Morgunblaðið - 17.01.1998, Blaðsíða 52
52 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Samkirkju-
leg bæna-
vika hefst á
morgun
Á MORGUN, sunnudag 18. janúar,
hefst hin árlega samkirkjulega og al-
þjóðlega bænavika um einingu krist-
inna manna.
Bænavikan hefst með guðsþjón-
ustu í Dóinkirkjunni á morgun kl. 11
og prédikar þar Björgvin Snorrason,
prestur Aðventkirkjunnar í Reykja-
vík. Síðan verða nokkrar kvöldsam-
komur, sem allar hefjast kl. 20.30.
Miðvikudagskvöldið 21. janúar
verður samkoma í Kristskirkju í
Landakoti og prédikar þar Herra Jo-
hannes Gijsen, biskup kaþólsku
kirkjunnar á Islandi.
Pimmtudagskvöldið 22. janúar
verður samkoma í Ffladelfíukirkj-
unni og prédikar þar Miriam Óskars-
dóttir frá Hjálpræðishernum.
Föstudagskvöldið 23. janúar verð-
ur samkoma í Aðventkirkjunni og
prédikar þar sr. Kjartan Örn Sigur-
björnsson, sjúkrahúsprestur.
Bænavikunni lýkur laugardags-
kvöldið 24. janúar með samkomu hjá
Hjálpræðishemum í Herkastalanum
og þar prédikar biskup íslands,
herra Karl Sigurbjömsson.
Það er Samstarfsnefnd kristinna
trúfélaga, sem stendur að bænavik-
unni og era allir hjartanlega vel-
komnir á samkomumar.
Þjóðlagatónlist-
arguðsþjónusta
í Hafnarfjarðar-
kirkju
UNDANFARIN tvö ár hafa verið
haldnar svokallaðar „Tónlistarguðs-
þjónustur“ með reglulegu millibili í
Hafnarfjarðarkirkju. Tónlistarguðs-
þjónustan er guðsþjónustuform sem
hefur verið í mikilli sókn á Norður-
löndum. Hefur þetta form nú verið
heimfært upp á íslenskar aðstæður í
Hafnarfjarðarkirkju. í tónlistarguðs-
þjónustunni er lögð höfuðáhersla á
tónlist og íhugun en hið talaða orð er
haft í lágmarki. Kirkjugestum gefst
kostur á að tendra bænakerti á nýju
bænaaltari kirkjunnar og skilja
þannig bænir sínar eftir á altari Guðs.
Tónlistarguðsþjónustan sem haldin
verður sunnudaginn 18. janúar er
undir formerkjum þjóðlagatónlistar-
innar. Finnski harmóníkuleikarinn
Tatu Kantomaa, sem er íslendingum
að góðu kunnur og hefur tekið þátt í
þjóðlagamessum Hafnarfjarðar-
kirkju, mun leika forspil, eftirspil og
stólvers. Kórinn leiðir síðan almenn-
an safnaðarsöng. Prestur er sr. Þór-
hallur Heimisson. Guðsþjónustan
hefst kl. 18.
20 ára af-
mælisfundur
KRISTILEGT félag heilbrigðis-
stétta á 20 ára afmæli nú í janúar. Á
þeim tímamótum verður þess minnst
á hátíðarfundi í Safnaðarheimili
Grensáskirkju, mánudaginn 19. janú-
ar, kl. 20. Margrét Hróbjartsdóttir,
fyrrverandi formaður, minnist við-
burða úr sögu félagsins. Jón Bjarm-
an, sjúkrahúsprestur, segir frá í er-
indi sem hann kallar „í fótspor Páls
postula á Krít“.
Allir era velkomnir á þennan af-
mælisfund. Kaffiveitingar era á und-
an dagskrá. ■
Kvennakirkjan í
Digraneskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur messu í
Digraneskirkju í Kópavogi, sunnu-
daginn 18. janúar, kl. 20.30.
I messunni verður þess minnst að
síðasta ár Kvennaáratugar Alkirkju-
ráðsins er að hefjast. Áratuginn 1988
til 1998 var samþykkt að vinna sér-
staklega að málefnum kvenna undir
yfírskriftinni „Kirkjan styður kon-
ur“. Séra Jóna Kristín Þorvaldsdótt-
ir, prestur í Grindavík, prédikar.
Wilma Young leikur á fiðlu. Kór
Kvennakirkjunnar leiðir almennan
safnaðasöng við undirleik Aðalheiðar
Þorsteinsdóttur. Kaffi á eftir í safn-
aðarheimilinu.
Áskirkja. Safnaðarfélag Áspresta-
kalls verður með kaffisölu að lokinni
messu sunnudaginn 18. janúar.
Digraneskirkja. Starf aldraðra á
þriðjudag frá kl. 11. Leikfimi, matur,
framhaldssaga, helgistund.
Kefas, Dalvegi 24. Almenn samkoma
í dag kl. 14. Allir velkomnir.
Kaupum hnepptar handprjónaðar peysur,
húfur, vettlinga og sokka.
mímA l.
jSjaLiM
Handverks o& ferðamannaverslun
Krinfilunni. Sími 5689960
Núna
er ...
50% afsl. af Art barnafatnaði
20% afsl. af gammosíum
10%
afsl. af kjólum
ÆT
I
örfáa daga
UNO
D A N M A R K
Vesturgötu ÍOA, sími 561 0404.
Litrík föt fyrir litrikt fólk
RÆSTIVAGNAR
Úrvalið er hjá okkur
^ j A ' Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur I IðE W I
- Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001 .........mmm7m......
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Aldraðir og dagskráin
VELVAKANDA barst
eftirfarandi bréf:
„Þar sem ég er sú „óá-
nægða kona“ sem kom
af stað umræðum um
dagskrá sjónvarpsins
fyrir jól langar mig að
benda hinni „hugsandi
konu“ sem ráðlagði okk-
ur að lesa eða tala sam-
an, ef við værum ekki
ánægð með dagskrána,
að það getur verið ýms-
um erfiðleikum háð fyrir
fólk um áttrætt að lesa,
t.d. að halda á bók, og
þótt við höfum lesgrind
þá tekur í bakið að sitja
lengi í sömu stellingum.
Svo er þetta með að
ræða saman. Margir eru
einir og við sem erum
tvö heima allan daginn
getum nú ekki verið að
blaðra allan daginn.
Svo ég haldi áfram með
nöldrið þá þykir okkur
slæmt að þátturinn
„Nýjasta tækni og vís-
indi“ var færður fram
fyrir fréttir, við gleym-
um alltaf að opna, þar
sem við erum í eldhúsinu
á þeim tíma. Svo eram
við alveg hætt að sjá
veðrið í Evrópu síðan
þeir minnkuðu skjáinn
og leggja hendurnar fyr-
ir í staðinn fyrir að nota
prikið.
Mér þykir einkenni-
legt að lesa dagskrá
morgundagsins í lok
dagskrár, sama hve löng
Um móðurmálið
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf:
„Hafið þið heyrt annað
eins! Ungur menntamaður
kemur fram í sjónvarpi og
bar á borð fyrir þjóðina að
með því að leggja niður
móðurmálið okkar getum
við sparað svo og svo
marga milljarða króna.
Heppinn er þessi ungi
maður að vera Islendingur,
annarsstaðar hefði hann
verið dæmdur fyrir land-
ráð. Þetta er það síðasta
sem maður gæti hugsað
sér að við gætum uppskor-
ið fyrir að búa eins vel og
við gátum að ungu kynslóð-
inni.
Eg bið til Guðs um að
hann opni augu þessara
manna sem láta sér detta
annað eins í hug og þetta.
Svo mikið erum við búin að
ganga í gegnum um aldirn-
ar og berjast fyrir sjálf-
stæði okkar, tungan okkar
er það sem gerir okkur að
þjóð og verður aldrei metin
til fjár.
Ungir Islendingar, gerið
okkur aldrei þá hneisu að
meta fjöregg okkar Islend-
inga til fjár, það er einfald-
lega eki til umræðu.
Ein af gamla skólan-
um sem lagði sín litlu
lóð til baráttu fyrir
sjálfstæðinu.“
Júlíana G. Bender
hún er. Ég þekki fólk úti
á landi sem fær ekki
blöð á hverjum degi og
annað sem ekki kaupir
þau, en þarf að fara
snemma á fætur til þess
að sinna bústörfum og
þarf því að fara tíman-
lega í háttinn. Væri ekki
hægt að lesa dagskrá
næsta dags í lok áttaf-
rétta? Svo mætti gefa
þulunum frí en bregða á
skjáinn hvað kæmi næst,
eins og þeir gera stund-
um. Þar mætti spara
heilmikið. Svo er það
útvarpið. Það getur ver-
ið notalegt að loka fyrir
sjónvarpið og opna fyrir
útvarpið og taka í
handavinnu. En þá er
oftar en ekki endurtekið
efni, eitthvað sem við er-
um búin að heyra. Þó að
þetta séu yfirleitt ágætir
þættir er ekki nauðsyn-
legt að troða þessu í
mann eins og við ættum
að læra þetta utanað.
Eitt jákvætt. Það var
gaman að sjá óperuna á
nýársdag. Það er allt ann-
að að sjá þær í sjónvarpi
með íslenskum texta,
heldur en hlusta á þær í
útvarpi, íyrir okkur sem
ekki erum sérstaklega
músikölsk. Það hefur nú
síast inn í okkur ýmislegt
af tónlist efth- að hafa
hlustað á útvarp frá 1930.“
Þessi dánægða.
Tapað/fundið
Pennaveski
í óskilum
PENNAVESKI, grátt,
fannst á Dyngjuvegi
mánudaginn 12. janúar.
Uppl. í síma 553 2543.
Armbandsúr
í óskilum
ARMBANDSÚR, kven-
manns, fannst við Austur-
bæjarapótek fyi-ir
nokkrum dögum. Uppl. í
síma 552 2881.
Gullliálskeðja
týndist
MÁNUDAGINN 12. janú-
ar tapaðist gullhálskeðja
síðdegis á leiðinni frá
Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi að Völvufelli.
Finnandi vinsamlega haílð
samband í félagsstarfið í
Gerðubergi eða síma 557-
9020 frá kl. 9-17 virka
daga.
Gleraugu og
leðurhanskar
í óskilum
GLERAUGU og leður-
hanskar voru skilin eftir í
versluninni Hjá Hrafnhildi
við Engjateig sl. laugar-
dag.
Uppl. í versluninni eða í
sima 581 2141.
Víkverii skrifar...
ETURLIÐI Guðnason þýð-
andi skrifar lesendabréf í
Morgunblaðið á fimmtudag og
sparar ekki stóryrðin í garð Vík-
verja. Skrif Víkverja síðastliðinn
laugardag um þýðingu á þættinum
Hjartaskurðlækninum í Ríkissjón-
varpinu eru að sögn Veturliða
„nafnlaust níð“ og bera aukinheld-
ur vott um „sjálfbirgingshátt, fá-
fræði og hreina mannvonzku“. Vík-
verji gerði nú ekki annað en að
benda á að þátturinn hefði verið
illa þýddur. Ekki kemur íram í
bréfi Veturliða að hann hafi horft á
þáttinn og komizt að annarri niður-
stöðu. En úr því Veturliði biður um
dæmi, getur Víkverji tínt til tvö af
mörgum úr fyrsta þættinum. „Ha-
ving you on board“ var þýtt sem
„seta þín í stjórninni", þegar aug-
ljóslega var átt við að sá, sem
ávarpaður var, yrði með í för til
Kína. Og „bilateral exchange of
emotions" var þýtt (þrisvar sinn-
um) sem „einhliða tilfinningar",
sem er hreinn og klár viðsnúningur
á merkingunni. í öðrum þætti
Hjartaskurðlæknisins bætti þýð-
andinn um betur og fjallaði um út-
rýmingu hlaupabólunnar (I), þar
sem átt var við stórubólu
(smallpox), þýddi „handicap“ (for-
gjöf) í golfi sem „örorku“ og kallaði
„People’s Court“ (Aiþýðudómstól-
inn) í Alþýðulýðveldinu Kína „dóm-
stól götunnar“. Ef þetta nægir ekki
Veturliða og öðrum sjónvarpsþýð-
endum skal Víkverji horfa með
þeim á upptöku af þættinum og
benda á aðrar þýðingarvillur - þ.e.
ef þýðendumir fá sig til að horfa á
sjónvarp með fólki „á menningar-
stigi verja“.
EGAR bréf Veturliða er lesið
til enda kemur í Jjós að gremja
Jhans-beinist líklega.einkum að for-
ráðamönnum Ríkisútvarpsins, þótt
Víkverji ræfíllinn lendi í skotlín-
unni. Veturliði segir RÚV hafa
skorið kaup þýðenda niður við trog
í anda markaðshyggju og sakar
stofnunina um „valdníðslu“, sem
komi fram í því að launakerfínu sé
nú „beinlínis beitt til að níðast á ör-
fáum einstaklingum sem vinna sitt
gamla starf af hreinni hugsjón“.
Kannski Veturliði ætti að telja upp
að hundrað og anda djúpt áður en
hann sezt næst við bréfaskrift-
ir. Víkverji skilur samt vel að
Veturliði sé svekktur og sár og tek-
ur undir það, að þýðendur Ríkis-
sjónvarpsins þurfa að vera vel
launaðir. Vandaðar þýðingar eru
mikil nauðsyn í miðli á borð við
Ríkissjónvarpið, sem gegnir öðrum
þræði mikilvægu menningarhlut-
verki. Ekki má gleyma því að
margir, ekki sízt börn, læra erlend
tungumál af sjónvarpinu og þá ber
brýna nauðsyn til að þýðingarnar
séu réttar og vandaðar.
XXX
Ð LOKUM spyr Víkverji hins
vegar: Ef það er rétt hjá Vet-
urliða að sú „gæðavara" sem vand-
aðar sjónvarpsþýðingar eru „fæst
ekki til lengdar langt undir kostn-
aðarverði“, er þá ekki hugsanlegt
að umræddur sjónvarpsþáttur hafi
verið illa þýddur vegna þess að
þýðandinn var að flýta sér til að
hækka tímakaupið sitt? Mega
kannski sjónvarpsþýðendur einir
benda á það, í kjarabaráttu sinni
við Ríkisútvarpið, að þýðingum fari
hrakandi, en ekki fólk úti í bæ, sem
er aukinheldur á öðru menningar-
stigi en Veturliði Guðnason?
VÍKVERJA hefur borizt eftir-
farandi bréf frá Margréti Guð-
mundsdóttur, . forstöðumanni
markaðssviðs Skeljungs hf.:
,Ág*ti Víkverji. Síðastliðinn laug-
ardag fjallaðir þú um vandamál
sem þú lentir í þegar þú reyndir að
nota venjuleg greiðslukort í
sjálfsalanum við aðra Shellstöðina
við Miklubraut. Þú gast sérstak-
lega um ófullnægjandi svör sem þú
fékkst þegar þú hringdir í vakt-
þjónustu okkar og greindir frá
vandræðum þínum. Gagnrýni þín
er réttmæt. Eitt er það að sjálfsal-
inn skyldi ekki taka kortið, en
verri þóttu okkur viðbrögð okkar
manna, er þú í vinsemd þinni ætl-
aðir að upplýsa um að hlutirnir
væru ekki í lagi. Dæmið sannar að
keðjan er aldrei sterkari en
veikasti hlekkurinn. Þetta dæmi er
sérlega slæmt þegar haft er í huga
að umræddur sjálfsali við Miklu-
braut er einn af fáum sjálfsölum
hjá félaginu sem enn eru í notkun
af eldri útgáfu og taka hvorki
debet- né kreditkort. Miklubraut-
arstöðvarnar eru með elstu sjálf-
sala í bænum og tekur sjálfsalinn
sunnan megin eingöngu 1.000 kr.
seðla, en sá norðan megin tekur
eingöngu Skeljungskort. Sjálfsal-
inn var því ekki bilaður umrætt
kvöld. Þetta átti sá sem fyrir svör-
um varð að sjálfsögðu að vita. Bréf
þitt hefur gefið okkur ærna
ástæðu til að yfírfara þjónustuferil
okkar fyrir utan venjulegan af-
greiðslutíma. Við erum hins vegar
mjög þakklát þegar viðskiptavinir
koma með ábendingar um það sem
betur má fara í þjónustokkar."
Víkverji þakkar Skeljungi skjót
og góð viðbrögð, sem eru að sjálf-
sögðu til fyrirmyndar.