Morgunblaðið - 14.01.1998, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Fyrstu myndlistarsýningarnar á tuttugu ára afmæli Nýlistasafnsins
Gúlliver á
töfraeyjmini
Islandi
Morgunblaðið/Ásdís
INNSETNING Alenu Hudcovicovu og Matjazar Stuks heldur áfram
þar sem ævintýri Swifts um Ferðir Gúliivers lauk.
KORTAHERBERGI Gúllivers,
nefnist innsetning listamannanna
Alenu Hudcovicovu og Matjazar
Stuks í Gryfju Nýlistasafnsins.
Alena kemur frá fyrrverandi
Tékkóslóvakíu og Matjaz kemur
frá fyrrverandi Júgóslavíu. Þau
búa í Hollandi og þaðan hafa þau
fylgst með þeim miklu sviptingum
sem orðið hafa í heimalöndum
þeirra á síðustu árum. Ferðasaga
Gúllívers lýsir þeim aðstæðum sem
mæta ævintýrapersónunni á ferð
sinni um Evrópu samtímans, 300
árum eftir að þetta alkunna ævin-
týri Jonathans Swifts kom fyrst út.
Sama verkefni hafa þau Aíena og
Matjaz áður sett upp á sýningum í
Dresden og Berlín en innsetningin
er alltaf löguð að sýningarstaðnum.
A Islandi gengur Gúllíver í gegn-
um hreinsun sálar og líkama, ham-
skipti. „Gúllíver var orðinn þreytt-
ur eftir að hafa fylgst með hörm-
ungunum í fyrrverandi Júgóslavíu
og öllum lygunum sem spunnar
voru upp í kringum stríðið,“ segir
Alena. „Hann kom til að hreinsa
sálina og öðlast aftur von á fram-
tíðina." Fyrir þeim er ísland sann-
kölluð töfraeyja, líkt og sprottinn
af lýsingum Swifts á framandi
stöðum.
Ferðalangur óháður
tíma og rúmi
Landakort Gúllívers hanga í
Gryfjunni og lýsa hughrifum lista-
mannanna af stríðinu í Júgóslavíu,
„stríðsferðamannaiðnaðinum“ sem
stjómmálamenn með dyggri að-
stoð heimspressunnar bjuggu til í
kringum einar þær mestu hörm-
ungar sem gengið hafa yfír Evr-
ópuþjóð á seinni tímum. „Landa-
kortin lýsa því hvað verður um
manneskjur sem eru umluktar
vonsku og hatri," segir Alena. „Því
hvemig þær fyllast sjálfar
vonsku." Innsetningin býr yfír
margvíslegum túlkunarmöguleik-
ar, viðfangsefnið er margþætt og
ekki alltaf af pólitískum rótum
spunnið eða háð ákveðinni stund og
ákveðnum stað. „Innsetningin er
okkar persónulega sýn á fortíð, nú-
tíð og framtíð. Landakort Gúllívers
lýsa stríðshörmungum fortíðarinn-
ar en í heimsókn sinni á íslandi
gengur Gúlliver í gegnum sjálfs-
hreinsun í þessu landi hvera og
vatna,“ segir Alena. Gamli hamur
vonskunnar liggur undir glerkúpli
líkt og fornminjar á safni og það
býr von í heimssýn framtíðarinnar.
Frá segulbandi hljómar Ævintýri
Gúllivers og við opnun sýningar-
innar sl. laugardag var ævintýrið
einnig flutt af Heymleysingjakóm-
um. „Okkur þótti vel við hæfi að
leita liðsinnis heyrnalausra þvi það
er líkt komið fyrir þeim og okkur
hér á Islandi, þ.e. við skiljum ekki
mælt mál. Líkt og myndlist er
táknmál sjónmál og þvi þótti okkur
spennandi að stefna einnig þessum
tveimur heimum saman,“ segir
Alena og bætir við að það kostu-
lega sé að fyrir þeim hljómi ís-
lenskan helst eins og sú furðu-
tunga sem Swift skapaði í ævintýri
sínu.
„Listin verður að vera stjórn-
málum ofar sett“
Matjaz og Alena hafa búið í
Hollandi um langt árabil þar sem
þau vom við myndlistamám. Þau
höfðu unnið saman að verkefnum
sem þau segja sprottin af ást og
einlægni, verk sem voru mun ljóð-
rænni en verkefnið um Gúlliver.
„Svo kom stríðið og okkur fannst
við ekki lengur geta setið hjá.
Þetta stríð hreyfði við okkur bæði
persónulega og sem listamönnum
og nýtt verkefni fór að þróast í
samræðum og samvinnu okkar,“
segir Matjaz. „Hugmyndin byggir
á þeim lygum sem urðu til í kring-
um stríðið. Áður vom 40% af
hjónaböndum í Júgóslavíu blönduð
en skyndilega höfðu stjómmála-
menn og fjölmiðlar sannfært fólkið
í landinu um að því bæri að hata
aðrar manneskjur á forsendum
trúarskoðana þeirra. Þetta var
stríð stjómmálamanna um landsyf-
irráð, stjómmálamanna sem allir
vora kommúnistar en skiptu síðan
klæðum og fóm ýmist að kalla sig
nöfnum eins og lýðræðissinnar eða
þjóðemissinnar. I fjölmiðlum var
það hins vegar blásið upp að orsak-
ir stríðsins lægju í hatri fólksins.
Og þá datt okkur Gosi í hug. Þetta
vom allt Gosar sem lugu hver í
kapp við annan.“ Fyrsta verkið
sem byggði á þessum hugmynd
listamannanna nefndist Bon voya-
ge, Monsieur le President, og var
tileinkað Mitterand Frakklands-
forseta, „sem heimsótti Sarajevó
einn sólskinsdag þegar stríðið stóð
sem hæst, keyrði um borgina,
kvaddi síðan og sneri aftur til síns
heima, án þess að skilja nokkuð
eftir sig.“ Upp frá þessu varð Sara-
jevó vinsæll viðkomustaður þjóð-
höfðingja og „stríðsferðamannaiðn-
aðurinn“ tók að blómstra. „Niður-
staða okkar varð sú að maður yrði
að gæta ýtrastu varfæmi til að láta
ekki blekkjast af boðskapi heims-
pressunnar og túlkun hennar á
stríðinu,“ segir Alena. Nútímaæv-
intýrið um hinn víðförla Gúlliver
varð til í framhaldi af hugmyndum
þeirra um Gosa og Gúlliver hefur
fengið talsvert svipmót af spýtu-
stráknum og nefinu sem bregst svo
fljótt við lygum. „Stríð í heiminum
hefur alltaf haft áhrif á listina. Eft-
ir fyrri heimsstyrjöldina gátu
myndlistarmenn t.d. ekki lengur
málað í stíl impressionismans og
kaldur og vélrænn stíll kúbismans
tók við,“ segir Matjaz. „Það er hins
vegar mjög mikilvægt að listin sé
stjórnmálum ofar sett eins og Swift
sýndi fram á með persónu sinni
Gúlliver."
Morgunblaðið/Ásdís
BRESKI listamaðurinn Chris Hales sýnir margmiðlunarkvikmyndir í Nýlistasafninu.
Ahorfandinn býr
til eigið bíó
BRESKI listamaðurinn Chris
Hales sýnir sjö margmiðlunarkvik-
myndir í Svarta sal Nýlistasafns-
ins. í gegnum sérstakan tölvu-
tengdan útbúnað sem listamaður-
inn hefur hannað getur áhorfand-
inn haft virk áhrif á framvindu
kvikmyndanna. Verk Chris hafa
vakið athygli víða um heim á síð-
ustu misseram og tvær kvikmynd-
anna hafa verið gefnar út á geisla-
plötum fyrir heimilistölvur.
Chris Hales kennir tölvunotkun
í myndlist við listaskólann í
Bristol. Hann stundar auk þess
doktorsnám i gerð margmiðlunar-
kvikmynda við Konunglega lista-
skólann í Lundúnum. Honum þyk-
ir spennandi að rannsaka beint og
gagnvirkt samband áhorfandans
við listaverkið, hvemig listin svar-
ar viðbrögðum áhorfandans og öf-
ugt. „Verk mín standa á mörkum
tveggja heima og eru sífelldum
breytingum undirorpin. Þau krefj-
ast bæði einbeitingar og þátttöku
áhorfandans en ég lít þó alls ekki á
kvikmyndir mínar sem tölvuleiki
heldur list sem áhorfandinn getur
haft bein áhrif á,“ segir Chris.
Hann lærði myndlist á sínum
yngri áram en sá fljótt að hann
yrði að fínna sér betur launað starf
og hóf nám í grafískri hönnun á
tölvur. „Þessi heimur er tiltölulega
ósnertur og mjög spennandi rann-
sóknarefni. Tækninni fer ört fram
og í margmiðlunarkvikmyndum
þykist ég hafa fundið leið til að
sameina fagurfræðileg gildi listar-
innar og tölvutækninnar."
Með því að benda á ákveðna
hluti kvikmyndarinnar sem tölva
varpar á sérhannaðann snertiskjá
getur áhorfandi’. i.aft áhrif á
framvindi. yi.vndHtinnar •> T,: -
um. Snertingin verður þó að eiga
sér stað á réttum tíma í framvindu
sögunngr og áhorfandinn verður
að fylgjast vel með því sem fram
fer á skjánum til að átta sig á
hverjir möguleikarnir era þá
stundina. Sumar kvikmyndanna
era einfaldar að uppbyggingu,
stuttar gamansögur eða frásagnir
þar sem það er undir áhorfandan-
um komið hvort hann kærir sig um
að hlusta á til enda sögu gamla
mannsins Lens af barnæsku sinni
eða hvort hann vill heldur hlýða á
aðra sögu, t.d. reynslusögu Lens
úr stríðinu. Aðrar kvikmyndir era
listrænni, dramatík án upphafs og
endis eins og kvikmyndin Lagan
sem bregður upp mynd af ungri
konu og anda látins elskhuga
hennar.
Chris segir að allt að 6 mánaða
vinna liggi að baki gerð hverrar
kvikmyndar og í raun hefði hann
getað haldið áfram að vinna
hverja mynd út í það óendanlega,
slíkir séu möguleikar formsins.
„Mér finnst mjög gaman að fylgj-
ast með viðbrögðum áhorfenda
við myndunum og vali þeirra á að-
gerðum. Engir tveir áhorfendur
bregðast eins við en fólk er yfir-
leitt mjög fljótt að átta sig á þeirri
aðferð sem beita þarf hverju
sinni. Það eru ekki síst viðbrögð
áhorfenda sem gefa mér hug-
myndir að nýjum aðferðum við
gerð kvikmyndanna sem eru auð-
vitað fyrst og fremst tilraunir,"
segir Chris.
Sýningar Nýlistasafnsins um
þessar mundir era fimm. Ásamt
þeim Alenu Hudcovicovu og
Matjazar Stuks sem sýna Korta-
herbergi Gúllivers í Gryfju og
sýningu Chris Hales í Svarta sal,
sýnir Pálína Guðmundsdóttir ný-
leg málverk í Forsal. Hildur
Bjarnadóttir sýnir verk sín, á
mörkum skreytingar og hug-
myndalistar í Bjarta sal og Einar
Garibald Eiríksson sýnir nýleg
landslagsmálvek í Súmsal sem til-
einkuð era ýmsum af brautryðj-
endum íslenskrar myndlistar.