Morgunblaðið - 14.01.1998, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Erling Valdi-
marsson var
fæddur í Reykjavík
15. mars 1930. Hann
lést í Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 6. janú-
ar síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Valdimar Sv.
Stefánsson, f. 2. okt.
1896 að Kotleysu í
Stokkseyrarhreppi,
d. 11. ágúst 1994 í
Reykjavík, og Ásta
Eiríksdóttir, f. 2. júní
1898 að Háeyri á
Eyrarbakka, d. 17. ágúst 1976 í
Reykjavík. Systkini Erlings voru:
Guðmundur Birgir, f. 14. sept.
1921, d. 23. nóv. 1982, Guðrún
Ragna, f. 22. sept. 1923, Sesseija,
f. 12. júní 1926, d. 16. jan. 1981,
Guðbjörg Kristín, f. 20. sept.
1935, og Stefán Gylfi, f. 19. febr.
1938.
Erling kvæntist Erlu Eiríks-
dóttur 20. október 1951. Erla er
fædd 25. október
1929. Hún lifir mann
sinn. Börn Erlings og
Erlu eru: 1) Ásta Sif,
f. 11. mars 1952,
verkefnisstjóri hjá
Rannsóknaþjónustu
H.Í., maki: dr. Gunn-
ar Steinn Jónsson, líf-
fræðingur. Þau eiga
tvö börn og eitt
barnabam. 2) Valdi-
mar, f. 28. febr. 1956,
búfræðingur og
húsasmiður, maki:
Unnur Þórðardóttir,
leikskólakennari. Þau eiga þijú
börn. 3) Viðar, f. 14. sept. 1958,
blikksmiður og prentsmiður,
maki: María Magnúsdóttir, mat-
ráðskona. Þau eiga þrjá syni. 4)
Erling Ragnar, f. 30. júní 1962,
bókmenntafræðingur, maki: Jó-
hanna Gústafsdóttir, endurskoð-
andi. Þau eiga tvö böra.
titför Erlings var gerð frá
Dómkirkjunni 13. janúar.
Helgir englar
kómu úr himnum ofan
og tóku sál hans til sin
í hreinu lífí
hún skal lifa
æ með almáttkum guðL
(Sólaríjóð)
Mágur olckar systra, Erling Valdi-
marsson, kvaddi þetta líf á síðasta
degi jóla, hinn 6. janúar þessa nýja
árs. Löngu og hörðu stríði, hetju-
legri baráttu sem háð var af vilja-
sterkum manni var lokið. Við sökn-
um hans.
Erling hefur tilheyrt okkur frá
þeim degi sem Erla systir kynnti
þennan unga fallega mann fyrir fjöl-
skyldunni. Við áttum engan bróður
en hann tók það hlutverk að sér með
einstökum hætti. Af einlægni lét
hann sig varða líf og líðan okkar
systra og barnanna okkar.
Hann lá aldrei á liði sínu ef það
stóð í hans valdi að veita það. Hjálp-
arhönd hans var styrk og úrræðin
góð. Erling var skapfastur dreng-
skaparmaður, bh'ður og hlýr. Þess-
ara góðu eiginleika nutum við allar
en þó fyrst og fremst hans eigin
kona og böm.
Um það leyti sem þau Erling og
Erla gengu í hjónaband var verið að
úthluta lóðum í svokölluðu smá-
íbúðahverfi. Erling sótti um lóð í
Sogamýrinni, í nágrenni við æsku-
heimili okkar systra og byggði þar
án allra véla, aðeins með handverk-
færum, eigin afli og útsjónarsemi,
yndislegt htið hús sem þau hjónin
lögðu metnað sinn í að gera sem feg-
urst og best úr garði bæði hið ytra
og innra.
Þar ólu þau upp bömin sín fjögur.
Mannvænleg böm sem þau studdu
af mikilli umhyggju fyrst til náms og
síðar til starfs og sjálfstæðs lífs.
Heimih Erlings og Erlu var gest-
kvæmt. Þar ríkti friðsæl gleði og
umræðuefnin vom óþijótandi. Erl-
ing var rennismiður að mennt og
rennismíðin var líka hans listgrein.
Fegurstu hlutina renndi hann úr
kopar og hvaltönnum. Listmunir eft-
ir hann prýða heimih flestra okkar
systra að ógleymdum þeim listmun-
um sem hann smíðaði fyrir okkur til
brúðar- og afmælisgjafa.
Erling nam iðn sína í Hamri en
lengstan hluta starfsævi sinnar var
hann verkstjóri hjá Vita- og hafnar-
málastofnun. Þar sá hann um eftirht
og viðhald vitanna. Margar sögur
sagði hann okkur af ferðum þeirra fé-
laga hringinn í kringum landið, lýsti
bæði fegurð og hrikaleik strandlengj-
unnar. Það var ekki alltaf bamaleikur
að komast út í vita og raunar sjaldn-
ast, en átti vel við karlmennsku félag-
anna sem ráðnir vom til starfans. Er-
ling var góður sögumaður.
Við systumar áttum engan bróð-
ur, eins og áður sagði, svo eðhlega
áttu foreldrar okkar engan son en
aftur á móti marga tengdasyni. Milh
foreldra okkar og tengdasonanna
var gott samband, sem einkenndist
af virðingu og tilhtssemi á báða
bóga, en samband Erlings og móður
okkar var líkast því sem við ímynd-
uðum okkur að væri milh sonar og
móður, svo mikil var einlægni hans,
ástúð og hlýja í hennar garð.
Æviskeiði góðs manns er lokið en
minning hans Iifír með okkur sem
nutum tilveru hans. Við sendum eig-
inkonu hans, öllum afkomendum og
ættingjum einlægar samúðarkveðjur.
Hér við skiljumst
og Mttast munum
á feginsdegi fira;
drottimiminn,
gefi dauðum ró
enMnumlíkn,erlifa.
(Sólarjjóð)
Með ástarkveðjum frá okkur Rétt-
arholtssystrum,
Rannveig Löve.
ERLING
VALDIMARSSON
RAÐAUGLÝ5INGAR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
s
Garðabær
Fræðslu- og menningarsvið
Leikskólar Garðabæjar
Leikskólinn Hæðarból
Leikskólakennari eða starfsmaður með aðra upp-
eldismenntun óskasttil starfa á leikskólann Hæð-
arból. Um er að ræða hlutastarf eftir hádegi.
Einnig vantar starfsmann í hlutastöðu í eldhús.
Upplýsingar veitir Ingibjörg Gunnarsdóttir,
leikskólastjóri, í síma 565 7670 og 565 6651.
Leikskólinn Kirkjuból
Leikskólakennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður
með aðra uppeldismenntun óskast strax vegna
barns með sérþarfir.
Um er að ræða hlutastarf eftir hádegi.
’ Upplýsingar veitir Kamma Níelsdóttir, leik-
skólastjóri, í síma 565 6322 eða 565 6533.
Leikskólafulltrúi.
Fasteignasala
— sölumaður
Ný fasteignasala á Stór-Reykjavíkursvæðinu
óskar eftir að ráða sölumann til starfa sem
fyrst. Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu
af sölu fasteigna, vera samviskusamur, heiðar-
legur og tilbúinn til að vinna miklu vinnu ef
'þörf krefur.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl., merktar:
„L — 3171", fyrir 20. janúar nk.
Sölumaður óskast!
Vantar sölumann í söludeild nýrra bíla.
Þarf að geta hafið störf strax.
Umsóknareyðublöð afhent á skrifstofu.
Ingvar Helgason hf.,
Sævarhöfða 2.
FRÍKIRKjUSÖFNUÐURINN
í REYKjAVÍK
EMBÆTTI SAFNAÐARPRESTS
VIÐ FRÍKIRKJUNA í REYKJAVÍK
ERLAUST
Embætti safnaðarprests við Fríkirkjuna í Reykjavík er
laust.Samkvæmt safnaðarlögum skulu kjörmenn safnaðarins
(þ.e. aðalfulltrúar og varafulltrúar í safnaðarstjórn) kallatil
nýjan prest í starfið. Skal hann eða hún vera prestlærður
maður, er lokið hefur prófi við guðfræðideild Háskóla íslands
eða aðra hliðstæða stofnun.
Þeir eða þær, sem vilja koma til álita við köllun í embættið,
skulu tilkynna um það í ábyrgðarbréfi, er sent verði
safnaðarstjórn, Safnaðarheimiii Fríkirkjunnar,
Laufásvegi 13,101 Reykjavík; skulu bréf póstlögð eigi síðar
en miðvikudaginn 28. janúar nk.
í kjölfar þess munu kjörmenn óska eftir formlegu viðtali við
sérhvern bréfritara. Nýr pjestur þarf að geta hafið störf hinn
1. marz n.k. Laun eru í samræmi við ráðningarsamning. Þeim,
sem tekur lögmætri köllun, skal veitt embættið tímabundið,
en eigi lengur en til fjögurra ára.
Að köllunartíma loknum fersíðan fram kosning safnaðarprests,
skv. 22. grein safnaðarlaganna.
Nánari upplýsingar gefur undirritaöur.
Reykjavík, 14. janúar 1998,
f.h. stjóraar Fríkirkjusafnaðarins í
Reykjavík,
Sigurður E. Guðmundsson (formaður).
i ph
Auglýsing þessi er birt í Morgunblaðinu
14. og lS.janúar 1998.
Skrifstofustarf
Óskum eftir starfskrafti í fullt starf til framtíðar.
Þarf að geta byrjað strax.
Umsóknir sendisttil afgreiðslu Mbl., merktar:
„D — 3191" fyrir mánudaginn 19. janúar.
Rafvirki
óskar eftir vinnu. Er með 10 ára sveinsbréf.
Get byrjað strax. Upplýsingar í síma 895 7851.
HÚSNÆOI ÓSKAST
Einbýlishús,
raðhús eða sérhæð,
miðsvæðis í Reykjavík, óskast á leigu frá og
með 1. mars nktil a.m.k. þriggja ára.
Tilboð óskast send á afgreiðslu MBI., merkt:
„Húsnæði - 3166".
Húsnæðisnefnd Garðabæjar
íbúðir óskast til kaups
Húsnæðisnefnd Garðabæjar óskar eftir íbúðum
til kaups í Garðabæ. Um er að ræða 3ja, 4ra
og 5 herbergja íbúðir, hámarksstærð félags-
legra íbúða er 130 m2 brúttó. Leitað er eftir
íbúðum að einfaldri gerð og vel með farnar,
helst í fjölbýli og án bílskúrs. Um staðgreiðslu
getur verið að ræða fyrir réttar eignir.
Þeir, sem hafa áhuga, eru beðnir að senda nafn
og símanúmer, ásamt nákvæmri lýsingu á
íbúðinni og verðtilboði, á bæjarskrifstofu
Garðabæjar, Garðatorgi 7, í umslagi, merktu:
„Húsnæðisnend Garðabæjar".
Frekari upplýsingar veitir Edda Tryggvadóttir
á milli kl. 10—12 á bæjarskrifstofum Garðabæj-
ar, Garðatorgi 7, eða í síma 525 8500.
Húsnæðisnefnd Garðabæjar.
TIL SOLU
Bækur
Til sölu hæstaréttardómar 1920—1970, dómar
yfirréttar 1 —9, tímaritið Óðinn 1 —31. Allt inn-
bundið í gott skinnband, einnig tímaritið
Lögfræðingur 1. —5. ár Páll Briem ib.
Upplýsingar í síma 898 9475.
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
□ GLITNIR 5998011419 III 1
□ HELGAFELL 5998011419 VI
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00
1.0.0.F 9 1781148V2 = E.l.
ÉSAMBAND ÍSŒNZKRA
___i KRISTNIBOÐSFÉLAGA
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30. Ræðumaður Haraldur
Jóhannsson. Allir velkomnir.
Heilun, rádgjöf, þróunar-
hringir. Þekkir þú almenna
vanlíðan, stress og orkuleysi?
Finnst þér allt ómögulegt en
veist ekki hvað veldur? Stendur
þú á krossgötum? Ef svo er
hafðu samband og ég mun
reyna að aðstoða þig. Tímapant-
anir hjá Sjálfefli milli kl. 14 og 16
í síma 554 1107 alla virka daga.
Einnig í síma 567 9754. Uppl. um
þróunarhringi fást hjá Sjálfefli.
Ingibjörg Hafsteinsdóttir.
Miðvikudagur 14. janúar
kl. 20.30
Myndakvöld F.í. í Mörkinni 6
miðvikudagskvöldið
14. janúar kl. 20.30.
Fjölbreytt myndasýning í Ferða-
félagshúsinu, Mörkinni 6. M.a.
ævintýraganga sl. sumar þar
sem gengið var með Djúpá að
Grænalóni og niður í Núpsstað-
arskóga, spjall og myndir frá úti-
legumannaslóðum í Þórisdal,
Hrafntinnusker m.a. á göngu-
skíðum, sumarleyfisferð í Héð-
insfjörð og Hvanndali. Góðar
kaffiveitingar i hléi. Fjölmennið á
fyrsta myndakvöld ársins. Hægt
verður að fá nýja fræðsluritið um
Þórisdal á félagsverði kr. 990.
Sunnudagsganga 18. janúar
kl. 13.00 um Álftanes.
Munið textavarp bls. 619.