Morgunblaðið - 17.01.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 13
FRETTIR
ákvörðunar skatta næði til síðustu
sex ára á undan því ári, sem endur-
ákvörðun færi fram. Samkvæmt
lögum væri hins vegar aðeins hægt
að krefjast endurgreiðslu oftekinna
skatta fjögur ár aftur í tímann. Að
því loknu fymist endurkröfuréttur-
inn: „Þetta er enn eitt ákvæðið um
ójafnræðið og valdbeitingu ríkis-
valdsins."
Deilt á yfírskattanefnd
Arni Tómasson endurskoðandi
fjallaði um yfirskattanefnd og gagn-
rýndi störf hennar harðlega.
Hann vísaði til laga um að ágrein-
ingsmál um ákvörðun skatta, gjalda
og skattstofna skuli úrskurðuð af
sérstakri óháðri nefnd og spurði
hvort yfirskattanefnd væri í raun
óháð og hvort jafnræði væri með
þeim aðilum, sem ættu aðild að
nefndinni.
I þessu máli væri rétt að velta
fyrir sér lögunum og hvernig til
hefði tekist með framkvæmd þeiira.
Þá þyrfti að athuga hverjir væru
hagsmunaðilar. Þeir væru annars
vegar ríkisskattstjóri fyrir hönd
fjármálaráðherra og ríkissjóðs og
hins vegar einstaklingar og lögaðil-
ar.
Árni tók fyrst fyrir kærufrest og
gagnaöflun í umfjöllun sinni um yf-
irskattanefnd. Hann gerði enga at-
hugasemd við lögin, en hins vegar
væri framkvæmdin ekki í neinu
samræmi við þau. Skattborgarar
hafi samkvæmt lögunum 30 daga
frá úrskurði skattstjóra til að kæra
og ríkisskattstjóri hafi 45 daga til að
koma með rökstuðning eftir að hafa
hafa fengið afrit frá nefndinni.
Þurfa ekki að virða fresti
„Ég get nefnt sem dæmi um
framkvæmdina að kvartað var yfir
seinagangi ríkisskattstjóra þegar 11
mánuðir voru liðnir frá því að hann
átti að hafa skilað inn gögnum til
nefndarinnar," sagði Árni. „Nefndin
hafnaði hins vegar kærunni. Sú
hugsun vaknar stundum hjá manni
hvort sterkasti leikur ríkisskatt-
stjóra sé að skila alls ekki rökstuðn-
ingi. Yfirskattanefnd virðist lítið
mark taka á kvörtunum um seina-
gang og eftir nokkur ár er skatt-
greiðandinn örmagna ef ekki látinn
og þá er málið látið niður falla.“
Hann sagði að það væri sem yfir-
skattanefnd gerði sér ekki grein
fyrir því að einstaklingar og lögaðil-
ar hefðu þegar þurft að greiða álögð
gjöld samkvæmt úrskurði skatt-
stjóra og öll töf á niðurstöðu nefnd-
arinnar gæti haft verulegar afleið-
ingar.
Árni benti einnig á það að nefndin
tæki mál ekki til úrskurðar eftir að
báðum aðilum hefði verið veittur
nægilegur frestur veikti tiltrú ein-
staklinga og fyrirtækja á að jafn-
ræði væri með aðilum.
Bið eftir úrskurðum
Hann sagði að í lögum kvæði á
um að nefndin ætti að úrskurða í
málum þremur mánuðum eftir að
henni hefðu borist umsögn og
greinargerð ríkisskattstjóra. Engin
athugasemd væri við lagagreinina,
en enn skorti verulega á fram-
kvæmdina.
I yfirskattanefnd skulu sitja sex
menn skipaðir til sex ára í senn af
fjármálaráðherra og skulu fjórir
þeirra hafa starfið að aðalstarfí.
Segir jafnframt að fjármálaráð-
herra skuli fylgjast með því að
nefndin sinni skyldum sínum og
skuli nefndin senda ráðherra árlegt
yfirlit yfir störf sín.
Árni sagði að ákvæði um að
nefndin ætti að vera óháð yrði bros-
legt þegar þetta fyrirkomulag væri
skoðað.
„Það myndi opna augu einhverra
ef í stað fjármálaráðherra væri full-
trúi hinna aðilanna, til dæmis Versl-
unarráð," sagði hann. ,Að Verslun-
arráð skuli skipa nefndina, nefndar-
menn skuli gera Verslunarráði
grein fyrir störfum sínum og sækja
þar um starf að sex árum liðnum."
Árni benti á að fjármálaráðherra
réði nefndina til starfa og vildu
nefndarmenn fá endurráðningu
yrðu þeir að leita til hans. Þá væri
eins gott að hafa ekki verið ráðu-
neytinu óþægur ljár í þúfu. Einnig
væri hvergi sagt að nefndarmenn
þyrftu að vera kunnugir rekstri.
Hann kvaðst ekki vera að gagn-
rýna nefndarmenn heldur þá um-
gjörð, sem þeim hefði verið búin og
að ekki skuli betur tryggt að nefnd-
in hefði fjölbreyttan bakgrunn.
Reyndin væri að nefndin væri að
mestu skipuð mönnum með bak-
grunn úr skattakerfinu.
Enginn úrskurður birtur
frá stofnun nefndar
Útgáfa úrskurða nefndarinnar er
einnig í ólestri að sögn Áma. í lög-
um segði að nefndin skyldi gefa út
helstu úrskurði árlega. Heimilt væri
að stytta úrskurði, en tryggja yrði
að úrskurðir með fordæmisgildi
birtust þar. Hér væri enn á ný ekk-
ert að lögunum að finna, en vandinn
væri sá að ekkert væri eftir þeim
farið.
„Síðustu úrskurðirnir, sem gefnir
hafa verið út, eru úrskurðir ríkis-
skattanefndar á árunum 1990 til
1992 og kom sú útgáfa út á fyrri
hluta árs 1995,“ sagði hann. „Niður-
staðan er því sú að allt frá stofnun
yfirskattanefndar 1. júh 1992 hefur
enginn úrskurður hennar verið gef-
inn út með formlegum hætti. Á
þeim nær sex árum, sem yfirskatta-
nefnd hefur starfað, veit einungis
annar deiluaðila hvaða úrskurðir
hafa fallið. Ríkisskattstjóri, sem
annar aðili málsins, fær afrit af öll-
um úrskurðum og heldur þeim að
sjálfsögðu til haga. Þegar leitað er
upplýsinga hjá yfirskattanefnd er
bent á að leita upplýsinga hjá gagn-
aðilanum, ríkisskattstjóranum.
Lögmenn hafa upplýst að í mál-
flutningi fyrir dómstólum hafi ríkis-
lögmaður Iagt fram lista með nýleg-
um úrskurðum, sem viðkomandi
mál varða, á meðan skattborgararn-
ir, lögmenn þeirra og endurskoð-
endur hafa ekki aðgang að sömu
upplýsingum þegar málatilbúnaður
þeirra er undirbúinn."
Hann sagði að ein afleiðing þess
að úrskurðir væru ekki birtir væri
sú að menn þekktu ekki fordæmin
og því bærist urmull mála til yfir-
skattanefndar.
Ámi benti á nokkrar leiðir til úr-
bóta. Fyrst og fremst bæri að færa
yfirskattanefnd frá fjármálaráðu-
neyti til dómsmálaráðuneytis, en
einnig að veita jafnan frest til að
koma að rökstuðningi. Ef aðilar
virtu ekki tímamörk ætti að taka
mál til úrskurðar án rökstuðnings.
Á hvers bandi er Hæstiréttur?
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstraréttarlögmaður talaði síðast-
ur. Hann sagði að stjórnarskráin
veitti borgurunum sérstaka vemd
fyrir misbeitingu skattlagningar:
„Að mínum dómi reynir á fáum
sviðum jafn oft og mikið á verndina,
sem stjórnarskránni er ætlað að
veita borgurum, einstaklingum og
fyrirtækjum fyrir misbeitingu rílds-
valdsins, og við meðferð þessa
valds.“
Hann sagði að formkröfur varð-
andi skattlagningarvaldið væru
injög þýðingarmiklar og fælust
einkum í banni við framsali valdsins
frá löggjafanum. í mannréttinda-
kafla stjórnarskrárinnar væri meira
að segja tekið fram að ekki mætti
fela stjórnvöldum ákvörðun um
hvort leggja skyldi á skatt, breyta
honum, eða afnema.
Jón Steinar gagnrýndi sérstak-
lega úrskurði Hæstaréttar í skatta-
málum og sagði að svo virtist sem
æðsti dómstóll þjóðarinnar væri
miklu fúsari til að dæma mönnum
rétt gegn ranglátum sköttum þeg-
ar það skipti litlu máli fjárhags-
lega. í tilvikum þar sem fleiri krón-
ur kæmu við sögu væri hins vegar
illmögulegt að fá réttinn til að
dæma gegn ríkisvaldinu, jafnvel
þótt brotin gegn meginreglum um
skattlagningu kynnu að vera aug-
ljósari en í litlu málunum. Hann
kvaðst hafa fjallað um þetta mál
fyrir áratug og sýndist þetta
ástand enn ríkja við Hæstarétt.
Hann tók ýmis dæmi og bætti við:
„Það er engu líkara en dómararnir
hætti að vera hlutlausir dómarar
og taki til við einhvers konar erind-
rekstur í þágu ríkisvalds þegar um
skattamál ræðir.“
Andlát
MATTHÍAS
GUÐMUNDSSON
MATTHÍAS Guð-
mundsson, fyrrver-
andi póstmeistari í
Reykjavík, lézt á
Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur, Landakoti, síðast-
liðinn fimmtudag.
Hann var 84 ára að
aldri.
Matthías fæddist
15. júlí 1913 í Reykja-
vík, sonur hjónanna
Guðmundar Krist-
mundssonar sjómanns
og Guðríðar Davíðs-
dóttur. Hann stundaði
verzlunar- og skrif-
stofustörf frá árinu
1930, þar til hann
réðst til Póststofunnar
í Reykjavík í ársbyrj-
un 1938. Þar var
Matthías skipaður
fulltrúi fyrsta stigs
1956, deildarstjóri
tollpóststofunnar síðar
á því ári og póstmeist-
ari árið 1960. Því
starfi gegndi hann til
ársloka 1983, er hann
lét af störfum fyrir
aldurs sakir.
Matthías tók virkan þátt í starfi
Alþýðuflokksins. Hann var í
stjórn Félags ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík í nokkur ár og
formaður félagsins um hríð. Hann
sat í stjórn SUJ um árabil og í
miðstjórn Alþýðuflokksins. Hann
var í stjóm Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur og í stjórn fulltrúa-
ráðs alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavík. Þá var Matthías vara-
bæjarfulltrúi í Reykjavík 1942-46.
Hann var formaður Póstmanna-
félags íslands 1945-50 og 1953-56
og sat í stjórn Póstmannasjóðs
1955-61. Þá var hann í varastjórn
BSRB 1948-49 og fulltrúi á mörg-
um þingum bandalagsins. Matthí-
as var í stjórn Félags forstjóra
Pósts og síma frá 1961 og formað-
ur þess síðustu árin, til 1983.
Eftirlifandi eiginkona Matthí-
asar er Gunnþórunn Einarsdóttir.
Þau áttu þrjú börn.
R-listinn opnar prdfkjörsmiðstöð
PRÓFKJÖRSMIÐSTÖÐ Reykja-
víkurlistins við Pósthússtræti verð-
ur opnuð í dag. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri, kynnti
miðstöðina í gær ásamt frambjóð-
endum. Þar geta frambjóðendur
listans haft aðsetur en þar verður
einnig hægt að kjósa utankjörstað-
ar.
Tvíþætt prófkjör
Samkvæmt reglum Reykjavíkur-
listans eiga allir kost á því að kjósa í
prófkjörinu, en það fer fram 31. jan-
úar. Áð sögn Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur eru engin skilyrði sett
um aðild fólks að stjórnmálaflokk-
um. Hún sagði að þorri fólks væri
utan flokka en hefði án efa áhuga á
að taka afstöðu. Aðspurð sagðist
hún fagna því ef flokksbundnir
sjálfstæðismenn kysu í prófkjörinu.
Alls eru 28 frambjóðendur í kjöri,
bæði flokksbundnir og óflokksbund-
ir. Sjö fyrstu fá bindandi kosningu.
Ingibjörg Sólrún skipar áttunda
sætið en hún tekur ekki þátt í próf-
kjörinu.
Skapar óvænt úrslit
Sem kunnugt er verður prófkjör
Reykjavíkurlistans tvíþætt. í fyrsta
lagi er kjósendum gefinn kostur á
að velja einn af fjórum samstarfs-
flokkum Reykjavíkurlistans. í öðru
lagi gefst kjósendum kostur á að
velja frambjóðanda óháð flokkum.
Kjósandi getur skilað auðu á öðrum
hvorum seðlinum án þess að hann
ógildist.
I raun verður kosningabaráttan
tvíþætt. Annars vegar verður keppt
á milli flokka og hins vegar munu
frambjóðendur eigast við sín á milli.
Guðrún Ágústsdóttir, forseti borg-
arstjórnar og frambjóðandi Alþýðu-
bandalags, sagðist ekki óttast að
prófkjörið mundi valda óeiningu
meðal frambjóðenda. Hún kvaðst
vera sátt við fyrirkomulagið og það
gæti skapað óvænt úrslit.
ÍFIUGFÍIXOVSCÁNDSI
BROADTO
HÓTEL ÍSLANDI
Miða- og borðapantanir í síma 533 1100, athugið nýtt símanúmer!
Verð 4.900, matur og sýning. 2.200, sýning. 1.000, dansleikur.
fl 4 manna hIjómsyeit
undir stjórn
Þóris Baldurssonar.
Sérstakur gestur
kvöldsins er Geirmundur
Valtýsson.
Kynnir er
Jón Axel Ólafsson.
k Stilltu á
7 BROADWAY!
I KVOLD - Á
Vinsælasta danshljómsveit \
landsins, hljómsveit
Geirmundar leikur fyrir dansi
ADAlStODlN