Morgunblaðið - 17.01.1998, Page 46
46 LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
JÓN HJÖRTUR
GUNNARSSON
+ Jón Hjörtur
Gunnarsson
fæddist í Reykjavík
5. júlí 1925. Hann
lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur 3.
janúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Neskirkju
12. janúar.
Æ, elsku pabbi.
Hver hefði trúað að
kallið þitt væri komið,
þú sem rétt varst að
byrja að njóta lífsins,
hætta að vinna og
verða gamall eins og þú orðaðir það
sjálfur, er við spjölluðum saman
kvöldið áður en þú hvarfst á braut.
Hugur minn reikaði víða með þér
og margar minningar stóðu upp úr.
Sú mynd sem hæst ber er þó hve
traustur þú varst, stóðst við orð þín
og hvattir okkur áfram í öllum hlut-
um.
Ég man er ég var um 6 ára göm-
ul og var á leiðinni upp á Landa-
kotsspítala. Ég var að fara að leggj-
ast inn í augnaðgerð og á leiðinni
upp á spítala komum við mamma
við í vinnunni hjá þér. f>ú varst á
kafi við að koma upp mótum við
bygginguna á Miðbæjarmarkaðin-
um. Þú gafst þér þó tíma til að líta
upp, heyra tíðindin og faðma mig
að þér, kyssa mig á kinn og sagðir
mér að vera dugleg og hafa engar
áhyggjur því Guð væri með mér.
Þú lofaðir að heimsækja mig og ef
ég yrði dugleg mundir þú færa mér
eitthvað fallegt. Þú stóðst við það.
Þú komst þegar ég var að vakna úr
svæfingu. Ég man að ég skreið í
faðminn þinn, þótt þú værir allur í
steypuryki, mér var sama, pabbi
var kominn, með smápakka.
Tíminn leið og ég lærði stafi, þá
stóð ég oft fyrir aftan þig eða sat í
fanginu á þér og hjálpaði þér, að
mér fannst, að ráða
krossgátur. Ég gladd-
ist alltaf mikið þegar
þú skrifaðir stafi sem
ég nefndi. Þú hafðir
gaman af krossgátum
og góðum bókum. Ég
man þegar ég ákvað að
ráða _ krossgátu fyrir
þig. Ég sat um Lesbók
Moggans og tók kross-
gátuna og fyllti hana
út með penna og stór-
um stöfum svo ekki
væri hægt að skrifa
neinn staf í reitina. Ég
vildi bara gera þetta
fyrir þig svo þú gætir verið með
okkur. Þú reiddist mér ekki, en ég
fann að þú varst ekki ánægður. I
stað þess að skamma mig tókstu
mig í fangið, settist á stól og þakk-
aðir mér fyrir. En þú sagðir mér að
svona mætti ekki gera, þetta væri
þitt. Svo skýrðir þú út iyrir mér að
krossgátur væru orðskýringar. Þú
spurðir hvað ég vildi og ég bað um
að við færum að skoða litla húsið.
Þú vissir hvaða hús það var, þú
bjóst þar sjálfur. Mér þótti alltaf
svo gaman að skoða það, af þvi að
gatan var alveg að éta húsið, hún
var komin upp á aðra hæð. Þú varst
svo oft til í göngutúr með okkur um
Mýrargötuna, til að skoða litla hús-
ið. Margar ferðir um Elliðaárdalinn
eru líka minnisstæðar. Þú notaðir
oft frítíma þinn ef færi gafst, en þú
vannst oft mikið og langan vinnu-
dag. Oft sáum við þig ekki í nokkra
daga því við vorum sofnuð þegar
vinnudegi þínum lauk.
Þegar ég eignaðist mitt fyrsta
barn leit ekki allt vel út eftir fæð-
ingu. Barnið endaði á vökudeild og
ég sá enga ástæðu til að hlúa að
henni. En þú gafst ekkert eftir. Þú
komst í heimsókn og sýndir mér
fram á að Steinunn Þuríður þyrfti á
mér að halda. Þú hættir ekki að
MINNINGAR
hvetja mig til að heiisa upp á hana
fyrr en ég fór, og þá bara fyrir þig.
Þú hertir mig upp og sagðir mér að
biðja fyrir henni. Þú vissir að þetta
dygði, ég stóð mig, en bara fyrir
pabba. Svo gekk þetta eftir, allt
gekk vel og þú varst svo ánægður.
Síðustu tvö ár hafði ég fengið að
kynnast þér mjög vel. Þú varst far-
inn að opna þig aðeins. Þegar við
Siggi Már slitum sambúð eftir 11 ár
þá tók það á þig. En það voru
einmitt þú og mamma sem áttuð
svo stóran faðm þá. Þú studdir mig
hvað mest. Mörg kvöld kom ég, því
ég vissi að þú varst einn heima. Ég
kom bara til þess að spjalla við
pabba og oft bara til að gráta. Þá
var gott að kúra í faðminum þínum
og láta tárin flæða og stundum flutu
þín tár líka. Við skildum hvort ann-
að, það þurfti ekki orð. Oft sagðir
þú það sem ég hugsaði, ég þurfti
ekki að segja orð. En ekki vantaði
að þú stappaðir í mig stálinu og
sagðir að Guð yrði alltaf með mér.
Við ræddum stundum trúmál og
þú sagðir mér frá því hvernig
amma Sigríður hefði alltaf hvatt þig
til að stunda KFUM heima á Akur-
eyri. Þar eignaðist þú þína barna-
trú og á henni stóðst þú og hvattir
okkur áfram. Þú varst ánægður að
vita af okkur systkinunum í slíkum
félagsskap. Énda baðstu mig
óspart um fyrirbænir þegar veik-
indi þín hófust. Þú treystir Guði.
Ég fékk líka að kynnast hlið sem
ég veit að systkini mín fengu ekki
eins mikinn skerf af. Þú varst ekki
vanur að tala um tilfinningar þínar
eða losa um það sem á hjartanu lá.
Ég gróf mig að hjarta þínu og bor-
aði mér þarna inn, því þar leyndist
þinn innri maður, þessi tilfinninga-
ríki og brothætti maður sem ekkert
aumt mátti sjá eða illt finna. Þú
sagðir mér frá tilfinningu og upplif-
un við aðskilnað frá foreldrum þín-
um þegar þú fluttir til ömmu þinn-
ar á Akureyri. Þú talaðir þó alltaf
um mömmu þótt amma væri. Ýmis-
legt fleira sagðir þú mér sem var og
er leyndarmál. Mér fannst ég orðið
þekkja þig meira en margur annar.
Mér þótti orðið svo vænt um þig,
ekki bara sem pabba, heldur líka
sem vin, mann með stórt hjarta.
Það var líka gott að finna að þú
treystir mér, og það verður ekki
brotið þótt þú sért horfinn á braut.
Við áttum svo yndislega stund
daginn áður en þú kvaddir þennan
heim. Við ræddum um ágæti síð-
asta árs og framtíðina. Ég sagði
þér að mér hefði fundist svo mikil
náð að hafa fengið að fara með ykk-
ur mömmu til London í haust og
eyða með ykkur 10 daga fríi. Það
var indæll tími. Svo fékk ég aftur
að hafa ykkur mömmu á aðfanga-
dagskvöld. Þú varst þá svo hress og
kátur. Þú fylgdist með Steinunni og
Helgu, Jósúa og Kaleb og gladdist
með þeim.
Ég veit að Steinunn og Helga
sakna afa sárt. Helga átti svo góð
tök í þér. Þú passaðir hana svo mik-
ið fyrir mig, hún var afatrunta eins
og þú nefndir hana. Hún er nú búin
að fara og leita að afa sínum á
Tunguveginum. Hún fór alveg frá
efstu hæð og niður í kjallara. Þar
mætti ég henni og hún sagði:
„Hann er heldur ekki að smíða,
hann er farinn til Jesú, verkfæra-
laus.“ Hún var stundum í kjallaran-
um að smíða með afa, og afi sagði
henni að mörg verkfæri væru
hættuleg, hún gat alveg bent
mömmu á þau.
Elsku pabbi, ég veit að þú hefðir
ekki viljað öll þessi orð um þig, því
þér fannst þú ekki merkilegur mað-
ur, þú varst hógvær og af hjarta lít-
illátur. En ég elska þig og á eftir að
sakna þín mjög sárt. Far þú í friði
og hafðu þökk fyrir allt.
Ég elska þig.
Þín
Ásta Lda.
Elsku afi minn. Það vissi enginn
að þitt kall væri komið svona
snemma, þú varst svo hress daginn
áður og þú varst svo glaður, þú
varst að byrja nýtt líf eftir veikindi
þín. Þú varst alltaf svo hjálpsamur
ef ég bað um hjálp við eitthvað t.d. í
orðskýringum fyrir skólann og með
heimalærdóminn. Afi minn, þú
stóðst alltaf við þitt. Þú unnir öllum
börnum og barnabörnum þínum.
Þú lékst þér stundum við mig. Þú
leyfðir mér oft að horfa á spólu
þegar þú varst búinn að horfa á
fréttirnar þótt einhver skemmtileg
mynd væri eftir.
Fátt þótti þér skemmtilegra en
að ráða krossgátu og ég hafði svo
gaman af að fylgjast með þér, þú
varst svo klár. Mér þótti vænst um
að fá að hafa þig hjá okkur síðasta
aðfangadagskvöldið þitt, þú varst
svo glaður og alveg eins var á
gamlárskvöld.
„Ég sakna þín, um daga og næt-
ur hugsa ég um þig, á daginn kem-
urðu upp í huga mér, á næturnar
kemurðu en bara aðeins í draumi.
Ég sakna þín mikið og ég sakna þín
sárt afi minn Jón.“
„Það fæddist lítið ljós, lítið rautt
gjafmilt ljós. Þetta ljós óx og dafn-
aði og skilaði ávöxtum lífsins, þetta
ljós var yndislegt þetta var hann afi
minn.“
Við eyddum stundum okkar sam-
an með því að fara og keyra fram-
hjá litla húsinu hans afa við Mýrar-
götuna. Nú er það horfið, manstu
hvað við vorum hissa þá? Ég var
svo heppin að mega fara með ykkur
ömmu til London í haust. Það var
gaman. Manstu öll fallegu blómin
hjá Díönu, skemmtilegu dýragarðs-
ferðina, skoðunarferðina um
London og alla rigninguna sem
kom allt í einu þá? Manstu sigling-
una um Thames, þú varst svo heill-
aður af öllum þessum stóru bygg-
ingum. Þér fannst byggingarlistin
falleg. Manstu þegar við fórum á
vaxmyndasafnið, þú týndist. Svo
komstu aftur, þá fannst þú hús í
byggingu. Þú þurftir að skoða
hvemig handbragð þeirra var, þér
fannst þeir vinna skringilega. I vax-
myndasafninu hittir þú Krókódfla-
Dundee og lést mömmu taka mynd
af þér, því þér þótti hann góður
leikari. Mér þykir leitt afi minn að
þú skyldir ekki sjá allar myndirnar
af okkur frá London.
Afi, mér þykir vænt um þig.
Þín
Steinunn.
AUG L V S 1 1 1 IM Q A !
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Verslunarstarf
Leitum að samviskusömum og duglegum
starfskrafti í fjölbreytt og lifandi verslunarstarf.
Lágmarksaldur 25 ára, reyklaus og verður að
geta hafið störf sem fyrst.
Sænskukunnátta og/eða reynsla af útstillingum
í fataverslun æskileg, þó ekki skilyrði.
Umsókn skilisttil afgreiðslu Mbl., merkt: „Fólk".
Verkstæðismaður
Vanur verkstæðismaður óskast strax.
Upplýsingar í símum 565 3143, 565 3140
og 852 8151.
KENNSLA
Leiklistarskóli Bandalags
íslenskra leikfélaga auglýsir
Grunnnámskeid í leikhúsförðun 30. janúar
til 1. febrúar 1998.
Reynslu er ekki krafist, áhugi og forvitni er
nóg!
Framhaldsnámskeið í leikhúsförðun
6.-8. febrúar 1998.
Grunnnámskeið í leikhúsförðun — töluverð
verkleg reynsla áskilin.
Kennari er Gréta Boða.
Kennt verður á Laugavegi 96, Reykjavík.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 20. janúar nk.
Allar nánari upplýsingar í símum 551 6974 og
552 2944 virka daga milli kl. 9.00 og 13.00.
Tónskóli
Sigursveins D. Kristinssonar
Undirbúningsdeild fyrir fullorðna verður starf-
rækt á vorönn 1998. Hentar þeim, sem vilja
læra á hljóðfæri eða söng og einnig foreldrum
barna í tónlistarnámi.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu skólans,
Engjateigi 1, sími 568 5828.
ATVINNUHUBNÆÐ
Atvinnuhúsnæði
í Garðabæ
Til leigu á besta stað í Garðabæ 470 m2 hús-
næði sem hentarfyrir hvers kyns léttan iðnað,
lager, skrifstofu, líkamsrækt eða annað.
Á húsnæðinu eru innkeyrsludyr og gönguhurð-
ir, góðir gluggar og fallegt útsýni.
Aðkoma frá götu er mjög góð. Afmarkað rými
erfyrir skrifstofu-, kaffi- og salernisaðstöðu.
Þjófavarnakerfi.
Nánari uppl. í síma 565 7570 eða 897 6248.
TIL SOLU
Byggingarkrani - steypusíló
Til sölu PEINER byggingarkrani, árg. 1982, með
40 m bómu. Lyftigeta 1300 kg í enda, hæð und-
ir krók 28 m, með 24 m af brautum. Mjög gott
verð. Til afgreiðslu strax.
Einnig til sölu ný steypusíló, 500 og 750 lítra.
Mót heildverslun,
Sóltúni 24,105 Reykjavík,
símar 511 2300 og 892 9249.
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 18. janúar
kl. 13.00
Fjöruganga á Álftanesi
Bessastaðir — Skansinn —
Skógtjörn o.fl. Ganga fyrir alla.
Brottför frá BS(, austanmegin og
Mörkinni 6.
Þorraganga: Mörkin 6 — Foss-
vogsdalur — Perlan, laugardags-
kvöldið 24. janúar ki. 19.30.
Göngunni lýkur með þorrahlað-
borði í Perlunni (þarf að panta).
Námskeið
Þórhallur Guðmundsson, miðill,
heldur námskeið dagana 24.—
25. janúar frá kl. 10—15 báða
dagana á Suðurlandsbraut 46,
3. hæð, Bláu húsin.
Námskeiðið fjallar um þinn innri
mann, heilun með litum, tónlist
og hugleiðslu. Verð kr. 3.500.
Heitan hádegismat verður hægt
að fá báða dagana, verð kr.
1.200.
Upplýsingar og pantanir verða
mánudaginn 19. janúar frá kl.
13-17 isíma 553 4488.
Lifsaugað.
, KKFASj,
KRISTIÐ SAMFÉLAG
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
U1
H.illvoig.irstíg 1 • simi 561 4330
Sunnudaginn 18. jan.: Fræðslu-
ferð. Farið að Stóra Ármóti
og fræðst um nautgriparækt.
Gengið um tignarlegt landslag
Flóans. Brottför frá BSÍ kl. 10.30.
Heimasfða: centrum.is/utivist
Opið hús
fyrir nemendur
mína i Safamýri
18 mánudags-
kvöldið 19. janúar
kl. 20.00.
• Fræðsla.
• Hugleiðsla.
• Reikimeðferðir.
Guðrún Óladóttir,
reikimeistari,
sími 553 3934.
KENNSLA
Þýskunámskeið Germanfu
hef jast 19. janúar.
Boðið verður upp á byrjenda-
hóp, þrjá framhaldshópa og tvo
talhópa.
Upplýsingar í sima 551 0705
kl. 17-19.30 og 892 4145.
Stjórn Germaniu.
TIL S0LU
Fair-Play-Bingo vörur
Við eigum allt fyrir bingó: Bingó-
spjöld, bingómerki og margar
aðrar vörur.
Hringið f síma 00 298 5 6868.
Fax: 00 298 5 6767.
Farsími 84 333.
Faroe Bingo Export.