Morgunblaðið - 17.01.1998, Síða 44

Morgunblaðið - 17.01.1998, Síða 44
. 44 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Ástkær móðir okkar, MAGNEA SJÖBERG frá Hóli, Vestmannaeyjum, lést að morgni föstudagsins 16. janúar. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Dætur hinnar látnu. + Eiginmaður minn, GUÐJÓN JÓNSSON, Arahólum 2, lést á Landakotsspítala föstudaginn 16. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Jónsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför konunnar minnar, LAUFEYJAR ÁSU INGJALDSDÓTTUR, Fálkagötu 14, Reykjavfk. Steingrímur Oddsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður míns og frænda okkar, BALDURSJÓNSSONAR frá Ormsstöðum, Norðfirði, Stórholti 26, Reykjavík. Sérstakar þakkir til séra Braga Skúlasonar og starfsfólks hjartadeildar Landspítalans. Aðalsteinn Jónsson og ættingjar hins látna. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- arhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNS BJÖRNS HELGASONAR, Þinghólsbraut 17, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Kolbrún Gunnlaugsdóttir, Þorbjörg Jónsdóttir, Ólafur E. Ólafsson, Kristfn Anna Jónsdóttir, René Sedney, Ásdfs Ýr Ólafsdóttir, Kolbrún Ólafsdóttir, Jón Karel Sedney. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför bróður okkar og frænda, HÉÐINS HANNESSONAR, Böðvarsdal, Vopnafirði. Sérstakar þakkir til þeirra, sem veittu honum aðstoð og hjálp siðustu stundirnar. Jónína Hannesdóttir, Runólfur Hannesson, Sveinn Hannesson, Ema Hannesdóttir, frændfólk og aðrir aðstandendur. + Kristófer Iielgi Jónsson fæddist 19. júh' 1906. Hann lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 9. janúar siðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón H. Einarsson, bóndi á Rauða- sandsmei syðra í Kol- beinsstaðahreppi og síðar á Miðhúsum á Mýrum, og kona hans Helga Jónsdóttir af Galtarhoitsætt. Kristó- fer ólst upp á Miðhús- um. Hinn 9. júlí 1933 gekk Kristófer að eiga Auði Pét- ursdóttur, dóttur Péturs Guð- mundssonar, skóiastjóra á Eyr- arbakka, og konu hans, Eh'sabet- ar Jónsdóttur. Auður var fædd 28. júlí 1907. Hún lést 1985. Son- ur þeirra Páll er fæddur 23. des- ember 1935. Kona hans er Ingi- björg Gestsdóttir. Börn þeirra: Kristófer Helgi, Eisa, Páll Ingi Kristófer Helgi Jónsson í Hóla- brekku dó í Sjúkrahúsi Keflavíkur á 92. aldursári 9. janúar. Hann var fæddur í vikunni fyrir Kristófers- messu 1906, 19. júlí. Nafnið, sem hann hlaut úr móðurætt, þýðir Kristberi því dýrlingurinn Kristófer helgi bar lítið bam á háhesti yfir fljót eitt mikið og vissi ekki, að það var Jesúbamið og með því sköpunin öll. Kiddi og Auður Pétursdóttir föð- ursystir mín bám böm á höndum sér, svo augljóst mátti verða hvað það þýddi að leika á lófum. Hvergi varð bami dvölin betri en þar, hjá þeim var öraggt skjól. Hún var glettin og kát, hann svo hægur og ljúfur, bæði hlý og vingjamleg, hjálpsöm og velvijjuð, og góð- mennska og hjartahlýja einkenndu allt þeirra fas. Hjá þeim fannst manni lífið einfalt, þar í hægðinni renndi enginn gran í, að til yrði stress eða streita, allt hafði sinn tíma og af honum var nóg. Minningin um Kidda er mild og góð eins og hann var sjálfur. I henni er ómur af söng og ilmur úr heyi, sólskin og sumarvindur. Hún er líka minning um gleði á góðum degi, löngu liðin bemskusumur. Hvergi kann einbimi betur við sig en í hópi frændsystkina. Þau vora mörg á Miðhúsum, Páll einka- bam Auðu og Kidda, fæddur á Þor- láksmessu 1935 og 7 böm Nellýjar föðursystur minnar og Jóns manns hennar. Þær vora systur, þeir bræður, synir Helgu Jónsdóttur og manns hennar, Jóns H. Einarsson- ar, skálds og bónda. Ættir þeirra hjóna vora meridsættir borgfirskar, hún var af Galtarholtsætt, sem fræg er að söng og gleði. Ekki vom Mið- húsabærður neinir ættlerar, manna glaðastir sungu þeir við orgelið í stofunni, söngurinn tandurhreinn og sönghjörtun heit: Kvöldið er fag- Sérfræðingar í hlómaskreytingum við • >11 tækifæri I VÉblómaverkstæði f I ÍSinna" 1 Skólavcirðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090 og Auðunn. Mað- ur Elsu er Sigur- þór Stefánsson, kona Auðunar Gróa Axelsdóttir. Kristófer og Auður hófu bú- skap á Sigguseli, lyáleigu frá Alftanesi á Mýr- um 1933. Fluttust síðar að Miðhús- um og bjuggu þar til þess er þau fluttust að Langárfossi, þar sem þau bjuggu um skeið. Þaðan fluttust þau hjón ásamt syni sfnum að Hólabrekku í' Miðneshreppi. Þar stundaði Kristófer búskap og vann jafn- framt við fiskverkun og ýmis al- menn störf. títför Kristófers fer fram frá títskálakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. urt, við fjallavötnin fagurblá, vængjum vildi eg berast, þær gleði- stundir gleymast aldrei, fermingar- veislur krakkanna, merkisafmæli fullorðna fólksins. Friðgeir á Hofs- stöðum þandi nikkuna og dansinn dunaði. Ekki vermdum við litlar telpur bekki, dönsuðum stundum hver við aðra, stundum buðu Kiddi, Gústi og Jón okkur upp því þeir vora kurteis góðmenni og sveifluðu dömunum kringum sig í gömlum takti og glæsilegum svo að hringskornir sparikjólar fengu loks- ins að njóta sín. Kiddi og mamma að dansa úti í hlöðu og við krakkamir á gægjum úr nýhirtri töðu, hann með hofmannlegt bros í augnkrókum, hún svo ung og falleg. 8. júlí 1933 gengu Auður og Kristófer í hjónaband og hófu bú- skap í Sigguseli. Aldrei varð auður í þeirra garði en af kærleika áttu þau nóg og ástin var heit, hún rykféll aldrei eða ryðgaði eða gekk úr sér heldur dafnaði og greri ævilangt. Það er gott að muna svo rómantíska ást hjá svo hversdagslegu fólki. Sigguselshjón og ástin urðu ömmu minni, Elísabetu Jónsdóttur, yrkis- efni: Komdu að borða búsins forða brauð og físk og smér, eg bíð ekki lengur á hverju sem gengur, komdu Kristófer. Eg kem bráðum, elskan góða, undu litla stund, þótt gott sé brauð á borðum betri er sem forðum ást þín eina stund. Núereilengurtímitil að tala um ástina. Matur á borði bíður, brátt á katli sýður, komdu með könnuna. Búsins forði er í orði enginn, Kristófer, þeir sem vaskir vinna, visastguiðfinna, einumannegþér. Búskapurinn í Sigguseli var erfið- ur og varð ekki langur, þaðan flutt- ust þau í Miðhús. Þar sé ég þau yós- lifandi fyrir mér í leik og starfi. Enginn kunni jafnvel að varðveita barnið í sér og hún frænka mín. Tína ber, tína ber, skessan er ekki heima sögðum við krakkarnir, og hún var skessan, sem hljóp á eftir okkur niður hólinn og hló enn hærra en við hin þegar hún hremmdi okkur en maður hennar brosti álengdar. Svo leiddi hún mig með sér í litla garðinn, sem hún átti utan í hól á leiðinni niður í fjöra. Það er eins og ég muni ekki eftir neinu, sem óx þar nema blómum, bláum, rauðum, bleikum og ilmandi, skeljum, kuðungum og steinvölum og svo okkur frænkunum á tali. Frá Miðhúsum fluttust þau þrjú að Langárfossi og þar var líka gott að koma, vitja um net með Kidda og skjálfa af spenningi þegar Palli stiklaði fífldjarfur yfir ána. Sumarið 1952 fluttust þau úr héraðinu og Auða fór treg af Mýranum en ham- ingjan beið þeirra suður á Miðnesi. Hún hét Inga stúlkan, sem festi yndi frænku minnar í nýrri sveit. Ekki fluttist fjölskyldan ein milli fjórðunga. Á bílpalli komu kýr og folaldsmeri og Skjóni, og Snati lapti mjólk af psotulínsskál hjá Gunnu í Hlíðardal. Þar fékk merin haga með folald sitt þangað til pabbi reið henni suður í Hólabrekku. Folaldið réð ferðargangi en nóttin var björt. Feðgamir fengu vinnu í fiski og undu vel sínum hag, og þau vora fljót að eignast vini. Alltaf var frændfólk aufúsugestir í Hóla- brekku, og tíðförult varð mér einni eða með frændsystkinum í rútunni suður eftir í skemmtiferð. Það var allt jafn heillandi. Frænkan góða og maður hennar voru eftirlát. Búðar- leikur var heimill með allt sem þau áttu og þau vora kúnnar góðir, Garðskagafjara var fínasti leikvöll- ur í heimi, sögur vora indælar og samtöl líka, húsbóndinn söng og rokkur húsfreyju tók undir, hún svo yndislega hláturmild og þau hjón litu ætíð á böm sem jafningja sína. Vandræðaböm vora stundum vistuð hjá þeim og mættu vinsemd og skilningi, aldrei dómhörku eða hnjóði. Auða frænka mín unni manni sín- um hugástum og hann henni. Páll sonur þeirra var þeim yndi og óska- barn. Hún fékk líka takmarkalausa ást á Ingibjörgu Gestsdóttur tengdadóttur sinni, og það mætti skrifa um það ævintýri hve heitt hún unni bamabömum sínum Kristófer Helga, Elsu, Páli Inga og Auðuni og þau Kddi bæði, og sög- umar sem okkur vora sagðar af Kidda litla og þeim ölium vora margar. Það mætti líka skrá á bók allan þann kærleika og umhyggj- una, sem gömlu hjónin nutu frá Palla, Ingu og bömunum, því sögur af sUkri ræktarsemi era fátíðar. I júlí 1956 var veislutjald reist í Hólabrekkutúni á fimmtugsaftnæii húsbóndans. Þar var fjölmenni; fagnað og sungið fram á nótt. I hitteðfyrra heimsóttum við hann ní- ræðan á rausnarheimili Ingu og Palla. Hann var glaður og viðmóts- þýður við vini og vandamenn, bar eliina vel og enn var hofmannlegt bros í augunum. Kristófer Helgi Jónsson verður jarðsunginn í Útskálarkirkju klukk- an tvö í dag og lagður til hvíldar hjá Auði konu sinni. Hún lést 1985. Mér verður alltaf minnisstætt þegar hún beið hans forðum við glugga hve glöð hún varð þegar hún sá hann koma. Ragnheiður Ásta Pétursdóttir. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). KRISTÓFER HELGI JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.