Morgunblaðið - 17.01.1998, Side 22
22 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Skýrsla dönsku lögfræðinganefndarinnar um Færeyjabankamálið birt í gær
Færeyingar hlunnfarnir
UFFE Ellemann-Jensen flettir bankaskýrslunni en hann hefur haldið
uppi harðri gagnrýni á ríkisstjórnina.
Forsætisráðherra Dana
viðurkenndi í gær að
þrýst hefði verið á
Færeyinga til að taka á
sig skuldir Færeyja-
banka. Sigrún Davíðs-
dóttir rekur viðbrögðin
við Færeyjabanka-
skýrslunni, en málið
hefur dregið úr trausti
Færeyinga til Dana og
stj órnarandstaðan
reynir af kappi að
koma höggi á stjórnina
með skýrslunni.
IKJÖLFAR skýrslu lögfræð-
inganefndar um Færeyja-
bankamálið, sem birt var í
Kaupmannahöfn í gær, segir
Poul Nyrup Rasmussen for-
sætisráðherra að Færeyingar hafi
ástæðu til að vænta bóta á ein-
hvem hátt þar sem þeir hafi yfir-
tekið mun stærri bagga en ætlað
var, er þeir tóku yfir Færeyja-
banka í mars 1993. Einnig gaf hann
í skyn að Færeyingar hefðu hugs-
anlega ástæðu til að höfða mál
gegn Den Danske Bank og beinir
því fyrst og fremst athygli að emb-
ættismönnum og Den Danske
Bank. Hann segir skýrsluna stað-
festa að allur orðrómur um sam-
særi dönsku stjórnarinnar og
bankans gegn Færeyingum eigi
ekki við nein rök að styðjast. Uffe
Ellemann-Jensen, formaður Ven-
stre og leiðtogi stjómarandstöð-
unnar, segir hins vegar skýrsluna
styrkja þá skoðun sína að Nymp
Rasmussen hafi vitað til fulls hver
staðan var á Færeyjum í byrjun
febrúar 1993, án þess að láta
Færeyinga vita og síðan gefið
þinginu villandi upplýsingar 1995
um þátt sinn á málinu. Slík staða
hafi fellt Poul Schliiter 1993, en
það sé nú undir stuðningsflokkum
stjómarinnar komið hvort sama
ályktun verði dregin nú.
Biðraðir eftir skýrslunni
„Það er skýrslan, ekki satt?“
sagði skilningsríkur vörður við hlið-
ið að dómsmálaráðuneytinu
danska, þar sem Færeyjaskýrslan
var afhent fjölmiðlum í gær kl. 16.
Vörðurinn var löngu hættur að
huga að skilríkjum mannfjöldans,
sem dreif að. Jorgen Gronborg,
lögfræðingur og aðalhöfundur
skýrslunnar, náði því sem flesta rit-
höfunda dreymir um: Það vom
biðraðir við alla þá staði, sem fimm
binda verkið hans, alls 2.500 blað-
síður, var afhent á. Fyrst beið for-
sætisráðherra eftir sínu eintaki í
gærmorgun, síðan var biðröð í
þinginu kl. 15 þegar þingmönnum
var afhent skýrslan og loks var bið-
röð upp alla stiga í dóms-
málaráðuneytinu, þar
sem blaðamenn, embætt-
ismenn og starfsmenn
stj ómmálaflokkanna
gátu sótt hana. „Þetta er
það skemmtilegasta sem hefur
gerst síðan Tamílaskýrlan kom út,“
sagði einn blaðamaður með galsa
og það vom reyndar fleiri í gær
sem létu hugann reika 5 ár og tvo
daga aftur í tímann að birtingar-
degi Tamílaskýrslunnar og afsagn-
ardegi Pouls Schlúters forsætisráð-
herra, þegar Nyrup Rasmussen
komst til valda án kosninga.
Einn þeirra sem mætti í dóms-
málaráðuneytið til að ræða við
blaðamenn var Frank Aaen, þing-
maður Einingalistans, sem er
lengst til vinstri í þinginu. Aaen
hefur verið einn harðorðasti gagn-
rýnandi stjómarinnar og sagði í
samtali við Morgunblaðið að eftir
klukkustundarlestur áliti hann
skýrsluna staðfesta þá hugmynd
sína að það hefðu verið til þeir
Færeyingar, sem höfðu innsæi inn
í stöðu mála 1992-1993. Sumir
hefðu vitað meira en aðrir, en þeg-
ar færeyskir fréttamenn inntu
hann nánar eftir þessu vildi hann
ekki nefna nein nöfn. Af skýrslunni
væri einnig ljóst að Peter Straar-
up, núverandi bankastjóri Den
Danske Bank, hefði talað tveimur
tungum. Hann hefði gert banka-
stjórninni ljóst hve illa Færeyja-
banki stóð, á sama tíma og hann
sannfærði Maritu Petersen lög-
mann um að allt væri í stakasta
lagi með stöðu bankans. Aaen vildi
ekki segja neitt um hlut forsætis-
ráðherra, en sagðist enn
ekki hafa séð neitt í
skýrslunni, sem benti til
að hann hefði vísvitandi
villt um fyrir Færeying-
um 1993, eða danska
þinginu 1995.
Þama bar einnig að starfsmann
Jafnaðarmannaflokksins, sem í
samtali við Morgunblaðið sagðist
hafa séð hrafl úr skýrslunni í vik-
unni og það hefði sannfært sig um
að ekki væri rétt að beina aðeins
athyglinni að dönsku stjóminni og
færeysku landstjóminni eins og
hingað til, heldur væri hlutur Den
Danske Bank hinn versti.
Sökin hjá embættismönnum og
Den Danske Bank
Eftir því sem leið á daginn og
viðbrögðunum fjölgaði, fóra línum-
ar að skýrast. Stjómarandstaðan
og þá einkum hægriflokkamir álitu
skýrsluna ekki geta annað en dreg-
ið úr trausti til stjórnarinnar, með-
an jafnaðarmenn og stuðnings-
flokkar stjómarinnar drógu úr
gagnrýni á stjómina, en beindu
fyrst og fremst athyglinni að emb-
ættismönnum og Den Danske
Bank og fremstur í flokki var sjálf-
ur forsætisráðherrann.
Forsætisráðherra fékk skýrsl-
una í gærmorgun. Frameftir degi
var óljóst hvort hann ætlaði sér að
ræða við fjölmiðla, en það gerði
hann loks undir kvöldið. Hann und-
irstrikaði að þótt bankamálið hefði
ekki æxlast vel fyrir Færeyinga, þá
mætti ekki gleyma að nú væra þeir
komnir yfir kreppuna og það með
góðri hjálp Dana, sem hefðu gert
sitt besta. Nú mætti þó sjá að það
hefði ekki verið rétt að halda því
fram við Færeyinga í mars 1993 að
Færeyjabanki stæði vel, það væri
ergilegt, en nú gengi mun betur á
eyjunum en þá. Nú mætti sjá að
forsendur fyrir þeirri ákvörðun að
Færeyingar tækju bankann yfir
hefðu ekki verið réttar.
Þeir sem báru að sögn Nyraps
ábyrgð á því að forsendumar vora
ekki réttar vora Den Danske
Bank, Fjármálaeftirlitið og Fin-
ansieringsfonden, sjóður sem sett-
ur var á stofn til að aðstoða Færey-
inga undir stjórn Richard MikkeL
sens, fyrram seðlabankastjóra. I
ljósi þessa gaf Nyrup sterklega til
kynna að Færeyingum yrði á ein-
hvem hátt bættur skaðinn. Það
liggur ekki ljóst fyrir hvort hann
hefur í huga að Den Danske Bank
verði sóttur til saka og látinn
greiða skaðabætur, að danska
stjómin leggi fram fé, eða að ein-
hver önnur leið verði farin.
Mogens Lykketoft fjármálaráð-
herra vildi ekki gefa upp neinar
tölur um hvaða upphæðum
Færeyingar mættu eiga von á, en
af orðum hans mátti skilja að
Færeyingar mættu bæði eiga von
á bótum frá dönsku stjórninni og
frá Den Danske Bank. Hann bar
einnig af sér að hann hefði haft
áhrif á Fjármálaeftirlitið í þá átt
að seinka athugun þess á aðstæð-
um færeysku bankanna, eins og
Uffe Ellemann-Jensen hefur hald-
ið fram.
Per Stig Moller, formaður
Ihaldsflokksins, staðnæmdist í um-
mælum sínum við hlut Lykketofts
og taldi hann bera höfuðábyrgð,
ekki síður en Nyrap. Kirsten Jac-
obsen, þingmaður Framfaraflokks-
ins, hefur látið málið mikið til sín
taka og sagði að ef stjóminni væri
einhver alvara með tali sínu um
siðgæði ætti hún ekki að sitja fimm
mínútum lengur. Fleiri minntu á
stór orð stjómarinnar um siðgæði í
stjómmálum. Nú stæðist hún ekki
sínar eigin kröfur.
Lágkúrulegt að kenna
embættismönnum um
Eftir því sem leið á daginn varð
Uffe Ellemann-Jensen ómyrkari í
máli. Hann sagði það lágkúrulegt
af Nyrap að ætla að koma ósóman-
um á embættismennina þar sem
ljóst væri að stjómin bæri ábyrgð-
ina og þá auðvitað forsætisráð-
herra þegar allt kæmi til alls.
Skýrslan hefði styrkt sig í þeirri
trú að Nyrap hefði í raun að fullu
verið kunnugt um ástand færeysku
bankanna. I skýrslunni
væru nefnd nokkur skjöl,
sem síðan væru ekki tek-
in með og nú ætlaði hann
að fara fram á að þau
yrðu birt.
Það sem Ellemann-Jensen ýjar
að er að þegar Nyrap kom til valda
í lok janúar 1993 var hann fljótlega
settur inn í ástand mála í Færeyj-
um enda var það eitt af stóra mál-
unum sem beið hans. Eins og
Ellemann-Jensen benti ítrekað á í
gær er það vægast sagt ótrúlegt að
Nyrap hafi þá ekki fengið fulla inn-
sýn í ástand bankanna tveggja,
Færeyjabanka og Sjóvinnubank-
ans, og þá hve illa Færeyjabanki
stóð. Við valdatöku nýs forsætis-
ráðherra háttar svo til að hann er
settur inn í málin af embættis-
mönnum en fær ekki að sjá emb-
ættisskjöl fráfarandi stjómar
strax.
Þegar Nyrup segist ekki hafa
séð tiltekin skjöl um til dæmis
ástandið á Færeyjum þá samræm-
ist það þeim venjum sem gilda við
ráðherraskipti. Hins vegar eiga
Ellemann-Jensen og fleiri erfítt
með að trúa að Nyrup hafi ekki
fengið neinar upplýsingar um
bankamáhn og að hann hafi ekki
haft hugmynd um hversu fjárþurfi
Færeyjabanki var í raun. Þess
vegna á Ellemann-Jensen erfitt
með að sætta sig við þær ásakanir
Nyraps á hendur embættismanna
og Den Danske Bank að þeir hafi
ekki upplýst hann rétt og þá held-
ur ekki Færeyinga.
Traust til Dana
skroppið saman
Stjómarherbergi Den Danske
Bank vora uppljómuð fram eftir
kvöldi í gær og enginn efi á að þar
kepptust menn við lestur. Um
kvöldmatarleytið sendi Staarap
bankastjóri frá sér stutta tilkynn-
ingu þar sem hann sagði bankann
hafa á sínum tíma gefið þær upp-
lýsingar, sem hægt var að gefa.
Bankinn hefði ekki séð fynr þá
þróun, sem orðið hefði síðar. I sam-
tali við TV2 sagðist Lise Lyck,
lektor við danska Verslunarháskól-
ann, álíta að bankinn hefði beðið
álitshnekki. Hún sagðist aldrei
hafa séð að sambærilegri stofnun
væri veitt önnur eins útreið og að
af skýrslunni mætti draga þá
ályktun að danska stjórnin myndi
eiga kröfu á bankann um skaða-
bætur. Einnig mætti búast við að
það þyrfti að stokka upp starfsemi
Fjármálaeftirlitsins fyrst eftirlitið
með færeysku bönkunum hefði
verið jafn slappt og skýrslan bæri
vitni um.
Jafnframt því sem danskir fjöl-
miðlar sendu út ummæli danskra
stjómmálamanna, vora beinar út-
sendingar frá Færeyjum. Edmund
Jóensen lögmaður sagðist ekki
treysta sér til að koma með endan-
lega ályktun, því hann og sam-
starfsmenn hans hefðu aðeins haft
nokkrar klukkustundir til lesturs.
Af lestrinum markaði hann þó
helst að Færeyingar hefðu fengið
hrapallega meðhöndlun í Dan-
mörku. Þeir hefðu fengið ónógar
upplýsingar frá dönsku stjóminni
og rangar upplýsingar frá Den
Danske Bank og því ekki getað
tekið réttar ákvarðanir. Hver við-
brögðin yrðu væri enn of snemmt
að segja um. Hann lét þó í það
skína að hugmyndir Dana um að
danska stjómin og færeyska land-
stjómin höfðuðu í sameiningu mál
gegn Den Danske Bank ættu ekki
endilega fylgi að fagna í Færeyj-
um. Nú vildu Færeyingar sjálfir
hugsa sinn gang og hugsanlega
leita til erlendra lögfræðinga um
ráð. Það lá í orðum hans og fleiri
Færeyinga að traustið til Dana
hefði mjög skroppið saman.
Kafli í Færeyjasögunni,
en ekki lokakafli
Það er ljóst að enn er margt
ósagt um Færeyjamálið og margt
getur leynst á 2.500 blaðsíðum
skýrslunnar. Þeir sem hafa fjallað
um skýrsluna í dönskum fjölmiðl-
um hafa tekið fram að valdahroki
og áhugaleysi á velferð
Færeyinga hafi einkennt
umfjöllun um færeysk
málefni í embættiskerf-
inu. Á Færeyingum er
að skilja að þeir séu
bæði reiðir dönsku stjórninni og
hafi misst traust til hennar. Hægri-
flokkunum verður tæplega að ósk
sinni um að málið verði stjórninni
að falli, en það gæti dregið úr
trausti á henni og Nyrup og
Lykketoft eiga margt eftir óskýrt.
Til þess fá þeir tækifæri í fyrir-
spurnartíma í þinginu 27. janúar
þegar skýrslan verður tekin til um-
ræðu.
Komnir yfir
kreppuna með
hjálp Dana
Fengu
hrapallega
meðhöndlun