Morgunblaðið - 24.02.1998, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998
FRÉTTIR
MORGUNBL.UÐIÐ
Skýrsla fyrir Landsvirkjun og iðnaðarráðuneyti um
virkjanir og ferðamennsku norðan Vatnajökuls
Ráðherra segir ferða-
mennsku og virkjan-
ir geta átt samleið
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra segist telja að þær upplýsing-
ar sem fram koma í skýrslu sem
unnin hefur verið á kostnað Iðnað-
arráðuneytisins og Landsvirkjunar
um áhrif virkjana norðan Vatnajök-
uls á ferðamennsku, gefi til kynna
að ferðamennska og vatnsaflsvirkj-
anir á svæðinu geti átt samleið.
Ráðherrann segist telja líklegt að á
næsta ári þurfl að taka ákvarðanir
um næstu skref sem stigin verða
hér á landi varðandi vatnsaflsvirkj-
anir en þær ákvarðanir geta varðað
virkjanir á svæðinu norðan Vatna-
jökuls.
Þar eru taldir möguleikar á að
virkja 9.100 gígawattsstundir af raf-
orku. Iðnaðarráðherra og Lands-
virkjun kynntu í gær skýrslu þá
sem Anna Dóra Sæþórsdóttir land-
fræðingur hefur unnið að beiðni
Samstarfsnefndar Iðnaðarráðu-
neytisins og Náttúruverndarráðs, á
áhrifum virkjana norðan Vatnajök-
uls á ferðamennsku. Efni skýrsl-
unnar var ítarlega reifað í Morgun-
blaðinu hinn 4. janúar sl.
I skýrslunni sem var unnin frá
vori 1995 þar til sl. sumar er leitast
við að skilgreina ferðamennsku á
efri hluta vatnasvæðis ánna norðan
Vatnajökuls, leitað svara við þróun
ferðamennsku næstu 20 árin eða
svo, hvort og hvernig hægt sé að
stýra þeirri þróun og hvaða áhrif
virkjun hefði á ferðamennsku og
þróun hennar. Vinsælustu ferða-
mannastaðir á svæðinu eru Askja,
Herðubreiðarlindir, Kverkfjöll og
Snæfell. Önnur svæði þar eni mjög
fáfarin.
Niðurstaðan er sú að ef af virkj-
unum yrði myndi svæðið missa
hluta af núverandi sérstöðu og við
það breytist eðli ferðamennskunnar
sem þar er stunduð. Svæðið myndi
höfða til fleiri tegunda ferðamanna
en áður.
Við vinnslu skýrslunnar voru
gerðar tvenns konar kannanir. Ann-
ars vegar voru lagðar spurningar
fyrir erlenda ferðamenn á þessu há-
lendissvæði. Hins vegar var gerð
1.500 manna úrtakskönnun meðal
íslendinga. í hvoru tveggja tilfell-
inu var leitast við að kortleggja
hvernig ferðaþjónustu á svæðinu
væri háttað og hver væri afstaða
ferðafólks til virkjanaframkvæmda
á svæðinu og hver áhrif þeirra á
samsetningu þess hóps sem sækist
eftir dvöl á svæðið.
Stórfelldar veituframkvæmdir
í könnuninni kom m.a. fram að
25% íslendinga hafa ferðast um há-
lendið norðan Vatnajökuls en að
þýðing þess fyrir ferðaþjónustu í
landinu virðist lítil og að um 3%
heildargistináttafjölda í landinu yfir
háannatímann eru vegna ferða-
manna á því svæði. Um helmingur
ferðamanna á svæðinu eru Islend-
ingar og Þjóðverjar. Meirihluti
ferðamanna taldi að uppbygging
orkuveranna hefði neikvæð áhrif á
Island sem ferðamannaland og vildi
halda landinu óbreyttu. Viðhorf fs-
lendinga voru jákvæðari en er-
lendra ferðamanna.
í skýrslunni segir að Virkjunar-
hugmyndir norðan jökulsins geri
ráð fyrir stórfelldum veitufram-
kvæmdum sem hefðu margvíslegar
afleiðingar. Við það að veita vatni úr
Jökulsá á Fjöllum austur til Fljóts-
dals myndi rennsli árinnar minnka
verulega í Dettifossi og Jökulsár-
gljúfrum. Virkjun Jökulsár á Bní
hefði þau áhrif að nánast ekkert
vatn rynni um Dimmugljúfur. Við
virkjun Jökulsár í Fljótsdal með
miðlunarlóni á Eyjabökkum færi
eitt af sérstæðustu gróðurlendum
hálendisins undir vatn.
Vegna virkjunar Jökulsár í Fljóts-
dal yrði raflína lögð um Fljótsdals-
heiði, Jökuldalsheiði og norðurhluta
Ódáðahrauns til Svartárkots. Virkj-
unarframkvæmdum fylgja nýir og
bættir vegir til þeirra staða sem
framkvæmdimar næðu til.
Virkjanaleyfi vegna Jökulsár á
Fljótsdal hefur legið fyrir um ára-
bil, frá því fyrir gildistöku laga um
umhverfisáhrif en undirbúningur
þorra annarra virkjanafram-
kvæmda á svæðinu mun þurfa að
gangast undir mat á umhverfis-
áhrifum.
Ljósmynd/Hjörtur Rúnar Guðmundsson
ÖKUMAÐUR sem var á ferð í Landmannalaugum fyrir rúmum
þremur vikum hefur játað að hafa ekið utan vegar með þeim afleið-
ingum sem hér má sjá.
Játar utanvegarakstur
í Landmannalaugum
Býðst til að lag-
færa rask og
gróðurskemmdir
RANNSÓKN á utanvegarakstri í
Landmannalaugum aðfaranótt
sunnudagsins 1. febrúar er lokið
hjá rannsóknardeild lögi’eglunnar í
Hafnarfirði. Ökumaðurinn hefur
játað að hafa ekið utan vegar og
býðst til að iagfæra skemmdirnar í
samráði við Iandverði og Náttúru-
vernd ríkisins.
Gísli Þorsteinsson rannsóknar-
lögreglumaður segir að ökumaðm-
inn hafi borið að hann hefði talið að
jörð væri frosin en svo hafi ekki
reynst vera og því hafi hann lent í
ógöngum, með þeim afleiðingum að
töluverð landspjöll urðu á þessum
heimsþekkta ferðamannastað.
Ljóst sé að um óhapp hafi verið að
ræða en ekki sé hægt að sanna
hvort hann hafi verið ölvaður eður
ei en sjálfur neitar maðurinn því al-
farið.
Gísli segir enn ekki ljóst hvort
gripið verði til sektarákvæða eða
hvort látið verði duga að maðurinn
lagfæri sjálfur skemmdirnar sem
hann varð valdur að í Landmanna-
laugum.
Hver fugl á sinn matseðil
Samgönguráðherra vill færa
fjárveitingar milli verkefna
Fjármagn
til Gullin-
brúar tryggt
NÚ, þegar biðin eftir skíðafæri
hefur Ioks tekið enda, er rétt að
minna á að um leið gerist fæðis-
leit smáfuglanna erfiðari.
Aflögufærir ættu því að Iétta
þeim lífið og nýta ýmsa matar-
afganga sem fuglafóður.
I kuldanum kemur steikarfita
sér vel því hún veitir mikla
orku en annars má segja að
hver fugl eigi sér uppáhalds-
rétt. Það eru helst snjótittlingar
sem vilja maísfóður, þrestir
vilja frekar bita af epli og
hrafnar vilja kjöt en reyndar
má segja að flestir mataraf-
gangar komi í góðar þarfír.
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra telur að hægt sé að tryggja
fjármagn til breikkunar Gullinbrúar
með því að setja fjármagn, sem átti
að fara í byggingu mis-
lægra gatnamóta á
mörkum Skeiðarvogs
og Miklubrautar, í Gull-
inbrú. Ekki þurfi því að
koma til lántöku frá
Reykjavíkurborg.
Halldór sagðist hafa
lýst því yfir á fundi með
Guðrúnu Ágústsdóttur,
forseta borgarstjóra, í
Grafarvogshverfi fyrir
skömmu að hann myndi
leita lausnar á þessu
máli. „í framhaldi af
því ræddi ég þetta við
aðstoðarvegamála-
stjóra og vegamála-
stjóra og ég sé ekki
betur en hún sé fundin.
Þetta er lausn sem ég held að allir
geti vel við unað og ekki þurfí að
koma til lántöku frá Reykjavíkur-
borg vegna verksins."
Undirbúningi framkvæmda
ekki lokið
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri í Reykjavík, lýsti
stuðningi við þá hugmynd að nota
fjármagn, sem átti að fara í bygg-
ingu mislægra gatnamóta á mörk-
um Skeiðarvogs og Miklubrautar, í
breikkun Gullinbrúar. Hún benti á í
bréfi til samgönguráð-
herra í síðustu viku að
þessi framkvæmd yrði
ekki tilbúin í útboð
fyrr en í haust og því
væri eðlilegt að byrja
íyrst á Gullinbrú.
Halldór sagði að
borgarstjórinn í
Reykjavík hefði lýst
því yfir sama dag og
fundurinn í Grafarvogi
var haldinn, að
Reykj avíkurborg
myndi hefja fram-
kvæmdir upp á eigin
spýtur eftir hálfan
mánuð ef ríkisvaldið
hefði ekki veitt borg-
inni heimild til að hefja
framkvæmdir. Nú benti hins vegar
flest til að það væri nokkuð í að
framkvæmdir gætu hafist, sem
þýddi að undirbúningur hefði ekki
verið kominn eins langt og borgar-
stjóri hefði gefið í skyn.
Halldór sagði að rætt væri um að
skipta framkvæmdum við Gullinbrú
í tvennt. Byrjað yrði á verkinu í ár
og því lokið á næsta ári.
Sjálfstæðisflokk-
urinn Garðabæ
Ingimund-
ur leiðir
listann
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfé-
laganna í Garðabæ samþykkti í
gærkvöldi samhljóða tillögu upp-
stillingarnefndar um skipan fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjómarkosningunum í vor.
Uppstillingarnefnd var falið að
gera tillögu um listann eftir að
ákveðið var að hætta við prófkjör.
Framboðslistinn er þannig skip-
aður:
1. Ingimundur Sigurpálsson bæj-
arstjóri, 2. Laufey Jóhannsdóttir
bæjarfulltrúi, 3. Ingibjörg Hauks-
dóttir hjúkrunarfræðingur, 4. Erl-
ing Ásgeirsson bæjarfulltrúi, 5.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, starfs-
maður Garðalundi, 6. Sigurður
Guðmundsson lögmaður, 7. Ingi-
björg Lind Karlsdóttir blaðamað-
ur, 8. María Grétarsdóttir við-
skiptafræðingur, 9. Guðmundur
Guðmundsson verkfræðingur, 10.
Guðný Gunnsteinsdóttir sjúkra-
þjálfari, 11. Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri ÍSÍ, 12. Hauk-
ur Alfreðsson rekstrarverkfræð-
ingur, 13. Einar Guðmundsson
flugvélstjóri, 14. Benedikt Sveins-
son hæstaréttarlögmaður.
Benedikt Sveinsson og Sigrún
Gísladóttir skólastjóri hætta í bæj-
arstjórn í vor. Ingimundur Sigur-
pálsson hefur verið bæjarstjóri í
Garðabæ í 11 ár, en hefur ekki áð-
ur verið á framboðslista Sjálfstæð-
isflokksins í bænum. Flokkurinn
er með fjóra bæjarfulltrúa í bæjar-
stjórn og með meirihluta.
Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra