Morgunblaðið - 14.01.1998, Side 35

Morgunblaðið - 14.01.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ íþróttamanna á Akranesi eiga hon- um mikið að þakka. Að leiðarlokum njinnumst við Halls sem mikilhæfs foringja en ekki síður sem góðs vinar og félaga sem skilur eftir sig djúp spor í sögu félags okkar. Við félagar í Sundfé- lagi Akraness vottum bömum hans og fjölskyldum þeirra innilega sam- úð. Guð blessi minningu Halls Gunn- laugssonar. Hafi hann þökk fyrir allt það sem hann vann félagi sínu og okkur. Þú sem eldinn átt í hjarta yljar lýsir, þótt þú deyir. Vald þitt eykst og vonir skarta verkin þín tala, þótt þú þegir. Alltaf sjá menn bjarmann bjarta blika gegnum himins tjöld. (Davíð Stefánsson) F.h. Sundfélags Akraness, Ingunn Ríkharðsdóttir. Seint mér vþja um sefa garð sjatna hin fomu kynni; það liðna, sem fyrir laungu varð, líðursíztúrminni. (Fomólfur) Bjartir haustdagar fyrir nærri fjómm áratugum standa mér lif- andi fyrir hugskotssjónum. Við hjónin og böm okkar nýflutt á Akranes. Fyrir dymrn stendur að hefja skólastarf. Kynni takast við væntanlegt samstarfsfólk. Þó að haust sé er eins og vor í lofti. Eftir- væntingin sem fylgir því að takast á við nýtt starf í ókunnum stað ljær dögunum ijóma. Mér finnst þear ég lít til baka að einstakt úrvalslið hafi mætt okkur þetta löngu liðna haust, fræðsluráð, kennarar og aðrir starfsmenn Gagnfræðaskólans á Akranesi. Margt af þessu fólki er fallið í val- inn, nú síðast hugijúfur drengur og hlýr, Hallur S. Gunnlaugsson íþróttakennari. Hallur Gunnlaugsson var gædd- ur flestum þeim kostum sem góða kennara prýða. Þó bar af hve sam- viskusamur hann var og vandur að virðingu sinni. Hann gerði sér ljóst að fordæmið er besti kennarinn. Slíkt virðist mörgum framandi um þessar mundir. Menn leitast til að mynda við að innræta það bömum og unglingum með fræðslu og frá- sögnum að vímulaust lífemi sé eft- irsóknarvert og happasælla en þokuráf fíkilsins, en era sjálfir vafasamar fyrirmyndir, sjá jafnvel margir hverjir fátt athugavert við að menga umhverfið drykkju í tíma og ótíma, öldurhúsum og ofbeldi því sem slíkum stofnunum fylgir. Hallur Gunnlaugsson hafði löng- um, meðan ég stýrði Gagnfræða- skólanum, umsjón með félagsstörf- um nemenda. Þau störf vann hann, eins og annað sem honum var til trúað, af stakri reglusemi og hátt- vísi. Hallur var verkfús og skemmti- legur félagi, söngmaður ágætur, glaður og reifur á góðra vina fund- um. Hann var traustur maður og umhyggjusamur, hjálpsamur og vinfastur. Hann var jafnan þar sem hann vissi þörfina brýnasta fyrir aðstoð eða hjálp. Góður drengur er genginn um aldur fram. Við Björg sendum börnum hans og öðram ástvinum hugheilar samúðarkveðjur, biðjum þeim Guðs blessunar og minnumst vinar okkar með virðingu og þökk. Hvíli hann í friði. Ólafur Haukur Ái-nason. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1998 35 —áðfe MINNINGAR TOMAS ÞORVARÐSSON + Tómas Þorvarðs- son, löggiltur endurskoðandi, fædd- ist á Bakka á Kjalar- nesi 17. október 1918. Hann lést á Landspít- alanum 4. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Þorvarður Guðbrandsson, bóndi á Bakka á Kjalarnesi, f. 2.9. 1877, d. 3.11. 1957, og Málhildur Tómasdóttir, hús- freyja í Arnarholti á Kjalarnesi, f. 27.2. 1880, d. 1.9. 1954. Tómas var sjöundi í röðinni af ellefu systkinum, sem öll komust upp og eru fimm eftirlifandi. Tómas var ókvæntur og barn- laus. Hann hélt heimili með syst- ur sinni, Guðrúnu, en hún er nú látin. Tómas stundaði nám i Héraðs- skólanum á Laugarvatni á árun- um 1937-1938, fór síðan í _ Verslunar- skóla íslands og stundaði þar nám á árunum 1939-1941. Hann stundaði einnig sjómennsku og al- menn verkamanna- störf. Tómas hóf störf á endurskoðun- arskrifstofu Ara Ó. Thorlacius og Björns Steffensens á árinu 1942. Hlaut hann lög- gildingu sem endur- skoðandi árið 1949, gerðist meðeigandi í sömu endurskoðunarskrifstofu árið 1958 og frá árinu 1973 tU dauðadags rak hann endurskoð- unarskrifstofu í eigin nafni, enda þótt hann hafí dregið mikið úr vinnu síðustu árin. Utför Tómasar Þarvarðssonar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elskulegur frændi er látinn, allt of fljótt finnst okkur sem minnumst hans með söknuði. Tommi, eins og við kölluðum hann alltaf, var samof- inn okkar lífi. Hann var frá Bakka á Kjalamesi og sá staður var honum afar kær. Hann var mikill áhuga- maður um búskap og þá sérstakiega um allan heyskap. Hann fylgdist ætíð vel með hvemig gengi hjá bræðrum sínum og hér á árum áður var hann iðulega við heyskapinn þegar heyið var allt sett upp í lanir. Okkar kynni urðu síðan nánari þegar við hófum búskap í íbúðinni í kjallaranum á Lynghaganum. Urð- um við þá ein af mörgum kjallara- búum hans. Og þegar við eignuð- umst okkar fyrstu böm, tvíburana Bára og Hrönn, urðu stundimar saman ennþá fleiri. Það var venjan að fara með þær upp og spjalla að- eins á hveijum degi. Þau systkinin, Eyjólfur, Guðrún og Tómas, fylgd- ust með þeim þroskast og dafna. Þær voru ekki nema nokkurra mán- aða þegar þær náðu í Vísi og tættu hann í sundur með mikilli ánægju. Eftir þetta var það fastur liður að þær fengu Vísi til að „lesa“. Mikið var hlegið að því þegar Bára og Hrönn, þá um fjögurra ára gamlar, fengu leyfi til þess að horfa á þá spilafélagana spila. Þær flýttu sér upp til þess að missa ekki af neinu en urðu fyrir miklum von- brigðum þegar þær sáu þá félagana sitja við borð með venjuleg spil. Þær höfðu ímyndað sér að þær fengju að hlusta á heila hljómsveit. Svo hafa árin liðið og fleiri dætur bæst í hópinn, Dröfn, Halla, Viktor- ía og Gróa Rán og alltaf hefur um- hyggja Tomma og væntumþykja fylgt okkur. Á síðasta ári urðu mikl- ar breytingar í fjölskyldunni er við fluttum upp á Bakka og tókum þar við búi af bræðrum hans. Tommi var ákaflega sáttur við þessa ákvörðun og fylgdist með fram á síðustu stundu hvemig okkur gengi og hvemig öllum stelpunum vegn- aði í skólanum. Hann tók því með æðraleysi að hans tími væri útrann- inn og naut þess að fá í heimsókn ættingja og vini á dánarbeð sinn. Hvíl þú í friði, elsku frændi. Eft- irlifandi systkinum vottum við sam- úð okkar. Ásthildur, Birgir og dætur. Kynni okkar af Tómasi Þorvarðs- syni hófust fyrir réttum þremur ár- um þegar við knúðum dyra hjá hon- um á Lynghaganum og fóluðumst eftir íbúð til leigu. Þótt hann segði fátt, brást hann strax vinsamlega við bón okkar um að líta á húsa- kynnin. Er skemmst frá því að segja að fáum vikum síðar var allt hafurtask okkar þremenninganna komið inn í fallegu kjallaraíbúðina hans Tómasar. Því verður víst varla neitað að á þessum fyrsta fundi kom hinn virðulegi endurskoðandi okkur ekki beinlínis fyrir sjónir sem sérlega opinn og hlýr maður. Slíkar hug- myndir áttu þó vissulega eftir að víkja þegar samskiptin urðu meiri. Þessi fámálgi og á stundum hrjúfi maður reyndist þegar til kom sér- lega þægilegur og bóngóður í alla staði. Við hann var gott að eiga við- skipti sem kom meðal annars vel fram þyrfti að endurbæta eitthvað sem aflaga hafði farið í íbúðinni. Þá brást hann ávallt hratt og vel við. Málalengingar reyndust óþarfar, hlutirnir voru einfaldlega fram- kvæmdir. Eftir því sem tíminn leið og kynn- t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR G. HAFLIÐASON, Háaleitísbraut 41, Reykjavfk, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 10. janúar sl. Vigdís Sígurðardóttir, Árni Guðmundsson, Hafdís Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. in urðu betri, birtust manni enn skýrar mannkostir þessa öðlings- manns. Hlýjan, glettnin og vin- semdin sem æ oftar leitaði upp á yf- irborðið undan fálátu fasinu öðlaðist margfalt meira gildi en hjá þeim sem opnari era við fyrstu kynni. Hér verða ekki höfð mörg orð um lífshlaup Tómasar, það verður látið þeim eftir sem betur þekktu til. Vit- anlega hefur persóna hans mótast í því umhverfi er fóstraði hann fyrri hluta ævinnar. Æska hans og upp- vöxtur á mannmörgu heimili áttu víst lítið sameiginlegt með þeim lífs- kjöram sem nú teljast sjálfsögð. í þá daga bar mönnum strax í bernsku að nýta alla sína krafta til vinnu svo þeir mættu fá saðninginn sinn. Slíkt var forgangsatriði og flest annað varð að mæta afgangi. Tómas kvaddi þetta líf í upphafi nýs árs. Honum auðnaðist ekki að lifa nýja öld eins og hann hafði ósk- að sér, Banalegan var stutt og hann bar sig vel allt til síðasta dags. Það verður vissulega tómlegt að sjá ekki Lynghagabóndann sýsla í garðinum sínum á komandi vori. Við kveðjum vin okkar Tómas Þorvarðsson með þakklæti og virðingu. Guð blessi minningu hans. Hrefna, Eyjélfur og Erla. Fyrstu kynni okkar Tómasar urðu er við gengum í Verslunar- skóla íslands á fyrstu áram seinni heimsstyrjaldarinnar, og era það því nær sextíu ár, sem við höfum átt meiri og minni samvinnu í gegnum ævina. Er ég hóf störf við endurskoðun á Endurskoðunarskrifstofu Ara Ó. Thorlacius og Bjöms Steffensens í byrjun árs 1944 vora auk þeirra starfandi þar Sveinbjþm Þorbjörns- son og Tómas Þorvarðsson. Við störf að endurskoðun er mjög þýðingarmikið að fleiri vinni saman, það var því betra að þarna voru fimm saman að verki. Það kom snemma í ijós að Tómas hafði góða hæfileika í starfi, og hann naut mikils trausts hjá þeim fyrirtækjum, sem honum var falið að endurskoða, en þau vora mörg og sum mjög stór. Hvenær, sem leitað var til Tómasar um ráðleggingar í starfi, var alltaf hægt að treysta því, sem hann lagði manni til um það, sem verið var að vinna. Árið 1949 auðnaðist okkur að ná prófi sem löggiltir endurskoðendur ásamt nokkram öðram, eftir sér- stakt nám við Háskóla íslands. Árið 1958 urðum við meðeigend- ur í Endurskoðunarskrifstofu ACr og Bjöms. Samvinna okkar að end- urskoðunarstörfum var ávallt eins og best gat orðið, hvort heldur var unnið hér heima eða erlendis, en í nokkur skipti urðum við að ferðast til útlanda vegna vinnunnar, og ávallt var mjög ljúft að starfa með Tómasi hvar sem var. Árið 1949 stofnuðum við fjórir löggiltir endurskoðendur spila- klúbb, sem lifað hefur til dagsins í dag með nokkram breytingum þó. Tómas var þar góður og skemmti- legur liðsmaður og öll þessi tæp 50 ár höfum við félagamir hlakkað tíl spilakvöldanna, en nú er skarð fyrir skildi, þar sem Tómas er horfinn á braut. Við minnumst Tómasar með söknuði og virðingu. Bergur Tómasson. Kveðja frá samstarfsfólki Með þessum fáu orðum viljum við samstarfsfólk Tómasar á endur- skoðunarskrifstofunni í Armúla 10 kveðja vin okkar og samstarfsmann undanfarin 25 ár. Tómas var mjög sérstakur maður, hógvær, einlægjjr. og velviljaður öllum, sem til hans sóttu, og vinur vina sinna. Tómas var endurskoðandi af gamla skólan- um, ef svo má segja, og gaf ekki mikið fyrir tölvutæknina, enda spurði hann okkur starfsfélagana oft að því hvort við væram að leika okkur við bangsann okkar, þegar honum fannst við þaulsætnir við tölvumar, en þannig var Tómas, alltaf léttur í lund og tamt að segja spaugsögur af hinum og þessum samferðamönnum sínum þegar það átti við. Tómas skilur því eftir asjg ákveðið tómarúm á meðal okkar þrátt fyrir að hann væri farinn að draga úr vinnu, því hann kom á skrifstofuna flesta daga þó ekki væri nema til að fá kaffisopa og líta eftir því að allt gengi rétt fyrir sig. Það er því með söknuði, sem við kveðjum þennan vin okkar og starfsfélaga um leið og við vottum eftirlifandi systkinum hans og öðr- um aðstandendum samúð okkar. t Ástkær móðir okkar og dóttir mín, ÞÓRUNN HARALDSDÓTTIR, Kringlunni 61, Reykjavík, lést á Landspítalanum aðfaranótt þriðjudags- ins 6. japúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 14. janúar kl. 15.00. Ásgeir Guðnason, Anna Sigríður Guðnadóttir, Birna Guðmundsdóttir. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og v útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og systur, BLÓMEYJAR STEFÁNSDÓTTUR. Við þökkum starfsfólki Hrafnistu hjúkrun og vináttu í hennar garð. Sigríður Sívertsdóttir Hjelm, Bragi Eyjólfsson, Sívar Sturla Sigurðsson, Ásdís Halla Bragadóttir, Aðalheiður Þóra Bragadóttir, barnabarnabörn og systkini hinnar látnu. t t Móðursystir mín, Maðurinn minn, GUÐLAUG ÁSTA GUNNARSDÓTTIR LAPERGOLA, KARL ÁGÚST ÁGÚSTSSON (Lilla Gunnars), frá Laugalæk, lést í Bandaríkjunum fimmtudaginn 8. janúar 1998. er látinn. Útförin hefur farið fram. Útför hans hefur farið fram. Guðmundur Hanning Kristinsson. Guðrún Eggertsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.