfect Lip varanæringu
* Pure Velvet Dramatic Volume maskara.
* Hárbursta.
Tilboðsverð fyrir normal/þurra eða normal/feita húð kr. 2.970 (verðgildi kr. 7.400). Meðan birgðir endast.
Útsölustaðir:
Brá Laugavegi, Gullbrá Nóatúni, Hygea Austurstræti, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi, Sara Bankastræti, Snyrtistofan
Maja Bankastræti, Snyrtistofan Hrund, Grænatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Amaró, Akureyri, Apótek Keflavíkur.
Cr«l-w